Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2010, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2010, Blaðsíða 23
Bieber þegar hann var kominn á samning og nú nýtur Bieber góðs af því að hafa sér við hlið fullorðið fólk sem staðið hefur í sömu sporum og hann, því Usher, Scooter, lífvörður Biebers og fleiri þjálfa hann stöðugt og kenna honum að takast á við frægðina, fylgifiska hennar og opinbera ímynd hans. Engan þarf að undra í ljósi þess hverja hann umgengst að hann, þrátt fyrir að vera afsprengi miðstéttaruppeldis eins og það er tíðkað í Stratford í Ontario í Kanada – langa vegu frá Atlanta í Georgíu-ríki – hafi til- einkað sér ásýnd rappara og talsmáta. Að sjálfsögðu er Justin Bieber oft til umfjöll- unar í táningatímaritum og um hann er sagt að hjartsláttur unglingsstúlkna aukist við tilhugs- unina um hann, að hann sé „teenage heart- throb“, eða hjartaknúsari. Óttalegt krútt Við hlustun á laginu Baby, af plötunni My World 2.0, vaknar ósjálfrátt sú spurning hvað valdi þeim gríðarvinsældum sem Justin Bie- ber á að fagna – lagið er hvorki betra né verra en margt annað sem notið hefur vinsælda. En ef horft er á myndbandið með laginu og eyrunum gefin hvíld er auðvelt að skilja það aðdráttarafl sem hann kann að hafa gagnvart ungum krökk- um – stúlkum – einkum og sér í lagi. Enda hefur Scooter Braun ekki farið í launkofa með að ung- ur aldur Justins leiki stórt hlutverk í vinsældum hans og svo hafði hann einnig þessa björtu og fínu rödd í upphafi ferilsins. Lagið One Time er um margt afar ólíkt Baby og má leiða líkur að því að það sé meira í anda Ushers – R&B-skot- ið – enda skýtur hann upp kollinum í mynd- bandinu með laginu. En unglingsdrengir fara í mútur, röddin breytist og á stund- um geta þeir vart komið út úr sér einni setningu án þess að röddin bresti. Við það glímir Justin Bie- ber nú og hefur viðurkennt að hann þurfi að syngja eldri lög sín á annan hátt en áður. Hann hefur fengið sérstakan söngþjálfara til að hjálpa sér yfir þann hjalla sem röddin glímir við nú um stundir. Hvort Justin Bieber tekst að viðhalda vin- sældum sínum nú þegar hann mjakast yfir á fullorðinsárin verður tíminn að leiða í ljós, en ekki má horfa fram hjá mætti markaðssetningar og digurra sjóða þegar skjóta á nýrri stjörnu upp í stjörnuhimininn. Æði fyrri tíma Sem fyrr segir hefur nánast með reglulegu millibili brostið á æði í tónlistargeiranum. Með nokkurri fullvissu má segja að Bítlaæðið hafi verið hið fyrsta þeirrar tegundar – án efa eru þeir til sem setja Elvis Presley í fyrsta sætið – en táningar á öllum tímum hafa átt sér sitt átrún- aðargoð. Löngu gleymdar stjörnur liðinna tíma urðu þess heiðurs aðnjótandi að herbergi ungra stúlkna voru veggfóðruð með myndum af þeim. Í því samhengi nægir að nefna söngvar- ana David Cassidy, Donny Osmond og Gilbert O‘Sullivan. Donny Osmond var, líkt og Justin Bieber, afar ungur að árum þegar hann varð frægur – reyndar fyrst sem einn af Osmond- fjölskyldunni og síðar einn síns liðs – og má leiða líkur að því að hans dæmi svipi hvað best til Justins Biebers; snoppufríður, hreinlegur ungur drengur með silkimjúka rödd, og þeg- ar hann söng lagið Donna vildu allar stúlkur vera Donna. Sennilega vilja allar stúlkur sem hlýða á lagið Baby vera sú sem Justin Bieber syngur til. HÆfileikar og dugur Fyrrnefndir þre- menningar eru nú fallnir í gleymsku hjá flestum sem á árum áður höfðu þá í hávegum og liðin er sú tíð þegar fimm- menningar frá Ed- inborg á Skotlandi, The Bay City Rollers, einokuðu þýska ung- lingablaðið Bravo og fleiri af sama toga. Þó höfðu þeir or- sakað svipað æði og The Beatles og verið nefndir til sögunnar sem stærsta hljóm- sveit sögunnar síðan Bítlarnir sungu sitt síðasta, þó stærðar- gráðan væri önnur og líftíminn skemmri. Æði af þessum toga virðist hafa verið ein- kenni fyrri hluta áttunda áratugar tuttugustu aldar og varð síðan fátítt og í reynd óþekkt með öllu. Því má til sanns vegar færa að afrek ungs drengs frá smáborg í Ontario sé þeim mun merkilegra og þó hann hafi notið aðstoðar sér reyndari manna þegar hann steig sín fyrstu skref má ekki horfa fram hjá þeirri staðreynd að Justin Bieber hefur tónlistarhæfileika, að- dráttarafl og, ekki síst, dug til að láta að sér kveða í heimi þar sem samkeppni er hörð og er þekktur fyrir ýmislegt annað en umburðar- lyndi og þeir hiklaust reknir út á gaddinn sem ekki skila útgáfufélagi sínu digrum sjóðum. Hvað sem því líður er óhætt að segja að viðleitni Justins og móður hans til að gera ætt- ingjum og vinum kleift að njóta tónlistar hans á YouTube dró dilk á eftir sér. Heimild: Wikipedia og víðar mánudagur 1. nóvember 2010 nærmynd 23 Drengurinn sem tryllir stúlkur Lærifaðirinn Usher Raymond var ungur að árum þegar hann kynntist frægðinni, rétt eins og Justin Bieber. Hann er fæddur árið 1978 í Austin í Texas en fluttist á táningsárum til Atlanta í Georgíu en hann gerir enn út frá þeirri borg. Hann var aðeins 16 ára gamall þegar hann gaf út sína fyrstu plötu, en við gerð hennar fékk hann aðstoð frá ekki ómerkari manni en Sean P Diddy Combs. Það var hins vegar árið 1997 sem hann sló rækilega í gegn með annarri plötu sinni, My Way. Síðan þá hefur hann gefið út 5 plötur til viðbótar, þá síðustu á þessu ári, Raymond vs. Raymond. Seljast plötur Ushers ætíð sem heitar lummur, en hann hefur alls selt 45 millj- ón plötur á ferlinum og er í 21. sæti yfir söluhæstu tónlistarmenn allra tíma í Bandaríkjunum. Hann ætti að reynast Bieber ágætis fyrirmynd en Usher leggur mikla áherslu á heilbrigt líferni og metnað í starfi. Gengur honum helst illa að festa ráð sitt, en hann hefur meðal annars átt í sambandi við bresku fyrirsætuna Naomi Campbell og á þrjú börn úr fyrri samböndum. Enda hefur Scooter Braun ekki farið í laun- kofa með að ungur aldur Justins leiki stórt hlutverk í vinsældum hans og svo hafði hann einnig þessa björtu og fínu rödd í upphafi ferilsins. falla í stafi Stúlkur verða gripnar æði þegar þær berja Bieber augum. Ásamt usher, læriföður sínum Justin Bieber hefur notið leiðsagnar sér reynslumeiri tónlistarmanna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.