Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.2010, Síða 72

Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.2010, Síða 72
Eins og flestum ætti að vera kunn- ugt á RÚV sýningarréttinn að HM í sumar og mun sýna 46 leiki af 64 í beinni útsendingu. Stöð 2 Sport 2 sýnir hins vegar 18 leiki í beinni. Miðað við auglýsingaherferð Sport 2, undir yfirskriftinni „Við tökum HM alla leið“ mætti ætla að þessu væri öfugt farið. Staðreyndin er sú að allir leikir sem Sport 2 sýnir beint eru úr riðlakeppninni en hinir leikirnir verða endursýndir eftir að hafa verið í beinni í opinni dagskrá á RÚV. Eyjubloggar- inn Friðrik Frið- riksson hefur gagnrýnt þetta og segir að verið sé að plata áskrif- endur. Sögulegur laugardagur! „Við tökum Hm alla leið“ Afgreiðslutími: Mán. til fös. 10-18 og lau. 12-16 Lokað laugardaga í júlí Apple búðin Sími 512 1300 Laugavegi 182 www.epli.is 27” 3,06GHz Intel Core 2 Duo 2560 x 1440 dílar; milljónir lita; IPS-tækni 4GB 1066MHz DDR3 SDRAM 1TB Serial ATA, 7200 rpm Harður diskur ATI Radeon HD 4670 með 256MB af GDDR3 skjáminni Innbyggð iSight vefmyndavél (1,3MP upplausn) Fjögur USB 2.0 Eitt FireWire 800 SD-kortarauf Innbyggt Airport Extreme (802.11n) Innbyggt Bluetooth 2.1 + EDR Þráðlaust íslenskt lyklaborð og þráðlaus Magic Mouse 21,5” verð frá: 249.990,- kr iMac 21,5” og 27” LED baklýstur skjár Full HD upplausn Þráðlaust lyklaborð og mús iLife ‘09 og Snow Leopard Engir vírusar Horfðu á HM 2010 í Apple tölvunni þinni með Apple Með fyrirvara um prentvillur og verðbreytingar. Tilboð gilda til 11. júli 2010, eða meðan birgðir endast. Horfðu á HM 2010 í Apple tölvunni þinni Elgato EyeTv hybrid sjónvarpsmóttakari HM 2010 TILBOÐ HM verð: 25.990,- Listaverð: 28.990,- Öllum 27” iMac fylgir EyeTV sjónvarpsmóttakari fram yfir HM í fótbolta 2010 iMark! MacBook 13” 2,26GHz Intel Core 2 Duo 2GB innra minni 250GB harður diskur NVIDIA GeForce 9400M 256MB skjástýring Innbyggð iSight vefmyndavél Tvö USB 2.0 tengi Þráðlaust WiFi netkort (801.11n), Bluetooth Allt að 7 klst rafhlöðu ending Aðeins 2.13 kg Verð: 199.990 kr. Tilboð: 189.990,- kr.* n Mikil spenna ríkir vegna komandi borgarstjórnarkosninga og harðn- ar slagurinn með hverjum degin- um. Í nýjasta tölublaði Monitors svara oddvitar flokkanna nokkr- um spurningum, meðal annars hvort þeir hafi lent í slagsmálum. Jón Gnarr, oddviti Besta flokksins, segist hafa verið sleginn en aldrei slegið til baka. Dagur B. Eggertsson var laminn fyrsta daginn í Árbæjar- skóla, Einar Skúlason meiddist einu sinni töluvert í Þórsmörk þegar hann ætlaði að stöðva slagsmál og Ólafur F. Magnússon handleggsbrotnaði í slagsmálum við vin sinn. Hanna Birna Kristjánsdótt- ir er sú eina af oddvitunum sem aldrei segist hafa slegist. OddVitar í slagsmálum n Árni Páll Árnason, félags- og tryggingamálaráðherra, stundar hot jóga af fullum krafti sér til heilsu- bótar. Mikið hefur mætt á ráðherr- anum að undanförnu við að leysa úr skuldavandamálum heimila landsins og ekki ólíklegt að það taki aðeins á taugarnar. Vinsældir hot jóga aukast stöðugt en um er að ræða ákveðna teg- und af jóga sem stunduð er í herbergi þar sem hitinn er um 37 gráður. Á miðvikudag mætti Árni í tíma í World Class á Seltjarn- arnesi og segja kunnugir að ráð- herrann hafi stað- ið sig vel. ráðHerra í HOt jóga DV borgar 2.500 krónur fyrir fréttaskot sem leiðir til fréttar. Fyrir fréttaskot sem verður aðalfrétt á forsíðu greiðast 25.000 krónur. Fyrir besta fréttaskot vikunnar greiðast allt að 50.000 krónur. Alls eru greiddar 100.000 krónur fyrir besta fréttaskot hvers mánaðar. Áskriftarsíminn er 512 70 80 Fréttaskot 512 70 70 sólarupprás 03:34 sólsetur 23:18 „Ég er búinn að skipuleggja hverja mín- útu,“ segir Eurovision-kóngurinn Páll Óskar Hjálmtýsson um laugardaginn en þá fara fram sveitarstjórnarkosningar og úrslit Eurovision. Páll Óskar segist sann- færður um að Hera Björk, fulltrúi Íslands í keppninni, og Jón Gnarr, oddviti Besta flokksins, verði sigurvegarar dagsins. „Ég ætla að kjósa Besta flokkinn og svo get ég líka lofað því að Hera mun strax blanda sér í baráttuna um efstu sætin. Þetta verður einstakur dagur í sögu íslensku þjóðarinnar,“ segir Páll Óskar. En mun Hera Björk vinna Euro- vision? „Ég veit ekki alveg hver er að fara að vinna en ég held að sæti gaurinn frá Ísrael sé kandídat í sigurvegara. Það er Hera Björk líka,“ segir Páll sem er ákaf- lega hrifinn af Heru. „Hera hefur briller- að í öllum viðtölum og verið almennileg við aðdáendur. Um leið og þau stigu út úr flugvélinni í Ósló var keppnin byrjuð,“ segir Páll. Hann segist ætla að horfa á keppnina í góðra vina hópi heima hjá sér. „Ég mun vafalaust gera kjúklingasalat og hafa það gott.“ Hann mun svo halda uppi dúndr- andi Eurovision-stemningu á Nasa síðar um kvöldið þar sem ýmsir gestasöngv- arar koma fram, meðal annarra Jógvan Hansen. „Það vita það ekki margir að Jógvan spilar líka á fiðlu. Ég hef séð hann taka norska sigurlagið frá því í fyrra í nef- ið og hann mun gera allt vitlaust,“ segir hann. einar@dv.is Páll Óskar segir laugardaginn verða einstakan: Hera Og jón gnarr sigra Spenntur Páll Óskar er viss um að Hera nái langt í keppninni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.