Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2010, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2010, Blaðsíða 25
Frábær dagur hjá Newcastle Það verður þjóðhátíð í Newcastle næstu vikuna en Newcastle gjör- sigraði nágranna sína og erkifjendur í Sunderland í ensku úr- valsdeildinni í gær, 5–1. Kevin Nolan var maður dagsins en hann skoraði þrennu í þessum frábæra sigri Newcastle. Shola Ameobi skoraði hin mörkin tvö. Til að bæta gráu ofan á svart fyrir Sund- erland fékk varnarmaðurinn Titus Bramble að líta rauða spjaldið í leiknum en það leiddist Newcastle-mönnum ekki því hann er fyrrverandi leikmaður liðsins. dapurt í MiðlöNduM Birmingham-slagurinn á milli Birmingham og Aston Villa náði aldrei flugi í ensku úrvals- deildinni í gær. Leikurinn var afskaplega leiðinlegur og var boðið upp á fá marktækifæri. Seinni hálfleikurinn var þó ívið skárri en markalaust jafntefli varð niðurstaðan. Nágrannarnir eru því áfram í tólfta og þrettánda sæti deildarinnar þegar tíu umferðum er lok- ið. Emile Hesky komst hvað næst því að skora fyrir gestina úr Ast- on Villa en Ben Foster í marki Birmingham var vandanum vaxinn og varði góðan skalla hans í horn. mánudagur 1. nóvember 2010 sport 25 Íslenska kvennalandsliðið í hand- bolta gerði jafntefli í seinni leikn- um gegn U20 ára liði Noregs í Mýr- inni í Garðabæ í gær, 29–29. Fyrri leiknum lauk með sigri norsku stelpnanna, 24–22 en leikirnir voru liður í undirbúningi Íslands fyr- ir lokakeppni Evrópumótsins sem fram fer í Danmörku og Noregi í desember. Í fyrri leiknum á laugardaginn var varnarleikur Íslands prýðileg- ur en sóknarleikurinn að sama skapi slakur. Í gær var íslenska lið- ið með undirtökin nær allan leik- inn en það leiddi í hálfleik, 14–11. Íslenska liðið var einnig yfir allan seinni hálfleikinn og hafði forystu, 29–28, þegar Noregur hélt í loka- sóknina. Jöfnunarmarkið skoruðu þær norsku þegar fimmtán sek- úndur voru eftir af leiknum. Það voru aðeins ellefu norskar stelpur á skýrslu í seinni leiknum en einn leikmaður var meiddur og þá voru þrjár stelpur veikar. Rakel Dögg Bragadóttir var markahæst íslenska liðsins í báð- um leikjunum. Hún skoraði fimm mörk á laugardaginn, þar af eitt úr víti, en í gær skoraði hún átta. Hrafnhildur Skúladóttir átti einn- ig góðan leik í gær og skoraði sjö mörk. Markvörðurinn Berglind Íris Hansdóttir varði ellefu skot í Mýr- inni í gær en Guðrún Maríasdóttir varði þrjú skot. Næsti leikur íslenska liðsins er gegn aðalliði Norðmanna á æf- ingamóti í lok nóvember en þar mætir Ísland einnig hinu feiki- sterka liði Dana. Liðið leikur einn- ig við Serbíu og Spán áður en hald- ið verður á EM þar sem Ísland er í riðli með Svartfjallalandi, Króatíu og Rússlandi. tomas@dv.is Íslensku stelpunum tókst ekki að leggja ungmennaliðið: Tap og jafntefli gegn Noregi Hart barist Framarinn Stella Sigurðardóttir í baráttunni í Mýrinni í gær. myNd EggErT JóHaNNssoN Manchester United er áfram á beinu brautinni eftir mikilvægan sigur á Tottenham í ensku úrvalsdeildinni um helgina, 2–0. Nemanja Vidic skoraði fyrra markið en það verð- ur það síðara sem rætt verður um á kaffistofunum fram eftir vikunni. Portúgalinn Nani nýtti sér þá mistök Herelio Gomes í markinu og skoraði en Gomes hélt að aukaspyrna hefði verið dæmd á Nani fyrir að hand- leika knöttinn. Ekkert var þó dæmt og gaf Clattenburg leikmönnum merki um að halda leik áfram. Harry Redknapp, stjóri Tottenham, var reiður í garð Clattenburg eftir leik- inn. Clattenburg tók völdin Atburðarásin í kringum mark Nani var afar sérstök. Fyrst virtist brot- ið á Nani þegar hann var að sleppa að marki en rifið var í treyju hans og hefði Nani líklega átt að fá víta- spyrnu. Í svekkelsi sínu greip Nani í boltann en Herelio Gomes í mark- inu tók boltann af honum og hljóp nokkra metra með hann áfram og lagði svo aftur niður. Gomes leit á Clattenburg dómara sem gaf honum merki um að halda leik áfram. Það fattaði hann ekki en aftur á móti fattaði Paul Scholes það og hljóp að boltanum og um leið kveikti Nani á perunni. Nani spyrnti boltan- um í tómt netið og dæmdi Clatten- burg mark. Línuvörðurinn kallaði þá Clattenburg til sín og benti honum á að Nani hefði gripið boltann með hendinni. Clattenburg mat það þó svo að ekki væri hægt að dæma eftir á þar sem hann sagði boltann áfram í leik og fékk markið að standa. Mikil- vægur 2-0 sigur United í höfn. menn sjá hlutina á ólíka vegu Tveir elstu knattspyrnustjórarnir í enska boltanum, Sir Alex Ferguson og Harry Redknapp, túlkuðu atvikið á mismunandi hátt. „Þetta var furðu- legt mark og fyrst vissi enginn hvað átti að vera rangt. Það er ekki hægt að kenna dómaranum eða línuverð- inum um þetta. Dómarinn lét leik- inn halda áfram því Gomes var með boltann. Mistökin voru markvarðar- ins að ætla að taka aukaspyrnu sem aldrei var dæmd,“ sagði ánægður Ferguson eftir leikinn. Harry Redknapp var ekki jafn- kátur. „Þetta var hendi á Nani. Hann handlék boltann viljandi og hefði átt að fá spjald. Allir sáu hann gera þetta svo það er aukaspyrna. Það er ekki hægt að ljúga til um það og taka bolt- ann aftur því þú hefur sett upp á þig kryppu því þú fékkst ekki víti. Þessi ákvörðun var hneyksli og dómar- inn klúðraði þessu,“ sagði Redknapp reiður eftir leikinn. Tómas þór þórðarsoN blaðamaður skrifar: tomas@dv.is Þessi ákvörðun var hneyksli. Furðumark frá Nani Manchester United lagði Tottenham í stórleik helgarinnar í enska boltanum á laugardaginn. Portúgalinn Nani skoraði afar umdeilt mark sem Harry redknapp, knattspyrnustjóri Tottenham, var vægast sagt ósáttur við. Öskuillir Tottenham-menn trúðu ekki að markið fengi að standa. myNd rEuTErs aNNar fagNar Nani var ánægður með markið umdeilda, en markvörðurinn Herelio Gomes var brjálaður. myNd rEuTErs Úrslit Enska úrvalsdEildin arsenal - West Ham 1-0 1-0 A. Song (‘88) Blackburn - Chelsea 1-2 1-0 B. Mwaruwari (‘22), 1-1 N. Anelka (‘39), 1-2 B. Ivanovic (‘84) Everton - stoke City 1-0 1-0 Yakubu Aiyegbeni (‘67) fulham - Wigan 2-0 1-0 C. Dempsey (‘30), 2-0 C. Dempsey (‘44) Wolves - man. City 2-1 0-1 E. Adebayor (‘23, víti), 1-1 N. Milija (‘30), 2-1 D. Edwards (‘57) man. united - Tottenham 2-0 1-0 N. Vidic (‘31), 2-0 Nani (‘85) Bolton - liverpool 0-1 0-1 M. Rodríguez (‘87) Newcastle - sunderland 5-1 1-0 K. Nolan (‘26), 2-0 K. Nolan (‘34), 3-0 S. Ameobi (‘45, víti), 4-0 S. Ameobi (‘70), 5-0 K. Nolan (‘75), 5-1 D. Bent (‘90). n Titus Bramble, Sunderland (‘54) aston Villa - Birmingham 0-0 staðan lið l u J T m st 1. Chelsea 10 8 1 1 27:3 25 2. Arsenal 10 6 2 2 22:10 20 3. Man. Utd 10 5 5 0 22:12 20 4. Man. City 10 5 2 3 13:10 17 5. Tottenham 10 4 3 3 11:10 15 6. WBA 9 4 3 2 13:15 15 7. Newcastle 10 4 2 4 19:14 14 8. Everton 10 3 4 3 10:8 13 9. Fulham 10 2 6 2 12:11 12 10. Bolton 10 2 6 2 13:14 12 11. Sunderland 10 2 6 2 9:12 12 12. Liverpool 10 3 3 4 10:14 12 13. Aston Villa 10 3 3 4 9:13 12 14. Birmingham 10 2 5 3 10:12 11 15. Stoke City 10 3 1 6 10:14 10 16. Blackpool 9 3 1 5 13:20 10 17. Wigan 10 2 4 4 7:18 10 18. Blackburn 10 2 3 5 9:12 9 19. Wolves 10 2 3 5 10:16 9 20. West Ham 10 1 3 6 7:18 6 Enska b-dEildin Barnsley - Hull 1-1 Portsmouth - Nottingham f. 2-1 Hermann Hreiðarsson kom inn á hjá Portsmouth undir lokin. sheffield utd - Coventry 0-1 Aron Einar Gunnarsson var í byrjunarliði Coventry og var skipt út af á 70. mínútu. reading - doncaster 4-3 Brynjar Björn Gunnarsson og Ívar Ingimarsson voru ekki í leikmannahópi Reading. leicester - Preston 1-0 ipswich - millwall 2-0 middlesbro - Bristol City 1-2 QPr - Burnley 1-1 Heiðar Helguson gat ekki leikið með QPR vegna meiðsla. scunthorpe - leeds 1-4 Cr. Palace - swansea 0-3 Cardiff - Norwich 3-1 derby - Watford 4-1 staðan lið l u J T m st 1. Cardiff 14 10 2 2 28:12 32 2. QPR 14 8 6 0 26:5 30 3. Swansea 14 8 2 4 20:12 26 4. Coventry 14 7 3 4 21:16 24 5. Norwich 14 7 2 5 20:18 23 6. Reading 14 6 4 4 22:14 22 7. Derby 14 6 3 5 25:17 21 8. Burnley 14 5 6 3 22:16 21 9. Watford 14 6 3 5 26:22 21 10. Portsmouth 14 6 3 5 21:19 21 11. Ipswich 14 6 3 5 17:15 21 12. Leeds 14 6 2 6 23:26 20 13. Nottingham F. 14 4 7 3 16:14 19 14. Millwall 14 5 4 5 18:17 19 15. Doncaster 14 5 4 5 23:23 19 16. Scunthorpe 14 5 2 7 18:21 17 17. Barnsley 14 4 4 6 18:25 16 18. Sheffield Utd 14 4 3 7 9:18 15 19. Leicester 14 4 3 7 17:27 15 20. Hull 14 3 5 6 10:18 14 21. Preston 14 4 1 9 20:30 13 22. Bristol City 14 3 4 7 14:24 13 23. Middlesbro 14 3 2 9 13:24 11 24. Cr. Palace 14 3 2 9 14:28 11

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.