Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2010, Blaðsíða 24
Flestir sáttir við ÓlaF Í skoðanakönnun
sem knattspyrnuvefsíðan Fótbolti.net gerði á meðal leikmanna
Pepsi-deildarinnar kemur í ljós að flestir þeirra eru tiltölulega
sáttir við landsliðsþjálfarann, Ólaf Jóhannesson, sem hefur setið
undir harðri gagnrýni fyrir slakt gengi sitt með liðið. Fimmtíu
og fimm prósent þeirra 212 leikmanna sem svöruðu könnuninni
segjast mjög sáttir eða frekar sáttir við Ólaf en fjörutíu og fimm
prósent segjast frekar- eða mjög ósáttir við störf hans. Könnunin
var gerð fyrir leik landsliðsins gegn Portúgal, sem tapaðist 3-1.
Nýliðaslagur á selFossi Fjórða umferð N1-
deildar karla hefst á fimmtudagskvöldið með tveimur stórleikjum.
Nýliðar deildarinnar í ár, Selfoss og Afturelding, mætast á Selfossi en
heimamenn hafa náð í tvö stig í deildinni í ár en Afturelding er enn
án stiga. Reykjavíkurrisarnir Fram og Valur mætast svo í Safamýri,
Valur á botninum án stiga. Umferðin heldur svo áfram á föstudags-
kvöldið þegar Akureyri og Haukar mætast fyrir norðan og lokaleik-
urinn er svo viðureign HK og FH í Digranesinu á laugardaginn en sá
leikur verður í beinni útsendingu í sjónvarpinu.
Molar
Ræna hugsanlega
n‘Zogbia
n Liverpool-menn íhuga nú að stela
vængmanninum Charles N‘Zogbia
fyrir framan nefið á Birmingham
sem talið er
næsta öruggt
að bjóði í hann
níu milljónir
punda í janúar.
Búist er við því
að Roy Hodgson
– eða hver sá sem
verður þjálfari
Liverpool í
janúar – fái fulla tösku fjár til þess
að styrkja liðið. Birmingham-menn
hafa fylgst með hverju fótmáli
Frakkans á þessari leiktíð en
frammistaða hans síðustu vikur
hafa einnig vakið áhuga Liverpool
og var njósnari frá liðinu á leik
Wigan og Newcastle um helgina þar
sem N‘Zogbia skoraði tvö mörk.
MæliR Með hangeland
n Og meira af leikmannamálum
Liverpool. Fyrrverandi Anfield-goð-
sögnin Jamie Redknapp heldur
því fram að
Liverpool ætli sér
að landa norska
miðverðinum
Brede Hange-
land frá Fulham
þegar glugginn
opnar í janúar.
Redknapp, sem
er sérfræðingur
Sky-sjónvarpstöðvarinnar, segir
að náið samband Roy Hodgson
við Hangeland muni hjálpa til við
samninga þar. Enn fremur segir
Redknapp að Hangeland sé sá leik-
maður sem liðið hefur sárvantað frá
því Sami Hyypia fór til Þýskalands.
„Ég er viss um að Mark Hughes
bíður bara eftir símtali frá Hodgson,“
segir Jamie Redknapp.
stRíðið helduR áfRaM
n Það verður seint sagt að Tony Pulis,
knattspyrnustjóri Stoke, og kollega
hans hjá Arsenal, Arsene Wenger,
séu bestu vinir.
Orðastríð hefur
verið í gangi
þeirra á milli
eftir að Wenger
kallaði Stoke rug-
by-lið. Segir Pulis
nú að stimpillinn
snillingur sem
Wenger ber á
sér sé algjört ofmat þar sem hann
hafi ekki unnið titil í sex ár. „Ég er
með spennandi og hæfileikaríka
leikmenn eins og Etherington, Fuller
og Tuncay Sanli. Ég er viss um að
þeir væru ekki í Stoke ef við værum
jafnslæmir og Wenger segir. Annars
hef ég ekkert á móti erlendum knatt-
spyrnustjórum, þeir eru gott fólk
að undanskildum Arsene Wenger,“
segir Pulis.
Magic seluR sinn hlut
n Körfuboltahetjan Magic Johnson
hefur selt sinn litla hlut í Los Angeles
Lakers til dr. Ratrick Soon-Shiong
með það í huga
að eignast stærri
hlut í öðru NBA-
liði seinna meir.
Johnson keypti
4,5 prósenta
hlut í Lakers í
júní árið 1994
fyrir 10 milljónir
dollara en þá
sagði hann ákvörðunina einungis
viðskiptalegs eðlis, hún tengdist því
ekkert að hann hefði spilað þar allan
sinn feril. Síðan Johnson keypti hlut í
Lakers hefur hlutur hans orðið mun
verðmætari en liðið hefur unnið
fimm NBA-titla síðan þá.
24 sport UmSJÓN: TóMAS þóR þóRðARSoN tomas@dv.is 20. október 2010 miðvikudagur
Spútniklið Meistaradeildarinn-
ar, FCK frá Danmörku, heimsæk-
ir stórlið Barcelona í Meistara-
deildinni í kvöld. Fyrirliði íslenska
landsliðsins, Víkingurinn Sölvi
Geir Ottesen, sem leikur með FCK,
verður ekki með vegna meiðsla en
hann er handarbrotinn. Hann von-
ast þó til að ná seinni leiknum þeg-
ar Börsungar koma í heimsókn á
Parken. FCK hefur gengið mjög
vel í fyrstu tveimur leikjum sínum
og unnið bæði gríska liðið Panat-
hinaikos og Rússana í Rubin Kaz-
an, 1-0.
Stórleikur er í A-riðli þar sem
Tottenham heimsækir Evrópu-
meistara Inter í Mílanó. Robbie
Keane, leikmaður Tottenham, fór
ungur að árum til Inter og hlakk-
ar til að mæta gömlu félögunum.
„Það er frábært fólk þarna svo þetta
er eitthvað sem ég horfi glaður til
baka á. Að fara þangað nítján ára
gamall og spila með einu stærsta
félagi í heimi er einn besti tíminn
í lífi mínu og eitthvað sem ég mun
aldrei gleyma,“ segir Keane, en eini
leikmaðurinn sem lék með honum
er hinn síungi Argentínumaður, Ja-
vier Zanetti.
tomas@dv.is
Meistaradeild Evrópu á miðvikudagskvöldið:
Danir heimsækja Katalóníu
A-Riðill
Inter - Tottenham
Twente - Werder Bremen
B-Riðill
Lyon - Benfica
Schalke - Haopel Tel Aviv
C-Riðill
man. United - Bursaspor
Rangers - Valencia
D-Riðill
Barcelona - FCK
Panathinaikos - Rubin Kazan
leikiR kvöldsinsDANiR í HeiMSókN
messi og félagar taka á
móti FCK.
MyND ReuTeRS
Talið niður í kveðjusTund
„Við byrjuðum að ræða um nýjan
samning síðasta sumar. Um miðj-
an ágúst hringir umboðsmaður
hans í okkur og sagði að Rooney
ætlaði ekki að skrifa undir nýjan
samning,“ sagði Sir Alex Ferguson,
knattspyrnustjóri Manchester Un-
ited, á blaðamannafundi fyrir leik
liðsins gegn Bursaspor í Meistara-
deildinni í gær. Snérist fundurinn
eðlilega um framtíð Waynes Roon-
ey hjá félaginu en nú er það orðið
ljóst að sjö ára veru þessa 24 ára
gamla framherja er að ljúka hjá
Manchester United. Rooney hef-
ur unnið allt á sínum ferli með
United að undanskildum bikarn-
um og hampað nær öllum ein-
staklingsverðlaununum sem hægt
er. Þó Real Madrid hafi um helg-
ina sagst ekki ætla að gera tilboð í
Rooney gæti það snögglega breyst
vegna nýjustu tíðinda en Rooney
myndi væntanlega smellpassa inn
í stjörnufansinn í Madríd.
Sagðist elska félagið
„Ég veit hreinlega ekki hvað breytt-
ist hjá honum. Við vorum í miklu
áfalli vegna þessara tíðinda,“ sagði
Ferguson í viðtali við Manchest-
er United-sjónvarpsstöðina í gær.
„Ég skil þetta alls ekki því fyrir að-
eins mánuði sagðist Wayne elska
félagið og sagðist ætla að klára
ferilinn sinn hér. Við kölluðum
strákinn síðan á fund og þar
undirstrikaði hann við okk-
ur að hann vildi fara. Ég tjáði
honum þá að hann skyldi
virða félagið engu að síður og ekki
vera í neinu rugli. Hvort hann hef-
ur sýnt félaginu virðingu verður
fólk að dæma sjálft um,“ sagði
Ferguson sem stóð við bak-
ið á Rooney þegar upp
komst um framhjáhald
hans í sumar.
„Við verðum
að greiða götu
hans, hann er
það góð-
ur
Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri
Manchester United, greindi frá því í gær að
Wayne Rooney vildi fara frá félaginu. Batt
hann þar með enda á margra vikna sögu-
sagnir en Rooney yfirgefur félagið væntan-
lega strax í janúar. Ferguson sagðist brugðið
þar sem Rooney hefði svo oft sagst vilja
vera allan ferilinn hjá Manchester United.
TóMAS þóR þóRðARSoN
blaðamaður skrifar: tomas@dv.is
þyNgRA eN TáRuM TAki Ferguson
las upphafið að endi Rooneys í gær.
MyND ReuTeRS