Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2010, Side 12
12 fréttir 20. október 2010 miðvikudagur
„Leikreglurnar eru þannig að hér
getur enginn keppt við kvótagreif-
ana,“ segir Snjólfur Gíslason sem
gerir út krókabátinn Dalakoll frá
Breiðdalsvík.
Hann vísar til þeirrar reglu að
heimamenn geti fengið úthlutað
byggðakvóta leggi þeir til eigin kvóta
á móti. „Við eigum engan kvóta og
þann kvóta yrðum við þá að kaupa
af kvótaeigendum. Til þess að ná í
20 tonn af byggðakvótanum hér á
Breiðdalsvík hefði ég orðið að sýna
fram á 40 tonna kvótaeign. Hér er
fyrir löngu búið að hafa af okkur all-
an kvóta og því getum við ekki gert
neitt annað en að binda vonir við
strandveiðarnar og hugmyndir Jóns
Bjarnasonar sjávarútvegsráðherra
um að auka kvótann eitthvað. Fegin
myndum við leigja eitthvað af hon-
um frá ríkinu stæði það til boða. Ef
við fengjum leigðan kvóta af ríkinu
mætti koma því svo fyrir að við yrð-
um gjaldgengir gagnvart byggða-
kvótanum,“ segir Snjólfur og bætir
við að þeir sem geti leigt frá sér kvóta
þurfi ekki á honum að halda.
Hákarlar og hornsíli
Svo vill til að útgerðarfélagið Nóna
ehf. frá Hornafirði hefur haslað sér
völl á Breiðdalsvík og landar afla
þar. Nóna gat boðið fram kvóta á
móti byggðakvóta Breiðdalsvíkur en
skylt er að landa honum í viðkom-
andi byggðarlagi. „Þetta hefur lítið
að segja. Aflanum er landað hér en
hann er fluttur til Hornafjarðar eða
eitthvert annað. Fyrir mér lítur þetta
þannig út að þeir sterku ná einnig til
sín byggðakvótanum í krafti kvóta-
eignar sinnar. Ég og fleiri höfðum
ekkert annað en strandveiðarnar í
sumar. Það væri eitthvað sem líkt-
ist jafnræði ef við fengjum að leigja
kvóta af ríkinu og gætum keppt á
þeim grundvelli um byggðakvótann.
Ég er ekkert endilega að hugsa um
mig heldur strákana sem enn reyna
að halda velli í útgerð hérna. Ég er
ekkert að sakast við sjómenn hjá bát-
um á vegum Nónu á Hornafirði sem
náði byggðakvóta okkar til sín. Þetta
eru bara leikreglurnar sem endur-
spegla vald stórútgerðanna. Þær
fengu því framgengt að menn yrðu
að koma með kvóta á móti úthlutun
byggðakvóta. Var ekki með því ver-
ið að dæma kvótalausar útgerðir úr
leik?“
Keppum ekki við sægreifana
Samkvæmt reglugerð sjávarútvegs-
ráðuneytisins er fiskiskipum skylt
að landa til vinnslu innan viðkom-
andi byggðarlaga afla sem nemur
tvöföldu magni þess kvóta sem þau
fá úthlutað af byggðakvóta. Afla sem
boðinn er upp á fiskmarkaði telst
ekki hafa verið landað til vinnslu.
Samkvæmt frásögn Snjólfs er ákvæð-
um um vinnslu afla á staðnum ekki
fylgt. „Þegar svo er upplýst að búið sé
að afskrifa um 2,6 milljarða af skuld-
um Nónu fellur manni allur ketill í
eld. Við getum ekki keppt við þetta og
ástandið grefur enn undan byggðar-
lögunum. Ef til vill verðum við næst
að kaupa vatnið sem við drekkum.“
Ráðherrann átti stærri hlut
Landsbankinn tekur fram í yfirlýs-
ingu vegna umfjöllunar, meðal ann-
ars í DV, um Skinney-Þinganes og
afskriftir Nónu, að farið hafi verið í
einu og öllu eftir settum verklags-
reglum.
Nóna er nær algerlega í eigu
Skinneyjar-Þinganess á Hornafirði.
Landsbankinn upplýsir að skuld-
ir Nónu hafi verið afskrifaðar í jan-
úar síðastliðnum og færðar niður
til móts við eignir félagsins. Í árs-
skýrslunni segja eigendur félags-
ins að vonir séu til þess að það geti
haldið velli: „Samið hefur verið við
lánastofnanir um endurfjármögn-
un á hluta af skuldum félagsins en
stjórnendur þess eiga enn í samn-
ingaviðræðum við lánastofnanir um
endurfjármögnun þess hluta skuld-
anna sem ósamið er um. Samhliða
viðræðum um endurfjármögnun
vinna stjórnendur að endurskipu-
lagningu og hagræðingu í rekstri
félagsins. Ef stjórnendum félagsins
tekst að ljúka samningum um end-
urfjármögnun og hagræðingarað-
gerðir skila þeim árangri sem von-
ast er til, er það mat stjórnenda að
hægt verði að reka félagið til fram-
tíðar.“ Textinn er meðal annars frá
feðgunum Ingólfi Ásgrímssyni og
Aðalsteini, sem er framkvæmda-
stjóri Nónu.
Landsbankinn upplýsir jafnframt
að eignarhlutur Halldórs Ásgríms-
sonar, fyrrverandi forsætisráðherra
og formanns Framsóknarflokksins,
sé 2,37 prósent.
Í minnisblaði Sigurðar Þórðarson-
ar, þáverandi ríkisendurskoðanda, til
fjárlaganefndar Alþingis árið 2005 var
hins vegar ekki annað að sjá en hlut-
ur Halldórs hefði verið liðlega 1,3 pró-
sent. Í minnisblaðinu lagði ríkisend-
urskoðandi mat á hæfi Halldórs til
afskipta af sölu á eignarhlut ríkisins í
Búnaðarbankanum til S-hópsins svo-
nefnda, en hann tengdist Skinney-
Þinganesi í gegnum félagið Hesteyri
hf. DV taldist til að hlutur Halldórs í
afskriftum, sem komu félagi Skinn-
eyjar-Þinganess til góða, hefði því ver-
ið um 34 milljónir króna. Samkvæmt
upplýsingum Landsbankans er hlut-
ur Halldórs í afskriftum hjá félagi í
eigu Skinneyjar-Þinganess því um 62
milljónir króna og var því um vanmat
DV að ræða í úttekt blaðsins fyrir síð-
ustu helgi.
Afskrifa til að vernda störf og
lífsafkomu
Í yfirlýsingu Landsbankans vegna
málsins segir orðrétt: „Að gefnu til-
efni er rétt að taka fram að Lands-
bankinn fór í einu og öllu að verk-
lagsreglum þegar skuldir Nónu ehf.
voru afskrifaðar í janúar 2010. Skuld-
ir fyrirtækisins voru færðar niður
í 100 prósent af eignavirði til sam-
ræmis við þágildandi reglur bankans
og eigendur lögðu félaginu til nýtt fé
samhliða þeirri niðurfærslu. Í dag
heimila reglur bankans niðurfærslu
skulda í 90 prósent af eignavirði sam-
hliða 10 prósent framlagi eigenda.
Öllum fyrirtækjum með greiðslugetu
stendur sú leið til boða.“
Landsbankinn leggur áherslu á
að í meðförum bankans njóti öll fé-
lög jafnræðis. „Það þýðir að fyrir-
tækjum er hvorki ívilnað né refsað
þó einhver eigandi þeirra kunni til
dæmis að hafa starfað í stjórnmálum
um lengri eða skemmri tíma. Þess
ber að geta að margnefndur eignar-
hlutur fyrrverandi forsætisráðherra
í móðurfélagi Nónu ehf., Skinney-
Þinganess hf., er 2,37 prósent. Engar
skuldir þess félags hafa verið afskrif-
aðar og slíkt stendur ekki til. Einnig
er rétt að nefna að afskriftir á skuld-
um Nónu ehf. hafa engin áhrif á nið-
urskrift skulda annarra viðskiptavina
og sérstaklega ekki einstaklinga. Með
þessari leið og endurskipulagningu á
skuldastöðu Nónu ehf. telur bankinn
sig hámarka endurheimtur sínar af
lánum til fyrirtækisins.
Landsbankinn hefur lagt áherslu
á að endurskipuleggja skuldir lífvæn-
legra fyrirtækja í samræmi við vilja
yfirvalda og hefur í því sambandi tal-
ið mikilvægt að vernda störf og lífs-
afkomu fólks. Með það fyrir augum
var samningur um niðurskrift skulda
Nónu ehf. gerður.“
jóHAnn HAuKsson
blaðamaður skrifar: johannh@dv.is
Nóna, dótturfélag Skinneyjar-Þinganess á Hornafirði, ræður yfir byggðakvóta heimamanna á Breiðdalsvík.
Kvótalausir heimamenn treysta á strandveiðar og vonast til þess að kvótinn verði aukinn. Samkvæmt leik-
reglunum þarf útgerð að leggja til kvóta frá sjálfri sér til þess að eiga möguleika á öðru eins af byggðakvóta.
„Þetta dæmir okkur úr leik og tyllir undir stórútgerðirnar,“ segir snjólfur Gíslason. Landsbankinn hefur
afskrifað 2,6 milljarða króna hjá Nónu.
Byggð undir hæl
kvótarisanna
Þegar svo er upp-lýst að búið sé að
afskrifa um 2,6 milljarða
af skuldum Nónu fellur
manni allur ketill í eld.
Við getum ekki keppt við
þetta og ástandið grefur
enn undan byggðarlög-
unum.
Afskriftir SamkvæmtupplýsingumLandsbankansnemurhluturHalldórsÁsgríms-
sonaríafskriftNónu,dótturfélagsSkinneyjar-Þinganess,um62milljónumkróna.
samþjöppun á fárra höndum Meiraaðsegja
byggðakvótiBreiðdalsvíkurkomstíhendurNónu
eftiraðstórfyrirtækihöfðukomistyfirkvóta
heimamanna.mynd siGtRyGGuR ARi jóHAnnsson
Kvótalausir heimamenn DalakollurerkrókabáturáBreiðdalsvíksemháðurer
heimildtilstrandveiða.
snjólfur Gíslason „Þaðværieitthvað
semlíktistjafnræðiefviðfengjumað
leigjakvótaafríkinuoggætumkepptá
þeimgrundvelliumbyggðakvótann.“