Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.2010, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIR 12. nóvember 2010 FÖSTUDAGUR
Fór inn í lögreglu-
bíl án leyfis
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur
dæmt konu á fertugsaldri í 30 daga
skilorðsbundið fangelsi fyrir að neita
að yfirgefa lögreglubíl sem hún fór
inn í án leyfis, og fyrir að slá til lög-
reglumanns. Atvikið átti sér stað í
miðborg Reykjavíkur í mars en konan
sagði fyrir dómi að hún hefði verið
stödd á skemmtistað í bænum þegar
hún datt og slasaðist á hendi. Fór hún
inn í lögreglubíl sem var skammt frá
staðnum til að leita sér hjálpar. Kon-
an varð ekki við tilmælum lögreglu
um að yfirgefa bílinn. Fór svo að hún
var tekin út úr bifreiðinni með valdi
og sló hún þá til lögreglumanns.
Innbrotum fækkar
Innbrotum á höfuðborgarsvæð-
inu hefur fækkað um 29 prósent
frá árinu 2009 og er fjöldi þeirra
nú svipaður og 2008. Frá ársbyrj-
un til loka október fækkaði inn-
brotum í stofnanir og verslanir
hlutfallslega mest í samanburði
við sama tímabil í fyrra. Á um-
ræddum tíma fækkaði innbrot-
um á heimili um fjórðung, eða 26
prósent, og enn meira þegar um
ökutæki var að ræða, eða 34 pró-
sent. Fækkun innbrota er mismikil
eftir hverfum eða svæðum.
Þess má geta að tilkynningar
um innbrot berast lögreglu helst á
morgana og klukkan 18 síðdegis.
Kuldakast
um helgina
Afar kalt verður í veðri á Norður-
landi á sunnudag samkvæmt spá
Veðurstofu Íslands. Þannig ger-
ir sjálfvirk spá Veðurstofunnar ráð
fyrir um og yfir tuttugu stiga frosti
á Norðurlandi og á hálendinu á
sunnudag. Gæti frost farið niður
í mínus 28 gráður á Blönduósi á
sunnudag. Þá er spáð þrettán stiga
frosti á Akureyri á sunnudag en átta
stiga frosti í Reykjavík. Spáð er snjó-
komu á Norðurlandi á laugardag
en sólríkt verður þar á sunnudag.
Eftir helgi mun hlýna í veðri og gerir
Veðurstofan ráð fyrir að hiti verði í
kringum frostmark víðast hvar.
Samdráttur
í sölu áfengis
Sala áfengis dróst saman um 8,2 pró-
sent á föstu verðlagi í október miðað
við sama mánuð í fyrra og um 3,6
prósent á breytilegu verðlagi. Verð á
áfengi var 5,1 prósenti hærra í okt-
óber síðastliðinum en í sama mán-
uði í fyrra. Þetta kemur fram í nýjum
tölum frá Rannsóknarsetri verslun-
arinnar. Fataverslun var 7,6 prósent-
um minni í október miðað við sama
mánuð í fyrra á föstu verðlagi og
minnkaði um 4,4 prósent á breyti-
legu verðlagi á sama tímabili. Verð á
fötum var 3,4 prósentum hærra en
í sama mánuði á síðasta ári. Sala á
raftækjum jókst verulega.
Utanríkisráðuneytið hefur birt 67 skjöl
sem varða aðdraganda þess að Ísland
fór á lista hinna staðföstu þjóða og
hét þar með stuðningi við innrásina
í Írak. Þar kemur fram að stuðnings-
yfirlýsing Íslands vegna Íraksstríðs
Bandaríkjamanna hafi átt að vera al-
gjört trúnaðarmál. Samkvæmt skjöl-
unum kom það starfsmönnum utan-
ríkisráðuneytisins á óvart þegar listi
hinna staðföstu þjóða var lesinn upp
í fréttatíma bandarísku fréttastofunn-
ar CNN.
Listinn var lesinn upp í fréttatíma
CNN 18. mars árið 2003. Höfðu þá
engin svör borist Íslendingum hvern-
ig Bandaríkjamenn ætluðu að nota
listann. Kemur fram í minnisblaði al-
þjóðaskrifstofu utanríkisráðuneytisins
að Bandaríkjamönnum hafi ekki virst
fullljóst hvernig nota ætti listann. Þá er
birt minnisblað þjóðréttarfræðingsins
Tómasar H. Heiðars en hann sagði
að það væri ekki ótvíræður lagaleg-
ur grundvöllur fyrir innrásinni í Írak, í
áliti sem hann vann fyrir utanríkisráð-
herra og ráðuneytisstjóra.
Þá kemur fram í skjölunum að full-
trúum ríkjanna sem voru á stuðnings-
lista Bandaríkjanna hafi verið boðið
í mat heima hjá varnarmálaráðherra
Bandaríkjanna, Donald Rumsfield,
tæpum mánuði eftir innrásina. Sendi-
herrahjón Íslands í Bandaríkjun-
um voru viðstödd þennan kvöldverð,
Helgi Ágústsson og eiginkona. Utan-
ríkisráðuneytið veitir ekki aðgang að
öllum skjölunum. Þau eru í heild 92
en aðeins er veittur aðgangur að 67 af
þeim. 25 skjalanna eru undanþegin
birtingaskyldu samkvæmt upplýsinga-
lögum vegna þess að þau eru vinnu-
skjöl eða skjöl sem varða samskipti
stjórnvalda við önnur ríki. birgir@dv.is
Utanríkisráðuneytið birtir skjöl um stuðning við Íraksstríð:
Átti að vera trúnaðarmál
Kom á óvart Það kom íslenskum stjórnvöldum á óvart þegar Ísland var nefnt í frétta-
tíma CNN sem eitt þeirra ríkja sem lýst höfðu yfir stuðningi við Íraksstríðið.
Fyrrverandi starfsmaður sendiráðs
Íslands í Vín, Guðný Ólöf Gunn-
arsdóttir, hefur verið ákærð fyrir
fjárdrátt í opinberu starfi. Ákæran
gegn henni var þingfest í héraðs-
dómi Reykjaness föstudaginn 12.
nóvember. Ríkissaksóknari, Val-
týr Sigurðsson, ákærir Guðnýju í
málinu. Hún er 29 ára gömul og er
búsett í Reykjanesbæ, samkvæmt
ákærunni. Þetta kemur fram í
ákærunni gegn Guðnýju sem DV
hefur undir höndum.
Fjárdrátturinn átti sér stað í
fyrra og dró konan sér féð, rúmlega
50 milljónir króna, meðan hún var
starfsmaður sendiráðsins í Vín en
einnig eftir að hún hafði hafið störf
í utanríkisráðuneytinu á Íslandi.
Í fréttum sem sagðar hafa verið
í fjölmiðlum um málið kom fram
að líklega hefðu peningarnir farið í
veðmál á internetinu en sendiráðs-
starfsmaðurinn var sagður eiga við
spilafíkn að stríða. Guðnýju var
sagt upp störfum hjá utanríkis-
ráðuneytinu eftir að upp komst um
fjárdráttinn í október í fyrra. Málið
hefur verið til rannsóknar hjá efna-
hagsbrotadeildinni síðan.
Millifærði á eigin reikning
Í ákærunni segir að Guðný hafi
millifært peningana af reikningi ís-
lenska sendiráðsins í Vín og inn á
eigin bankareikning. Orðrétt segir í
ákærunni að Guðný sé ákærð „fyr-
ir fjárdrátt í opinberu starfi, með
því að hafa á tímabilinu 2. mars til
6. október 2009, í starfi sínu sem
sendiráðsfulltrúi í sendiráði Ís-
lands í Vín í Austurríki og síðar
stjórnarráðsfulltrúi og starfsmað-
ur á rekstrar- og þjónustusviði ut-
anríkisráðuneytisins, dregið sér og
notað heimildarlaust í eigin þágu
samtals, 335.768 EUR, með því að
millifæra samtals 325.000 EUR í
193 skipti af reikningi nr. […] í eigu
íslenska sendiráðsins í Vínarborg
hjá Bank für Arbeit und Wirtschaft
und Österreichische Postspar-
kasse Aktiengesellschaft (BAWAG
banka), sem hún hafði prókúru fyr-
ir, yfir á eigin bankareikning nr. […]
hjá sama banka.“
Þá segir einnig í ákærunin að
Guðný hafi ekki tilkynnt að hún
væri enn að fá staðaruppbót
vegna búsetu sinnar og vinnu í
Vín eftir að hún hafði látið þar af
störfum. En um var að ræða tæp-
lega 11 þúsund evrur sem voru
millifærðar til hennar af sama
reikningi sendiráðsins og hún
hafði dregið sér fé af. Þar seg-
ir einnig að hún hafi notað um-
rædda upphæð heimildarlaust í
eigin þágu.
Krafin um endurgreiðslu
Háttsemi Guðnýjar er talin vera
hegningarlagabrot og er þess
krafist að hún verði dæmd til
refsingar og til að greiða allan
sakarkostnað í málinu.
Þá er einnig gerð einkaréttar-
krafa í málinu og er þess krafist
að Guðný endurgreiði upphæð-
ina sem hún er talin hafa dreg-
ið sér ásamt vöxtum. Í ákærunni
segir að Guðný hafi nú þegar
greitt tilbaka tæplega 80 þúsund
evrur.
Guðný játaði brot sitt eftir að
upp komst um fjárdráttinn í fyrra
og mun án efa verða tekið tillit til
þess við ákvörðun refsingarinnar.
Tæplega þrítug kona hefur verið ákærð fyrir að stela rúmum 50 milljónum af reikn-
ingi sendiráðs Íslands í Vín. Konan játaði brot sitt þegar upp komst um það í fyrra.
Hún millifærði peningana af reikningi sendiráðsins og inn á eigin reikning. Konan
er krafin um endurgreiðslu á upphæðinni sem hún dró sér.
Guðný játaði brot sitt eftir
að upp komst um fjár-
dráttinn í fyrra.
INGI F. VILHJÁLMSSON
fréttastjóri skrifar: ingi@dv.is
ÁKÆRÐ FYRIR AÐ STELA
50 MILLJÓNUM KRÓNA
Ákærð fyrir fjárdrátt í Vín Starfsmaður
sendiráðs Íslands í Vín hefur verið ákærður
fyrir 50 milljóna fjárdrátt. Myndin sýnir
Donnenbrunnen-gosbrunninn í Vínarborg.