Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.2010, Blaðsíða 6
björgólfur og afi
n Tíðindin af því hversu mjög Björg-
ólfurThor lagði upp úr því að halda
húsinu á Fríkirkjuvegi 11 minna
nokkuð á aðra
sögu sem tengist
eignum langafa
hans, ThorsJen-
sen. Skrifað hefur
verið um það að
Björgólfur hafi
slegið eign sinni á
gamalt skrifborð
sem Thor Jensen
átti af skrifstofum Eimskipa félagsins
eftir að fjárfestirinn eignaðist skipa-
félagið. Björgólfur réttlætti gjörðir
sínar með því að segja: „Hann var
afi minn!“ og þótti það víst nægjan-
leg réttlæting fyrir því að hann tæki
skrifborðið. Nú hefur Björgólfur enn
og aftur sýnt hvað honum er mikið í
mun að halda í eigur afa síns.
réð mann björgólfs
n Ein áhugaverð frétt í vikunni sem
ekki fór hátt var ráðning OrraHauks-
sonar, fyrrverandi aðstoðarmanns
DavíðsOdds-
sonar og náins
samstarfsmanns
BjörgólfsThors,
í stöðu fram-
kvæmdastjóra
Samtaka iðnað-
arins. Björgólf-
ur Thor á ennþá
mikilla hags-
muna að gæta í ýmsum fyrirtækj-
um hér á landi, svo sem eins og CCP,
Nova og gagnaveri Verne Holdings.
Eflaust hafa einhverjir hugsað sem
svo að ákveðin hætta skapaðist á því
að Orri hygldi sínum gamla vinnu-
veitanda og vini í framkvæmdastjóra-
stöðunni enda eru þeir félagarnir
nánir eins og myndir sem DV hefur
birt sýna.
Pr-guðinn róbert
n Fréttir DV af málefnum Róberts
Wessmann og Háskólans í Reykjavík
vöktu athygli í vikunni. Samkvæmt
þeim hyggst Ró-
bert ekki greiða
skólanum til fulls
þann milljarð
króna sem hann
hét honum árið
2007. Róbert hlaut
mikið lof fyrir
„gjöfina“ í fjöl-
miðlum og keppt-
ust menn við að lofa hann fyrir fram-
takið og kölluðu hann „góðjöfur“.
Hins vegar var minna talað um það
að Róbert varð hluthafi í skólanum
fyrir vikið og var gerður að formanni
háskólaráðs. Því var það alls ekki svo
að Róbert fengi ekkert fyrir sinn snúð.
Ljóst er af tíðindum vikunnar að
sjaldan hefur einn maður búið til eins
vel smurða og áhrifaríka PR-aðgerð
og þessa „gjöf“ Róberts.
Vonbrigði sVöfu
n Sú sem hóf RóbertWessmann til
vegs og virðingar innan Háskólans í
Reykjavík var rektor skólans, Svafa
Grönfeldt. Svafa
og Róbert höfðu
starfað sam-
an hjá Actavis
þar sem Róbert
var yfirmaður
hennar. Svafa
var hins vegar
ekki lengi að fá
Róbert til liðs við
skólann til að styðja áframhaldandi
uppbyggingu hans á árunum fyrir
hrunið. Svafa mun hafa orðið leið á
því að stýra skólanum vegna þess að
hún taldi að það líktist því meira að
stýra fyrirtæki á markaði. Og þegar
við bættist að veruleg hætta var á
því að hún yrði tekin fyrir í skýrslu
rannsóknarnefndar Alþingis vegna
setu sinnar í bankaráði Landsbank-
ans mun Svafa hafa forðað sér úr
skólanum. Nú er Svafa aftur kominn
í lyfjabransann með Róberti enda
mun henni ekki hafa þótt spennandi
að stýra góðærisskóla eins og HR í
kreppu. Svafa er því aftur komin á
sinn heimavöll.
sandkorn
6 fréttir 23. júlí 2010 föstudagur
BjörgólfurThorBjörgólfsson verður áfram eigandi Fríkirkjuvegar 11 í kjölfar skulda-
uppgjörs við lánardrottna. Lánardrottnar hans hafa hins vegar leyst til sín aðrar fast-
eignir í hans eigu hér á landi, meðal annars hús við Fjölnisveg og sumarhús á Þing-
völlum. Talsmaður Björgólfs segir að fjárfestirinn hafi lagt mikla áherslu á að halda
húsinu við Fríkirkjuveg en langafi hans byggði það fyrir rúmum 100 árum.
SAMDI UM AÐ HALDA
FRÍKIRKJUVEGI 11
Björgólfur Thor Björgólfsson samdi
um það í skuldauppgjörinu við lán-
ardrottna sína að hann fengi að
halda húsi langafa síns, Thors Jen-
sen, á Fríkirkjuvegi 11. Á sama tíma
hafa lánardrottnar hans leyst til
sín hús sem Björgólfur Thor á við
Fjölnisveg auk þriggja sumarhúsa
á Þingvöllum. Þetta segir Ragnhild-
ur Sverrisdóttir, talsmaður Novators
fjárfestingarfélags Björgólfs Thors.
„Húsið við Fjölnisveg er núna farið
og sömuleiðis sumarhús á Þingvöll-
um,“ segir hún.
Björgólfur keypti húsið af Reykja-
víkurborg á 650 milljónir króna í maí
árið 2008. Ragnhildur segir að öf-
ugt við hinar húseignirnar sé Björ-
gólfur ennþá eigandi að Fríkirkju-
vegi11 á meðan lánardrottnar hafi
leyst hinar eignirnar til sín um miðja
vikuna. „Björgólfur er ennþá skráð-
ur eigandi Fríkirkjuvegar 11. Það er
veðsett mjög mikið, eiginlega upp
í rjáfur eins og maður segir gjarnan
um hús,“ segir Ragnhildur en líkt og
DV hefur greint frá hvíla fimm veð-
skuldabréf að upphæð samtals 250
milljónir króna á húsinu samkvæmt
ársreikningi félagsins sem á húsið,
Novator F11.
Novator F11 er svo aftur í eigu
eignarhaldsfélagsins Novator ehf.
Novator ehf. er svo í eigu eignar-
haldsfélagsins BeeTeeBee Ltd. sem
skráð er á Bresku Jómfrúaeyjum.
Því má segja að Fríkirkjuvegur 11 sé
í eigu félags á Bresku Jómfrúaeyjum.
Reyntaðléttaveðunumaf
húsinu
Ragnhildur segir að Björgólfur hafi
lagt mikla áherslu á að halda hús-
inu á Fríkirkjuvegi 11 og muni leggja
alla áherslu á að borga upp skuld-
irnar sem á því hvíla. „Hann lagði
mikla áherslu á að halda húsinu og
mun leggja alla áherslu á að borga
upp skuldirnar á því og gera það
veðbandalaust í komandi framtíð.
Þetta er hundrað ára gamalt hús og
getur alveg beðið í nokkur ár. Hann
segir það sjálfur að hann verði ekki í
rónni fyrr en hann verði búinn að af-
létta þessum veðum og borga þess-
ar skuldir og fari að sinna þessu húsi
með sóma,“ segir Ragnhildur og bæt-
ir því við að uppgjör skuldanna á
húsinu sé hluti af heildaruppgjörinu
sem hann hafi gert við lánardrottna
sína. Hún segir að veðunum verði
aflétt af húsinu þegar lánardrottnar
Björgólfs meti það svo að hann hafi
borgað upp áhvílandi skuldir.
Hluti af ástæðunni fyrir því af
hverju Björgólfi er svo mikilvægt
að halda húsinu er ábyggilega sá að
langafi hans, Thor Jensen, byggði
húsið í upphafi síðustu aldar og bjó
þar um árabil ásamt langömmu
Björgólfs, Margréti Þorbjörgu. Húsið
gæti því haft mikið gildi fyrir Björgólf
vegna þessa.
Eitt sem styrkir þessa túlkun er
að Björgólfur greiddi margfalt yf-
irverð fyrir húsið á sínum tíma og
getur nær örugglega ekki selt húsið
fyrir þær nokkur hundruð milljón-
ir króna sem hvíla á því vegna þess
að enginn kaupandi myndi finnast.
Lánardrottnar hans eru því eiginlega
í þeirri stöðu að geta ekki annað en
tapað ef þeir taka húsið af Björgólfi
og selja það á markaði. Hagsmun-
ir þeirra felast því í því að Björgólf-
ur greiði þær himinháu skuldir sem
hvíla á húsinu.
Safnverðiíhúsinu
Talsmaður Björgólfs segir að Björ-
gólfur vilji að í framtíðinni verði safn
í húsinu á Fríkirkjuvegi, líkt og ráð-
gert hefur verið, en Björgólfur get-
ur ekki selt húsið eða ráðstafað því
á nokkurn annan hátt fyrr en hann
hefur gert upp við lánardrottna sína
sem eiga veð í því. „Hann leggur mik-
ið upp úr því að í framtíðinni verði sú
starfsemi í húsinu sem hann vill sjá
þar, safn og annað slíkt. En þetta þarf
að bíða. Húsið stendur aftur á móti
ekki autt á meðan. Í húsinu hefur
verið nýsköpunarnám, Listaháskól-
inn hefur kennt í húsinu, Listahá-
tíð barna var þarna í vor þannig að
það er reynt að finna hin og þessi
góð verkefni sem fá þarna inni,“ seg-
ir Ragnhildur en af máli hennar að
dæma mun Fríkirkjuvegur 11 sitja
nokkuð á hakanum á forgangslista
Björgólfs á meðan hann ræður fram
úr öðrum málum sínum.
inGif.vilHJálmSSOn
fréttastjóri skrifar: ingi@dv.is
Hann segir það sjálfur að hann
verði ekki í rónni fyrr en
hann verði búinn að af-
létta þessum veðum.
EkkifríkirkjuvegurinnFríkirkjuvegur-
innverðuráframíeiguBjörgólfsThorsá
meðanlánardrottnarhanshafaleysttilsín
aðrarfasteignirsemeruíhanseigu,meðal
annarshúsviðFjölnisvegogsumarhúsá
Þingvöllum.
vildihaldahúsilangafaLangafiBjörgólfs,
ThorJensen,byggðihúsiðáFríkirkjuvegi11á
árunum1907-1908.RagnhildursegirBjörgólf
hafalagtmiklaáhersluáaðhaldaþeirrieign.
Samstarfsnefnd Garðabæjar og
Álftaness vegna hugsanlegrar sam-
einingar sveitarfélaganna hefur verið
skipuð og kom saman til fyrsta fund-
ar þann 15. júlí. Þar eiga þrír fulltrú-
ar sæti fyrir hönd Garðabæjar og þrír
frá Álftanesi.
Frá Garðabæ eiga þar sæti Erling
Ásgeirsson, sem var kjörinn formað-
ur nefndarinnar, Stefán Snær Kon-
ráðsson og María Grétarsdóttir. Frá
Álftanesi tóku sæti í nefndinni Snorri
Finnlaugsson, Kjartan Örn Sigurðs-
son og Einar Karl Birgisson. Nefndin
kemur aftur saman í ágúst og hefur
óskað eftir því að fulltrúi samgöngu-
ráðuneytisins verði þar viðstaddur.
Boðað var til aukabæjarstjórnar-
fundar í Garðabæ í byrjun mánað-
arins þar sem erindi Álftaness um
sameiningarviðræður var tekið fyr-
ir. Þar var sett fram sú krafa af hálfu
bæjarfulltrúa í Garðabæ að greitt
yrði úr fjárhagsvanda Álftaness eins
og kostur væri. Þar væri mikilvægt
að ríkisvaldið kæmi að málinu. Þá sé
nauðsynlegt að setja verkefninu eðli-
leg tímamörk. Á fundinum í ágúst
verður rætt hvort jöfnunarsjóður geti
komið að málinu.
Eftirlitsnefnd um fjármál sveitar-
félaga hefur haft rekstur Álftaness í
gjörgæslu frá áramótum og er unn-
ið hörðum höndum að fjárhagslegri
endurskipulagningu þess. Til stend-
ur að Ríkisendurskoðun kynni úttekt
á rekstri sveitarfélagsins nú í þess-
um mánuði. Hana átti upphaflega
að kynna í júní. Drög að efni skýrsl-
unnar hafa verið send öllum helstu
hagsmunaaðilum sem málið varða. Í
skýrslunni er meðal annars farið yfir
hvort fjárhagsvanda sveitarfélags-
ins megi rekja til ákvarðana innan
stjórnsýslunnar.
Erling Ásgeirsson, formaður bæj-
arráðs, segir erindið um sameining-
arviðræður hafa verið samþykkt með
öllum greiddum atkvæðum í bæj-
arstjórn og að mikill einhugur hafi
verið meðal bæjarfulltrúa um að
hefja viðræður. Fulltrúar Garðabæj-
ar gangi að fullum heilindum til við-
ræðnanna en vilji einnig sjá að ríkis-
valdið komi að málefnum Álftaness.
rhb@dv.is
Garðbæingar samþykkja að hefja sameiningarviðræður við Álftanes:
Viljaaðkomuríkisvaldsins
SkuldameiraenGarðbæingarÞráttfyriraðÁlftnesingarséuaðeinsfjórðunguraf
íbúafjöldaGarðabæjarerheildarskuldþeirrahærri.