Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2010, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2010, Blaðsíða 14
DÍSILOLÍA Algengt verð VERÐ Á LÍTRA 196,6 kr. VERÐ Á LÍTRA 196,6 kr. Algengt verð VERÐ Á LÍTRA 196,4 kr. VERÐ Á LÍTRA 196,4 kr. Algengt verð VERÐ Á LÍTRA 197,9 kr. VERÐ Á LÍTRA 197,7 kr. BENSÍN Akureyri VERÐ Á LÍTRA 196,3 kr. VERÐ Á LÍTRA 196,3 kr. Melabraut VERÐ Á LÍTRA 196,4 kr. VERÐ Á LÍTRA 196,4 kr. Algengt verð VERÐ Á LÍTRA 196,6 kr. VERÐ Á LÍTRA 196,6 kr. SLEGIÐ Á HENDUR ÍSLANDSPÓSTS Póst- og fjarskiptastofnun, PFS, hefur hafnað beiðni Íslandspósts um hækkun á gjaldskrá bréfa innan einkaréttar. Samkvæmt úrskurð- inum ætlaði fyrirtækið að velta kostnaði af afslætti til fyrirtækja yfir á almenning. „Þá taldi PFS að hag- ræðið af fyrirhuguðum breytingum Íslandspósts á dreifingu pósts yrði ekki metið nema fyrir lægi ítarleg greining á undirliggjandi kostnaði fyrirtækisins, fyrirkomulagi afslátt- ar og fleira,“ segir á pfs.is. Stofnunin er annars að fara yfir nýja skilmála og gjaldskrá Íslandspósts – eins og beðið var um í júní. SAGT AÐ GÚGGLA EINKENNIN n Niðurskurðurinn í heilbrigðiskerf- inu birtist í ýmsum myndum. DV hafði tal af stúlku sem varð fyrir því að yfir hana leið aðfaranótt fimmtu- dagsins. Henni var ekið á bráðamót- töku Landspítalans þar sem hún hitti lækni. Hann vissi ekki hvað hrjáði stúlkuna og sendi hana heim með þau orð í farteskinu að hún gæti prófað að fletta einkennunum upp á leitar- vélinni Google. SENDIÐ LOF EÐA LAST Á NEYTENDUR@DV.IS ELKO GEGN KREPPUNNI n Lofið fær Elko fyrir að segja kreppunni stríð á hendur og opna nýja verslun úti á Granda. Um helgina bar þar að líta góð til- boð á raftækjum af ýmsu tagi; allt frá sodastream-tækjum til uppþvottavéla og ísskápa. Ánægður viðskiptavinur, sem DV heyrði af, gerði góð kaup þegar hann keypti flatskjá á nið- ursettu verði. Hann var hæstánægður með tilboðin. LOF&LAST 14 NEYTENDUR UMSJÓN: BALDUR GUÐMUNDSSON baldur@dv.is 1. nóvember 2010 MÁNUDAGUR VARASÖM HEYRNARTÓL „Af öryggisástæð- um vill Neytendastofa vekja athygli á innköllun á heyrnartól- unum 38-2485 og 38-2376 af gerðinni Exible af söluaðilanum Clas Ohlson AB í Svíþjóð. Nikkelinnihald í vörunni getur valdið ofnæmisviðbrögðum þar sem það er meira en leyfilegt er,“ segir á heimasíðu Neytendastofu. Þar segir að viðkomandi vörur hafi ekki verið seldar á Íslandi svo vitað sé en kunni að hafa borist með öðrum leiðum. „Neytendastofa hvetur neytendur til að hætta notkun vörunnar nú þegar,“ segir þar líka.E L D S N E Y T I PENINGARNIR BRENNA UPP INNI Í BÖNKUNUM Þeir sem leggja peningana sína inn á almenna veltureikninga bank- anna horfa beinlínis á þá rýrna. Vextir allra bankanna, nema S24, eru nánast engir. Verðlag í október hækkaði um þrjú prósent. Það þýðir að til að peningarnir hefðu haldið verðgildi sínu hefði 100.000 króna innistæða þurft að hækka um 3.000 krónur. Þeir hækkuðu hins vegar bara um 100 til 250 krónur, miðað við núver- andi vaxtatöflur bankanna. Und- antekning er S24, sem býður lang- hæstu vextina af veltureikningum. Aðeins þar rýrna peningarnir ekki. Nánast engir vextir DV kannaði vexti á debetreikning- um, verðtryggðum reikningum og yfirdráttarlánum bankanna. Sú at- hugun leiðir í ljós að miklu máli get- ur skipt við hverja þú skiptir. Verð- bólga hefur hjaðnað jafnt og þétt á þessu ári. Snemma á árinu mæld- ist verðbólgan 8 prósent en hún er nú komin niður í um þrjú prósent. Samhliða lækkandi stýrivöxtum Seðlabankans hafa vextir af inn- og útlánum lækkað. Þegar hefðbundnir veltureikn- ingar bankanna eru skoðaðir, þang- að sem margir Íslendingar leggja inn launin sín í hverjum mánuði, kemur í ljós að vextirnir eru nán- ast engir. Þeir eru lægstir hjá Lands- banka og Ís- landsbanka, aðeins 0,10 prósent. Það þýð- ir að inneign upp á 100.000 krónur hækkar um 100 krónur á ársgrund- velli. Vegna hækkandi verðlags rýrna þeir peningar sem þar eru lagðir inn um 2,8 prósent, miðað við þá þriggja prósenta verðbólgu sem spáð var að yrði í október. Þú færð sífellt minna fyrir peninginn. Þessu verður vart lýst öðruvísi en svo að með því að geyma peningnana þína inni á veltureikningum sértu að brenna peningunum þínum. S24 í sérflokki Arion banki og Byr eru með 0,15 prósenta vexti á almennum veltu- reikningum en MP Banki 0,25 pró- sent. Peningarnir sem lagðir eru inn á banka hjá MP Banka rýrna um 2,7 prósent. S24 er í algjörum sér- flokki hvað vexti af debet- eða veltu- reikningum varðar. Þar eru vextirn- ir 3,45 prósent. Það þýðir að 100.000 króna inneign hækkar á einu ári um 3.450 krónur eða 450 krónur um- fram verðlag, miðað við að 3 pró- senta verðbólga októbermánaðar sé allt árið. Með öðrum orðum er S24 eini bankinn sem ávaxtar fé á almennum veltureikningum, þó lít- ið sé. Þess má geta að S24 er í 100 prósenta eigu Byrs. Taka skal fram að ef um veruleg- ar innistæður er að ræða eru vextir bankanna eitthvað hærri. Oftast er það þannig að þeir sem eiga milljón krónur eða meira inni á veltureikn- ingum fá betri vexti en hjá Landsbankanum er það til dæmis þannig að sá sem á 250 þúsund króna inneign fær 1,55 prósenta vexti á upphæðina sem er umfram 250 þúsund krónurnar. Þeir vextir eru þó enn miklu lægri en verðbólgan. Verðtryggðu peninginn þinn En hver er lausnin ef þú vilt ekki að peningarnir þínir rýrni? Þeir sem eiga peninga sem þeir þurfa ekki að nota í bráð ættu að leggja þá inn á verðtryggða reikn- inga. Þótt vextirnir séu ekki háir er þó hægt að treysta á að féð rýrni ekki í verði. Betri vextir fást eftir því sem peningarnir eru lengur bundn- ir inni á bókinni. Bundin bók þýðir að eigandinn getur ekki tekið út peningana nema að ákveðnum tíma liðnum. DV kannaði vexti á verðtryggðum reikningum sem bundnir eru í þrjú ár en yfirleitt er hægt að binda pen- ingana inni á bók í þrjú til sex ár. MP Banki býður hæstu vextina, 3,25 prósent. Sá sem ávaxtar milljón krónur á reikningi MP Banka á eftir þrjú ár 1.100.703 krónur, miðað við þessa vexti. Inneignin hækkar um hundrað þúsund krónur umfram verðlag á þremur árum. Aðrir bankar bjóða 2,85 til 3,15 Peningar á veltu- og debetreikningum bankanna rýrna um 2,9 prósent á ári. Að S24 undanskildum eru vextir af pening- um á slíkum reikningum nánast engir. Lausnin felst í að skipta við S24 eða binda peningana til nokkurra ára inni á verð- tryggðum reikningum. Jóhannes Gunn- arsson hjá Neytendasamtökunum gagn- rýnir bankana harðlega. BALDUR GUÐMUNDSSON blaðamaður skrifar: baldur@dv.is Ef það er eini valkosturinn að binda peningana inni þá er það ekki ásættanlegt ástand. Og þú hagnast S24 er í sérflokki þegar kemur að vöxtum á veltureikningum. Þar rýrna peningarnir ekki. Aðeins 0,1 prósents vextir Þú beinlínis tapar á því að geyma peninga inni á veltureikningum bankanna. Brenna upp Fjárhæðir á debet- og veltureikningum rýrna um 2,9 prósent á ári.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.