Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2010, Blaðsíða 12
12 fréttir 1. nóvember 2010 mánudagur
Ólafur Stefán Halldórsson var krist-
innar trúar fyrstu þrjá áratugi lífs
síns en á tuttugasta og níunda ald-
ursári tók hann ákvörðun um að
snúast til islamstrúar. „Allah opnaði
hjarta mitt,“ segir Ólafur, aðspurð-
ur um hvað hafi valdið því að hann
tók þessa ákvörðun. Þetta eru stór og
mikil orð en hann segist varla geta
útskýrt það neitt frekar og að lík-
lega tæki það hann hálfan daginn
að reyna. Hann segir ekkert eitt at-
vik hafa haft úrslitaáhrif á ákvörðun
hans um að taka upp islamska trú og
gerast múslimi. „Ég byrjaði að hugsa
um þetta á unglingsárunum en varð
ekki múslimi fyrr en 29 ára gamall,
svo þetta tók nokkur ár að þróast.“
Nú á dögunum urðu tímamót í
lífi Ólafs sem múslima þegar hann
hélt í fyrsta sinn Khutbah hjá Félagi
múslima á Íslandi. Khutbah er í raun
eins og predikun og talaði Ólafur fyr-
ir framan söfnuðinn líkt og prest-
ar gera í kirkjum kristinna manna.
Þetta mun vera í fyrsta skipti sem
Íslendingur heldur Khutbah og pre-
dikun Ólafs markar því líka ákveðin
tímamót hjá Félagi múslima.
Blaðamaður fékk boð á Khutbah
og fékk því að fylgjast með frumraun
Ólafs í hlutverki predikara. Þar sem
blaðamaður er kona var hún beðin
um að nota trefilinn sinn sem slæðu
og hylja þannig hár sitt í samræmi
við reglur um bænahús múslima.
Aftast í bænasalnum er búið að stúka
af eitt horn og þar eiga konur að biðj-
ast fyrir. Þrátt fyrir kyn sitt fékk blaða-
maður að fylgjast með predikuninni
í sal karlmannanna.
Í predikun Ólafs er friðarboð-
skapur. Hann fjallar um fyrirgefn-
ingu og varar við að rifrildi og slæmar
tilfinningar geti eyðilagt mannkynið.
Ólafur sagði að athöfn lokinni að
hann hefði verið töluvert stressaður
en blaðamanni fannst hann standa
sig með miklum sóma og þótti ekk-
ert gefa til kynna að hann væri ný-
græðingur í predikunarstólnum.
Hann segist þó alveg geta hugsað sér
að halda Khutbah aftur og býst alveg
við að til þess komi.
Bókstafstrúarmenn eru á móti
hryðjuverkum
Ólafur segist vera bókstafstrúar-
maður. Það felur í sér að hann lifir
og hagar sér eftir ströngustu reglum
og gildum islamstrúar. Þá er Kóran-
inn honum mikilvægur leiðarvís-
ir í lífinu. Hann tekur skýrt fram að
bókstafstrúarmenn séu á móti allri
hryðjuverkastarfssemi og ofbeld-
isverkum. Það megi alls ekki rugla
saman bókstafstrúarmúslimum og
öfgasinnuðum múslimum.
Ólafur segist sjálfur aldrei hafa
hitt öfasinnaðan múslima eða mús-
lima sem viðurkennir það opinber-
lega að vera hlynntur hryðjuverk-
um eða manndrápum. „Ég er mjög
hamingjusamur með að hafa ekki
hitt þannig fólk,“ segir hann.
Ólafur segir ekkert í Kóraninum
ýta undir ofbeldisverk, ekki nema
hlutirnir séu gjörsamlega tekn-
ir úr samhengi. Hann segir öfga-
múslima sem vitna í Kóraninn til
að réttlæta ofbeldi, alltaf taka orð-
in úr samhengi. Hann bendir á að í
Kóraninum sé til dæmis skýrt tekið
fram að bannað sé að drepa þá sem
eru varnarlausir. „Það þarf að hafa
mjög slæman ásetning til að túlka
orð Kóransins þannig að réttlætan-
legt sé að drepa saklausa borgara.“
Islam er heilbrigður lífstíll
Að taka upp islamska trú hafði
miklar lífsstílsbreytingar í för með
sér fyrir Ólaf. Að hans sögn hafa all-
ar þær breytingar þó bara verið til
góðs. „Islam er innrammaður lífs-
stíll,“ segir Ólafur. „Ég varð á allan
hátt miklu meðvitaðri um líf mitt,
hvað ég geri, hvað ég set inn í mig og
hvað ég læt út úr mér.“ Islömsk gildi
snúast mikið um hreinleika og heil-
brigðan lífstíl. Ólafur segist í raun
fyrst hafa lært að þrífa sig almenni-
lega eftir að hann fór að fylgja gild-
um islamskrar trúar. „Ég lærði loks-
ins að tannbursta mig almennilega,“
segir Ólafur kankvís.
Hann segir þónokkra Íslendinga
hafa snúist til islamstrúar en hef-
ur ekki tölu á hve margir það eru.
Þeir einstaklingar eru misvirkir í fé-
laginu en Ólafur segir marga þeirra
búa erlendis.
Þrátt fyrir að hafa lifað sem mús-
limi í næstum 30 ár segist Ólafur
ekki hafa orðið var við mikla for-
dóma í garð múslima fyrr en í seinni
tíð. Hann segir hryðjuverkaárásirn-
ar 11. september 2001 hafa breytt
miklu. Í kjölfar þeirra hafi islam ver-
ið stillt upp sem óvini Vesturlanda.
Hann segist þó hafa fundið fyrir for-
dómum eða jafnvel einbeittum nei-
kvæðum áróðri gegn múslimum
fyrir þann tíma.
Ólafur segir Íslendinga almennt
ekki mjög upplýsta um trúarbrögð
og það sé ekki skrýtið því lítil áhersla
sé lögð á trúarbragðakennslu í
grunnskólum. Þá segir hann að
bækur í trúarbragðakennslu séu
oft uppfullar af fordómum. „Alveg
frá krossferðunum á miðöldum
hafa ríkt fordómar á Vesturlönd-
um í garð annarra trúarbragða en
kristindómsins.“ Hann telur að Ís-
lendingar hafi nú á dögum jafnvel
litla þekkingu á kristindómnum
og hvað þá öðrum trúarbrögðum.
„Síðustu tvær kynslóðir hafa í raun
bara meðvitað reynt að bæla niður
öll trúarbrögð.“
Öfgaöfl skjóta rótum
Félag múslima á Íslandi er eitt tveggja
múslimafélaga hér á landi en hitt fé-
lagið heitir Menningarsetur múslima
á Íslandi. Ólafur hefur verið virkur í
félagi múslima í langan tíma og telur
mikilvægt að svona félög séu byggð á
íslenskum grunni. „Þetta er íslenskt
múslimafélag og íslenskir múslimar
hljóta að vera öðruvísi en sádiarab-
ískir eða palestínskir múslimar. Það
á að vera þannig og er þannig. Það er
allt öðruvísi menning hér á landi.“
Fjallað var um það í fjölmiðlum
nýlega að fjársterkir erlendir aðil-
ar á vegum Menningarseturs mús-
lima hafi keypt Ýmishúsið og hyggist
koma þar á fót mosku og menning-
arsetri fyrir múslima. Þessi ráðahag-
ur hefur ekki fallið í góðan jarðveg
hjá félagi múslima, en fjársterku að-
ilarnir sem um ræðir tengjast hugs-
anlega hryðjuverkasamtökunum Al-
Haramein. Yfirvöld í Bandaríkjunum
telja sig hafa upplýsingar um að Al-
Haramein-samtökin hafi fjármagnað
ýmsa hryðjuverkahópa og þar á með-
al al-Kaída.
Salman Tamimi, formaður fé-
lags múslima á Íslandi, hefur opin-
berlega lýst yfir áhyggjum sínum af
þessum hópi múslima sem stendur
fyrir Menningarsetrinu. Hann seg-
ir þá hafa verið rekna úr félagi mús-
lima vegna brota á lögum félagsins
um öfga, ofstæki og yfirgang í nafni
trúarbragða. Hann hafi tilkynnt þá til
lögreglu af ótta við að öfgaöfl væru að
skjóta rótum hér á landi.
Ólafur segist lítið þekkja til hóps-
ins sem keypti Ýmishúsið. Hann segir
að eitthvað beri á milli nokkurra að-
ila innan þessara tveggja félaga en al-
mennt sé vinskapur á milli þeirra og
þetta séu mikið sömu fjölskyldurnar í
báðum félögunum.
Ólafur vill ekki trúa því að hóp-
urinn úr Menningarsetrinu tengist
á nokkurn hátt öfgasinnuðum mús-
limum. Hann telur þó ekki skynsam-
legt að fjársterkir erlendir aðilar séu
að fjármagna verkefni sem þetta á Ís-
landi. Hann fagnar þó að nú styttist í
að múslimar fái loksins mosku á Ís-
landi og vill helst fá fleiri moskur sem
fyrst.
Ólafur Stefán Halldórsson tók upp islamska trú fyrir tæp-
um 30 árum. Hann segist vera bókstafstrúarmaður og fer eft-
ir ströngustu gildum og reglum islam. Hann telur Íslendinga
almennt illa upplýsta um trúarbrögð enda sé trúarbragða-
kennslu ábótavant á Íslandi. Tímamót urðu í lífi Ólafs sem
múslima á dögunum þegar hann hélt í fyrsta skipti athöfn
sem heitir Khutbah.
SÓlrún lIlja ragnarSdÓttIr
blaðamaður skrifar: solrun@dv.is
„AllAh
opnAði
hjArtA
mitt“
Það þarf að hafa mjög slæman ásetning til að túlka orð
Kóransins þannig að réttlætanlegt
sé að drepa saklausa borgara.
Hélt Khutbah í
fyrsta skipti
Ólafurvar29ára
þegarhanntókupp
islamskatrú.
mynd EggErt jÓHannESSon
Ungir sem aldnir tóku þátt Karlmennbáðustfyriríaðalsalnumenkonurí
lokuðurýmiaftastísalnum. mynd EggErt jÓHannESSon