Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2010, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2010, Blaðsíða 22
Síðan Justin Bieber var uppgötvaður fyr-ir tilstilli YouTube árið 2008 hefur gripið um sig nánast Bieber-æði víða um lönd. Bieber fæddist 1. mars 1994 í London í Ontario í Kanada en ólst upp í Stratford í Ont- ario. Náunginn sem hnaut um myndbönd með Bieber á YouTube heitir Scooter Braun og varð síðar meir umboðsmaður drengsins. En það var ekkert einfalt mál fyrir Scooter að finna Bieber eftir að hann sá myndbandið á You Tube og áður en lengra er haldið er rétt að kíkja aðeins á forsögu myndbandsins sem Scooter Braun sá á netinu. Móðir Justins Biebers, Pattie Mallette, var að- eins átján ára þegar hún varð barnshafandi af Justin. Mallette sá sér farborða með því að vinna ýmis lágt launuð skrifstofustörf og ól drenginn upp ein síns liðs. AnnAð sæti í söngkeppni Þegar Justin óx úr grasi lærði hann á eigin spýtur að leika á píanó, trommur, gítar og trompet, og snemma árs 2007, þegar hann var tólf ára, flutti hann lagið So Sick, eftir R&B-tónlistarmanninn Ne-Yo, í söngkeppni í Stratford. Justin Bieber endaði í öðru sæti og móðir hans setti myndbandsupptöku af flutningnum á YouTube svo vinir og ættingjar gætu notið þess. En móðir hans lét ekki þar við sitja heldur hélt áfram að setja á vefsíðu YouTube myndbönd þar sem Justin flutti hin ýmsu R&B-lög og vin- sældir hans á vefsíðunni uxu jafnt og þétt. Árið 2008 leitaði Scooter Braun dyrum og dyngjum að myndböndum með allt öðrum söngvara, eðli málsins samkvæmt var Justin ekki ofarlega í huga Brauns því hann vissi ekki einu sinni af tilvist þessa unga tónlistarmanns. En fyrir slysni smellti Braun á eitt af myndbönd- um Justins frá fyrra ári og eftir það varð ekki aft- ur snúið. LeitAði ráðA hjá guði En eitt var að sjá myndband á netinu og ann- að að finna drenginn. Scooter hreifst svo af því sem hann sá og heyrði að hann lagði upp í leit að samkomustaðnum þar sem flutningurinn hafði farið fram. Leitin tók enda í skóla Justins og þegar upp var staðið komst Scooter Braun í samband við móður Justins, Mallette. En björn- inn var ekki unninn. Mallette hafði efasemdir um ágæti þess sem Scooter Braun hafði í huga og fór með bæn: „Guð, ég færði þér hann. Þú gætir sent mér kristinn mann, kristilegt hljómplötufyrirtæki!“ En eftir að hafa farið með bænir með öldung- um kirkju sinnar og fengið hjá þeim ráðlegg- ingar heimilaði Mallette Scooter Braun að taka Justin, sem þá var þrettán ára, með sér til At- lanta, í Georgíuríki í Bandaríkjunum, með það fyrir augum að hljóðrita demó. Mæðginin fLytjA tiL AtLAntA Viku eftir að Justin Bieber kom til Atlanta þurfti hann að sanna sig fyrir R&B-tónlistarmannin- um Usher. Engum blöðum er um það að fletta að Usher líkaði það sem hann sá og heyrði því innan tíðar var búið að ganga frá samningi á milli Justins Biebers og Raymond Braun Med- ia Group, fyrirtækis í eigu Scooters Brauns og Ushers. Reyndar ku tónlistarmaðurinn og nafni Bie bers, Timberlake, hafa reynt að tryggja sér samning við Justin. Timberlake hafði ekki erindi sem erfiði og náði ekki að yfirbjóða Usher. Nú voru hjólin farin að snúast og fyrir til- stuðlan Ushers fékk Bieber áheyrnarprufu hjá Antonio L.A. Reid hjá Island Def Jam Group og í október 2008 var undirritaður samningur á milli Justins Biebers og Island-hljómplötuútgáfunn- ar. Þegar þar var komið sögu fluttu Justin Bieber og móðir hans til Atlanta og Scooter Braun varð umboðsmaður tónlistarmannsins unga. pLAtínA á pLAtínu ofAn Aðeins fimmtán ára gaf Justin Bieber út sína fyrstu smáskífu, One Time, á heimsvísu og eitt- hvað hefur verið rétt gert því lagið komst inn á topp 30 lista í yfir tíu löndum. En Bieber átti eft- ir að sýna og sanna að hann var ekki „one hit wonder“ en það eru þeir kallaðir sem koma einu lagi á vinsældalista og falla síðan í gleymsku. Justin Bieber fylgdi smáskífunni eftir með EP- plötunni My World, sjö laga plötu með tveimur bónuslögum, þann 17. nóvember 2009. Diskur- inn náði platínusölu í Bandaríkjunum og Bieber vann sér það til frægðar að vera fyrsti listamað- urinn sem átti sjö lög af sinni fyrstu stóru plötu á Billboard Hot 100 listanum. My World virðist vera fyrri hluti tveggja platna frumraunar Biebers því 23. mars á þessu ári kom út My World 2.0. Vinsældir My World 2.0 urðu síst minni en fyrstu plötunnar; hún komst í fyrsta sæti og á topp 10 lista víða um lönd og náði platínusölu í Bandaríkjunum. Til að hnykkja enn frekar á góðum árangri var smáskífa með laginu Baby, af My World 2.0, gefin út í kjölfarið, í janúar 2010, og komst hún inn á topp 10 lista í mörgum löndum. MikiLvægi twitter og youtube Löngu áður en EP-platan My World kom út naut Justin Bieber feykivinsælda á YouTube þar sem hann laðaði að sér milljónaáhorf. Scooter Braun velktist ekki í vafa um mikilvægi vefsíðunnar á þeim tíma og áður en hann tók drenginn með sér til Atlanta lét hann Bieber búa til fleiri tón- listarmyndbönd til að setja á síðuna með það fyrir augum að ná betur til krakkanna áður en hann léti til skarar skríða. Enn þann dag í dag er Justin Bieber ötull við að setja efni á YouTube og hefur auk þess stofn- að Twitter-aðgang þar sem hann er í sambandi við aðdáendur sína en í ágúst ku yfir 4,5 milljón- ir aðdáenda vera tengdir Twitter Biebers. Engum blöðum er um það að fletta að You- Tube og Twitter Biebers þjóna öðrum tilgangi en að vera í sambandi við aðdáendur og hefur YouTube sannað markaðsgildi sitt fyrir hann því tónlistarmyndband við lagið One Time fór ekki að seljast fyrr en eftir að það var sett á YouTube. í Læri hjá MeisturuM Justin Bieber er ekki fyrsti tónlistarmaðurinn sem kynnist frægðinni á unga aldri. Litlum vafa er undirorpið að það þarf sterka skapgerð til að standast það álag sem fylgir því að vera orðin opinber persóna áður en barnsaldri sleppir. Usher mun hafa verið á svipuðum aldri og 22 nærmynd 1. nóvember 2010 mánudagur Hæfileikar mega sín lítils ef ekki fylgir dugur. Tónlistar- maðurinn Justin Bieber var vart af barnsaldri þegar hann var uppgötvaður fyrir tilstilli YouTube árið 2008. Síðan hefur gripið um sig nánast Bieber-æði víða um lönd og stúlknahjörtu taka auka- slag þegar hann hefur upp raust sína. Drengurinn sem tryllir stúlkur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.