Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.2010, Blaðsíða 24
Óbreytt á toppnum Fjórðu umferðina í röð náðu liðin sem
berjast um efstu tvö sætin í 1. deildinni, Víkingur, Leiknir og Þór, sömu úrslit-
unum og hefur því ekkert breyst á toppnum. Víkingar, sem lögðu ÍR, 2–1, eru
á toppnum á markatölu en Leiknir, sem lagði HK 1–0, hefur jafnmörg stig, eða
42. Þórsarar eru svo með 40 stig en tvær umferðir eru eftir af deildinni. Fjarða-
byggð og Grótta berjast um síðasta lausa sætið í deildinni en bæði lið töpuðu
um helgina. Fjarðabyggð fyrir Fjölni 2–0 og Grótta fyrir ÍA 6–1. Grótta hefur
nú tapað síðustu þremur leikjum sínum með markatölunni 17–2 en gæti vel
haldið sér uppi vegna leikjanna sem Fjarðabyggð á eftir í deildinni.
Þorlákur tekur við Stjörnunni Ólafur Þór Guð-
björnsson verður ekki þjálfari kvennaliðs Stjörnunnar eftir tímabilið en fram kom
á Fótbolti.net á laugardaginn að Þorlákur Árnason tæki við því starfi. Þorlákur
hefur verið yfirþjálfari Stjörnunnar undanfarin ár en hann hefur einnig þjálfað
Val og Fylki í karlaboltanum. Þorlákur var með tilboð frá mörgum liðum um að
gerast yfirþjálfari yngri flokka en hann ákvað að taka við meistaraflokki Stjörn-
unnar sem hann hefur verið með puttana í undanfarin ár. Stjarnan er í fjórða
sæti Pepsi-deildar kvenna og verður það að öllum líkindum það sæti sem liðið
endar í í ár. Það lék einnig til úrslita í bikarnum í ár í fyrsta skipti í sögu félagsins.
molAr
Mayweather
biðst afsökunar
n Ósigraði hnefaleikakappinn Floyd
Mayweather hefur beðið Filipp-
seyinginn Mann Pacquiao afsök-
unar á orðum
sem hann lét
falla í netútsend-
ingu. Þar kallaði
Maywather hann
kakkalakka og
sagðist ætla að
„afgreiða þennan
gula bjána“ og
„sparka í rassinn
á þessum dverg“. Maywather, eins
og faðir hans, hefur munninn fyrir
neðan nefið og aldrei hikað við að
láta gamminn geisa. En meira að
segja hann fattaði að hann hefði
farið yfir strikið í þessari netútsend-
ingu.
Mótorhjóla-
kappi lést
n Japanskur bifhjólakappi, Shoya
Tomizawa, lést á sjúkrahúsi eftir
að hafa lent í hryllilegum árekstri
í Moto2-kapp-
akstrinum í San
Marino um helg-
ina. Tomizawa
var á fullri ferð í
brautinni þegar
hann félll af hjól-
inu í einni beygj-
unni og keyrðu
tveir aðrir kepp-
endur á hann. Bæði Alex De Ang-
elis og Scott Redding sem keyrðu
á Tomizawa féllu af hjólum sínum
en sluppu með skrámur. Tomizawa
var svo alvarlega slasaður eftir slys-
ið að hann lést af áverkum sínum á
sjúkrahúsi eftir að hafa barist fyrir
lífi sínu í nokkrar klukkustundir.
fabregas var
neyddur til að vera
n „Barcelona gerði allt sem það gat
til að landa mér en Arsenal sagði
mér að ég þyrfti að vera áfram,“ segir
Cesc Fabregas,
fyrirliði Arsenal.
Félagaskiptasaga
sumarsins var sú
að Barcelona ætl-
aði sér spænska
landsliðsmann-
inn en Arsenal-
menn gerðu hvað
þeir gátu til þess
að halda honum og á endanum tókst
það. „Arsenal sagði mér að það væri
ekki möguleiki að ég fengi að fara.
Á endanum varð ég að vera áfram
en hvað fór á milli mín og Arsenes
Wenger verður á milli okkar,“ segir
Fabregas í breskum fjölmiðlum.
scharner vill spila
gegn tottenhaM
n Austurríkismaðurinn Paul
Scharner sem WBA landaði á loka-
degi félagaskiptagluggans vonast
til þess að vera í nægilega góðu
standi til að ná
leiknum gegn
Tottenham um
næstu helgi.
Scharner hefur
verið lykilmað-
ur í liði Wig-
an undanfar-
in ár en ákvað
að framlengja
ekki samning sinn við félagið og
fara út í sumarið án þess að vera
kominn í annað lið. „Ég æfði mikið
sjálfur í Þýskalandi, Austurríki og í
Birmingham. Það ætti að taka mig
svona viku að koma mér í leikform
en ég er vongóður um að það tak-
ist. Ef ég verð valinn í leikinn verð
ég klár,“ segir Scharner sem getur
bæði spilað sem miðvörður og á
miðjunni.
24 Sport umSjÓn: TóMAS þóR þóRðARSon tomas@dv.is 6. september 2010 mánudagur
Breska slúðurblaðið Daily Mail heldur
því fram að Wayne Rooney, framherji
Manchester United og enska lands-
liðsins, hafi ítrekað haldið fram hjá eig-
inkonu sinni, Coleen Rooney, á meðan
hún var ólétt. Segir blaðið að Roon-
ey hafi viðurkennt þetta fyrir Coleen á
laugardagskvöldið. Coleen ól hjónun-
um þeirra fyrsta barn, son að nafni Kai,
fyrr á árinu.
Vændiskonan, sem heitir Jenni-
fer Thompson, segist hafa sofið sjö
sinnum hjá Rooney á fjögurra mán-
aða tímabili. Gleðikvöld með Jennifer
kostar 1.200 pund, eða rétt tæplega 220
þúsund krónur. Segir Jennifer að hún
hafi stundað kynlíf með Rooney á flott-
ustu hótelum Manchester-borgar og
saman hafi þau farið á næturklúbba og
í spilavíti. Einnig segir hún að Rooney
hafi boðið henni á heimili þeirra hjóna
í fjarveru Coleen.
Daily Mail kennir þessum vand-
ræðum Rooneys í einkalífinu um slakt
gengi hans undanfarna mánuði. Roo-
ney var ekki nema skugginn af sjálfum
sér á heimsmeistaramótinu í sumar og
hafði hann ekki skorað mark, hvorki
með Manchester United né Englandi,
þar til um síðustu helgi þegar hann
skoraði úr vítaspyrnu gegn West Ham.
Talið var að þessi frétt myndi aftra
Rooney frá því að halda til Sviss með
enska landsliðinu en Rooney er mætt-
ur til Sviss þar sem England leikur sinn
annan leik í undankeppni Evrópu-
mótsins. England fór vel af stað og af-
greiddi Búlgaríu á heimavelli, 4–0.
Þótti Rooney þar fara á kostum í
nýrri stöðu, í holunni undir fremsta
manni. Fékk hann meira lof í mörg-
um blöðum en framherjinn Jermaine
Defoe sem skoraði þrennu í leiknum.
tomas@dv.is
Wayne Rooney sagður hafa haldið við vændiskonu:
rooney með skot langt fram hjá
Rooney-hjónin á
góðri stundu Það er
væntanlega ekki jafnkátt
í höllinni í dag. MynD AFP
„Nei, ég bjóst engan veginn við
þessu,“ segir Freyr Alexandersson,
þjálfari kvennaliðs Vals sem varð Ís-
landsmeistari í fimmta skipti á laugar-
daginn með 8–1 sigri á Aftureldingu.
Það lá nokkuð ljóst fyrir að Valur yrði
meistari í ár en það átti ekki að ger-
ast á laugardaginn. Helsti keppinaut-
ur Vals um titilinn, Breiðablik, tapaði
afar óvænt fyrir öðru botnliðinu, FH,
og vildi þannig til að Valur átti leik
seinna um daginn. Því var ljóst að ef
Valskonum tækist að vinna ungt lið
Aftureldingar yrðu þær meistarar.
Titillinn er sá fimmti sem Valskonur
vinna á árinu en áður höfðu þær unn-
ið Reykjavíkurmótið, Lengjubikarinn,
Meistarakeppni KSÍ og VISA-bikar-
inn. Titillinn er líka sá 100. sem Valur
sem félag vinnur í öllum boltagrein-
um og verður því mikið húllumhæ 19.
september þegar Valur fær bikarinn
afhentan.
Mjög auðveld klefaræða
„Þetta kom afar óvænt upp á. Ég var
bara heima að fylgjast með úrslitun-
um hjá Leikni og Víkingi í 1. deild karla
og svo hjá stelpunum. Ég var ekki far-
inn að láta mér detta í hug að ég yrði
Íslandsmeistari seinna um daginn,“
segir Freyr. „Áður en ég fór af stað sá
ég að Breiðablik var 2–1 yfir í hálfleik
þannig að ég bað konuna mína um að
senda mér skilaboð um hvernig leik-
irnir myndu enda. Á þessu korteri sem
það tók mig að keyra upp í Mosó var
hún búin að hringja fimm sinnum,“
segir hann léttur.
Freyr ætlaði ekki að trúa sinni eig-
inkonu þegar hann fékk skilaboðin.
„Ég hringdi á annan stað til að fá þetta
staðfest. Þetta var þá satt og þá var ekki
erfitt að peppa stelpurnar upp í leik-
inn. Klefaræðan var bara gefins,“ seg-
ir Freyr en hún var stutt og skorinorð.
„Ég sagði bara: Þið eruð búnar að væla
Valur varð óvænt Íslandsmeistari kvenna fimmta
árið í röð á laugardaginn þegar liðið lagði Aftur-
eldingu, 8–1, að Varmá. Helsti keppinauturinn
í toppbaráttunni, Breiðablik, tapaði afar óvænt
fyrir öðru botnliðinu og átti Valur leik seinna um
daginn. „Klefaræðan var bara gefins,“ segir Freyr
Alexandersson, þjálfari Vals, sem vann alla fimm
titlana sem í boði voru á árinu.
Fullkomið ár
ValskVenna
TóMAS þóR þóRðARSon
blaðamaður skrifar: tomas@dv.is