Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2010, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2010, Page 4
4 FRÉTTIR 1. nóvember 2010 MÁNUDAGUR Verð aðeins 17.950 krónur Sími 569 3100 • Stórhöfða 25 • www.eirberg.is • Shiatsu nudd • Infrarauður hiti • Titringur • Fjarstýring Fjölnota nuddpúði Opið virka daga kl. 9 -18 og á laugardögum kl. 11 - 16 Vefsíður Sigurðar Arnar Leóssonar ekki lengur aðgengilegar: Vefsíðum Sigurðar læst Sigurður Örn Leósson, sem rekur fyr- irtækið Havila Ltd., sem skráð er í Sameinuðu arabísku furstadæmun- um, hefur læst fyrir aðgang að tveimur heimasíðum félags síns, þar sem hann býður upp á margvíslega fjármála- þjónustu, fjárfestingakosti og gylliboð um snöggan gróða. Notendur þurfa nú að slá inn lykilorð til þess að fá að- gang að upplýsingum á vefsíðunni. Meðal þess sem fyrirtæki Sigurðar býður upp á er að kaupa gamla seðla frá Filippseyjum auk kaupa á óút- skornum örkum af bandarískum pen- ingaseðlum. DV fjallaði um umsvif Sigurðar Arnar í síðustu viku, en hann hefur ekki viljað svara spurningum blaðsins um fyrirtækið og vefsíðurn- ar heldur hótað þess í stað málsókn. Nú hefur síðunni verið læst, en eng- ar skýringar eru gefnar á því. Sigurður Örn var áður í forsvari hér á landi fyr- ir panamíska fyrirtækið Finanzas For- ex sem margir Íslendingar lögðu fé í, í von um skjótfengin gróða. Á vefsíðunum kynnir fyrirtæki Sig- urðar fyrir fjárfestum hvernig þeir geti stórgrætt á gjaldeyrisbraski, auk þess sem fjallað er um viðskipti með gull, timbur og margt fleira. Þá er boðið upp á að stofna aflandsbankaþjón- ustu í Panama. Eins og fram hefur komið varaði fjármálaeftirlitið við Finanzas For- ex og fjölmargir Íslendingar hafa enn ekki fengið peningana sína aftur, eft- ir að sjóðir fyrirtækisins voru frystir vegna gruns um að það væri svikam- ylla. Sjálfur þvertekur Sigurður fyr- ir það og lofar að allir fái endurgreitt. Hann hefur hins vegar ekki nefnt neina tímasetningu hvað það varðar. Sigurður Örn Leósson Læst hefur verið fyrir aðgang að heimasíðum Sigurðar. Nóg að gera hjá lögreglunni Mjög mikill erill var hjá lögreglunni í Reykjavík aðfaranótt sunnudags. Tilkynnt var um fimm líkamsárás- ir og fjórir voru teknir ölvaðir undir stýri. Einnig var mikið um útköll vegna hávaða í heimahúsum og öðrum málum sem tengjast mikilli ölvun. Fangageymslur voru hálffullar og segir lögreglan að margir hefðu ver- ið að skemmta sér vegna hrekkja- vökunnar en vildi þó ekki fullyrða að það hefði verið ástæða þess hve erilsöm nóttin var. Stjórnmálafræð- ingar funda Félag stjórnmálafræðinga heldur opin hádegisfund um bandarísku þingkosningarnar í dag, mánudaginn 1. nóvember 2010, í stofu 102 á Há- skólatorgi. Magnús Sveinn Helgason, sérfræðingur í bandarískum stjórn- málum, fer yfir stöðuna og þær breyt- ingar sem orðið hafa í bandarískum stjórnmálum að undanförnu. Hann mun leitast við að svara því um hvað er kosið og hvað helst hafi áhrif til breytinga í þessum kosningum, m.a. Teboðshreyfinguna. Einnig fer hann yfir bandaríska kerfið, hversu marg- ir sitji á þingi, hversu mörg sæti sé kosið um að þessu sinni o.s.frv. Gætu þessar kosningar markað tímamót? Magnús kennir bandarísk stjórnmál við Háskólann á Bifröst. Snýst allt um líðan Jóns Hanna Birna Kristjánsdótt- ir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn Reykjavíkur, sagði í þættinum Sprengisandi á sunnu- dag að umræðan um Reykjavík- urborg snúist meira um líðan Jóns Gnarr borgarstjóra, heldur en líðan borgarbúa. „Umræðan snýst þessa dagana miklu meira um hans líðan, hvort hann er að hætta að reykja, hvort hann er með höfuðverk, hvort hann er á spítala,“ sagði Hanna Birna. Dagur B. Eggertsson, for- maður borgarráðs, sagði að með þessu væri Hanna Birna frekar að gagnrýna umfjöllun fjölmiðla um borgarstjórann og því væri þetta ekki gagnrýni á hann sjálfan. Íslendingurinn sem lést þegar hann varð fyrir lest í Drammen í Noregi aðfaranótt laugardags hét Kjart- an Björnsson. Hann var fæddur árið 1987 og því 23 ára gamall þeg- ar hann lést. Kjartan bjó í Noregi ásamt unnustu sinni en þau fluttu þangað í janúar á þessu ári ásamt systur Kjartans og vinkonu þeirra. Þau vildu skipta um umhverfi og ákváðu því að freista gæfunnar í Noregi. „Hann var búinn að vinna tímabundið á nokkrum stöðum í Noregi áður en hann fékk hjá fast- ráðningu hjá Arctic Trucks fyr- ir fimm vikum og hann var mjög ánægður þar,“ segir Elín Björg Birg- isdóttir móðir Kjartans. „Hann hafði verið að skemmta sér með nýju vinnufélögunum sínum og var á leið heim.“ Elín vill að það komi skýrt fram að Kjartan hafi ekki verið í annar- legu ástandi þegar slysið átti sér stað þó hann hafi verið að koma af skemmtun. „Samkvæmt því sem ég heyri frá vinnufélögum hans þá var hann alls ekki öfurölvi þannig að hann hafi getað ráfað út á teinana. Þetta var bara hræðilegt slys. Það virðist vera sem hann hafi misst eitthvað á lestarteinana og hafi ver- ið að sækja það, en við erum ekki alveg búin að fá það staðfest,“ seg- ir Elín. Stórt skarð höggvið í samfé- lagið í Grindavík „Það bera allir honum vel sög- una. Hann var yndislegur, duglegur, jákvæður og bara einstakur strákur. Hann var einstaklega barngóður og alltaf tilbúinn að hjálpa öllum. Nei var ekki til í hans orðabók. Hann var einstaklega falleg sál,“ segir Elín um son sinn. „Við erum búin að taka á móti um 120 gestum í dag og í gær sem bera honum þessa sömu sögu.“ Minningarathöfn var haldin um Kjartan í Grindavíkurkirkju á laug- ardaginn og fullt var út úr dyrum. Ljóst er að stórt skarð hefur verið höggvið í samfélagið í Grindavík, heimabæ Kjartans, með ótíma- bæru fráfalli hans. Starfsfólk Arctic Trucks einstakt Elín vill fá að koma á framfæri miklum þökkum til Arctic Trucks. Hún segir að starfsfólkið þar sé búið að vera einstakt á þessum erf- iða tíma þrátt fyrir að Kjartan hafi verið búinn að vinna mjög stutt hjá fyrirtækinu. „Þeir ætla gera allt fyr- ir okkur, sækja okkur út á völl, lána okkur íbúð og allt til að auðvelda okkur þessar erfiðu aðstæður í Nor- egi,“ segir Elín þakklát. Hið hræðlega slys átti sér stað á Brakerøya-lestarstöðinni í Drammen í Noregi um klukkan hálf eitt aðfaranótt laugardags- ins síðastliðins. Engir farþeg- ar voru í lestinni og engin vitnu urðu að slysinu að lestarstjóran- um undanskildum. Lestin var á miklum hraða og talið er öruggt að Kjartan hafi látist samstund- ins. „HANN VAR EINSTAK- LEGA FALLEG SÁL“ SÓLRÚN LILJA RAGNARSDÓTTIR blaðamaður skrifar: solrun@dv.is Hræðilegt slys átti sér stað í Drammen í Noregi aðfaranótt laugardags þegar íslenskur maður varð fyrir lest á Brakerøya-lestarstöðinni og lést samstundis. Kjartan Björns- son bjó með unnustu sinni í Noregi og hafði nýlega hafið störf hjá Arctic Trucks þegar hann lést. Móðir hans lýsir honum sem einstökum dreng, barngóðum og hjálpsömum. Þetta var bara hræðilegt slys. Kjartan Björnsson F. 4 . j ú n í 1 9 8 7 – D . 3 0 . o k t ó b e r 2 0 1 0 Brakerøya-lestarstöðin Slysið átti sér stað um klukkan hálfeitt síðastliðið föstudagskvöld.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.