Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.2010, Blaðsíða 26
Svarthöfði er mikill stuðnings-maður þess að hæfileikamenn fái vinnu þar sem þeir njóta sín. Hann er því mjög ánægð-
ur með að ráðamenn Íslands passa
vel upp á snillinginn Einar Karl Har-
aldsson. Sá góði maður hefur verið
áberandi undanfarna áratugi. Hann
er einn af bestu vinum forsetans okk-
ar og átti sinn þátt í að koma honum á
Bessastaði. Þá hefur hann verið áber-
andi í starfi sínu innan Þjóðkirkjunn-
ar. Reyndar má segja að Einar Karl
hafi um tíma gengið á Guðs vegum og
forsetans og látið gott af sér leiða hvar
sem hann fór.
Um tíma var Einar Karl ekki aðeins náinn ráð-gjafi forsetans. Hann var hægri hönd og ræðu-
skrifari Sigurðar Einarssonar,
stjórnarformanns Kaupþings.
Þannig átti hann sinn þátt í að efla
útrásina með glöggskyggni sinni
og dómgreind sem svo margir
sækjast eftir.
Það ert þannig með snill-inga að það þarf að finna þeim farveg. Einar Karl á ekki heima í einkageiran-
um þótt hann hafi verið notadrjúg-
ur í aftursæti einkaþotu Sigurðar
Einarssonar. Snilld hans nýtur sín
betur í almannaþágu. Það þýðir
að hann er ríkissnillingur. Og sem
betur fer eru ráðamenn með skiln-
ing á því og nota hann óspart.
Þetta sjá forkólfar Samfylk-ingar sem hver um annan þveran hafa keypt af hon-um þjónustu. Um tíma var
hann aðstoðarmaður iðnaðarráð-
herra. Seinna varð hann fjölmiðla-
fulltrúi forsætisráðherra. Þá lá
leið hans á Landspítalann. Ekki
vegna veikinda, heldur til að rétta
af ímynd spítalans. Sú lækning tók
hann örskamma stund og hann
snéri aftur í faðm forsætisráðherra.
Það hefur verið regla að auglýsa ekki þau störf sem falla að hæfileikum Ein-ars enda gæti slíkt truflað
framgang vinnu hans og árangur.
Þegar ákveðið var að leggja 700 milljónir króna í að rétta af öskugráa ímynd Íslands, undir slagorðinu
Inspired by Iceland, var Einar Karl
auðvitað kallaður til að stýra því
hvert peningarnir fóru. Ljóst er að
ferðamenn hafa streymt til lands-
ins í sumar. Það er ábyggilega því
að þakka að ríkisstjórnin er ins-
pired by Einar Karl. Gæfa íslenskr-
ar þjóðar veltur á svona mönnum.
Og það þarf að fara óhefðbundnar
leiðir til að virkja þá.
InspIred by eInar Karl „Vilt þú ekki bara koma
þér út af lóðinni, stubbur.“
n Margrét Íris Baldursdóttir, eiginkona
Magnúsar Ármann, við blaðamann DV sem hafði
knúið á dyr á Fjölnisvegi 11 í leit að Hannesi
Smárasyni. - DV
„Einhleyp og 24
ára gömul
jómfrú, gæti
lífið verið betra!“
n Vala Grand um sambandsslit hennar og
unnustans, Baldvins, á Facebook-síðu sinni.
-Facebook
„Ég hef alltaf
litið svo á þegar
ég hef höndlað
með háar
fjárhæðir í eigin þágu að
ég geti ekki gengið frá
viðskiptunum án nokk-
urra persónulegra
eftirmála ef og þegar allt
fer á versta veg. Annað
finnst mér óeðlilegt.“
n Björgólfur Thor Björgólfsson í
fréttatilkynningu sem hann sendi út á dögunum
um uppgjör fjárfestingafélags síns, Novators.
- Fréttablaðið
„Ég er vön að vera dæmd
út frá útliti.“
n Heiða Rún Sigurðardóttir, fyrirsæta og
leikkona um leikprufur en hún landaði nýverið
hlutverki í bíómynd með Anne Hathaway. - DV
Svikabrella Jóhönnu
Stjórnarflokkarnir eru á flótta frá flestum þeirra loforða sem þeir gáfu við upphaf samstarfsins. Velferðar-stjórnin svokallaða er á pappírunum
sett á laggirnar í þágu venjulegs fólks. Skjald-
borg um heimilin og uppræting illræmds
kvótakerfis með fyrningu aflaheimilda eru
dæmi um mál sem slík stjórn þykist veita
brautargengi. Í stjórnarsáttmálanum er ein-
mitt kveðið skýrt á um þessi tvö stórmál.
Nú er staðan sú að ríkisstjórnin hyggst láta
undan þrýstingi útgerðarmanna og hyggst
hlaupast frá loforðinu um að fyrna veiðiheim-
ildir. Stjórnin er nú með aðstoð hjálparkokka
sinna að detta niður á snilldarleið til þess að
svíkja loforðin en geta þó haldið því fram að
hún hafi staðið við stjórnarsáttmálann. Ekki
verður gripið til yfirlýstrar stefnu um fimm
prósenta fyrningu árlega. Jóhanna Sigurðar-
dóttir og kónar hennar ætla að innkalla allan
kvótann og standa þannig við loforðið.
Það munu ekki heyrast nein ramakvein
frá útgerðinni. Lausnin er nefnilega fólgin í
því að gera illa fengið góssið upptækt en út-
hluta því síðan aftur til sömu aðila.
Eins og DV greinir frá í dag er það nið-
urstaða starfshóps að „langlíklegast“ sé að
farin verði leið eitt af þremur mögulegum.
Sú leið gerir ráð fyrir þeirri brellu sem að
framan greinir og horfið er frá áformum um
beina fyrningu.
Samið hefur verið við stórútgerðina í bak-
herbergjum um stórkostlegt sjónarspil. Eftir
„þjóðnýtingu“ kvótans fá útgerðarmennirn-
ir nýtingarrétt í 20 til 30 ár. Þetta þýðir að sú
kynslóð sem nú er á miðjum aldri mun lifa
áfram við óbreytt kerfi sægreifanna. Rétt-
lætið mun ekki ná fram að ganga. Jóhanna
mun reyna að troða þessu máli ofan í kok al-
mennings. Til þess að óþverrinn gangi betur
niður mun hún líklega draga upp úr töfra-
hatti sínum loforð um að eignarhald þjóð-
arinnar á fiskistofnunum verði skilgreint í
stjórnarskrá.
Af svikasögu ríkisstjórnarinnar eru
verstu svikin nú í uppsiglingu. Jóhönnu
er ekkert heilagt. Hún er verðugur fulltrúi
okurfyrirtækja og stórútgerðar.
reynIr TrausTason rITsTjórI sKrIfar. Samið hefur verið við stórútgerðina.
leiðari
svarthöfði
bókstaflega
Fordæmdir flokkar
Um daginn heyrði ég á tal tveggja
strákhnokka, annar tjáði sig fjálglega
og sagði: -Kellvíkingar geta ekkert en
þykjast kunna allt.
Ef drengurinn hefði verið að tjá sig
um stjórnmál en ekki fótbolta þá gat
ég svosem verið honum hjartanlega
sammála, því lengi hef ég lýst aðdáun
minni á samfélagi sem treystir sjálf-
stæðismönnum til verka. Ég tala nú
ekki um, þegar flokkurinn sá er bú-
inn að leggja samfélagið fullkomlega
í rúst.
Reyndar sé ég ekki að það skipti
nokkru máli hverjum nöfnum stjórn-
málaflokkar nefnast. Ef einungis er
litið yfir íslenska stjórnmálaflóru þá
blasir illgresið við. Sjálfstæðisflokkur-
inn mærður af Davíðstíðindum hefur
það eitt að markmiði að tryggja pen-
ingamönnum auð og völd. Davíðstíð-
indi, í eigu kvótadrottningar, ætla að
vernda þá fáu og vellauðugu kvótaeig-
endur sem enn eru til. Framsóknar-
flokkurinn er spillingarbæli og meira
í ætt við glæpasamtök en stjórnmála-
hreyfingu. Samfylkingin er samtrygg-
ingarafl og VG er ósamstæð fylking
flokkseigendaklíku og fólks sem von-
ast eftir brauðmylsnu og bitlingum.
Aðrir flokkar hafa ekki komist í þá
aðstöðu að verða hugarrotnun spill-
ingu að bráð.
Ég held að eina leiðin til að bjarga
lýðræðinu sé sú, að banna stjórn-
málaflokka. Já, hreinlega banna
stjórnmálahreyfingar með lögum;
þær eru mesti bölvaldur sem hugsast
getur og verða aldrei annað en gróðr-
arstía spillingar. Flokkarnir koma í veg
fyrir það að stjórnmálamenn geti far-
ið að sinni sannfæringu – hindra þá
í að sinna þeim skyldum sem sam-
félagið treystir þeim fyrir. Tiltekinn
stjórnmálaflokkur hefur eiðsvarið að
standa vörð um kvótakerfi, útvegar
frambjóðendum peninga frá kvóta-
kóngum og bannar þeim að opinbera
eitthvað annað en það sem flokkur-
inn telur best og réttast. Flokkur þessi
eyðir heiðarleika frambjóðenda sinna
með flokksaga.
Ef okkur langar að skara framúr
í samfélagi þjóðanna, þá eigum við
Íslendingar að verða fyrsta þjóð ver-
aldarsögunnar sem bannar alla starf-
semi stjórnmálaflokka. Með þeirri
aðgerð gætum við lyft lýðræði, heið-
arleika, ábyrgðarhlutverki og sjálfs-
ákvörðunarrétti stjórnmálamanna á
stall. Þá fengjum við kannski stjórn-
málamenn sem okkur þætti í lagi að
líta upp til. Það má jafnvel hugsa sér
að við gætum losnað við hrokafullar
lyddur, andlegar haugsugur, bitlinga-
þega og afætur í embættismannastétt.
Öllum flokkum fylgir smán,
fals og lygi manna.
Hugsið ykkur heiminn án
heimsku stjórnmálanna.
kristján hreinsson
skáld skrifar
„Ég held að eina
leiðin til að bjarga
lýðræðinu sé sú, að
banna stjórnmála-
flokka.“
skáldið skrifar
26 umræða 23. júlí 2010 föstudagur
Slagur SyStkinanna
n Svo var að skilja að uppnám væri
í samskiptum systkinanna jóns ás-
geirs jóhannessonar og kristínar
jóhannesdótt-
ur. Jón Ásgeir
mun hafa sagt
lögmönnum sín-
um í Bretlandi
að Kristín hefði
falsað nafn hans
til ábyrgðar.
Þetta rataði inn í
greinargerð lög-
mannanna og þaðan í Ríkisútvarp-
ið. Aðspurð sagði Kristín að Jón Ás-
geir segði ekki satt um þetta mál. Nú
er komið á daginn að undirskrift-
in skiptir engu máli þar sem greitt
hefur verið upp það sem ábyrgðin
snéri að. Eftir stendur að systkinin
eru væntanlega ósátt sem ekki mun
vera í fyrsta skipti.
lifibrauð HalldórS
n Á Ísafirði velta menn nú fyrir sér
hvað halldór halldórsson, fyrrver-
andi bæjarstjóri, taki sér fyrir hend-
ur eftir að hann
missti starfið í
hendur faglega
ráðins bæjar-
stjóra. Kenn-
ingar eru uppi
um að hann
hafi hætt vegna
ótta við að verða
felldur. Halldór
er formaður Sambands íslenskra
sveitarfélaga sem er fremur lágt
launað embætti. Kenningar eru
uppi um að því embætti verði breytt
í fullt starf með feitum launum til að
útvega Halldóri lifibrauð.
formaður í vinning
n Framsóknarflokkurinn á fremur
erfitt fjárhagslega eftir að flokkur-
inn hreinsaði sig af spillingarfólki
sem gjarnan gat
látið fé af hendi
rakna. sig-
mundur Davíð
Gunnlaugsson
formaður þarf
nú að leggja sitt
af mörkum til
að útvega pen-
inga í staðinn.
Sú frumlega hugmynd kom því upp
að efna til happdrættis á meðal vel-
unnara flokksins. Einn stærsti vinn-
ingurinn var gönguferð og kvöld-
verður með formanninum. Ekki var
mikill spenningur fyrir vinningn-
um þótt úr rættist á seinustu metr-
unum. Einhver situr því uppi með
formanninn eina kvöldstund eða
svo.
vatnSkóngur
Styrkir ómar
n Helgarviðtal DV við Ómar ragn-
arsson, skemmtikraft og náttúru-
unnanda, vakti gríðarlega athygli.
Þar lýsti Ómar því að hann væri
nánast öreigi eftir að hafa lagt allt
undir við gerð heimildarmynda
um íslenska náttúru. Veitingamað-
urinn Friðrik Weisshappel brást
skjótt við og efndi til söfnunar fyrir
Ómar á Facebook. Sjálfur lagði Frið-
rik honum til 100 þúsund krónur.
Fjöld fólks fylgdi í kjölfar hans. Einn
þeirra er vatnskóngurinn jón Ólafs-
son sem gaf hundrað þúsund. Það
stefnir nú allt í að Ómar nái að rétta
úr kútnum fjárhagslega.
sandkorn
tryggvagötu 11, 101 reykjavík
Útgáfufélag: Dv ehf.
Stjórnarformaður:
Lilja Skaftadóttir
framkvæmdaStjóri:
Bogi örn emilsson
ritStjórar:
jón trausti reynisson, jontrausti@dv.is
og reynir traustason, rt@dv.is
fréttaStjóri:
Ingi Freyr vilhjálmsson, ingi@dv.is
dv á netinu: Dv.IS
aðalnÚmer: 512 7000, ritStjórn: 512 7010,
áSkriftarSími: 512 7080, auglýSingar: 512 7050.
SmáauglýSingar: 515 5550.
umbrot: Dv. Prentvinnsla: Landsprent. dreifing: Árvakur.
Dv áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins
á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.