Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.2010, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.2010, Blaðsíða 14
14 fréttir 23. júlí 2010 föstudagur Þeir þrír þingmenn sem sögðu tímabundið af sér þingmennsku í kjölfar útgáfu skýrslu rannsókn- arnefndar Alþingis eru allir reiðu- búnir að taka sæti á þingi á ný. Björgvin G. Sigurðsson, fyrrverandi viðskiptaráðherra, og Illugi Gunn- arsson, fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins, bíða eftir að rannsókn á málum þeirra ljúki. Þá hefur Steinunn Valdís Óskarsdótt- ir, sem sagði ótímabundið af sér þingmennsku í maí, sótt um stöðu bæjarstjóra á Akranesi. Steinunn sagði af sér eftir að upp komst að hún þáði þrettán milljónir króna í styrki vegna prófkjörs árin 2006 og 2007. Höfðu þá mótmælendur komið saman í nokkur skipti fyrir utan heimili hennar. Þingmennirnir fengu allir slæma útreið í skýrslunni fyrir störf sín og tengsl við atvinnulífið. Björgvin var viðskiptaráðherra þegar bankarnir hrundu. Í skýrslunni var hann einn þeirra ráðherra sem voru vændir um vanrækslu á meðan þeir voru í embætti. Þingmannanefnd fer nú yfir mál hans og má vænta niður- stöðu hennar í haust. Þar kemur fram hvort nefndin telji tilefni til að draga fyrrverandi ráðherra fyr- ir landsdóm. Þar kemur í ljós hvort þeir hafi gerst sekir um brot á lög- um um ráðherraábyrgð. 1.700 milljónir í skuld Þingmennirnir fjórir sögðu allir af sér með skömmu millibili eftir að skýrslan var gefin út. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir hefur hingað til ein gefið út þá yfirlýsingu að hún hyggist taka sæti aftur á þingi þegar það komi saman í haust, á meðan hinir bíða átekta eftir niðurstöðum rannsókna. Þorgerður sagði af sér þann 17. apríl á fundi sjálfstæðismanna í Reykjanesbæ. Þá sagðist hún hafa vikið vegna þess að hún nyti ekki sama trausts og áður. Best væri fyr- ir flokkinn ef hún viki tímabundið. RóbeRt HlynuR balduRsson blaðamaður skrifar: rhb@dv.is Fallnir þingmenn boða end komu Þeir þrír þingmenn sem sögðu af sér tímabundið í kjölfar útgáfu skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis hafa allir áhuga á að setj- ast aftur á þing eftir að rannsókn á málum þeirra lýkur. Illugi Gunnarsson, fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins, von- ast til að greitt verði úr rannsókn á Sjóði 9 sem fyrst svo hann geti snúið aftur til starfa. Illugi Gunnarsson, fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins: „Erbæðimeðágætismenntunoggóðaheilsu“ Illugi Gunnarsson, fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segist reiðubúinn til að taka sæti aftur á Alþingi þegar rannsókn lýk- ur á peningamarkaðssjóðum bank- anna. „Ég vonast til að greitt verði úr þessu sem fyrst og að ég geti snúið aftur til minna starfa,“ segir hann. Illugi sat í stjórn Sjóðs 9, pen- ingamarkaðssjóðs Glitnis. Rann- sóknarnefnd Alþingis áleit að áhættudreifing skuldaráhættu hans hefði verið verulega ábóta- vant. Lánveitingar Sjóðs 9 til Glitnis og tengdra félaga voru einnig veru- lega umsvifamiklar. Þær vöktu að mati nefndarinnar upp alvarlegar spurningar um sjálfstæði félagsins gagnvart eigendum þess. Skilanefnd Glitnis og rannsókn- arnefnd Alþingis vísuðu málefnum peningamarkaðssjóða bankanna til embættis sérstaks saksóknara þar sem þau eru nú til rannsóknar. Illugi segir að hann hafi hins vegar ekki enn verið boðaður til skýrslu- töku vegna hennar. Því var á tímabili haldið fram að ellefu milljarðar króna hefðu runnið úr ríkissjóði inn í Sjóð 9. Illugi segir að sá misskilningur hafi nú loks verið leiðréttur í vor í svari Steingríms J. Sigfússonar fjármála- ráðherra á Alþingi við fyrirspurn Sigríðar Ingibjargar Ingadóttur, þingmanns Samfylkingarinnar, um kostnað ríkissjóðs vegna banka- hrunsins. Þar kom fram að engin fjárframlög hefðu farið frá ríkinu til peningamarkaðssjóða. „Þetta er skiljanlegt þegar skapast svona að- stæður eins og hafa verið á Íslandi síðustu mánuði og ár, að umræðan geti orðið öfgakennd. Það var við því að búast. En ég treysti því og vona að staðreyndir málsins komi fram fyrir rest. Í það minnsta tel ég hvað þennan þátt málsins varðar sögðu af sér í kjölfar rannsóknarskýrslu Þingmennirnir,aðSteinunniValdísiÓskars- dótturundanskilinni,fenguslæma útreiðískýrslurannsóknarnefndar Alþingissemvarkynntí apríl.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.