Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2010, Page 17

Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2010, Page 17
mánudagur 1. nóvember 2010 erlent 17 Paul Rusesabagina varð heimsfræg- ur í kjölfar kvikmyndarinnar Hótel Rúanda þar sem hann var leikinn af Hollywood-stjörnunni Don Chead- le. Myndin segir frá atburðum í lífi Rusesabagina á tímum borgarastyrj- aldar í Rúanda, þar sem grimmileg- ir stríðsglæpir voru framdir. Rusesa- bagina var sannkölluð hetja en hann gerði allt hvað hann gat til að vernda fólk af Tutsi-ættbálknum, sem var ofsótt af ráðandi ættbálki Hutu. Á 100 daga tímabili frá apríl til júlí árið 1994 voru 800 þúsund manns úr Tutsi-ættflokknum teknir af lífi í einu stærsta þjóðarmorði allra tíma. Nú hefur Rusesabagina komist í fréttirnar að nýju, í þetta skiptið fyr- ir miður hetjulegar sakir. Er hann nú sakaður um að hafa fjármagnað hryðjuverkasamtök með peninga- sendingum frá Bandaríkjunum, en Rusesabagina býr nú í Houston í Tex- as. Sjálfur neitar hann alfarið sök og segir að ásökunin sé hreinn rógburð- ur gegn mannorði hans, vegna þess eins að hann studdi ekki núverandi forseta Rúanda, Paul Kagame, þegar hann bauð sig fram til forseta. Martin Ngoga, sem er ríkissaksóknari í Rú- anda, segist hins vegar hafa sannan- ir fyrir því að Rusesabagina hafi stutt uppreisnarsamtökin FDLR, sem eru skipuð meðlimum af Hutu-ætt- bálknum. „Við grunum hann um al- varlega glæpi og við skorum á hvern þann sem heldur uppi vörnum fyrir hann að skoða sönnunargögnin sem við höfum undir höndum.“ Rusesa- bagina hefur þó ekki verið ákærður enn. Í ágúst á næsta ári eru forseta- kosningar í Rúanda, og hafa mann- réttindasamtök lýst yfir áhyggjum sínum á fjölmiðlakúgun Kagames forseta. Hann hefur þaggað niður í keppinautum sínum og jafnvel skip- að öryggissveitum á andstæðinga sína. Kagame er Tútsi, og er talið að fólk af Hutu-ættbálknum eigi því sér- staklega undir högg að sækja – þrátt fyrir að bannað sé að ræða um ætt- bálkamun í Rúanda í dag. bjorn@dv.is Paul Rusesabagina sakaður um að fjármagna uppreisnarhópa: Hetjan í Hótel Rúanda Sarah Palin lýsti því yfir í viðtali við Entertainment Tonight að hún myndi bjóða sig fram til forsetaembættisins, ef enginn hæfur frambjóðandi gefi sig fram. Palin til í tuskið Sarah Palin, sem bauð sig fram til varaforsetaembættis Bandaríkjanna fyrir tveimur árum, hefur gefið sterk- lega til kynna að hún muni sækjast eftir forsetaembættinu í kosning- um árið 2012. Í viðtali við sjónvarps- stöðina Entertainment Tonight sagði Palin að hún myndi sækjast eftir embættinu, ef hún yrði ekki vör við aðra frambjóðendur sem eru starfs- ins verðugir. Þegar kemur að því að taka ákvörðunina um hvort eigi að hrökkva eða stökkva mun Pal- in skoða „hvort þá séu þegar komn- ir frambjóðendur sem geta tekið starfið að sér og ef svo er, þá mun ég styðja þá af heilum hug og verða þeirra helsta hjálparhella – vilji þeir fá mig.“ Ætlar hún að bjóða sig fram ef hún sér engan sem hefur sömu ástríðu og hún fyrir heilbrigðri skyn- semi, íhaldsemi og stjórnarskránni. „Ef enginn annar er tilbúinn til þess, þá mun ég vera óhrædd við að taka erfiðar ákvarðanir án þess að hugsa um hvað gagnrýnendur segja.“ Gagnrýnd úr öllum áttum Palin hefur sýnt að hún gefur gagn- rýnendum iðulega langt nef og veit- ir ekki af. Gagnrýnendur hennar koma úr öllum áttum og þá sérstak- lega frá vinstri vængnum í bandarísk- um stjórnmálum. Hún er sérstaklega gagnrýnd af vinstri mönnum fyrir að hafa ekki næga reynslu í utanríkismál- um, en frægt var í kosningabaráttunni sem hún stóð í með John McCain þeg- ar hún montaði sig af sérstakri þekk- ingu sinni á Rússlandi, því Rússland er í sjónmáli við Alaska – heimafylki Pal- ins, en þar var hún einmitt fylkisstjóri. Nú þarf Palin að horfast í augu við það að vera gagnrýnd af áhrifamiklum að- ilum í Repúblikanaflokknum, hennar eigin flokki. Einn þeirra er Karl Rove, sem var einn helsti ráðgjafi George W. Bush, fyrrverandi forseta Bandaríkj- anna. Sagði Rove í viðtali við Daily Te- legraph að hann efaðist um að Banda- ríkjamenn teldu Palin hafa burði til að gegna mikilvægasta starfi í heimi. Hann lýsti enn fremur áhyggjum sín- um yfir raunveruleikasjónvarpsþætti sem Palin tekur þátt í, en að mati hans er ekki við hæfi að stjarna úr slíkum þætti verði kjörin í Hvíta húsið. Sú staðreynd að hún opinberaði áhuga sinn á embættinu í viðtali við Enter- tainment Tonight hefur væntanlega ekki verið Rove að skapi. Þingkosningar munu gefa vísbendingar Palin hefur þegar lýst yfir stuðn- ingi sínum við 38 frambjóðend- ur repúblikana til ríkisstjóra og til fulltrúadeildar Bandaríkjaþings í kosningunum sem fara fram 2. nóvember. Ef þeim gengur vel, mun það gefa Palin byr undir báða vængi og líklegt að hún tilkynni framboð sitt í kjölfarið. Stjórn- málaskýrendur vestanhafs tala um að kosningabaráttan um forseta- embættið hefjist í raun um leið og þingkosningum lýkur og byrja þá líklegir frambjóðendur að leita styrkja og stuðnings frá áhrifafólki. Aðrir líklegir frambjóðendur rep- úblikana eru meðal annarra tald- ir verða þeir Mitt Romney, fyrr- verandi ríkisstjóri Massachusetts, Newt Gingrich, fyrrverandi forseti fulltrúadeildar þingsins, og fyrr- verandi ríkisstjóri Arkansas, Mike Huckabee. bjöRn teitSSon blaðamaður skrifar: bjorn@dv.is Palin hefur sýnt að hún gefur gagnrýnendum iðulega langt nef og veitir ekki af. Vændishneyksli í Svíþjóð Aftonbladet greindi frá því um helg- ina að met hefði verið sett í Svíþjóð í dómum um vændiskaup. Frá júní- mánuði 2009 hafa 177 dómar verið felldir í málum vændiskaupenda. Blaðamaður Aftonbladet rannsakaði málið og fullyrðir að margir þeirra sem hafa verið dæmdir séu háttsettir einstaklingar úr sænska stjórnkerf- inu. Enginn hefur enn verið nafn- greindur en á dögunum komst lög- reglan á snoðir um stórt vændishús í Stokkhólmi sem var rekið af konu sem notaði nafnið „Brown Sugar.“ Írak og Afganistan spilltust Það ætlar að reynast erfitt fyrir Íraka og Afgani að ná sér á strik. Ekki nóg með að þar séu blóðug átök daglegt brauð, heldur eru löndin einnig talin þau spilltustu í heiminum. Árleg- ur listi Transparency International um spilltustu stjórnkerfin var birtur á dögunum og þar kom þetta fram. Þau lönd sem búa við minnsta spill- ingu eru í ár talin vera Nýja-Sjáland, Danmörk og Singapúr en Ísland sit- ur í 11. sæti og Bandaríkin í 22. sæti. Margir hafa bent á að ekki er hægt að mæla spillingu, sem samkvæmt skilgreiningu á sér stað á bak við tjöldin. Sjálfsmorðsárás í Tyrklandi Alls eru 22 særðir eftir sjálfsmorðs- árás í Istanbúl á laugardag þar af 10 lögreglumenn. Lét árásarmaðurinn til skarar skríða á Taksim-torginu í miðborg Istanbúl er þar var saman kominn mikill mannfjöldi vegna mótmælaaðgerða. Vitni segja að árásarmaðurinn hafi lifað árásina af en hann var skotinn til bana af lög- reglumönnum. Engin samtök hafa lýst yfir ábyrgð á verknaðinum en talið er að maðurinn, sem var liðlega tvítugur, hafi verið uppreisnarmaður úr hópi Kúrda. Sjö ráðherrar reknir Hinn litríki forseti Suður-Afríku, Jacob Zuma, hefur nú rekið sjö ráðherra úr ríkisstjórn sinni. Taldi Zuma að ráðherrarnir hefðu ekki staðið sig nægilega vel í starfi. Sagði Zuma af því tilefni að Suður- Afríkubúar ættu að stefna hærra og að aldrei hafi verið mikilvæg- ara að halda utan um grunnstoðir samfélagsins. Zuma hefur ein- stakt lag á að komast í fréttir fyrir aðrar sakir en árangur í stjórn- málum. Frægt var þegar hann var spurður hvort hann væri ekki hrædur við alnæmi, en Zuma er mikill kvennabósi. Zuma var með svar á reiðum höndum: „Hafðu ekki áhyggjur, ég fór í sturtu.“ Sarah Palin Fótboltamamman ætlar sér að verða forseti. Sæmdur orðu Rusesabagina tekur við frelsisorðunni, æðstu orðu Bandaríkjanna, frá George W. Bush, þáverandi forseta.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.