Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.2010, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.2010, Blaðsíða 29
mánudagur 6. september 2010 sviðsljós 29 www.birkiaska.is Birkilauf (Betulic) hefur góð áhrif á bæði vökvajafnvægi líkamans og húð, örvar starfsemi nýrna og þvagfæra. Hraðar efnaskiptum og losar vatn úr líkamanum, dregur úr bólgum og afeitrar líkamann (detox). Birkilaufstöflur www.birkiaska.is Minnistöflur Bætir skammtímaminnið. Nýtist fólki sem er undir álagi og fæst við flókin verkefni. Hentar vel fyrir eldri borgara, lesblinda og nemendur í prófum. Dregur úr streitu, eykur ró og bætir skap. Ofurskutlan og söngkonan Kate Perry var í London um daginn að kynna nýjustu plötuna sína, Teenage Dream. Hún þótti glæsli- leg þar sem hún spókaði sig um göturnar í þröngum, bláum og doppóttum kjól, á him- inháum hælum og þótti helst minna á kvik- myndastjörnur sjötta áratugarins. Hún þykir oft frumleg og djörf þegar kem- ur að fatavali en segist ekki hafa áhyggjur af því að gera tískumistök því að unnusti hennar og væntanlegur eiginmaður, leikarinn Russell Brand, elski hana sama hvernig hún er til fara. Vandræðin virðast leita leikkonuna Linds-ey Lohan uppi en hún hefur ekki átt sjö dagana sæla undanfarið. Eftir að hafa nýverið setið í fangelsi og farið í meðferð vegna drykkju og fíkiefnavanda, sást til hennar þar sem hún keyrði yfir á rauðu ljósi og straukst utan í konu með barn í kerru. Að sögn sjónarvotta stöðvaði Lindsay bílinn í nokkrar sekúndur en brunaði síðan í burtu án þess að athuga ástand konunnar eða barnsins, sem blessunarlega slösuðust ekkert. Þegar kallað var eftir við viðbrögðum frá Lindsay sagði hún: „Ég veit ekkert um hvað þú ert að tala.“ Lindsay, sem var látin laus úr fangelsi gegn því skilyrði að hún skilaði þvag- og blóðprufu tvisvar í viku, þarf einnig að heimsækja geðlækni og sálfræðing nánast daglega og ekki flytja af heimili sínu í Beverly Hills. Ef hún brýtur þessi ákvæði skilorðsins er hægt að stinga henni aftur í fangelsi í allt að 30 daga. Fyrrverandi kærasta Play-boy-kóngsins Hughs Hefn-er, Kendra Wilkinson, er öll að koma til og að komast í betra form eftir barnsburð. Hún sendi inn mynd á Twitter-síðu sína um daginn því til staðfestingar. Kendra var í New York um helgina að taka á því í boði Vodkaframleiðand- ans Svedka Vodka. Æfði Kendra þar vel og lengi í David Barton-æf- ingastöðinni þar sem hún sjálf var meðal annars notuð sem bekk- pressustöng. Það fór ekki á milli mála að Kendra leit vel út í Svedka- stuttbuxunum sínum. Perry kynnir plötuna sína: Katy á himin- háum hælum Gullfalleg Katy Perry er falleg í hverju sem er. lindsay alltaf í veseni: Ók næstum á konu með barn Lindsay alltaf undir smásjánni Leikkonan unga má lítið gera án þess að allir taki eftir því. Fyrrverandi Playboy-kanína kemur sér í form: VodKa-æfingar Kendru Áhugaverðar æfingar Kendra lét taka sig í bekkpressu í merktum stuttbuxum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.