Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2010, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2010, Blaðsíða 6
6 fréttir 1. nóvember 2010 mánudagur Ólafur H. Johnson, skólastjóri og eigandi Menntaskólans Hraðbraut- ar, bauðst til að láta af störfum sem skólastjóri á kennarafundi um miðj- an maí síðastliðinn vegna mikilla deilna innan skólans. Á fundinum var Ólafur meðal annars gagnrýnd- ur vegna mikillar fjarveru frá skólan- um og vegna lána og arðgreiðslna út úr rekstrarfélagi hans. Þetta kemur fram í fundargerðinni sem rituð var upp á fundinum og DV hefur undir höndum. Fundurinn var haldinn tæpum sex vikum áður en DV greindi frá háum lánveitingum og arðgreiðslum út úr skólanum og að menntamála- ráðuneytið ætlaði að láta Ríkisend- urskoðun rannsaka fjármál skólans. Um 80 prósent af tekjum Hraðbraut- ar koma frá íslenska ríkinu í gegn- um þjónustusamning sem skólinn er með við menntamálaráðuneytið. Hin 20 prósentin eru skólagjöld nemendanna. Síðan umræddur kennarafund- ur var haldinn hefur Menntaskólinn Hraðbraut verið talsvert til umfjöll- unar. Menntamálaráðuneytið hef- ur látið vinna tvær úttektir um starf skólans. Ráðuneytið bað Ríkisendur- skoðun að rannsaka fjármál skólans og var niðurstaðan úr þeirri athugun sú að Ólafur hefði tekið tugi milljóna króna í arð út úr skólanum og lánað þaðan álíka upphæðir. Jafnframt var sagt frá því að Hraðbraut hefði fengið of háar fjárveitingar frá ríkinu. Ráðu- neytið lét einnig vinna faglega úttekt á starfi skólans og lágu niðurstöð- ur úr þeirri úttekt fyrir í síðustu viku. Niðurstaðan var sú að margt gott væri um skólann að segja og að að- hald og kennsla væri til fyrirmyndar. Það sem helst var gagnrýnt í úttekt- inni var starf skólastjórans og tals- verð fjarvera hans meðan á skólaár- inu stæði. Kennararnir stóðu Ólaf að verki Í fundargerðinni sést hvernig einn af kennurum skólans, Bjarki Bjarnason, virðist hafa staðið Ólaf að verki með því að skoða ársreikninga rekstrarfé- lags skólans. Bjarki kastaði því fram sem hann hafði fundið út við skoð- un á ársreikningum skólans eftir að umræða hafði farið fram um lág laun kennara skólans. Eitt tilefni fund- arins var að ræða um þá staðreynd að Ólafur hafði neitað að skrifa upp á aðild kennara skólans að Kenn- arasambandi Íslands. Þar hafði sá sem ritaði fundargerðina það með- al annars eftir Ólafi að skólinn væri ekki „óendanlega gleiður í launum“ en kennarar Hraðbrautar töldu sig fá allt að 50 prósent lægri laun en þeir hefðu átt að fá samkvæmt kjara- samningum. Umræddur Bjarki setti þessa um- ræðu um launamál kennara skólans í samband við það sem hann hafði fundið út með lestri á ársreikning- um skólans. Í fundargerðinni segir: „Bjarki talar um arð í ársreikningum, talar um að það sem gengur af fari beint til Ólafs. Það skipti milljónum. Hægt hafi verið að lána félagi lán upp á 50 milljónum. Á sama tíma verið að segja að skólinn beri sig ekki. Ekki sé hægt að horfa fram hjá tölum síð- ustu ára. Lán fór á milli Hraðbrautar og Faxafens ehf og þeir fjármunir eru farnir í verkefni sem Nýsir var með og það er allt farið. Spurning hvort að rétt sé að lána af fé skólans. Það er spurning en það var gert svaraði Ól- afur.“ Í svari Ólafs fólst ákveðin viður- kenning á því að ekki væri heppi- legt að skóli væri að lána fjármuni til fasteignaverkefna. Hann virðist hins vegar ekki hafa tekið efnislega af- stöðu til arðgreiðslnanna og líklega talið þær í lagi. Þetta rímar við það sem Ólafur segir um slíkar lánveit- ingar og arðgreiðslur í skýrslu Ríkis- endurskoðunar en þá tók hann und- ir þau orð stofnunarinnar að slíkar lánveitingar væru ekki æskilegar en að þær hefðu tilheyrt þeim tíma þeg- ar „viðhorf“ og „hugsunarháttur“ til slíkra gerninga hefðu verið með öðr- um hætti í samfélaginu. Ólafi fannst hins vegar ekkert athugavert við arðgreiðslurnar í svari sínu til Ríkis- endurskoðunar: „Skýrt kemur fram að Ríkisendurskoðun telur ekkert í þjónustusamningnum, lögum eða fyrirmælum sem bannar arðgreiðsl- ur út úr skólanum“. Niðurstaða Rík- isendurskoðunar var aftur á móti á þann veg að Ólafur hefði greitt sér arð út úr skólanum án þess að hafa fjárhagslegt bolmagn til þess. Lagði til málamiðlun Ein af tillögum Ólafs á umræddum fundi með kennurum skólans var að stinga upp á því að hann hætti sem skólastjóri ef kennarnir myndu samþykkja að sækja ekki um að- ild að Kennarasambandi Íslands. Miklar deilur höfðu verið í skólan- um út af þessu atriði og hafði tveim- ur kennurum sem sóttu það hart að Ólafur skrifaði upp á aðild þeirra að Kennarasambandinu verið sagt upp. Ólafur hafði sömuleiðis ver- ið gagnrýndur fyrir mikla fjarveru frá skólanum en hann hefur dvalið langdvölum í húsi sínu á Flórída á síðustu árum. Hugmynd Ólafs var á þá leið að hann myndi í staðinn verða stjórn- arformaður skólans og að fundinn yrði nýr skólastjóri. Í fundargerð- inni segir: „Hann mun stíga til hliðar sem skólastjóri og ráðinn verður nýr skólastjóri. Hann verður formaður stjórnar. Þessi tvö atriði 1) að kenn- arar hætti við að fara í K.Í 2) að hann stigi til hliðar og í staðinn komi mað- ur sem er sýnilegur. Ólafur segist log- andi hræddur við kennarasamband- ið, en ætlar ekki að tefja fólk í því að sækja í stéttarfélag. Í huga Ólafs er al- gjörlega ljóst að ástandið í skólanum er ömurlegt. Öllum líður illa. Snúa bökum saman og halda áfram að styðja við skólann.“ Tillaga Ólafs varð ekki að veru- leika og leystist fundurinn upp og endaði án þess að komist væri að neinni niðurstöðu um aðkomu Ól- afs að skólanum í framtíðinni né um aðild kennaranna að Kennarasam- bandi Íslands. Ólafi tókst því ekki að fá kennarana til að samþykkja þessa málamiðlun og er líklegt að það hafi átt þátt í því að málefni skólans hafa komist í hámæli í kjölfar úttektar Rík- isendurskoðunar. Það er spurning en það var gert svaraði Ólafur. Tillaga Ólafs Ólafur bauðst til þess að hætta í Hraðbraut gegn því að kennararnir hættu við að sækja um aðild að Kennarasambandi Íslands. Hann sagði skólann ekki hafa efni á að greiða hærri laun en fékk það svo í andlitið frá einum kennaranum að hann hefði veitt lán og greitt sér arð af skólastarfinu. ingi f. viLhjáLmsson fréttastjóri skrifar: ingi@dv.is Ólafur h. johnson, skólastjóri og eigandi Hraðbrautar, bauðst til þess að láta af störfum ef kennarar skólans létu ógert að ganga í Kennarasambandið. Skólastjórinn bar þessa tillögu upp á kenn- arafundi í maí þar sem sett var fram mikil gagnrýni á Ólaf. Einn kennarinn spurði Ólaf til dæmis út í tug milljóna króna lán og arðgreiðslur út úr skólanum. ÓLAFUR BAUÐSt tIL AÐ HÆttA hLAUP Í gRÍmsvÖTnUm: BúISt vIÐ eLdgoSI Hlaup hófst í Grímsvötnum senni partinn á sunnudag og segir Gunnar Sigurðsson, vatnamælingamaður á Veð- urstofunni, að meiri líkur en minni séu á því að gos hefjist í Grímsvötnum að loknu hlaup- inu. Þetta er haft eftir Gunnari á vef Ríkisútvarpsins en þar sagði hann að búast megi við því að gosið verði svipað og þegar jökullinn hljóp fyrir sex árum. Hlaupið í Grímsvötnum árið 2004 hófst á sama tíma og núna eða um mánaðarmótin október/nóvember. Hlaupið náði þá hámarki á fimm til sex dögum og býst Gunnar við að svo verði nú. Ekki er talin ástæða til að rýma svæði eða loka veg- um vegna hlaupsins. Gríms- vötn hafa verið að búa sig undir gos frá árinu 2004. „Grímsvötn hafa verið að undirbúa sig fyrir næsta gos, eiginlega alveg síðan í síðasta gosi árið 2004,“ sagði Páll Einarsson jarðeðl- isfræðingur í samtali við DV.is fyrr á þessu ári. Páll Einarsson Stundum enginn á vakt Umdæmi lögreglunnar á Húsavík nær yfir tæpan fimmtung landsins. Þar hefur niðurskurðurinn verið svo mikill að stundum er enginn lögregluþjónn á vakt. Frá þessu er greint á vef Ríkisútvarpsins. Haft er eftir Sigurði Brynjúlfssyni, yfirlög- regluþjóni á Húsavík, að ef menn veikist, eða þurfi á orlofi að halda, þá geti þeir tímar komið þar sem enginn sé á vakt. Til að spara bensín hefur lögreglan ákveðið að sinna síður eftirliti úti á þjóðveginum. Há- lendiseftirlit hefur verið lagt af og ekki er ráðið í stöður sem losna. Samstarf er uppgjöf Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir ákvörð- un ríkisstjórnarinnar um að boða stjórnarand- stöðuna og aðila vinnu- markaðarins til samstarfs um stefnu- mörkun í at- vinnuppbygg- ingu, vera uppgjöf af hálfu stjórnarinnar. Hún sé kom- in í öngstræti varðandi stefnu í atvinnumálum. Markmiðið með samstarfinu er að efla atvinnulíf og reyna að skapa 3 til 5 prósenta hagvöxt á næsta ári. Enn fremur er stefnt að því að skapa að lág- marki 3 til 5 þúsund ný störf.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.