Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2010, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2010, Blaðsíða 8
8 fréttir 1. nóvember 2010 mánudagur frístundaheimili á móti klámbúð Verslunin Adam og Eva er starfrækt fyrir framan frístundaheimilið Glaðheima og frí- stundamiðstöðina Þróttheima í mikilli óþökk foreldra þeirra barna sem þangað sækja frístundastarf alla vikuna. Gluggaútstillingar hafa farið fyrir brjóstið á foreldrum barna og unglinga. Verslunin Adam og Eva er starfrækt fyrir framan frístundaheimilið Glað- heima og frístundamiðstöðina Þrótt- heima í mikilli óþökk foreldra þeirra barna sem þangað sækja frístunda- starf. Gluggaútstillingar þykja ögrandi og staðsetning verslunarinnar óvið- eigandi. Rúmlega 50 metrar eru á milli frístundaheimilisins og verslunar Ad- ams og Evu. Foreldrar afar ósáttir Haraldur Sigurðsson, forstöðumað- ur frístundamiðstöðvarinnar Kringlu- mýri, segist ósáttur við útstillingarnar og segir foreldra afar óánægða með óheppilega staðsetningu verslunar- innar. Hann brást við ögrandi útstill- ingum verslunarinnar fyrir ári og leit- aði þá ráðgjafar hjá Reykjavíkurborg. „Þá var í gluggum stillt út gínum í ögr- andi fatnaði sem hæfði engan veginn þessu umhverfi þar sem fleiri tugir barna á aldrinum 6–9 ára dvelja yfir daginn. Á kvöldin eru hér einnig ungl- ingar og þetta er þeim ekki hollt held- ur. Ég brást við og skrifaði eigandanum bréf þar sem ég bað hann um að stilla útstillingum í hóf barnanna vegna. Hann svaraði því bréfi og sagðist eiga rétt á því að auglýsa undirfatnað sinn rétt eins og Hagkaup. Við ræddum þetta fram og til baka og niðurstað- an varð sú að hann fækkaði gínum um helming og huldi þær aðeins bet- ur. Það varð niðurstaðan. Ég gat ekki aðhafst neitt frekar því ég hafði engar reglugerðir að styðjast við. Það gilda sömu reglugerðir hvað varðar innihald auglýsinga hvort sem birtingarstaður- inn er verslunarkjarni eða fjölskyldu- hverfi þar sem börn eru að leik.“ Ræddu við eigandann Soffía Pálsdóttir, forstöðumaður æskulýðssviðs ÍTR, segir forstöðu- menn frístundaheimilanna hafa reynt að bregðast við rekstri verslunarinn- ar með viðeigandi hætti. „Við ákváð- um að það færi best á því að ræða við eigandann og biðja hann að virða þá ungu vegfarendur sem eiga leið hjá búðinni hans. Það þykir okkur eðli- legast í þessum málum. Mér skilst að eigandinn hafi brugðist við ábending- um og hef ekki heyrt af þessum mál- um síðan.“ Diljá Ámundadóttir, formaður ÍTR og varaborgarfulltrúi fyrir Besta flokkinn, segist heyra fregnir af rekstri verslunarinnar Adams og Evu í návígi við frístundaheimili í fyrsta sinn. „Ég fagna því að inni í íbúðahverfum sé alls konar rekstur og verslun. Ef eig- andi Adams og Evu vill hafa blómleg- an rekstur sem kemur að heilbrigðu og skemmtilegu kynlífi þá skora ég á hann að stuðla að því án þess að vera með beintengingu við klám. Klám og kynlíf er ekki sami hluturinn.“ Viljum ekki þessar ímyndir Hrafnhildur Snæfríðar- og Gunnars- dóttir, ráðskona hjá Femínistafélagi Íslands, segir það mjög miður að þess- ar búðir séu staðsettar svo nálægt frí- stundaheimilunum. „Sérstaklega þar sem útstillingarn- ar í búðunum eru yfirleitt með mikl- ar tilvísanir í klám. Klám er ekki það sama og kynlíf heldur afskræming á því. Maður hefði haldið að eigend- ur þessara búða myndu sjá sér hag í því að breyta útlitinu á búðunum og aðkomunni og afmá þennan „klám“- stimpil af sér. Myndir af konum í efn- islitlum fatnaði og ögrandi stellingum eru niðurlægjandi fyrir konur og það er ömurlegt að þetta sé sífellt fyrir aug- unum á börnum og fólki almennt. Við viljum ekki að þessar ímyndir móti hugmyndir barna um kynlíf.“ Bleikt þema í október Þorvaldur Steinþórsson, eigandi verslunarinnar Adams og Evu, seg- ist ekki hafa orðið var við óánægju foreldra og forráðamanna vegna ná- vígis verslunarinnar við frístunda- heimilin. „Við fengum eina ábend- ingu samt varðandi gluggaútstillingu fyrir rúmu ári. Það var lagfært. Það er 18 ára aldurstakmark í verslunina og því er fylgt vel eftir. Gluggar sýna einungis undirfatnað og búninga. Til dæmis höfum við haft bleikt þema í október. Stutt frá er vínbúð sem sel- ur áfengi. Ég sé ekki að þetta þurfi að vera vandamál ef aldurstakmarka og velsæmis er gætt.“ Þorvaldur segist ekki halda að honum geti ekki orð- ið á mistök og honum gæti yfirsést eitthvað í útstillingum. „Ef einhverjir hafa athugasemdir þá er það velkom- ið að beina þeim beint til okkar og við munum skoða það.“ kRistjana guðBRandsdóttiR blaðamaður skrifar: kristjana@dv.is umdeild verslun Verslunin AdamogEvaerímiklunávigi viðfrístundaheimiliÍTR. Við fengum eina ábendingu samt varðandi gluggaútstill- ingu fyrir rúmu ári. Það var lagfært. LAGERSALA www.xena.is Mikið úrval af skóm á alla fjölskylduna Frábær verð no1 st. 36-41 verð kr. 8995.- no2 st. 36-41 verð kr. 8995.- no3 st. 36-41 verð kr. 8995.- no4 st. 36-46 verð kr. 8995.- Opið virka daga 12-18 laugardag 12-16 „Ég geri mér ekki alveg grein fyrir því hver þörfin er, hvort hún er mik- il eða lítil. Það verður bara að koma í ljós,“ segir Gerður Jónsdóttir, verk- efnastjóri Fjölskylduhjálpar Íslands á Akureyri en ný starfstöð Fjölskyldu- hjálparinnar opnar þar um miðjan mánuðinn. „Það er líka alltaf ákveðin hætta til staðar á svona litlum stöð- um þar sem allir þekkja alla, að fólk veigri sér við að koma af ótta við að einhver sjái það,“ segir hún. Gerður segir að þörfin sé til stað- ar á Akureyri eins og á höfuðborgar- svæðinu og annars staðar á landinu. „Ég held þó að það sé ekki í sama mæli og í Reykjavík. Við fengum miklu minni uppsveiflu en að segja að það sé enginn hér sem þurfi á hjálp að halda er bara barnaskapur,“ segir hún. Starfsemi Fjölskylduhjálparinn- ar á Akureyri verður með sama sniði og í Reykjavík. Hún mun sjá um viku- legar matarúthlutanir en Gerður ger- ir ekki ráð fyrir að það verði farið út í fataúthlutanir til að byrja með. Aðspurð um hvernig gangi að koma þessu af stað segir hún að það sé einungis mánuður síðan farið var að ræða um að opna starfstöðina fyrir alvöru. Hún hafi fengið lykla að húsinu afhenta í síðustu viku og síðan hafi hún mest megnis verið í símanum. „Það eru margir búnir að hringja og bjóða fram aðstoð sína sem sjálfboðaliðar. Það er góð til- finning að finna hvað það eru margir sem eru tilbúnir að leggja okkur lið. Það er gott að finna samkenndina í samfélaginu,“ segir hún. gunnhildur@dv.is Fjölskylduhjálp Íslands opnar á Akureyri í nóvember: SamhuguráAkureyri gerður jónsdóttir Verkefnastjóristarf- stöðvarFjölskylduhjálparinnaráAkureyri. fundust heilir á húfi Björgunarsveitir Slysavarnafé- lagsins Landsbjargar á Suðurlandi voru kallaðar út rétt eftir miðnætti á laugardag vegna tveggja rjúpna- skytta sem saknað var en þær höfðu ætlað til veiða við Skjaldbreið. Bíll þeirra bilaði við Kerlingu en ekkert símasamband var á svæðinu og gátu þeir ekki látið vita af sér. Skytturnar höfðu skilið eftir nákvæma ferða- áætlun heima hjá sér og fann því björgunarsveitin mennina fljótt og hjálpaði þeim að koma bílnum í lag. Þeir komust því heilir og höldnu til síns heima. Gagnrýndi þinghlé Margrét Tryggvadóttir gagnrýndi langt þinghlé í Silfri Egils í Ríkisút- varpinu á sunnudag. Þingið kemur ekki saman fyrr en eftir hádegi á fimmtudag en Margrét sagði ríkis- stjórnina vera komna í öngstræti með sín mál. Stefna stjórnarinnar að mati Margrétar hefur ekki leitt til lausna fyrir samfélagið. Verkefnin eru það stór að mati Margrétar að það þurfi að henda sér í þau, en það sé ekki hægt á meðan þingið taki sér hlé. Hún sagðist ekki bera traust til þingsins og sagði að þingmenn skorti hugrekki. Upplýsingalög ná yfir Orkuveituna Verði frumvarp ríkisstjórnarinnar um ný upplýsingalög samþykkt á Alþingi munu þau einnig ná til einkahlutafélaga í opinberri eigu eins og til dæmis Orkuveitunnar að því er fram kemur á frétta- vef Ríkisútvarpsins. Það þýðir að það verður auðveldara fyrir almenning að óska eftir upplýs- ingum. Frumvarpinu er ætlað að tryggja gegnsæi í stjórnsýslunni, upplýsingarétt og tjáningafrelsi. Jóhanna Sigurðardóttir forsætis- ráðherra sagði að með breyting- unum muni upplýsingalög ná yfir alla starfsemi sem fram fer á vegum einkaréttarlegra lögaðila í eigu opinberra aðila. 

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.