Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.2010, Síða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.2010, Síða 36
börnin verða vitni að svona. Þá voru fjölmiðl- arnir ekki eins og þeir eru í dag. Í dag yrði þetta örugglega forsíðumál en það varð ekki þá. Þetta var alveg ömurleg reynsla.“ „Hvað viltu mér?“ Eftir þetta hefur Bubbi verið laus við mjög al- varlega áreitni. „En það eru samt bara þrjú ár síðan Hrafnhildur opnaði fyrir manni. Hann sagðist vera vinur minn og sagði að hann þyrfti að eiga við mig orð. Hún hleypti honum inn þannig að hann var kominn inn á gafl hjá okkur þegar ég hitti hann. Þetta var bara veik- ur maður sem taldi sig eiga erindi við mig.“ Bubbi beitti lagni til þess að ná manninum út. „Ég þurfti að lempa hann. Ég fronta fólk sem gerir svona. Ég spyr: „Hvað viltu mér?“ „Hvað ertu að gera hér?“ Hvað ætlastu fyrir?“ „Hvað viltu frá mér?“ Menn svara og þá kemur ýmislegt í ljós. Ég sýni engan ótta. Ég sýni ekkert annað en fyllstu elsku. Ég garga ekki á manninn og ég ógna honum ekki. Með lagni reyni ég að ná honum út. En ég fer í menn. Þú veist aldrei hvað er í gangi. Er hann með hníf? Er hann með byssu? Hvað ætlar hann sér? Þannig að ég reyni að vera fljótur til þess að komast eins nálægt og hægt er, svo ég geti brugðist við. Þú veist aldrei hvenær þú þarft að taka mann- inn niður. Það er alls óvíst hvað gerist. Þetta er mjög veikt fólk. Það er enginn heilbrigður maður sem gerir svona. Þegar ég var að byrja í bransanum voru stundum unglingsstúlkur að elta mig á rönd- um af því að þær vildu komast í rúmið með mér. Það var allt öðruvísi og viðráðanlegra.“ alls konar grillur Á meðan Bubbi bjó í bænum bankaði reglu- lega einhver upp á. Oftast mjög skrýtið fólk. En eftir að hann flutti í sveitina hefur hann aðeins einu sinni fengið óvæntan og ókunn- ugan gest. Sá bankaði upp á hjá honum eina nóttina. „Það hafa eflaust margir í minni stöðu lent í þessu. Svo er önnur tegund af eltihrellum sem þjáist af afbrýðisemi. Þá eru ofsóknirnar af öðrum toga en þegar það er verið að áreita frægt fólk.“ Allir sem hafa ofsótt Bubba eiga það sam- eiginlegt að hafa fengið einhver skilaboð út úr tónlistinni hans. „Fólk fær alls konar grill- ur. Það er til dæmis mjög algengt að menn haldi að einhverjar söngkonur elski þá eftir að hafa hlustað á þær syngja. Haldi að það eina sem þeir þurfi að gera sé bara að ná í þær og þá muni þau giftast. Fólk fær alls konar hug- myndir.“ Eins og maðurinn sem taldi sig fá þau skilaboð út úr lögunum að hann þyrfti að drepa Bubba. Hélt að BuBBi væri djöfullinn Hann hélt að Bubbi væri djöfullinn. Af því að hann er fæddur 6. júní 1956, 666. „Hann hélt að hann þyrfti bara að opna á mér hausinn til þess að sanna mál sitt. Þegar hann væri búinn að því myndi fólk sjá að hann hefði rétt fyrir sér. Ég væri í raun djöfullinn. Þetta var mjög veikur maður.“ Læknar mannsins fengu fregnir af því að hann væri á leiðinni til Bubba og létu lögregl- una vita. Lögreglan brást fljótt við, hringdi í Bubba og lét hann vita að hann mætti alls ekki opna dyrnar heima hjá sér ef það yrði bank- að eða dinglað á bjölluna. Fjölskyldan var öll heima en Bubbi lét ekkert uppi við þau. „Hann var svo stoppaður af þegar hann var á leiðinni til mín til að sanna mál sitt. Sem betur fer fyrir hann og kannski fyrir mig líka varð ekkert úr því. Honum var svo komið fyrir á viðeigandi stofnun þar sem hann fékk hjálp.“ Óttaðist ekkert Ótrúlegt en satt þá óttaðist Bubbi ekki mann- inn. „Ég veit ekki hvort þú trúir því eða ekki, en ég óttaðist ekki neitt. Ég tel mig fullfæran um að kljást við svona menn. Sérstaklega ef ég fæ tíma til þess að undirbúa mig, eins og ég fékk þarna. En það treysta sér ekki allir til þess að slást við fólk. Málið er bara að þú getur ráðið því sjálf- ur hvort þú verður óttasleginn eða ekki. Ef þú verður óttasleginn getur þú sigrast á óttanum með því að horfast í augu við hann. Þá hörfar óttinn. Ef þú leyfir óttanum að ná tökum á þér stigmagnast hann. Þetta er mjög einfalt, bara eins og störukeppni. Ef þú horfist í augu við óttann lítur hann undan. Alltaf. En það þarf kjark til þess að horfast í augu við óttann og það getur verið erfitt. En það er bara spurn- ing um það hvort þú ætlar að leyfa honum að halda þér í heljargreipum eða ekki. Ég lærði þetta af gömlum aðferðum í hnefaleikunum. Þetta virkar fyrir mig og þetta virkar fyrir alla. En börnin hafa verið mjög hrædd. Þá hef ég reynt að tala við þau og útskýra fyrir þeim hvað er að gerast. Þau skilja að þetta er veikt fólk. Þau hafa séð suma af þessum einstakl- ingum þegar þeir hafa komið heim og sjá það á þessu fólki og af hegðun þess að það er mjög veikt. Og oft er erfitt að koma þessu fólki út úr húsinu. Eins og þessum manni sem mætti al- veg brjálaður heim til mín. Hann og sá fyrsti sem ég lenti í voru alvarlegustu tilfellin af því að þeir voru líklegastir til þess að skaða mig.“ eltur af eltiHrelli Flestir eltihrellarnir fylgdust með Bubba og oftar en einu sinni hefur fólk elt Bubba á röndum. „Þegar ég fór út á morgnana sá ég manneskjuna kannski standa fyrir utan hjá mér eða hinum megin við götuna. Hún lá kannski á glugganum hjá mér. Ég er ekki viss um að þetta fólk hugsi með sér að nú sé það vísvitandi að ógna Bubba. Þetta er veikt fólk sem hefur sennilega aðrar hugmyndir um það hvað það er að gera þarna. Það gerir sér ekki grein fyrir því sem það er að gera. Það veit ekki að hegðun þess er ógnvekjandi. En þetta hafði áhrif á mig. Ég var að vísu alltaf stoned á þess- um tíma þannig að ég var kannski paranojað- ur. Að sama skapi var ég kannski líka slakur. En það er ekkert skemmtilegt að lenda í þessu. Það hefur enginn áhuga á því að taka á móti svona fólki. Eða fá sendingar með hót- unum, snörum, byssukúlum eða litlum lík- kistum á dyrapallinn heima hjá sér.“ ÁHrif Á sÁlarlífið „Fyrst og fremst er þetta truflun. Þetta er trufl- un á daglegu lífi. Truflun á einkalífinu. Trufl- un á því að getað lifað í friði. Truflun á ró. Þetta er ein tegund ofbeldis. Svipað ofbeldi og blöð- in beita fólk stundum. Stundum hafa blöðin tekið menn fyrir og lagt þá í einelti. Þetta er svipuð tilfinning. Á meðan á þessu stendur verður röskun á daglegu lífi. Þetta hefur líka áhrif á sálarlífið og ég finn fyrir þessu. Þetta er ekki eitthvað sem ég humma bara fram af mér, heldur hef- ur þetta áhrif á mig. Þegar ég fer út úr húsi á morgnana horfi ég í kringum mig og skima eftir því hvort það sé einhver að fylgjast með mér. Þegar ég er á gangi lít ég við til að athuga hvort einhver sé að fylgjast með mér. Þegar ég kem heim á daginn lít ég til hægri og vinstri áður en ég fer inn. Hægt og rólega verður maður, kannski ekki hræddur, en var um sig og óöruggur.“ ingibjorg@dv.is 36 viðtal 23. júlí 2010 föstudagur stundum var hún búin að klippa út stafi og raða þeim saman þannig að þeir mynduðu morðhótanir. stunginn af ÓBoðnum gesti Bubbi var stunginn í lærið af óboðn- um gesti á heimilinu. Sá var ógnandi í framkomu þannig að Bubbi reyndi að koma honum út með þessum afleiðingum. Börnin horfðu á. mynd ÞÓrHallur jÓnsson djöfull í mannsmynd Einu sinni var veikur maður þess fullviss að Bubbi væri djöf- ullinn í mannsmynd og hann þyrfti bara að opna á honum hausinn til þess að sanna það. Sá var stöðvaður af lögreglunni þar sem hann var á leiðinni til Bubba til að sanna mál sitt. mynd jÓnatan grétarsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.