Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.2010, Blaðsíða 23
mánudagur 6. september 2010 úttekt 23
Aðalfundur Bor
garahreyfingari
nnar
verður haldinn
þann 25. septem
ber nk.
að Borgartúni 6
, Reykjavík.
Þreyttir borða óhollari mat
Fullyrðing: til að losna
við hiksta verður
einhver að láta
þér bregða.
Sannleikurinn: „Áhrif fæstra heimilis-
ráða, eins og að halda niðri í sér andan-
um eða drekka vatn á hvolfi, hafa verið
læknisfræðilega sönnuð,“ segir Pollack.
Hins vegar má lesa í tímaritinu The New
England Journal of Medicine frá árinu
1971 að samkvæmt rannsókn sem þá var
framkvæmd virkar teskeið af hvítum
sykri gegn hiksta.
Fullyrðing: að
borða fisk ger-
ir þig gáfaðri.
Sannleikurinn: Þetta er
engin lygi þegar kem-
ur að börnum upp að
þriggja, fjögurra ára aldri.
Fiskur, og sér í lagi lax, er
sneisafullur af ómega-3
fitusýrum og þar á með-
al DHA. „DHA er afar mikil-
vægt fyrir heilaþroska fyrstu tvö
ár ævinnar,“ segir Scott W. Cohen,
barnalæknir í Beverly Hills og höf-
undur bókarinnar Eat, Sleep, Poop: A Common Sen-
se Guide to Your Baby’s First Year. Í rannsókn frá 2008
kom einnig í ljós að þau fjögurra ára börn sem fengu
ómega-3 fitusýrur í fæðunni höfðu meiri orðaforða og
betri orðaskilning en viðmiðunarhópurinn.
Fullyrðing: börn
þurfa fjölvítamín
daglega.
Sannleikurinn: „Fjölvítam-
ín skaða engan en jafnvel
þeir matvöndustu vaxa eðli-
lega,“ segir Cohen og bætir
við: „Börn fá á endanum það
sem þau þurfa, jafnvel þótt
þér finnst barnið eingöngu
nærast á lofti og sólarljósi.“
Fullyrðing: ekki borða
neitt klukkutíma fyrir sund.
Sannleikurinn: „Eftir matinn fer meira
blóð til meltingarkerfisins og frá vöðvun-
um. Því töldu menn að blóðleysi myndi
leiða til krampa,“ segir Cohen og Sears
tekur við: „Þú ert kannski ekki full/ur af
orku en ættir samt að geta tekið á því í
vatninu.“
Fullyrðing: heit mjólk
hjálpar þér að sofna.
Sannleikurinn: „Mjólk inniheldur tryptóf-
an, sömu amínósýru og finnst í kalkún, en þú
þyrftir að drekka hana í lítratali til að verða fyr-
ir svæfandi áhrifum,“ segir Michael Breus, geðlæknir
í Arizona, sem sérhæfir sig í svefnvandamálum. „Það
sem virkar best fyrir börn er föst rútína og glas af heitri
mjólk getur verið hluti af henni.“
1. Búðu til grænmetisnúðlur
Notaðu vafningsskera til að búa til
núðlur úr uppáhaldsgrænmetinu
þínu. Kúrbítur og eggaldin henta
sérstaklega vel.
2. Búðu til smoothie
Settu 60% ávexti, 40% grænmeti og
restina af vatni í mixerinn og þú ert
komin með hollan, bragðgóðan safa.
Hentar vel fyrir þá sem eru alltaf að
flýta sér.
3. Búðu til súpu
Prófaðu að henda stórum bitum af
grænmeti út í súpuna þína.
4. Veldu eftir árstíð
Það er svo auðvelt að velja alltaf sama
grænmetið í búðinni. Prófaðu þig
áfram og taktu áhættu næst þegar
þú kaupir inn. Veldu það ferskasta
hverju sinni. Ef þú veist ekki hvernig
þú átt að matreiða grænmetið áttu ör-
ugglega helling af matreiðslubókum
sem eru að rykfalla inni í eldhússkáp.
Dustaðu rykið af þeim og komdu
bragðlaukunum á næsta stig.
5. Marineraðu
Flest okkar tengja marineringu við
kjöt en það getur verið gómsætt að
marinera grænmeti. Sveppir, aspas
og brokkólí henta vel til marineringar.
Prófaðu að pensla grænmetið með
ólívuolíu, nýkreistum hvítlauk, engifer
og sojasósu.
6. Búðu til grænmetissósu
Prófaðu að skipta út venjulegu
sósunni þinni fyrir hollari kost.
7. Sætar kartöflur í stað pasta
Sætar kartöflur eru bragðgóðar og
hollar. Prófaðu að skipta pastanu og
hrísgrjónunum út fyrir sæta kartöflu.
8. Bíttu í hrátt grænmeti
Það er ekkert sem segir að við getum
bara borðað ávexti hráa. Svo geturðu
líka dýft grænmetinu í sósur upp á
fjölbreytileikann. Skerðu niður sellerí,
brokkóli og gulrætur og settu litla
tómata í skál fyrir framan þig. Sjáðu
hvort það verði mikið eftir í skálinni
eftir daginn.
9. Bættu grænmeti við
Prófaðu að bæta baunum út í
hrísgrjónin. Ferskar jurtir eins og
kóríander eða dill smakkast líka vel út
á fiskinn.
10. Vefðu því inn
Vefðu grænmeti inn í pítubrauð eða
tortillakökur og njóttu.
11. Grænmeti í hvert mál
Passaðu að hverri máltíð fylgi
eitthvert grænmeti og þú ert á
grænni grein.
11 leiðir til að borða
meira grænmeti:
komdu í áskrift!
512 70 80
dv.is/askrift
frjálst, óháð dagblað