Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2010, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2010, Blaðsíða 24
Stefán Spilar með Skaganum Framherjinn grjótharði, Stef- án Þór Þórðarson, hefur ákveðið að leika með ÍA í fyrstu deildinni á næsta sumri en hann skrifaði undir eins árs samning við félagið þess efnis um helgina. Þetta kom fram á heimasíðu Skagamanna. Stefán Þór tók aðeins fram skóna í sumar þegar mikil mannekla var hjá liðinu en alls lék hann þrjá leiki en tókst ekki að skora mark. Sölvi tryggði Sigur, en kári fékk rautt Víkingarnir Kári Árnason og Sölvi Geir Ottesen voru fyr- irferðarmiklir með liðum sínum, Plymouth og FCK, um helgina. Kári fékk beint rautt spjald í tapi Plymouth gegn Oldham, 4–2, í þriðju efstu deild enska boltans en Plymouth-menn voru aðeins níu inni á vellinum eftir að Kára var vikið af velli. Öllu betur gekk hjá landsliðs- fyrirliðanum, Sölva Geir Ottesen, en hann kom inn á sem varamaður hjá FCK og tryggði liðinu sigur á Lyngby, 3–2, með marki í uppbót- artíma. mOlar Henderson verður united dýr n Ætli Manchester United að festa kaup á hinum unga Jordan Hend- erson frá Sunderland verður félagið að reiða fram að minnsta kosti þrjátíu milljónir punda. Miðjumaðurinn efnilegi er sagður á teikniborði United fyrir næsta sumar en Ferguson hugar nú að því hvernig hann eigi að leysa það þegar reynsluboltarnir Scholes og Giggs leggja skóna á hilluna. Talið er að tuttugu milljóna punda boð muni berast í hann í sumar. „Það er ekki möguleiki að 20 milljónir séu nóg fyrir Henderson. Þrjátíu væri allavega eitthvað sem hægt væri að ræða,“ sagði Steve Bruce um málið fyrir helgi. Kylfusveinninn Klúðraði n Skotinn Colin Montgomerie, sem var fyrirliði Ryder-liðs Evrópu í ár, komst ekki inn í umspil um sigur á Pro-Am-móti um helgina vegna mistaka kylfusveins síns. Montgomerie var að undirbúa sig fyrir umspilið þegar honum var tjáð að við hann bættust tvö högg í víti frá sextándu braut. Hafði kylfu- sveinn hans þá fært til eitt auglýsinga- skilti en um leið og þau eru sett niður verða þau hluti af vellinum og má þá ekki færa þau til. Komst Montgomerie því ekki í umspilið og fékk Lorena Ochoa því sigurinn á silfurfati á Mission Hills-stjörnumótinu. tiger fallinn af toppnum n Englendingurinn Lee Westwood er formlega orðinn besti kylfingur í heimi en hann hirti efsta sæti heimslistans af Tiger Woods í gær. Tiger hafði setið á toppnum samfleytt í 281 viku. Þjóðverjinn Martin Kaymer hefði þurft annað af efstu tveimur sætunum á Vald- errama á Spáni um helgina til að komast í efsta sætið en hann var langt frá efstu sætunum. Kaymer lék lokahringinn á sjö yfir pari og átti aldrei möguleika á sigri. Hinn 37 ára gamli Westwood er fyrsti Englendingurinn til að sitja í efsta sæti heimslistans síðan Nick Faldo náði efsta sætinu árið 1994. yaKubu lofar mörKum n Nígeríski framherjinn Yakubu skor- aði laglegt sigurmark fyrir Everton gegn Stoke í ensku úrvalsdeildinni um helgina. Markið var hans fyrsta síðan í apríl fyrir Everton en hann segist vera að komast í betra form. „Stundum vilja skotin einfaldlega ekki rata í netið. Það gerist þegar maður er framherji. Það var afskaplega ljúft að sjá boltann í markinu gegn Stoke. Þetta mark mun gefa mér meira sjálfstraust og opna flóðgáttir fyrir fleiri mörk. Ég er í miklu betra formi en á síðasta tímabili og ætla mér að gera vel á þessu tímabili,“ segir Yakubu. 24 SpOrt umSjón: TóMas þór þórðarsON tomas@dv.is 1. nóvember 2010 mánudagur Strákarnir okkar í íslenska hand- boltalandsliðinu töpuðu fyrir Aust- urríki ytra í undankeppni EM 2012 á laugardagskvöldið, 28-23. Íslensku strákarnir bættu leik sinn lítið frá sigrinum tæpa gegn Lettlandi í síð- ustu viku og var sigur Austurríkis- manna nær aldrei í hættu. Mestu munaði um markvörslu liðanna en á meðan íslensku markverðirnir, Björgvin Páll og Hreiðar Levy, vörðu varla blöðru fór sá austurríski á kost- um. Ólafur Stefánsson bar af í íslenska liðinu og skoraði ellefu mörk, þar af sex af vítalínunni. Róbert Gunnars- son var einnig sterkur á línunni og Akureyringurinn Oddur Grétarsson átti flotta innkomu í vinstra hornið fyrir Hannes Jón Jónsson sem átti af- skaplega slakan leik. „Það var mjög óvænt og ánægju- legt hversu vel við spiluðum á móti Þýskalandi og Íslandi. Ef við höldum áfram að spila svona vel þá er fram- tíðin björt,“ sagði sigurreifur þjálfari Austurríkis, Magnus Anderson, eft- ir leikinn en Austurríki hóf riðilinn með því að gera jafntefli gegn Þýska- landi. Eftir tvo leiki eru Austurríki og Þýskaland með þrjú stig í fimmta riðli, Ísland með tvö og Lettland ekk- ert. Ísland mætir næst Þýskalandi tvívegis, fyrst í Höllinni og svo ytra en úrslitin þar geta farið langt með að ráða úrslitum um hvort Ísland verði á EM 2012 eða ekki. Ljóst er að liðið var langt frá því að sýna sínar sterk- ustu hliðar í leiknum og á það vægast sagt mikið inni. tomas@dv.is Ísland tapaði með fimm marka mun fyrir Austurríki: munurinn lá í markvörslunni Ömurlegt upp á að horfa Ísland þurfti að sætta sig við tap í Austurríki og er nú eftir á í baráttunni um sæti á Em 2012. MYNd reuTers „Okkur gengur bara vel. Við erum búnir með átta leiki í deild, búnir að vinna sjö og gera eitt jafntefli,“ seg- ir skyttan öfluga, Arnór Atlason, um hið stjörnum prýdda danska ofur- lið, AG Kaupmannahöfn, sem hann og Snorri Steinn Guðjónsson leika með. Milljarðamæringurinn Jesper Nielsen, betur þekktur sem Kasi- Jesper, er að leggja gríðarlega pen- inga í liðið og ætlar því stóra hluti. Mikið og öflugt markaðsstarf er í gangi og spilar liðið meðal annars í ermalausum bolum. „Eins og er eru hlýrabolirnir að halda sér,“ seg- ir Arnór léttur. „Á meðan við töpum ekki leikjum og náum langt hlýtur þetta að vera gott.“ Mikil pressa AG Kaupmannahöfn er vægast sagt vel mannað. Í liðinu eru dansk- ar hetjur á borð við Kasper Hvidt í markinu og stórreykingamann- inn Joachim Boldsen. Stórskyttan Mikkel Hansen, norski landsliðs- markvörðurinn Steinar Ege, Arnór og Snorri auk margra fleiri heims- klassaleikmanna. Pressan er því eðlilega mikil og Arnór viðurkennir það fúslega. „Núna í átta liða úrslitum bik- arsins á útivelli gegn Bjerringbo var búið að gera okkur grein fyr- ir því að við eigum að verða bikar- meistarar. Það var því bæði mik- ill fögnuður og léttir eftir leikinn. Þetta var samt bara eitt skref í átt að takmarkinu sem er að vinna fyrsta titil félagsins, á milli jóla og nýárs,“ segir Arnór. Áhorfendafjöldinn tífaldaður Með peningum Kasi-Jespers og eld- móði hefur stjórn AG tekist að búa til frábæra umgjörð um heimaleiki liðsins. „Í fyrra vorum við að fá sjö hundruð manns í húsið en núna fáum við sjö þúsund. Það er ótrú- legt að sjá hvað er hægt að gera með réttri markaðssetningu. Það er mik- ill eldmóður í stjórninni og í raun svekkir maður sig á því hver djöfull- inn hefur verið í gangi þessi fjögur ár sem ég var hjá FCK,“ segir Arnór en AG Kaupmannahöfn varð til úr sameiningu FCK og AG Glostrup. Arnór er harður á því að það vanti fleiri menn eins og Kasi-Jesper inn í handboltann. „Algjörlega. Hann er búinn að gera undraverða hluti fyr- ir handboltann í Danmörku. Núna fyrstu helgina í nóvember erum við að fara spila í Herning fyrir framan tólf þúsund manns. Það er bara sér leikur sem er búið að setja upp. Það er alveg blússandi gangur í karla- handboltanum í Danmörku og áhuginn aldrei verið meiri,“ segir Arnór Atlason. TífalT fleiri áhorfendur arnór atlason, landsliðsmaður í handbolta, er ánægður hjá nýja danska handknatt- leiksveldinu, AG Kaupmannahöfn. Milljarðamæringurinn Jesper Nielsen er að búa til lið sem á eftir að komast langt í meistaradeildinni. Gríðarlega öflugt markaðsstarf er í gangi hjá liðinu og er heimavöllurinn troðfullur á öllum leikjum. TóMas þór þórðarsON blaðamaður skrifar: tomas@dv.is Í raun svekkir maður sig á því hver djöfullinn hefur verið í gangi þessi fjögur ár sem ég var hjá FCK. aG Á FLuGi Stórliðið AG Kaupmanna- höfn er taplaust og stefnir á sinn fyrsta titil, á milli jóla og nýárs. MYNd reauTers erMaLausir Allt er gert fyrir markaðsstarfið og spila leikmenn AG í ermalausum bolum. MYNd aGKBH.dK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.