Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2010, Side 23

Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2010, Side 23
mér að hitta hann aftur svo ég hætti bara,“ segir hann og bætir við að á þessum tíma hafi hann verið viss um að geta læknað sig af samkynhneigðinni. „Ég reyndi að biðja þetta í burtu og var á tímapunkti viss um að mér hefði tekist að laga mig. Ég var svo viss um að mér væri batnað að ég gifti mig,“ segir hann og bætir við að 18 ára hafi hann skrifað undir undirskriftarlista gegn því að samkyn- hneigðir mættu ættleiða börn, svo sterk hafi afneitunin verið. Áfall fyrir barnsmóðurina Eftir fimm ár slitnaði upp úr hjónabandinu og þremur og hálfu ári síðar kom Davíð út úr skápnum. „Það var eiginlega alveg óvart og alls ekkert sem hafði verið í spilunum. Ég hafði hitt strák af netinu en það samband gekk ekki upp. Svo fór ég að hitta stelpu en í síðasta skiptið sem við kysstumst fann ég að ég gat ekki meira. Ég fékk nánast taugaáfall, svitnaði og svaf ekkert í þrjá sólarhringa. Einn daginn þegar við barnsmóðir mín fór- um saman að versla skóladót fyrir dæturn- ar spurði hún mig hvernig gengi með kær- ustuna og ég sagði henni að það samband væri búið. Hún fór eitthvað að spyrja mig og ég svaraði einhverju samhengislausu og allt í einu kom orðið „hommi“ út úr mér. Hún kom til mín um kvöldið og við spjölluðum betur saman,“ segir hann og bætir við að fréttirnar hafi reynst mikið áfall fyrir hana. „Hún tók þessu samt ótrúlega vel og á þrosk- aðan hátt og hvatti mig til að sækja Samtök- in 78. Ég ætlaði ekkert að segja fleirum en ákvað eitt kvöldið að skella mér á skemmti- stað fyrir samkynhneigða en þegar ég kom þangað hitti ég alla vinnufélaga mína. Ég er ekki vanur að drekka áfengi en þarna hafði ég drukkið í mig kjark svo þegar einn vinnu- félaganna spurði hvað ég væri að gera þarna og hvort ég væri hommi svaraði ég bara ját- andi. Svo þetta var fljótt að fréttast. Fyrstu vikurnar var ég rosalega hræddur, vissi ekki hvernig fólk myndi taka þessu og óttaðist höfnun og ímyndaði mér allt það versta. Ég kveið mikið fyrir að útskýra þetta fyrir börn- unum mínum, foreldrum, vinum og söfnuð- inum en ég hef verið í Krossinum frá árinu 2005,“ segir hann en bætir við að almennt hafi fólk tekið fréttunum vel. Fyrsta ástarsorgin Davíð segir tímann eftir að hann kom út úr skápnum hafi verið eins og að ganga í gegn- um annað gelgjutímabil. „Þetta tímabil var fullt af tilfinningum. Þarna var ég að upp- lifa fyrstu ástarsorgina sem var virkilega sárt og erfitt. Ég hafði ekki hugmynd um að ást- inni fylgdi svona mikið af flóknum og óraun- sæjum tilfinningum. Fólk beitir ekki beint rökhyggjunni á þennan hluta lífsins,“ segir hann og brosir. „Í dag líður mér vel. Í fyrsta skiptið á ævinni upplifi ég mig sem eðlileg- an einstakling sem passar nokkurn veginn alls staðar inn. Ég get tekist á við lífið sem ég sjálfur,“ segir hann en bætir við að eftir þriggja daga vanlíðan og jafnvel smá snert af taugaáfalli hafi hreinlega verið um tvennt að velja – að koma út úr skápnum eða gefast upp. „Ég hafði misst lífsviljann og veit ekki hvað hefði gerst ef ég hefði ekki gert hreint fyrir mínum dyrum, bæði hvað varðar sjálf- an mig og fólkið í kringum mig. Mér fannst ég vera að ljúga að sjálfum mér og öllum í kringum mig. Allt í lífinu var orðið svo skakkt og skekkt.“ Samfélagið opnara Davíð segir að þegar hann hafi verið að vaxa úr grasi hafi umræðan um samkynhneigð á meðal krakka verið afar neikvæð. Hann segist ekki vita hvernig umræðan sé í dag en miðað við við- brögð dætranna telji hann að ástandið sé betra. „Ég hafði kviðið mikið fyrir að segja stelpunum mínum frá þessu en þegar ég tilkynnti þeim að ég ætti kærasta fannst þeirri yngstu það skrýtið en þeirri elstu fyndið. Miðbarnið sagði að það væru margir karlar sem ættu kærasta og marg- ar konur sem ættu kærustur og að það væri bara flott. Hún var bara fimm ára. Ekki vissi ég hvað samkynhneigð var þegar ég var fimm ára. Samfélagið er orðið opnara og fólk fær frekar að vera í friði eins og það er. Samt er einelti enn til staðar og þess vegna tel ég þessa umræðu svo mikilvæga. Ég vil vekja þessa umræðu svo krakkar þegi ekki yfir kynhneigð sinni og upp- lifi sjálfa sig sem neikvæð og að þau séu ekki metin að eigin verðleikum.“ indiana@dv.is miðvikudagur 20. október 2010 úttekt 23 Ég reyndi að biðja þetta í burtu og var á tímapunkti viss um að mér hefði tekist að laga mig. Ég var svo viss um að mér væri batnað að ég gifti mig. Stefán Svan fatahönnuður varð fyrir einelti í æsku. Hann var kallaður hommi og stelpustrákur og á unglingsárunum varð ofbeldið hrottafengnara. Ég bjó úti á landi þar til ég var sjö ára en eineltið hófst eiginlega um leið og ég flutti í borgina,“ segir Stefán Svan Að- alheiðarson, fatahönnuður og starfsmaður í GK Reykjavík. Stefán Svan segist hafa geng- ið í góðan skóla og að krakkarnir í bekkn- um hafi komið vel fram við hann. „Það voru frekar eldri krakkar sem lögðu mig í einelti. Ég átti mikið af stelpuvinum og var kallaður stelpustrákur. Svo þegar við eltumst fór ein- eltið að verða hrottalegra og fór að beinast að kynhneigð minni. Í gagnfræðaskóla átti einn strákurinn til að veitast reglulega að mér, bæði í skólanum og utan skólans,“ seg- ir hann og bætir við að nokkrir þeirra sem komu illa fram við hann í æsku hafi beðið hann afsökunar á fullorðinsárum. „Kannski bauð ég hættunni heim því ég var ekkert að fela hvernig ég var og hagaði mér eins og ég vildi þótt ég reyndi að láta lítið á mér bera. Í seinni tíð hafa margir þessara krakka komið til mín og sagst líða illa og ég skil það vel og vorkenni þeim sem hafa svona lagað á sam- viskunni. Það er frábært að geta beðist afsök- unar en fólk verður að skilja að einelti getur haft mjög alvarlegar afleiðingar. Það er ekki bara hægt að afgreiða þetta sem bernskubrek og saklausa stríðni.“ Hommi og stelpustrákur Stefán segir fréttir af sjálfsvígum vegna ein- eltis snerta hann djúpt. „Þetta er bara al- veg hræðilegt. Þegar maður er barn á mað- ur að fá að vera barn og á ekki að þurfa að hafa áhyggjur af svona löguðu. Ég hef samt líka samkennd með þeim krökkum sem stunda einelti því oftast eru þetta krakkar sem koma úr erfiðum aðstæðum sjálf og eru að fá útrás fyrir eigin vanlíðan með þess- ari hegðun,“ segir hann en bætir aðspurð- ur við að þrátt fyrir eineltið og að vera upp- nefndur „hommi“ og „stelpustrákur“ hafi hann aldrei skynjað samkynhneigð sem nei- kvæða. „Mér fannst aldrei neitt mál að vera samkynhneigður, það var alltaf meira mál fyrir aðra en mig. Annars hefði ég örugglega dílað við þessa reynslu öðruvísi. Kannski var ég sterkur karakter auk þess sem ég átti rosalega góða að, bæði fjölskyldu og vini sem tóku mér eins og ég var,“ segir hann en bætir við að vissulega hafi eineltið haft sín áhrif á sjálfsmyndina. Niðrandi umræða „Fyrir vikið var ég meira til baka og var kannski síður að trana mér fram. Ég hef alveg upplifað sjálfan mig sem annars flokks. Þess- ir sjömenningar, sem urðu til þess að fjólu- blái dagurinn er nú haldinn, koma frá landi og fylki þar sem fordómar og mismunun er mun meiri en hér. Við erum heppin að búa hér. Samt er umræðan á Íslandi ekki komin nógu langt á meðan við erum til dæmis að ræða hjúskapar- og ættleiðingarlög samkyn- hneigðra í Kastljósi þar sem aðilar hvor með sitt sjónarmið ræða það hvort þú sért nógu góð manneskja til að giftast og eiga börn. Þessi umræða er bæði niðrandi og niðurlægj- andi. Barneignir og hjónaband eiga að vera sjálfsögð réttindi fyrir alla en á meðan þessi umræða fer fram eru hlutirnir gerðir erfiðari og flóknari.“ indiana@dv.is Börn eiga að fá að vera börn Hræðilega sorglegt Stefán Svan segir fréttir af sjálfsvígum vegna eineltis snerta hann djúpt. Á myndinni er hann ásamt Aðalheiði vinkonu sinni. Einelti vegna kynhneigðar Tyler Clementi var 18 ára nemandi við Rutgers-háskólann í New Jersey. Þann 22. september skrifaði hann sína síðustu færslu á Facebook-síðu sína: „Jumping off the gw bridge sorry“. Lík hans hefur aldrei fundist en ökuskír- teini hans og veski fundust á George Washing- ton-brúnni. Clementi setti inn færsluna eftir að hafa komist að því að herbergisfélagi hans á vistinni hafði tekið ástarleik hans með öðrum dreng upp á myndband og birt á netinu. Seth Walsh, 13 ára, hafði verið fórnarlamb grimmilegs eineltis um árabil og reyndi að enda líf sitt með því að hengja sig. Hann lést á sjúkrahúsi í Kaliforníu í byrjun október. Justin Aaberg, 15 ára, í Minnesota tók líf sitt í september. Mamma hans kom að honum látnum í herbergi hans. Hún hefur sagt fjölmiðl- um að hún hafi haldið að hann væri hamingju- samur en hefur nú fengið að heyra af skelfilegu einelti sem hannsætti um árabil. Þótt Aaberg hafi komið úr skápum 13 ára vissi fjölskylda hans ekki að hann væri hommi. Raymond Chase, 19 ára samkynhneigður listanemi í Monticello í New York, hengdi sig á skólavistinni þann 1. október. Asher Brown, 13 ára drengur frá Houston í Texas, skaut sig í höfuðið heima hjá sér í sept- ember. Foreldrar hans segja ástæðuna skelfilegt einelti af hálfu fjögurra skólafélaga hans. „Asher var strítt til dauða. Hann var lagður í einelti því hann var lágvaxinn, trúaður og hafði ekki efni á dýrum merkjafötum. Krakkarnir sökuðu hann líka um að vera hommi,“ var haft eftir móður hans. Billy Lucas, 15 ára nemi við Greensburg- menntaskólann í Indíana-ríki, hengdi sig í hlöðu heima hjá ömmu sinni í september. Hann hafði verið lagður í einelti vegna samkynhneigðar. Á minningarsíðu hans viðurkenna skólafélagar hans að allir hafi gert grín að honum. Hatrið hefur náð á minningarsíðuna þar sem einhverjir hafa skrifað móðgandi athugasemdir um samkynhneigða. Cody J. Barker var 17 ára þegar hann framdi sjálfsmorð þann 13. september. Hann var samkynhneigður. Samkvæmt bandarískri rannsókn frá árinu 2009 eru samkynhneigðir krakkar í elstu bekkjum grunnskóla mun líklegri til að reyna sjálfsvíg en gagnkynhneigðir. Samkvæmt niðurstöðunum höfðu 34% homma og lesbía reynt að fyrirfara sér á móti 7% gagnkyn- hneigðra. Í sömu rannsókn kom einnig í ljós að samkynhneigðir krakkar eru mun líklegri til að reykja, drekka áfengi og nota fíkniefni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.