Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2010, Page 15
EFLA SAMKEPPNI Í niðurstöðum á þingi Neytendasamtak-
anna kom fleira markvert fram. Þar segir að samtökin skuli vinna að því að
böndum verði komið yfir smálánastarfsemi. Upplýsingar um árlega hlutfalls-
tölu kostnaðar komi fram í auglýsingum og séu lántakendum ljósar áður en
viðskiptin fara fram. Efla þurfi leigumarkaðinn og mikilvægt sé að valkostir
heimilanna í húsnæðismálum séu fleiri. Þegar kemur að samkeppni og vöru-
verði leggja samtökin til að samkeppni verði virkjuð með því að leggja niður
tolla og gjöld af smápökkum. Allt þurfi auk þess að gera til að efla samkeppni
á matvöru-, fjármála-, fjarskipta-, trygginga-, lyfja- og eldsneytismarkaði.
GREIÐSLUMAT STANDI UNDIR NAFNI „Taka þarf betur
á þeim gríðarlega skuldavanda sem heimilin búa við. Þá ekki aðeins heimili sem lent
hafa í greiðsluerfiðleikum og stefna í þrot, heldur einnig þau mörgu sem af veikum
mætti reyna að standa í skilum,“ segir í niðurstöðum úr umræðuhópum á þingi Neyt-
endasamtakanna sem fram fór á dögunum. Þar segir enn fremur að samtökin þurfi
að vinna að því að ábyrgar lánveitingar verði grunnregla í lánaviðskiptum hér á landi.
Greiðslumat þurfi að standa undir nafni og vera byggt á raunverulegri framfærslu-
þörf einstaklinga. Lánveitendur beri hluta ábyrgðarinnar á þeim lánum sem veitt eru
án þess að fullnægjandi forsendur séu fyrir þeim, en ekki skuldarar eingöngu.
MÁNUDAGUR 1. nóvember 2010 NEYTENDUR 15
PENINGARNIR BRENNA
UPP INNI Í BÖNKUNUM
prósenta vexti. Arion banki býður
lægstu vextina þar sem milljónin
hækkar um 87 þúsund krónur um-
fram verðlag á þremur árum.
Óásættanlegt ástand
Jóhannes Gunnarsson, formaður
Neytendasamtakanna, gagnrýn-
ir bankana harðlega fyrir að bjóða
ekki betur. „Ég tel að fólk eigi ekki að
tapa á því að vera með peningana
sína inni á reikningum bankanna,
jafnvel þó svo um veltureikninga sé
að ræða. Það er eðlilegt að vextirn-
ir af innistæðum á veltureikningum
séu ekki miklir en þeir ættu þó að
vera réttum megin við núllið,“ segir
Jóhannes. Hann segir óásættanlegt
að fólk þurfi að binda peningana
sína inni á reikningum í mörg ár til
þess að fá jákvæða ávöxtun. „Ef það
er eini valkosturinn að binda pen-
ingana inni þá er það ekki ásættan-
legt ástand,“ segir hann en þess má
geta að óverðtryggðir sparireikn-
ingar ná ekki að halda í við verð-
bólguna – til þess eru vextirnir al-
mennt of lágir.
Jóhannes segir afleitt ef fólk geti
allt eins geymt peningana sína und-
ir koddanum í stað þess að geyma
þá í bönkunum.
– Örlítið hærri vextir eru víðast í
boði ef fólk á háar upphæðir inni á
reikningum.
VEXTIR AF VELTU-
REIKNINGUM
Banki Vextir
S24 3,45%
MP Banki 0,25%
Arion banki 0,15%
Byr 0,15%
Landsbankinn 0,10%
Íslandsbanki 0,10%
Yfirdráttur og
dráttarvextir
Það er nánast jafn dýrt að vera með yfirdráttarlán og að taka
á sig dráttarvexti vegna vangreiddra reikninga. S24 býður
lægstu vextina af yfirdráttarlánum en MP Banki býður sum-
um viðskiptavinum betur. Hjá Íslandsbanka og Landsbanka
má fá betri kjör gegn því að yfirdrátturinn lækki í hverjum
mánuði.
Dráttarvextir Seðlabanka Íslands
eru nú litlu hærri en yfirdráttar-
vextir. Það er nánast jafn dýrt fyr-
ir þann sem ekki á fyrir reikning-
um að greiða ekki með tilheyrandi
dráttarvöxtum og að nota yfir-
dráttinn. Engum skal þó ráðlagt að
greiða ekki reikningana sína því
upphæðir vegna innheimtuað-
gerða geta fljótt orðið svimandi
háar. Það kostar einstakling 108 til
113 þúsund krónur ári að vera með
milljón króna yfirdrátt hjá bönkun-
um. Vextirnir hafa þó lækkað mikið
frá því sem þeir voru fyrir tveimur
árum.
Sparar 1% með bestu kjörum
DV kannaði almenna yfirdráttar-
vexti bankanna. Athugunin leiðir
í ljós að vextir af yfirdráttarlánum
eru á bilinu 10,85 til 12,95 prósent.
Á ársgrundvelli þýðir það að millj-
ón króna fullnýtt yfirdráttarheimild
kostar á bilinu 108.500 til 112.950
krónur. Vextirnir eru hæstir hjá Byr
en lægstir hjá MP Banka. MP Banki
gefur þó upp vaxtakostnað á bilinu
10,85 til 12,35 prósent. Þær upp-
lýsingar fengust hjá bankanum að
samið væri um yfirdráttarvexti í
hverju tilviki fyrir sig. Þar ráði við-
skiptasaga og umsvif einstaklings-
ins mestu. S24, sem er í eigu Byrs,
býður annars eitt fyrirtækja skil-
yrðislaust vexti sem eru lægri en
12 prósent. Vextirnir þar eru 11,25
prósent en munurinn á þeim vöxt-
um og þeim hæstu eru aðeins um
1.700 krónur á ársgrundvelli, mið-
að við að viðskiptavinur hafi millj-
ón krónur í yfirdrátt.
Þess má geta að stóru bankarn-
ir bjóða lægri yfirdráttarvexti ef fólk
er skráð í vildarklúbba. Þannig eru
bestu kjör sem bankarnir bjóða oft
um 1 prósent lægri en almenn kjör.
Af milljón króna yfirdrætti munar
slíkur „afsláttur“ 1.000 krónum á
ársgrundvelli.
Svipað háir dráttarvöxtum
Samhliða vaxtalækkunum Seðla-
banka Íslands hafa vextir af öllum
inn- og útlánum lækkað mikið frá
því sem var fyrir einu og tveim-
ur árum. Þannig voru algengir yf-
irdráttarvextir um 15 prósent fyr-
ir ári síðan en rúmlega 26 prósent
fyrir tveimur árum, rétt fyrir banka-
hrun. Þá gagnrýndi Gísli Tryggva-
son, talsmaður neytenda, bankana
fyrir að yfirdráttarvextir væru nán-
ast jafn háir og dráttarvextir. Drátt-
arvextir væru lögum samkvæmt
skaðabætur fyrir að ekki væri greitt
á réttum tíma. „Mér finnst því
óeðlilegt að umsamdir yfirdrátt-
arvextir séu jafn háir eða svipaðir
dráttarvöxtum,“ sagði Gísli í sam-
tali við DV.
Þess má geta að svipað er uppi
á teningnum nú. Þannig eru al-
mennir yfirdráttarvextir Byrs 0,30
prósentustigum lægri en dráttar-
vextir – sem eru 13,25 prósent.
Námsmenn fá betri kjör
Flestir bankarnir bjóða náms-
mönnum betri kjör en öðrum af yf-
irdráttarlánum. Arion banki býður
best, eða 7,65 prósent vexti. Náms-
maður sem er með milljón króna
fullnýtta yfirdráttarheimild greið-
ir á ársgrundvelli 76.500 krónur af
slíkri heimild. Hjá Landsbankan-
um og Íslandsbanka greiða náms-
menn 88.000 krónur af sömu heim-
ild en S24 býður ekki upp á betri
kjör fyrir námsmenn; þar eru vext-
irnir 11,25 prósent sem fyrr segir.
Þess má að lokum geta að eitt
hagstæðasta sparnaðarráð sem
völ er á felst í því að lækka yfir-
dráttinn. Þeir sem eru með yfir-
drátt hjá Íslandsbanka eða Lands-
banka geta farið í lækkunarferli,
þar sem yfirdrátturinn er lækkaður
um fasta upphæð í hverjum mán-
uði, gegn því að fá betri vaxtakjör.
Hjá þessum tveimur bönkum bjóð-
ast ríflega 9 prósenta vextir af slíku
úrræði en ekki er tekið fram í vaxta-
töflum hinna bankanna að þeir
bjóði ámóta úrræði.