Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.2010, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.2010, Blaðsíða 27
„Ég bara hef ekki skoðun á því.“ TeiTur Hafþórsson 28 ára bílstjóri „já, mér finnst það.“ María sigurðardóTTir 36 ára starfar erlendis „að sjálfsögðu. Viljum við ekki öll veiða rækju?“ Baldur Björnsson 19 ára nemi „já, ég styð það alveg heilshugar.“ svavar sMárason 42 ára, Hlöllakallinn „Ég hef ekki kynnt mér þetta nægilega til að geta varað þessu með ábyrgum hætti.“ þórdís elva BacHMan 29 ára leikskáld Viltu að rækjuVeiðar Verði gefnar frjálsar? nonni QuesT hársnyrtir safnar nú afklipptu hári til að aðstoða við hreinsun vegna olíulekans í mexíkóflóa. nóg er til af hári en það vantar hjálp við að koma því út. Hárið bjargar Heiminum Í fyrsta sinn í nútímasögu eru fleiri milljarðamæringar í Asíu en í Evr- ópu. Hryðjuverkin, fjármálakrepp- an, slakt gengi Evrópu á HM; Allt eru þetta vísbendingar um að þungamiðja heimsins sé að færast austur. Á G20-fundinum í Toronto reyna hvítir menn (þó með Obama í broddi fylkingar) að fá Kínverja til að hækka gengi yuansins, en viður- kenna þó að það sé of seint að segja þeim að gera eitt eða neitt. Nú eru það þeir sem ráða ferðinni. Jafnvel á Íslandi sjáum við merki um þessa þróun. Kínverjar eru hér með stærsta sendiráðið og veita stærstu lánin. Að mörgu leyti eru þeir nú í sömu stöðu og Bandaríkin voru í eftir stríð, geta keypt sér vini ódýrt á meðan Evrópa liggur í mol- um. evrópa fallin, norðurlönd rísa Það eru þó ekki allir Evrópubú- ar jafn illa staddir. Skandínavar pluma sig almennt vel og engir bet- ur en Norðmenn. Þetta hefur einn- ig sína galla. Af tíu dýrustu borgum í heimi eru fjórar í Japan en þrjár, Ósló, Kaupmannahöfn og olíubær- inn Stafangur, eru á Norðurlönd- unum. Ósló var í 8. sæti í fyrra, en hefur nú færst upp í annað sætið þar sem aðgerðir stjórnvalda þar í bæ styrktu krónuna. Reykjavík var eitt sinn hátt á slík- um listum, en sést þar varla leng- ur. Þetta ættu að vera góðar fréttir fyrir Reykvíkinga, eða hvað? Varla. Ástæða þess að Reykjavík telst nú ódýrari er eingöngu vegna gengis- breytinga, ekki vegna verðlækkana. Verð hefur þvert á móti hækkað og það hefur aldrei verið dýrara fyrir innfædda að búa þar. ódýrt en samt dýrt Ástæðan fyrir þessu er einföld. Hún felst í skorti á samkeppni. Þetta er ástæðan fyrir því að allt hækk- ar í hvert sinn sem krónan veikist en lækkar síðan aldrei þegar hún styrkist á ný. En þetta sést einnig víðar. Margir Íslendingar sem koma heim frá Tókíó, sem löngum hefur verið þekkt sem ein dýrasta borg í heimi, segja að þeim finnist ekki svo dýrt þar. Samkvæmt stuðli ESA kostar meðalmáltíð þar á veitinga- stað eitthvað um 17 dollara, eða í kringum 2.000 krónur. Þetta finnst meðal Íslendingi ekkert átakanlega dýrt. Vandamálið við meðaltöl er það að á Íslandi eru frávikin sárafá. Meðalverðið á hádegismat er ein- mitt eitthvað í kringum 2.000 krón- ur, og það er erfitt að finna eitthvað sem er mikið ódýrara, að minnsta kosti fyrir neðan 1.500. Það sama gildir um bjór, og þó að Bónus og Krónan séu ódýrari en aðrar mat- vörubúðir eru þær samt dýrar. Jafn- vel í Ósló er hægt að fara í innflytj- endahverfi eins og Grönland, eða í stúdentahverfi eins og Bislett, þar sem allt er mun ódýrara en á aðal- götunni Karl-Johann. einn verðflokkur á íslandi Á Íslandi er aðeins einn verðflokk- ur, og hann er dýr. Reykjavík hefur kannski ekki dýrustu veitingastaði í heimi, en bilið á milli hinna dýr- ustu og ódýrustu er sáralítið, tvöfalt eða þrefalt í mesta lagi. Því er ekki að undra að það séu fyrst og fremst útlendingar sem fylla veitingahús- in á sumrin. Hitt vandamálið okkar er það að við erum föst á eyju, og því er ekki hægt að fara neitt annað að versla. Norðmennirnir fara yfir til Svíþjóðar, Svíarnir til Þýskalands og Þjóðverjarnir til Póllands. Við eyjarskeggjar búum ekki við slík- an munað, því verðum við að bæta okkur það upp með ströngum sam- keppnisreglum. En þar sem við höfum þær ekki er Reykjavík líklega enn ein dýrasta borg í heimi til að búa í. Að minnsta kosti ef maður er á íslenskum launum. Dýrasta borg í heimi myndin Hver er maðurinn? „nonni Quest, eigandi hárgreiðslustof- unnar krista/Quest í kringlunni.“ Hvar ertu uppalinn? „í reykjavík.“ Hvað drífur þig áfram? „Það er bara vinnan sem er mitt áhuga- mál. Það eru ekki margir sem njóta þeirra forréttinda að vinna við áhugamálið sitt og hlakka til þess að vakna í vinnuna. svo auðvitað fjölskyldan.“ Hvar vildirðu helst búa ef ekki á íslandi? „Ég er svolítið heillaður af seattle núna og væri til í að prófa að búa þar.“ Hvað borðarðu í morgunmat? „Pínulítið brawn-flakes, Cheerios og sólskinsmúslí í skál. svo auðvitað kaffi.“ Hvernig kom þessi hársöfnun til? „Ég á svo marga vini og kollega í bandaríkjunum og þeir voru að pósta svo mikið um þetta á facebook, hvernig hár gæti hjálpað til við olíulekann stóra. Ég stökk því á þetta enda hafði mig lengi langað að gera eitthvað við þetta afklippta hár. Hárið drekkur olíuna svo mikið í sig. svona getur hárið bjargað heiminum.“ Hvernig hefur söfnunin gengið? „mjög vel. eins og er eru tvær stofur í söfnun og við erum að leggja fyrir hár. Við erum búin að fylla risastóran kassa og erum byrjuð á öðrum. fólk tekur vel í þetta, bæði fastakúnnarnir og svo er fólk að koma til okkar út af þessu. fólki líður vel að geta gert eitthvað gott.“ er búið að senda skammt frá íslandi? „ekki enn. Það eru öll vöruhús full úti og við erum bara að bíða eftir grænu ljósi á að senda út. eina sem okkur vantar er hjálp frá einhverju af þessum flutninga- fyrirtækjum hérna heima til að koma hárinu út. Það er vonandi að einhver sem les þetta geti hjálpað okkur við það.“ maður dagsins dómstóll götunnar kjallari föstudagur 23. júlí 2010 umræða 27 „Á Íslandi er aðeins einn verðflokkur, og hann er dýr.“ valur gunnarsson rithöfundur skrifar Kátir skotar stuðningsmenn skoska knattspyrnuliðsins motherwell komu til íslands til að fylgjast með sínum mönnum. liðið atti kappi við breiðablik í evrópukeppninni í fótbolta á fimmtudag og fór með sigur af hólmi, 1–0. Mynd sigTryggur ari.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.