Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.2010, Blaðsíða 55

Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.2010, Blaðsíða 55
föstudagur 23. júlí 2010 úttekt 55 Setið á spjalli Búið er um rúmin með rúmteppum frá Marimekko og stofuhúsgögnin eru fín. Þar eru sófar og hægindastólar, sjónvarp og DVD- tæki. Og í stofunni sitja starfsmenn og spjalla við gesti og reyna að halda uppi huggulegu andrúmslofti. „Ég man eftir gesti sem sat hér eitt laugardagskvöld eftir að hafa farið í sturtu, settist svo niður og talaði um sín mál. Sagði svo: „Ég man ekki hvenær ég sat síðast á laug- ardagskvöldi með popp og kók og spjallaði.“ Það má kannski segja að sumar konur máti sig þannig við fyrra líf eða eðlilegt umhverfi.“ Með því er reynt að kveikja hjá þeim löngun til að öðlast aftur líf eins og þær lifðu áður. Mæta eigin fordómum „Ég held að myndin sem margir fá upp í hug- ann þegar þeir hugsa um athvarf sé beddi, grátt ullarteppi, súpa og stór ausa.“ Sem er mjög ólíkt Konukoti eins og það er í dag. „Margir verða hissa þegar þeir koma hing- að. Gestirnir líka. Þær segja margar að ef þær hefðu vitað að þetta væri svona hefðu þær verið löngu komnar. En þær þurfa að fara í gegnum sína eigin fordóma áður en þær koma. Þær vilja ekki vera komnar á þennan stað, að þurfa á þessu að halda. Sérstaklega ekki ungu konurnar. Þær afneita ástandinu, vilja ekki viðurkenna að þær séu heimilis- lausar.“ Aðstandendur Konukots hafa velt því mik- ið fyrir sér hvernig hægt væri að ná betur til yngri kvenna. „Það skiptir miklu máli að kon- ur viti af þessu úrræði og nýti það frekar en að láta sig hafa allt mögulegt miður gott úti í bæ.“ Þær yngstu 15 ára Konurnar í Konukoti eru á öllum aldri og eiga mjög mismunandi fortíð eins og gengur, sjúk- dómurinn alkóhólismi fer ekki í manngrein- arálit. Langflestar eru í neyslu og einstaka kona á við geðsjúkdóm að stríða. Óheimilt er að taka inn konur undir átján ára aldri en allt að fimmtán ára stelpur hafa leitað þangað. En þá verða starfsmenn að láta barnaverndaryfirvöld vita. Að mati Kristínar þyrfti að vera til neyðarathvarf fyrir unglinga en slíkt athvarf er ekki til á Íslandi. Sú elsta sem hefur hingað til leitað í Konukot var á áttræðisaldri. Hugga hver aðra Eins og gefur að skilja gengur ýmislegt á í Konukoti og þeir sem þar vinna þurfa að vera við öllu búnir. Stundum er ró og friður í hús- inu en aðra daga er hasar. Á geðdeild fær fólk lyf og það er undir eftirliti lækna og hjúkrun- arfræðinga. Þarna er ekkert slíkt í boði. Sjálf- boðaliðarnir og starfskonurnar hafa ekkert í höndunum nema eigið viðmót. Og oft reynir á það, því gestirnir eru í alls kyns ásigkomu- lagi. „Við getum boðið þeim upp á hressingu. Stundum þurfa þær á því að halda að borða mikið en stundum hafa þær enga matarlyst. Konunum sem hingað koma líður oft mjög illa. Það hefur komið fyrir að þær komi beint hingað eftir nauðgun og ofbeldi. Sjálfsvirð- ingin er svo léleg að þær fara ekki á spítala. Þær vilja líka hlífa börnum og fjölskyldufólki við því að sjá sig í svona ástandi og sleppa því að fara upp á neyðarmóttöku. Við höfum séð konur taka utan um hver aðra og veita hver annarri huggun. En það gerist ekkert á hverri nóttu.“ Átök í kotinu Lífið snýst um að viðhalda neyslunni og oft gengur ýmislegt á. „Auðvitað getur það komið fyrir að þær reyni að stramma sig af og hætti kannski í nokkra daga. Konur hafa orðið edrú hérna. En langflestar eru í neyslu.“ Af því að þeim líður illa sýna þær ekki allt- af af sér góða hegðun. „Það er mjög mikil- vægt að taka því ekki persónulega ef einhver er ókurteis en jafnframt að halda ákveðnum mörkum.“ Ef gestirnir ganga of langt og fara yfir strik- ið í samskiptum við starfsmenn eða aðra gesti eiga starfsmenn að vísa þeim á dyr. Það er eina ráðið sem hægt er að beita. Oft hefur þurft að kalla lögregluna til. En alltaf eru gestirnir vel- komnir aftur og það strax næsta kvöld. Þannig hljómar þjónustusamningur RKkÍ við borgina. Gefa það sem þær geta Hugmyndin er sú að kotið sé griðastaður án skilyrða. Gestirnir eiga ekki að sitja undir því að starfsmenn reyni að leiða þá inn á aðrar brautir í lífinu. Ef þeir óska hins vegar eftir hjálp eiga starfsmennirnir að verða við þeirri bón og gera það sem í þeirra valdi stendur til þess að greiða götu þeirra. Og tvisvar í mán- uði eru félagsráðgjafar til taks í Konukoti fyrir þær sem það vilja. En ekki misskilja það. Konurnar í Konukoti eru hvorki óferjandi né óalandi þó að þær séu stundum í slæmu ástandi. Allir eiga til eitt- hvað gott í sér og gestirnir í Konukoti eru þar engin undantekning. Þær vilja margar hverj- ar gefa af sé en eru ekki í sterkri stöðu til þess að sýna það. „Það hefur til dæmis komið fyr- ir, sérstaklega fyrir jólin, að konurnar fái mat- araðstoð og komi svo með matinn hingað. Af því að þær vilja leggja eitthvað til athvarfsins.“  Voru kaldar og þreyttar Nú er heimilið opið frá klukkan fimm á dag- inn til klukkan tólf á hádegi. Þá verða konurn- ar að fara út, óháð veðri og aðstæðum. Það er samt heilmikil framför frá því sem áður var. Í upphafi var Konukot opnað fyrst klukkan níu á kvöldin og var lokað frá klukkan níu á morgnana. Konurnar kvörtuðu undan því og sögðust vera orðnar allt of þreyttar á kvöldin. „Þeim var líka kalt. Þær eru ekkert endilega að fara út í einhverjum svaka kuldagöllum þó að það sé kalt úti. Frekar komu þær sér inn einhvers staðar.“ En í kjölfarið var opnunartíminn lengdur í tveimur áföngum. Fyrst þannig að það var opnað klukkan sjö en þá kom í ljós að það var ekki nóg þannig að nú er opnað klukkan fimm. Prófa var að breyta Konukoti í sólar- hringsstað. Það gekk ekki. „Þá varð bara stífla hér.“ Átta konur settust að í húsinu og á með- an komust aðrar ekki að. Aftur á götuna eftir meðferð „Það þarf að vera til neyðarathvarf en svo þarf líka að vera til staður þar sem konan getur átt heimili þó að hún sé enn í neyslu. En sama hvar hún væri stödd hefði hún alltaf rétt á því að fara í meðferð. Ég held bara að til lengri tíma litið hljóti það að auka líkurnar á bata ef konan gæti snúið aftur heim á sitt eigið heim- ili eftir meðferð. Hér er fólk sent í dýra meðferð en hvað gerist svo þegar meðferðinni er lokið? Fólk fer því miður í mörgum tilfellum aftur á göt- una. Það er ekki sjálfgefið að fjölskyldan opni faðminn fyrir fólki sem á jafnvel ítrekaðar meðferðir að baki. Nei, ekki eftir einn mánuð, eina ferðina enn.“ ingibjorg@dv.is Konurnar í Ko Koti Þær þurfa að fara í gegnum sína eig- in fordóma áður en þær koma. NeyðArúrræði Konukot er aðeins hugs- að sem neyðarúrræði en aðstandendur þess kalla eftir því að konurnar sem þangað sækja geti eignast lögheimili þrátt fyrir drykkju, enda líta þeir á alkóhólisma sem sjúkdóm. VirðiNG „Ég held að myndin sem margir fá upp í hugann þegar þeir hugsa um athvarf sé beddi, grátt ullarteppi, súpa og stór ausa.“ Starfsmenn skapa huggu- legt andrúmsloft því ef það er eitthvað sem konurnar í Konukoti fá ekki á daginn eða allajafna er það virðing. ÖruGGt AtHVArf Reynt er að ná til þeirra yngstu, því þær afneita gjarna ástandinu. Konurnar í Konukoti þurfa að sigrast á eigin fordómum áður en þær koma í athvarfið. Starfsmenn vilja þó frekar fá þær þangað en að þær láti sig hafa allan fjandann úti í bæ. Á ÖlluM Aldri Konurnar í Konukoti eiga marg- víslegan bakgrunn og eru á öllum aldri. Þær yngstu sem þangað hafa komið voru 15 ára en sú elsta var á áttræðisaldri. Sumar áttu sér annað líf áður þar sem þær ráku heimili og sinntu barnauppeldi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.