Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2010, Síða 11
Björn Valur Gíslason, þingmaður
VG, tekur illa þeirri ályktun lands-
fundar Ungra vinstri grænna fyrir
helgi að hann hafi verið vanhæf-
ur til setu í starfshópi um endur-
skoðun fiskveiðistjórnunarkerf-
isins vegna hagsmunatengsla.
Hann óskaði síðastliðinn mánu-
dag eftir fundi með Guðrúnu Ax-
fjörð Elínar dóttur, formanni UVG,
og stjórn félagsins. „Fundurinn
var gagnlegur en breytir engu
um ályktun okkar,“ segir Snærós
Sindradóttir, varaformaður UVG.
Landsfundur UVG var haldinn
síðastliðinn föstudag og laugar-
dag. Í umræddri ályktun lýsir
landsfundurinn vonbrigðum með
að þingflokkur VG hafi tilnefnt
Björn Val Gíslason í starfshópinn.
„Björn Valur er starfsmaður stór-
útgerðarinnar Brims og því van-
hæfur sökum hagsmunatengsla,“
segir í ályktuninni.
„Það er eitt hið versta sem getur
komið fyrir þingmenn að vera sak-
aðir um óheiðarleg vinnubrögð. Ég
hef unnið fyrir Brim, Sæberg á Ól-
afsfirði og Þormóð ramma á starfs-
ferli mínum svo nokkuð sé nefnt.
Enginn atvinnurekandi á mig og ég
á ekki annarra hagsmuna að gæta
í þessu máli en allur almenning-
ur. Af þeim sökum er ég ósáttur við
ályktunina og hef óskað eftir fundi
með formanni og stjórn Ungra
vinstri grænna.“
Ungliðar deila á samningaleið
Niðurstaða starfshóps sjávarút-
vegsráðherra var að fara svokall-
aða samningaleið. Fyrningarleiðin
umdeilda, að ríkið innkalli kvót-
ann og leigi hann út á markaði,
naut ekki stuðnings innan starfs-
hópsins. Aðeins fulltrúi Hreyfing-
arinnar, Finnbogi Vikar, studdi þá
leið.
Landsfundur Ungra vinstri
grænna lýsir því hins vegar í
ályktun sinni fyrir helgi að samn-
ingaleiðin sé andstæð stefnu
VG. „Landsfundur lýsir því yfir
að samningaleiðin sé algjörlega
óásættanleg niðurstaða og gangi í
berhögg við stefnu VG.“ Jafnframt
segir í ályktuninni að það sé hlut-
verk VG að bylta fiskveiðistjórn-
unarkerfinu. „Mannréttindanefnd
Sameinuðu þjóðanna hefur álykt-
að að fiskveiðistjórnunarkerfið í
núverandi mynd sem komið var
á undir forystu Sjálfstæðisflokks-
ins þar sem framsal aflaheimilda
er leyft sé mannréttindabrot. Það
er hlutverk ríkisstjórnar Vinstri
grænna að bylta fiskveiðistjórn-
unarkerfinu og byggja upp nýtt
og sanngjarnt kerfi með félagsleg
sjónarmið að leiðarljósi.“
Við þetta má bæta að Jón
Bjarnason, sjávarútvegs- og land-
búnaðarráðherra, boðaði í ræðu
á aðalfundi Landssambands smá-
bátaeigenda fyrir helgi að ef þorsk-
og ýsukvóti yrði aukinn yrði kvót-
inn boðinn á leigumarkaði. Hann
vísaði í þessu sambandi til bráða-
birgðaákvæðis um úthlutun á
skötuselskvóta en ákveðið var
að ríkið gæti leigt út 2.000 tonn á
þessu fiskveiðiári og því næsta án
úthlutunar til kvótahafa. „Í fram-
kvæmd þykir vel hafa tekist til og
mun ég því leggja til að ráðherra
hafi heimild til að úthluta ákveðnu
magni af þorski, ýsu, ufsa, gull-
karfa og íslenskri sumargotssíld
til skipa sem hafa veiðileyfi. Út-
gerðir munu þurfa að greiða tiltek-
ið sanngjarnt gjald fyrir aflaheim-
ildirnar sem renna mun í ríkissjóð
eða til tiltekinna verkefna,“ sagði
Jón í ræðunni.
Augljós ágreiningur
Andstaða Ungra vinstri grænna
við samningaleiðina og útspil
Jóns Bjarnasonar kemur Birni Val
einnig á óvart, en innan starfs-
hópsins um endurskoðun fisk-
veðistjórnunarinnar studdi hann
samningaleiðina. „Starfshópurinn
sameinaðist nær allur um samn-
ingaleiðina utan fulltrúa Hreyf-
inarinnar enda töldum við leið-
ina mun betri en aðrar leiðir. Það
hefur farið fram hjá mér ef VG er
farið að aðhyllast markaðslausnir
við stjórn fiskveiða. Það hefur ekki
verið á stefnuskrá VG að bjóða upp
aflaheimildir. Ég held að ráðherr-
ann hafi látið þetta frá sér fara án
þess að hugsa málið til enda. Þetta
gengur í berhögg við stefnu flokks-
ins,“ segir Björn Valur.
Af ræðu Jóns Bjarnasonar, álykt-
un UVG og ummælum Björns Vals
Gíslasonar má ljóst vera að um-
talsverður ágreiningur ríkir innan
VG um stefnu flokksins í sjávarút-
vegsmálum.
Ekki hefur verið litið svo á að
niðurstaða starfshóps sjávarút-
vegsráðherra sé bindandi varð-
andi væntanlegar breytingar á fisk-
veiðistjórnunarkerfinu.
miðvikudagur 20. október 2010 fréttir 11
Ágreiningur er risinn milli Jóns Bjarnasonar sjávarútvegsráðherra og Björns Vals Gíslasonar, þingmanns
VG, um stefnu flokksins í sjávarútvegsmálum. Ung vinstri græn ályktuðu gegn Birni Val fyrir helgina og
standa nær sjónarmiðum Jóns sem boðaði í síðustu viku auknar aflaheimildir og að þær yrðu boðnar upp
af ríkinu á leigumarkaði. Björn Valur segir það nýtt ef VG aðhyllist markaðslausnir í fiskveiðistjórninni en
hann styður svonefnda samningaleið.
Væringar innan Vg
um stjórn fiskVeiða
JóhAnn hAUksson
blaðamaður skrifar: johannh@dv.is
Það hefur farið fram hjá mér ef
VG er farið að aðhyllast
markaðslausnir við
stjórn fiskveiða,“ segir
Björn Valur Gíslason.
Ungliðar ráðast á þingmann Ung
vinstrigrænmælagegnsamningaleið-
innisemBjörnValurGíslasonstuddi
ístarfshópisjávarútvegsráðherraum
endurskoðunkvótakerfisins.
Ráðherra veldur
titringi JónBjarnason
þykirhafatefltdjarft
gegnríkjandikvótakerfi
þegarhannboðaði
auknarveiðiheimildir
ogaðþæryrðuleigðar
útafríkinu.