Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.2010, Blaðsíða 62

Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.2010, Blaðsíða 62
Margir tóku eftir glæsilegri bumbu sem nýkjörinn borg- arfulltrúi Besta flokksins, Eva Einarsdóttir, skartaði í kosninga- baráttunni. Bumban er nú farin því Evu og eiginmanni hennar Eldari Ástþórssyni fæddist sonur á miðvikudagskvöld. Drengurinn er annað barn þeirra hjóna en fyrir eiga þau þriggja ára stúlku. Samkvæmt Facebook-síðu Evu heilsast öllum vel og ríkir mikil hamingja með fæðingu sonarins. „Þetta var eitt það skrítnasta sem ég hef gert á mínum blaðamanna- ferli,“ segir ritstjórinn ungi Magn- ús Már Einarsson, sem ræður lög- um og lofum á hinni geysivinælu knattspyrnuvefsíðu, Fótbolti.net. Það sem Magnús ræðir um er tískusýning, eða öllu heldur tísku- keppni, milli söngvarans Haffa Haff og varnarmanns Selfoss- liðsins í Pepsi-deildinni, Agnars Braga Magnússonar. Fótbolti.net hefur verið með nýjan lið í sumar þar sem leik- menn úr deildinni taka áskorun- um. Tryggvi Guðmundsson, leik- maður ÍBV, þurfti um daginn að syngja lag með Diktu og skoraði hann á Ásgeir Börk Ásgeirsson úr Fylki að dansa ballett. Ásgeir skor- aði svo á vin sinn Agnar Braga að fara í Walk-Off við Haffa Haff en hugmyndin er væntanlega fengin úr myndinni Zoolander. „Agnar Bragi var alveg til í þetta. Það hefur enginn skor- ast undan áskorun ennþá. Hann stóð sig alveg frábærlega, alla- vega hlógum við mikið. Hann tók öllum leiðbeiningum Haffa með bros á vör og fór í allt sem hann var beðinn um. Þetta er alveg frá- bært áhorfs,“ segir Magnús en af- raksturinn má sjá á Fótbolta.net í dag, föstudag. Eins og tíðkast þarf Agnar Bragi að skora á næsta mann og varð þar fyrir valinu Halldór Orri Björnsson, vængmaður Stjörn- unnar. Halldór er ljóshærður og næpuhvítur og skoraði Agnar Bragi því á hann að fara í tvöfald- an „spray-tan“-tíma. Verður fróð- legt að sjá hvort hann taki því. tomas@dv.is Zoolander „Walk-off“ fjölgun í Besta Haffi Haff og agnar Bragi: Í ágúst hefst á Stöð 2 sjónvarps- þátturinn Ameríski draumur- inn, en í honum fara þeir Sveppi, Auðunn Blöndal, Villi Naglbítur og Gillzenegger um Bandarík- in í keppni sem ekki er ósvipuð þeirri sem þeir háðu í sjónvarps- þættinum Strákarnir. Samkvæmt heimildum DV komu strákarn- ir meðal annars við í Las Vegas, þar sem þeir töpuðu fúlgum fjár í spilavíti. Egill Einarsson, betur þekktur sem Gillzenegger, sagði í samtali við DV að hann mætti ekkert tjá sig um þáttinn, en af blæbrigðunum í rödd hans að dæma, virtist brosið hafa ver- ið skilið eftir við pókerborðið í Vegas. Voru teknir í Bakaríið í Vegas 62 fólkið 23. júlí 2010 föstudagur Sætir saman Haffi klæddi Agnar Braga upp í alls konar múnderingar. Undanfarið hafa fallegar ljósmyndir af Ragnheiði vakið athygli en hún er nýjasta listagyðja tískuljósmyndarans Arnolds Björnssonar sem hefur meðal annars myndað fyrirsæturnar Ásdísi Rán og Tinnu Alavis. Arnold sérhæfir sig í svokallaðri glamour ljósmyndun og er talinn vera einn sá besti í brans- anum. „Þetta er náttúrulega bara ótrúlega gaman og Arnold er alger snillingur þannig að ég er svona aðeins að fikra mig áfram í þessu. Ég er búin að vera að þessu í mörg ár, á fullt af vinum sem eru ljósmyndarar og hafa verið að nota mig í allskonar myndatökur. Ég lærði mjög mikið á því. Ég er ekkert komin á fullt í þetta eða neitt svoleiðis, bara að- eins að prófa. Ég er náttúrlega svolítið sporty og ekki kannski þetta týpíska módel. Ég er mjög spennt fyrir ein- hverju sport-dóti og væri til í að prófa að sitja fyrir á einhverju svoleiðis.“ Var boðið að vera í Sports illustrated Það hafa fleiri en Arnold ljósmyndari tekið eftir náttúrulegri fegurð Ragn- heiðar en henni var eitt sinn boð- ið að fara í myndatöku hjá tímaritinu þekkta, Sports Illustrated. Fallegustu konur heims hafa einmitt prýtt forsíðu þess tímarits, konur á borð við Tyru Banks og Giselle Bundchen. „Ég fór einu sinni í Sports Illus- trated partý í Aþenu á Ólympíuleik- unum og þar hitti ég einmitt einn rit- stjóra sem sagði við mig að hvenær sem ég vildi þá væri hann til í að fá mig í myndatöku. Svo náttúrlega veit ég ekkert hvað hann heitir. En hann var mjög ánægður með hvað ég var hávaxin og íslensk og vildi endilega fá mig.“ farðar og hannar Ragnheiður er sannarlega önnum kaf- in þessa dagana en auk fyrirsætustarf- anna leggur hún stund á leiklist og hannar hún föt í samstarfi við ömmu sína undir vörumerkinu M-Design. Einnig er hún að undirbúa þátttöku á heimsmeistaramótinu í sundi í desember. „Ég er förðunarfræðingur þannig að ég mála mig auk þess að stílisera. Við erum einmitt að fara í aðra töku fljótlega, honum finnst svo gaman að taka myndir af mér. Svo er ég er búin að vera mikið í leiklist líka og er að prófa mig áfram þar. Ég er í smá sumarfríi núna en svo er ég að fara að græja mig fyrir heimsmeistaramótið í desember sem fer fram í Dubai. Ég er mjög spennt fyrir því. Við amma erum svo að hanna á fullu og ég er að byrja á smá barnalínu núna. M-De- sign er mjög stórt merki hérna heima og svo erum við að færa okkur aðeins út líka, erum að tala við fólk í Bretlandi og erum nú þegar í Noregi og Þýska- landi,“ segir Ragnheiður. RagnheiðuR RagnaRsdóttiR: Boðið að sitja fyrir í sports illustrated Sundkonan glæsilega, ragnheiður ragn- arsdóttir vekur athygli á fleiri stöðum en við sundlaugarbakkann. glæsileg Ein af okkar fremstu íþróttakonum spreytir sig fyrir framan myndavélina. MYnDir arnOLD BJÖrnSSOn fagmaður Einn þekktasti tískuljós- myndari landsins, Arnold, hefur myndað Ragnheiði en sá hefur meðal annars myndað fyrir karlatímaritið Maxim. Sjóðheit Ragnheiður er ekki bara í keppnissundbolum, eins og sést á þessari mynd.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.