Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2010, Qupperneq 26
Klara, Alma og Steinunn taka þátt í bandarísku menningunni:
26 fólkið 1. nóvember 2010 mánudagur
Rithöfundurinn og leikkonan
Ingibjörg Reynisdóttir er nú stödd í
Hollywood en Ingibjörg er höfundur
bókanna sem unglingamyndin Órói
byggir á. Þetta er ekki í fyrsta skiptið
sem Ingibjörg kíkir á stjörnuborgina
en síðast hitti hún ekki minni stjörnur
en stórleikarann Joaquin Phoenix
og dönsku leikarahjónin Casper
Christensen og Iben Hjejle. Enn og
aftur er Ingibjörg umvafin stjörnum
en samkvæmt Facebook-síðu hennar
hefur hún þegar rekist á eitt skærasta
ungstirni dagsins í dag. Leikkonan
var nefnilega stödd á kaffihúsi þegar
Michael Cera, leikarinn ungi úr
myndinni Juno, fékk sér sæti á næsta
borði. Spurning hvort hún hafi ekki
reynt að fá hann til að leika í Óróa 2.
Tobba
gefur bækur
Tobba Marinósdóttir hefur ákveðið
að setja öll höfundareintök af nýrri
bók sinni, Dömusiðum, undir tréð í
Smáralind. En allar gjafir sem settar
eru undir tréð fara til Mæðrastyrks-
nefndar. Hún greindi frá þessu á
Facebook-síðu sinni og skrifaði
jafnframt: „Sorrí mamma – þú verður
bara að kaupa bókina!“ Það verða
því vonandi margar konurnar sem fá
óvæntan jólaglaðning frá Tobbu um
þessi jól. En mamma hennar mun
vonandi sætta sig við að þurfa að
kaupa sitt eintak sjálf.
Íslenska stúlknabandið The Charlies
er að koma sér æ betur inn í banda-
ríska menningu. Hrekkjavakan var
um helgina og þær Alma, Klara og
Steinunn veltu fyrir sér hugmyndum
um búninga á Facebook-síðu sinni.
Stelpurnar voru að spá í að vera afar
frumlegar og vera þokkagyðjurnar í
Charlie’s Angels en þær væru örugg-
lega flottar sem glæpakvendin sem
þær Cameron Diaz, Drew Barrymore
og Lucy Liu léku. Önnur hugmynd
þeirra, og úr allt annarri átt, var að
klæða sig upp sem grínhópurinn The
Three Stooges.
Rífandi uppgangur er hjá stelp-
unum og sendu þær frá sér sitt fyrsta
lag á dögunum síðan þær héldu til
Bandaríkjanna. Lagið fæst í versl-
un iTunes og heitir Fighter on the
Dancefloor og er endurgerð af eitís
smellinum Eye of the Tiger. Svo virð-
ist sem stóra tækifærið sé handan við
hornið en Fighter on the Dancefloor
var spilað í raunveruleikaþættinum
Dancing with the Stars. Um mikinn
heiður er að ræða því þátturinn er
einn sá vinsælasti í Bandaríkjunum.
Stelpurnar eru á samningi hjá út-
gáfufyrirtækinu Hollywood Records
sem einnig er með Queen á sinni
könnu svo það eru engir byrjendur
sem sjá um mál The Charlies.
Stelpurnar njóta greinilega lífsins
í botn í borg englanna. Þær eru þeg-
ar búnar að heimsækja klámkónginn
Hugh Hefner og hafa rekist á stjörnur
á borð við Jamie Foxx, Joaquin Pho-
enix, Paul Shore og Kim Kardashian.
Charlie’s Angels
á hrekkjavöku
The Charlies Alma,
Klara og Steinunn
væru án efa flottar
sem hinir eldheitu
og hættulegu englar
Charlies.
HiTTi
Michael Cera
Hitar upp
fyrir Air
ólöf ArnAlds:
„Ég er að fara til Frakklands á morg-
un (mánudag) að hita upp fyrir
hljómsveitina Air. Ég mun spila með
þeim á fernum tónleikum sem er
bara mjög gaman,“ sagði Ólöf Arn-
alds um væntanlega ferð sína til
Frakklands.
Ólöf gaf nýverið út aðra breið-
skífu sína, Innundir skinni, sem
hefur hlotið frábæra dóma víða um
heim en áður gaf hún út plötuna Við
og við sem vakti mikla athygli fyrir
frumlegar lagasmíðar og sérstakan
söngstíl Ólafar. Á tónleikunum mun
Ólöf koma ein fram og syngja lög af
nýju plötunni en hún hefur verið
kölluð næsta vonarstjarna Íslands í
erlendum fjölmiðlum. Eftir tónleik-
ana með Air heldur Ólöf til Banda-
ríkjanna þar sem hún mun hita upp
fyrir Íslandsvinina í Blonde Red-
head. Þetta er allt partur af tónleik-
ferðalagi hennar til að kynna nýju
plötuna en alls er búið að staðfesta
32 tónleika fyrir ferðina, sem hófst á
End of the Road Festival í Bretlandi
12. september og lýkur í Austin í Tex-
as.
Það er útgáfufélag í eigu Bjarkar
Guðmundsdóttur, One Little Indian,
sem gefur plötuna út en Björk syng-
ur með Ólöfu í einu lagi á plötunni.
Hljómsveitin Air sló í gegn með
plötunni Moon Safari árið 1998 og
spilaði fyrir fullu húsi í Laugars-
dalshöll í júní 2007 og einnig hef-
ur hljómsveitin unnið mikið með
bandaríska leikstjóranum Sofiu
Coppola og samdi meðal annars
tónlistina fyrir myndina The Virgin
Suicides.
Söngkonan Ólöf Arnalds hélt í dag til Frakklands þar sem
hún mun hita upp fyrir hljómsveitina Air á fernum tónleik-
um. Tónleikarnir eru hluti af tónleikaferðalagi hennar og
mun hún síðan halda til Bandaríkjanna og spila á undan
Blonde Redhead.
Hitar upp fyrir stórhljóm-
sveit Ólöf mun spila á fjórum
tónleikum með Air.