Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.2010, Side 15
Hún sagði af sér eftir umræðu um
1.700 milljóna króna skuld félags í
eigu eiginmanns hennar við Kaup-
þing. Þorgerður var menntamála-
ráðherra þegar bankarnir hrundu.
Guðlaugur stóð af sér veðrið
Auk þessa var hávær krafa uppi um
að Guðlaugur Þór Þórðarson, þing-
maður Sjálfstæðisflokksins, myndi
segja af sér vegna tuttugu og fimm
milljóna króna styrkja sem hann
fékk í sinn hlut í prófkjörsbaráttu.
Hann ákvað, ólíkt Steinunni Val-
dísi, að halda sæti sínu á þingi.
Í apríl lagði Hreyfingin fram
lista yfir tólf þingmenn sem hún
taldi rétt að segðu af sér í ljósi
niðurstöðu rannsóknarnefndar-
innar. Þingmennirnir voru allir í
Sjálfstæðisflokknum og Samfylk-
ingunni og sátu flestir í ríkisstjórn
þegar bankarnir hrundu. Níu
þeirra sitja enn á þingi. Steinunn
Valdís er eini þingmaðurinn sem
hefur sagt af sér þingmennsku
ótímabundið.
föstudagur 23. júlí 2010 fréttir 15
Fallnir þingmenn
boða endurkomu
Á meðan menn hafa góða menntun og heilsu eru alltaf tækifæri.
Illugi Gunnarsson, fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins:
„Er bæði með ágætis menntun og góða heilsu“
Bíður niðurstöðu
þingmannanefndar
Björgvin G. Sigurðsson, fyrrverandi
viðskiptaráðherra og þingmað-
ur Samfylkingarinnar, segist verða
utan þings á meðan þingmanna-
nefnd vinni úr skýrslu rannsóknar-
nefndar Alþingis á því sem snúi að
störfum þeirra sem voru í ríkisstjórn
á tímum bankahrunsins og mögu-
legri ráðherraábyrgð. „Þannig að
staða mín er óbreytt. Mín staða skýr-
ist þegar þingmannanefndin hefur
lokið sínum störfum,“ segir Björgvin
en ætla má að nefndin skili niður-
stöðu um störf ráðherrans fyrrver-
andi nú í haust.
Að öðru leyti vísar Björgvin í þá
yfirlýsingu sem hann sendi fjölmiðl-
um þegar hann sagði af sér þann 16.
apríl og þær ástæður sem hann gaf
upp fyrir afsögninni þar. Þá sagði
Björgvin að vera hans á Alþingi gæti
truflað störf þingmannanefndarinn-
ar. Því hefði honum þótt rétt að víkja.
Í orðum Björgvins nú kemur hins
vegar skýrt fram að hann gerir ráð
fyrir að vera utan þings á meðan
þingmannanefndin vinni úr skýrslu
rannsóknarnefndarinnar. Komi já-
kvæð niðurstaða út úr þeirri vinnu
í haust má því áætla að Björgvin
íhugi alvarlega að taka aftur sæti á
Alþingi.
Áður hefur DV greint frá því að
Björgvin telji sig hafa verið svikinn
af forystu Samfylkingarinnar. Þar
hafi verið lagt að honum að segja af
sér. Björgvin hafi verið látinn taka
á sig höggið vegna bankahrunsins,
hann sé nú tekjulaus og smáður.
Steinunn Valdís Óskarsdóttir, fyrrverandi þingmaður
Samfylkingarinnar:
Tekst á við annað
„Þetta var orðið ágætt. Það var
kominn tími til þess að takast á við
annað í lífinu,“ segir Steinunn Val-
dís Óskarsdóttir, fyrrverandi þing-
maður Samfylkingarinnar.
Steinunn Valdís sagði af sér
þingmennsku í lok maí. Þar með
lauk þátttöku hennar í íslensk-
um stjórnmálum í bili eftir að hún
hafði verið virkur þátttakandi í
þeim í um sextán ár. Pólitískur fer-
ill hennar hófst þegar hún tók sæti
í borgarstjórn Reykjavíkur árið
1994. Árið 2004 varð hún borgar-
stjóri í Reykjavík og gegndi þeirri
stöðu fram til ársins 2006. Árið
2007 var hún kjörin á þing fyrir
Samfylkinguna.
Steinunn Valdís segist hafa
notið þess að vera með fjölskyld-
unni frá því hún hætti á Alþingi.
Hún hafi meðal annars getað
sinnt viðhaldi á húsi sínu og garð-
inum heima hjá sér. Hún segist
hafa gengið frá skrifstofunni sinni
og pakkað saman í kassa eftir að
hún hætti. Hún segir að þar hafi
ýmis legt safnast fyrir eins og bú-
ast megi við eftir sextán ára stjórn-
málaþátttöku. Hún er nú meðal
umsækjenda um bæjarstjórastól-
inn á Akranesi. Búast má við því
að ákvörðun um hver verði ráðinn
bæjarstjóri liggi fyrir í byrjun ág-
úst.
Steinunn segir það hafa verið
viðbrigði að hætta í annasömu
starfi. Þegar hún er spurð út í það
hvort hún hafi eitthvað á prjón-
unum fyrir næsta haust annað en
umsóknina um stöðu bæjarstjóra
segir Steinunn svo ekki vera. Hún
segir ekki koma til greina í augna-
blikinu að snúa aftur í stjórnmálin.
Björgvin G. Sigurðsson,
fyrrverandi viðskipta-
ráðherra:
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, fyrr-
verandi varaformaður Sjálfstæðis-
flokksins, hefur boðað að hún hyggist
taka sæti aftur á þingi í haust. Í viðtali
við Pressuna í byrjun þessa mánaðar
sagðist Þorgerður gera sér grein fyr-
ir því að ákvörðunin gæti mætt and-
stöðu. „Já, ég geri ráð fyrir því að taka
sæti á þingi eftir sumarið, þegar þing-
nefndin sem hefur rannsóknarskýrsl-
una til umfjöllunar lýkur sinni vinnu.
Ég vildi stíga til hliðar og veita þing-
nefndinni þetta svigrúm. Ég var ekki
með þessa háu styrki sem hlaupa á
tugum milljóna,“ sagði Þorgerður.
Félag í eigu Kristjáns Arasonar
eiginmanns Þorgerðar, Sjö hægri
ehf, hafði fengið um 1.700 milljóna
króna lánafyrirgreiðslu hjá Kaup-
þingi. Kristján starfaði þar sem fram-
kvæmdastjóri viðskiptabankasviðs.
Á landsfundi Sjálfstæðisflokksins
í júní var ályktað að þeir sem hefðu
hlotið óeðlilega háa prófkjörsstyrki
eða lánafyrirgreiðslur skyldu endur-
meta stöðu sína. Þar var sérstaklega
vísað til Guðlaugs Þórs Þórðarson-
ar og Gísla Marteins Baldurssonar.
Ekki náðist í Þorgerði Katrínu við gerð
fréttarinnar.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins:
Tekur sæti á þingi í haust
að það sé búið að koma honum
til skila af hálfu fjármálaráðu-
neytisins,“ segir hann.
Illugi segir að staða hans sé
óbreytt að öðru leyti. „Ég hef lit-
ið svo á að á meðan sú staða sé
uppi að það leiki einhver vafi á
að lög hafi verið brotin af stjórn
sem ég sat í sé siðferðislega rétt
að taka hlé frá þingstörfum.“
Illugi vill ekki ræða um hvað
hann hafi haft fyrir stafni frá því
hann sagði af sér þingmennsku
tímabundið. „Ég er bæði með
ágætis menntun og góða heilsu.
Það er alveg nóg að gera en ég
ætla ekkert að fara nánar út í það
en akkúrat þetta. Á meðan menn
hafa góða menntun og heilsu
eru alltaf tækifæri,“ segir Illugi.