Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.2010, Blaðsíða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.2010, Blaðsíða 38
38 ÆttfrÆði umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson kjartan@dv.is 23. júlí 2010 föstudagur Pálmi Runólfsson fyrrv. bóndi að HjarðarHaga í Skagafirði Pálmi fæddist á Dýrfinnustöðum í Skagafirði og ólst þar upp við öll al- menn sveitastörf þess tíma. Eftir barnafræðslu var hann einn vetur í Reykjaskóla í Hrútafirði og síðan á véla- og jarðýtunámskeiði á Hvann- eyri. Á stríðsárunum vann Pálmi við að reisa birgðaskemmur fyrir banda- ríska herinn og einnig hersjúkrahús þar sem nú er Reykjalundur. Hann gerðist síðar starfsmaður hjá Bún- aðarsambandi Skagfirðinga og vann með tilheyrandi jarðvinnslutækjum um byggðir héraðsins. Síðar starf- rækti hann og vann með eigin jarð- ýtu við vegagerð frá Hofsósi til Fljóta og einnig á Lágheiði og í Ólafsfirði. Pálmi byggði síðan upp nýbýlið Hjarðarhaga í Skagafirði árið 1955, við hliðina á Dýrfinnustöðum, og var þar bóndi til ársins 1991 en þá flutti hann á Sauðárkrók. Við búinu að Hjarðarhaga tók sonur hans, Sig- urjón. Pálmi var virkur í félagsmálum í Skagafirði. Hann var í sveitarstjórn Akrahrepps, einnig í sýslunefnd Skagafjarðarsýslu og síðar í héraðs- nefnd. Hann er nær sjálflærður organisti og spilaði við Hofstaðakirkju í nokk- ur ár, söng í Karlakórnum Feyki og síðan í Karlakórnum Heimi og átti í þeim félagsskap margar gleðistund- ir. Fjölskylda Eiginkona Pálma er Anna Eiríksdótt- ir, f. 18.3. 1934, húsfreyja. Foreldrar hennar voru Eiríkur Jónsson, bóndi á Karlsstöðum í Ólafsfirði, og k.h., Fróðný Ásgrímsdóttir húsfreyja. Börn Pálma og Önnu eru Fróðný Guðfinna Pálmadóttir, f. 20.2. 1957, þroskaþjálfi á Akureyri, en maður hennar er Kristján Pétur Sigurðsson og á hún þrjú börn; Sigurjón Björn Pálmason, f. 25.5. 1958, bóndi í Hjarðarhaga í Skagafirði og á hann tvo syni; María Guðbjörg Pálmadóttir, f. 27.10. 1959, kennari í Vestmannaeyjum, en maður henn- ar er Hörður Óskarsson og eiga þau þrjú börn; Heiður Pálmadóttir, f. 31.10, 1963, klæðskeri og feldskeri í Svíþjóð, en maður hennar er Roy Midtö og eiga þau tvær dætur; Sig- ríður Guðrún Pálmadóttir, f. 1.10. 1971, kennari á Akureyri, en maður hennar er Kristján Ísak Kristjánsson og eiga þau þrjú börn. Fósturdóttir Pálma og Önnu er Ester Gunnarsdóttir, f. 4.10. 1951, búsett í Reykjavík en maður hennar er Indriði Guðmundsson og eiga þau fjögur börn. Systkini Pálma: Sigurjón, f. 15.8. 1915, d. 27.5. 2000; Guðbjörg Jó- hannesína, f. 27.7. 1916, búsett í Hveragerði; Anton Valgarð, f. 9.7. 1917, d. 1.4. 1993; Björn Þórður, f. 20.3. 1919, nú látinn; Jóhannes, f. 6.11. 1923, bóndi á Reykjarhóli í Fljótum; Sigríður Sólveig, f. 23.11. 1925, nú látin; Steinunn, f. 9.11. 1926, búsett í Hveragerði; Una, f. 7.9. 1928, búsett í Hveragerði; Kristfríður, f. 23.8. 1929, búsett í Kópavogi; Frið- fríður Dodda, f. 8.12. 1931, búsett í Mosfellsbæ; Hólmfríður Svandís, f. 11.12. 1932, d. 5.8. 1987. Fóstursystkini Pálma: Björgvin Eyjólfsson, nú látinn; Guðrún Eyj- ólfsdóttir, búsett í Kópavogi. Foreldrar Pálma voru hjónin Run- ólfur Jónsson, bóndi á Dýrfinnustöð- um, f. 25.3. 1881, d. 23.3. 1937, og María Jóhannesdóttir, f. 16.4. 1892, d. 24.6. 1986. 90 ára á laugardag Valur fæddist í Reykjavík en ólst upp í Hafnarfirði. Hann var í Víði- staðaskóla og stundaði nám við Flensborg. Valur vann við garðyrkju um skeið, var leiðbeinandi við félags- miðstöð í Hafnarfirði, var þjónn á Primavera, var blaðamaður við DV 2005-2006, var blaðamaður á Blað- inu 2006, fréttamaður við DV 2007- 2008, var blaðamaður á Mannlífi um skeið, var síðan aftur á DV en hefur verið fréttamaður á Vísi frá 2009. Valur fékk verðlaun Blaða- mannafélags Íslands í rannsókn- arblaðamennsku fyrir umfjöllun um meðferðarheimilið Breiðavík, árið 2007. Fjölskylda Kærasta Vals er Hanna Ruth Ólafs- dóttir, f. 13.1. 1979. Sonur Vals og Hönnu Ruthar er Ólafur Grettir, f. 16.4. 2008. Systkini Vals eru Sveinbjörn Grettisson, f. 5.6. 1976, búsettur í Danmörku; Hrafntinna Grettis- dóttir, f. 7.1. 1992, nemi. Foreldrar Vals eru Guðrún Mar- grét Guðmundsdóttir, f. 10.4. 1961, ferðamálafræðingur og þjónn í Hafnarfirði, og Grettir Svein- björnsson, f. 17.1. 1955, d. 18.6. 2009, vörubílstjóri og sjómaður. Valur Grettisson fréttamaður á víSir 70 ára á laugardag Sigurður fæddist að Vestmanna- braut 73 í Vestmannaeyjum, ólst þar upp og hefur átt þar heima alla tíð. Hann var í Barnaskólan- um í Vestmannaeyjum, Gagn- fræðaskólanum í Vestmannaeyj- um og lauk síðar stýrimannaprófi frá Stýrimannaskólanum í Vest- mannaeyjum 1987. Sigurður lenti í alvarlegu slysi á þjóðhátíð í Vestmannaeyjum árið 1956 en þá brenndist hann afar illa er verið var að kveikja í bálkestin- um. Lá hann lengi rúmfastur vegna þessa slyss, fyrst á Sjúkrahúsinu í Eyjum og síðan á Landspítalanum í Reykjavík. Þá lenti hann tvíveg- is í alvarlegum umferðarslysum en náði sér jafnharðan, og bjarg- aði eitt sinn manni frá drukknun í Reykjavíkurhöfn. Sigurður hóf vinnu sem gellu- strákur í Eyjum og varð síðan flakari hjá hraðfrystistöðinni þar. Hann hóf sína sjómennsku á tog- aranum Ingólfi Arnarsyni frá Reykjavík, 1959. Hann var síðan á togaranum Ólafi Jóhannessyni frá Patreksfirði, en var á vertíð í Vest- mannaeyjum 1960, þar sem hann var m.a. á Hrímni VE með Sigur- jóni Ólafssyni frá Litlabæ og síðan með Óskari og Einari Gíslasonum á Gæfunni VE. Þá var hann á Gull- borginni með Binna í Gröf í sex til sjö vertíðir og á Kristjáni Valgeiri frá Sandgerði. Hann var svo stýri- maður á ýmsum bátum frá Vest- mannaeyjum, s.s. Árna í Görðum og á Emmu, var skipstjóri á mb. Sjöstjörnunni, og síðan stýrimaður á ýmsum bátum þar, s.s. mb. Þóri og mb. Illuga. Hann var töluvert með Matthíasi Ingibergssyni og var með trilluna Árna Pál fyrir Pál Árnason. Þá tók Sigurður við nokkrum rollum eftir föður sinn, hélt þær og heyjaði fyrir þær í nokkur ár. Sigurður var heiðraður á sjó- mannadaginn. Fjölskylda Systur Sigurðar: Geirlaug Jóns- dóttir, f. 20.6. 1923, d. 31.5. 1995, húsmóðir í Reykjavík en fyrri mað- ur hennar var Snorri Halldór Jóns- son sem lést 1954 en síðari maður hennar var Jón Ari Jónsson sem lést 1965; Kristín Jónsdóttir, f. 9.1. 1926, d. 9.8. 2004, var gift Jóhanni Gunnari Pálssyni; Margrét, f. 9.10. 1931, húsmóðir í Vestmannaeyj- um en maður hennar var Harry Pedersen sem lést 2006. Foreldrar Sigurðar voru Jón Sig- urðsson, f. í Miklholti í Miklholts- hreppi á Snæfellsnesi 12.2. 1900, d. 24.1. 1980, sjómaður og verkstjóri í Vestmannaeyjum, og Karólína Sigurðardóttir, f. í Vallarhjáleigu í Hvolhreppi 9.10. 1899, d. 10.8. 1989, húsmóðir. Ætt Jón var sonur Sigurðar, frá Syðstu- Mörk undir Eyjafjöllum Jónsson- ar, b. í Syðstu-Mörk Sigurðssonar. Móðir Jóns var Margrét Gísladóttir, frá Saurum í Helgafellssveit. Karólína var dóttir Sigurðar Unasonar sem fórst með þilskip- inu Oki 1903, og k.h., Geirlaugar Guðmundsdóttur. Sigurður Jónsson SkipStjóri og Stýrimaður í veStmannaeyjum Gunnar Gunnarsson StarfSmaður valitor Gunnar fæddist í Neskaupstað en ólst upp á Eskifirði. Hann var í Grunnskóla Eskifjarðar, Vélskóla Ís- lands og lauk þar II stigi í vélstjórn, lauk stúdentsprófi frá Menntaskól- anum í Kópavogi og stundar nú nám í viðskiptafræði við Háskólann í Reykjavík. Gunnar starfaði hjá Vífilfelli á sumrin og með skóla í nokkur ár frá 1997 og síðan hjá 10-11 verslunun- um en hefur starfað hjá Valitor (áður VISA Ísland) frá 2004. Fjölskylda Unnusta Gunnars er Stella Hrönn Ólafsdóttir, f. 15.5. 1981, starfar á lög- fræðisviði Landsbankans. Dóttir Gunnars og Stellu Hrann- ar er Embla Maren Gunnarsdóttir, f. 30.11. 2008. Hálfsystir Gunnars, sammæðra, er Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir, f. 11.9. 1971, blaðamaður og rithöf- undur, búsett í Reykjavík. Alsystkini Gunnars eru Hávarð- ur Gunnarsson, f. 5.12. 1978, tækni- maður hjá Opnum kerfum, búsett- ur í Grindavík; Sjafnar Gunnarsson, f. 24.8. 1985, borgarstarfsmaður, bú- settur í Reykjavík. Foreldrar Gunnars eru Aðalheið- ur Hafdal Hávarðardóttir, f. 9.7. 1954, húsmóðir í Reykjavík, og Gunnar Gunnarsson, f. 10.9. 1956, bifreiða- stjóri hjá Vífilfelli í Reykjavík. 30 ára á föstudag 30 ára á laugardag Haraldur Friðriksson HúSaSmiður í Hafnarfirði Haraldur fæddist í Reykjavík en ólst upp í Hafnarfirði. Hann var í Engi- dalsskóla og Víðistaðaskóla, stund- aði nám í húsasmíði við Iðnskólann í Hafnarfirði og lauk sveinsprófi það- an árið 2000 en hann var á samningi hjá byggingarfyrirtækinu Feðgar ehf. Haraldur hefur stundað húsa- smíðar frá því hann lauk námi, m.a. hjá H-Húsum og Fagmanninum þar sem hann starfar nú. Haraldur hefur brennandi áhuga á stangveiði og skotveiði og starfar í Stangveiðifélagi Keflavíkur. Fjölskylda Eiginkona Haraldar er Árný Guðrún Ólafsdóttir, f. 11.8. 1978, mannfræðing- ur og hárgreiðslukona. Sonur Haraldar er Nökkvi Már Har- aldsson, f. 21.6. 1999. Systkini Haraldar eru Lára Björk Friðriksdóttir, f. 27.6. 1976, hárgreiðslu- kona, búsett í Danmörku; Gunnar Örn Friðriksson, f. 20.12. 1984, rafvirki, bú- settur í Hafnarfirði. Foreldrar Haraldar eru Ásthildur Flygenring, f. 19.8. 1955, skrifstofukona, búsett í Hafnarfirði, og Friðrik Garðars- son, f. 9.6. 1951, rafvirki í Hafnarfirði. 30 ára á föstudag Gunnar Gunnarsson Afmælisbarnið ásamt dótturinni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.