Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2010, Qupperneq 11
mánudagur 1. nóvember 2010 fréttir 11
„Flateyringar eru í sjokki,“ segir Guð-
mundur Björgvinsson, formaður
íbúasamtaka Flateyrar. Á föstudag
var 42 starfsmönnum fiskvinnslufyr-
irtækisins Eyrarodda á Flateyri sagt
upp störfum. Fyrirtækið hafði ver-
ið í greiðslustöðvun síðan í vor en
menn vonuðust þó ávallt til að fyrir-
tækið næði að rétta úr kútnum. Hann
segir Flateyringa ekki vera tilbúna til
að leggja upp laupana. „En þeir sem
telja sig geta farið og fundið einhverja
vinnu annars staðar í þessu árferði
koma vafalaust til með að reyna að
gera það. Menn eru mjög miður sín
yfir þessari stöðu,“ segir Guðmund-
ur. Hann segir Flateyringa vera í fjötr-
um vegna atvinnuástandsins sem þar
ríki.
„Eignir okkar eru á núlli í dag.
Við eigum ekki neitt nema blessað-
ar skuldirnar okkar. Það er enginn að
fara að koma og kaupa hús á svona
stöðum þar sem engin atvinna er. Af-
leiðingarnar eru náttúrulega þær að
plássið er sett á núll og það er spurn-
ing hvort okkur tekst að vinna okkur
upp frá því. Við þurfum utanaðkom-
andi hjálp til þess. Þeir sem rekið hafa
Eyrarodda hafa gert það meira af vilja
en mætti og í þeirri trú að þeir gætu
haldið uppi atvinnu á þessum stað.
Þeir hafa lagt mikið á sig til þess.“
Afleiðingar kvótakerfisins
Hann segir menn hafa vonast til þess
að það fyndust einhverjar lausnir fyr-
ir Eyrarodda á meðan fyrirtækið var
í greiðslustöðvun til þess að tryggja
grundvöllinn á Flateyri. „Það hafa
verið fordæmi fyrir því hingað og
þangað um landið, að það sé grip-
ið til sértækra aðgerða og kannski
skemmst að minnast þess þegar
Ísafjarðarbær kom því í kring, þeg-
ar svipuð vandræði blöstu við Þing-
eyringum, að byggðakvóti sveitarfé-
lagsins var allur færður á Þingeyri,
fyrst í fimm ár og svo í tvö ár til við-
bótar. Það eru svo sem fordæmi fyrir
sértækum aðgerðum. Reyndar í dag
er byggðakvóti orðinn sáralítil pró-
senta og úr litlu að spila en við sitj-
um náttúrulega uppi með bæði af-
leiðingar kvótakerfisins og sölu og
lokun Kambs, sem hluti af orsökinni.
Svo líka hversu lítið er til skiptanna af
aflaheimildum.“
Vilja veiða og verka fisk
Guðmundur segir Flateyringa ekki
vera að biðja um einhverja ölm-
usu þegar kemur að aflaheimildum.
„Heldur bara einfaldlega hitt að fá
leyfi til þess að bjarga sér við það sem
við kunnum, það er að veiða og verka
fisk. Fiskvinnsla og fiskveiðar verða
áfram undirstaða atvinnu víða um
land. Það eru margir staðir hringinn
í kringum landið sem standa frammi
fyrir gífurlegum vandræðum,“ segir
Guðmundur.
Þegar fiskvinnslan Kambur lagði
niður vinnslu árið 2007 og kvótinn
seldur úr plássinu segir Guðmundur
að Flateyringar hafi í sjálfu sér ekki
verið spurðir þegar aflaheimildirn-
ar voru seldar. „Þó að þær væru ekki
skrifaðar á hvert og eitt okkar eins
og við segjum, heldur það að öryggi
fólks í þessari atvinnugrein hefur ver-
ið til langs tíma verið fyrir borð borið.
Fólk veit ekki þegar það leggur höfuð-
ið á koddann á kvöldin hvort að það
hafi einhverja atvinnu að morgni
þegar það vaknar. Það er það sem
er að valda gífurlegu óöryggi og ótta
meðal fólks um allt land. Það er ekki
bara bundið við Flateyri, því miður.“
Hann segir strandveiðarnar því
miður ekki hafa skilað neinum afla
til vinnslu í sumar því Eyraroddi tók
ekki við þeim afla vegna greiðslu-
stöðvunarinnar. Strandveiðiaflinn
fór því allur beint á fiskmarkaði. Guð-
mundur segir að það þurfi að binda
aflaheimildirnar við staðina ef halda
eigi landinu öllu í byggð.
Menn eru mjög miður sín yfir
þessari stöðu.
Flateyri í Fjötrum
vegna uppsagna
birgir olgeirsson
blaðamaður skrifar: birgir@dv.is
Flateyringar eru miður sín eftir að fjörutíu og tveimur
starfsmönnum Eyrarodda var sagt upp störfum síðastlið-
inn föstudag. guðmundur björgvinsson segir íbúa vera
í fjötrum því eignir þeirra séu einskis virði og að Flateyr-
ingar geti ekki gert það sem þeir kunna að gera, að veiða
og verka fisk. Hann segir marga staði, víða um landið
standa frammi fyrir gífurlegum vandræðum.
Flateyri Þriðjungi
vinnubærramanna
varsagtuppstörfumá
Flateyriáföstudaginn.
guðmundur björgvinsson „Eignir
okkarerunúllídag.“
mynd páll önundArson
„Ég hef bara ekkert um málið
að segja,“ segir Eiður Svanberg
Guðnason, fyrrverandi sendiherra,
um það að Arnþrúður Karlsdóttir,
útvarpsstjóri Útvarps Sögu, ætli að
stefna honum og Guðmundi Ól-
afssyni fyrir meiðyrði. Í viðtali við
Pressuna sakar Arnþrúður þá tvo
um atvinnuróg af verstu gerð. „Ég
hef ekkert um það að segja held-
ur. Ég hef ekki hugmynd um hvað
manneskjan á við,“ segir Eiður í
samtali við DV.
„Ég veit það bara að samstarfs-
maður hennar hringdi til mín,
þessi Pétur Gunnlaugsson, um
miðnætti þegar ég var farinn að
sofa og ég ætla ekki að segja neitt
meira um það,“ segir Eiður og
bætir við: „Þessi kona gerir bara
það sem henni sýnist.“ Greint var
frá því á Pressunni að Arnþrúð-
ur ætli að fara fram á milljón-
ir í skaðabætur. Arnþrúður segir
Bubba Morthens hafa fengið sjö
milljónir króna í skaðabætur fyrir
eina setningu, „Bubbi fallinn“ og
því eru fordæmi fyrir slíku. Hún
sagði Eið eiga að skammast sín því
hann lifi á skattgreiðendum þessa
lands sem fyrrverandi sendiherra
og veitist að fyrirtæki Arnþrúðar.
Hún sagði engan hafa hringt í Eið
um miðjar nætur á vegum henn-
ar. Arnþrúður segir Eið og Guð-
mund hafa veist að fyrirtækinu
með nafnlausum skrifum og einn-
ig undir nafni. Eiður hefur áður
sakað Arnþrúði um að hafa í hót-
unum við eiginkonu hans. Arn-
þrúður viðurkenndi í samtali við
Pressuna að hafa talað við hana en
þvertók fyrir að hafa hótað einu né
neinu. Hún sagðist hafa haft fulla
ástæðu til að tala við eiginkonu
Eiðs upp á það hvort hún gæti haft
áhrif á hann svo hann hætti þess-
um meiðyrðum. birgir@dv.is
Arnþrúður Karlsdóttir stefnir eiði guðnasyni og guðmundi Ólafssyni fyrir meiðyrði:
„Gerirbaraþaðsemhennisýnist“
milljónir í bætur Arnþrúður
Karlsdóttirvillfámilljónirí
bæturvegnameiðyrða.
mynd steFán KArlsson
„Ekkert leikrit“
„Nei, þetta er ekkert leikrit af hálfu
ríkisstjórnarinnar, miklu frem-
ur einlæg viðleitni hennar til að
efla sam-
stöðu meðal
landsmanna
andspænis
mjög erfiðri
stöðu þjóð-
arinnar hvað
efnahagsmál-
in varðar. Við
höfum mikla
möguleika til að rífa okkur upp úr
öldudalnum ef okkur tekst að horfa
fram á við og standa saman. Ísland
býr yfir miklum krafti en við þurfum
samstöðu til að virkja hann til góðra
verka fyrir okkur öll,“ segir Össur
Skarphéðinsson við DV um þau
viðbrögð að hugmyndir ríkisstjórn-
arinnar um samráð við aðila vinnu-
markaðarins og stjórnarandstöð-
una um uppbygginguna landsins
framundan væru „leikrit.“