Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.2010, Page 62

Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.2010, Page 62
Palli Papi ráðleggur Auðuni Blöndal að fá sér nágrannavörslu: 62 FÓLKIÐ 12. nóvember 2010 FÖSTUDAGUR HLÍN EINARS: DNA á „Autobahn” Halldór „DNA“ Halldórsson og félagar munu ferðast með bravúr þegar þeir fara á bardagakeppnina UFC 122 í Þýskalandi um helgina. Halldór fer með þeim Steinda Jr. og Ágústi Bent sem taka sér frí frá tökum á annarri þáttaröðinni af Steindanum okkar til þess að komast. Halldór leigði bíl af gerðinni Audi A4 og munu þremenningarnir ferðast um hinar frægu hraðbrautir Þýskalands til Berlínar þar sem keppnin fer fram. Þeir Steindi og Bent vildu taka lest frá Giessen þar sem Halldór er í námi en hann tók það ekki í mál. Hnyklaðir vöðvar kæta Vöðvafjallið, líkamsræktarfrömuð- urinn og athafnamaðurinn Arnar Grant er í lokaprófinu í nýjasta hefti Monitor sem fylgir Morgunblaðinu á fimmtudögum. Við spurninguna: Uppáhaldsvöðvinn minn er? hakar Arnar í boxið merkt: Tvívöðvinn, og bætir við: „Því hann kallar fram ómælda aðdáun og gleði þegar ég flexa hann.“ Arnar starfar sem einkaþjálfari í World Class en auk þess markaðssetti hann próteinvör- urnar Hámark ásamt góðvini sínum Ívari Guðmundssyni, útvarpsmanni á Bylgjunni. Að vera einkaþjálfari segir Arnar í lokaprófinu að sé hundleið- inlegt þegar aumingjar komi til hans en það sé hans leið til að gefa af sér út í samfélagið. „Þetta gefur mér tvö tæki- færi,“ segir Páll Eyjólfs- son, eða Palli Papi eins og hann er oftast kallað- ur, um símahrekkinn sem hann varð fyrir í vikunni. Þá hringdi Ari Eldjárn í hann í dulargervi Bubba Morthens fyrir þáttinn Audda og Sveppa og plat- aði umboðsmanninn upp úr skónum. „Annars vegar að njóta þess að sé verið að gera grín og skemmta fólki og hins vegar að taka Auð- un Blöndal og refsa honum grimmilega fyrir þetta við tækifæri.“ Aðspurður hvort Palli haldi að Auðunn sé hugmyndasmiðurinn á bak við hrekkinn segir hann það litlu máli skipta. „Auðunn á bara skil- ið að verða refsað fyrir svo marga hluti. Ég mæli með því að Auðunn kaupi sér ná- grannavörslu og allt þetta helsta sem er í boði,“ bætir hann við í léttum tón. Myndband af síma- hrekknum hefur vakið mikla athygli á visir.is en þar fór Ari Eldjárn á kostum í gervi Bubba. Eftir þetta leikur eng- inn vafi á því hver er besta Bubba-eftirherma landsins enda Ari að blekkja mann sem talar við Bubba dag- lega. „Hann er bara snill- ingur hann Ari. Hann náði mér alveg frá fyrstu mínútu. Ótrúlega góður.“ asgeir@dv.is „Æi, greyið hún,“ segir Hlín Einars- dóttir, ritstjóri bleikt.is, vefsíðu fyr- ir konur sem opnar á næstunni, um ummæli Þóru Tómasdóttur, fjöl- miðlakonu, sem setti inn hlekk á fésbók sína með pistli Hlínar um leyndardóma karlmanna og skrif- aði kaldhæðnislega: „Ég skaut óvart tölvuna mína með riffli.“ Fleiri landsfrægar konur taka undir með Þóru og svarar Selma Björnsdóttir söngkona hlekknum svohljóðandi: „Ég er kjaftstopp!“ Fyrrverandi Kastljósstjarna, Elsa María Jakobsdóttir, skrifar svo: „Nei hættu nú alveg.“ Hlín hefur verið afar dugleg að skrifa pistla á Pressuna og var ný- verið ráðin ritstjóri bleikt.is. Þrátt fyrir að síðan sé ekki enn farin í loft- ið fer mikið fyrir henni í netheimum og hafa nú margrar gagnrýnisraddir heyrst eins og hjá konunum hér að framan. Hlín viðurkennir fúslega að hún verða vör við þessar neikvæðu raddir. „Auðvitað. Það er talað um þá sem skipta máli,“ segir hún. En fær þetta eitthvað á hana? „Nei, alls ekki. Ég veit að ég er að gera rétt og hef trú á því sem ég er að gera. Ef ég myndi hlusta á allar gagnrýnisradd- irnar yrði ég bara klikkuð. Svona áttatíu og fimm prósent allra við- bragða sem ég hef fengið við vefn- um eru jákvæð. Restin er skítkast en það er bara eðlilegt. Ég er að tala um umdeilda hluti sem fólk hefur skoðanir á,“ segir Hlín en hún segir markað fyrir því sem hún fjallar um. „Ég hef núna verið mest lesni Pressupenninn undanfarið og ekki er leiðinlegt eða ófrægt fólk sem er að skrifa þar. Ég skrifaði fyrst um tíu atriði sem drepa möguleika á öðru stefnumóti fyrir karla og svo um fimmtán hluti sem karlmenn þola ekki við konur. Það eru yfir fjörtíu þúsund manns búnir að lesa þessa pistla,“ segir Hlín sem áttar sig á stöðunni sem hún er komin í en hlakkar samt gífurlega til opnun síð- unnar. „Ég hef fengið alveg ótrúleg við- brögð við síðunni. Við erum komin með alveg geggjað mikið af frábæru fólki sem ætlar að skrifa og vinna fyrir okkur og ég er ánægð með það sem koma skal. Það er ábyggilega eitthvað fólk sem hatar mig núna en það verður bara að vera þannig,“ segir Hlín Einarsdóttir, ritstjóri bleikt.is. tomas@dv.is Hlín Einarsdóttir, ritstjóri væntanlega kvennavefsins bleikt.is, gefur lítið fyrir nei- kvæða gagnrýni sem birtist í auknum mæli eftir því sem nær dregur opnun vefsíð- unnar. Fjölmiðlakonan Þóra Tómasdóttir las einn pistilinn hennar á Pressunni.is og sagðist óvart hafa skotið tölvuna sína. Umdeild Bleikt.is er ekki enn farin í loftið en Hlín Einarsdóttir er fyrir löngu farin að vekja umtal. „Ábyggilega margir sem hata mig“ ÆTLAR AÐ REFSA AUÐUNI Auðunn Blöndal Má vara sig eftir hrekkinn. Páll Eyjólfsson Gleypti við eftirhermu Ara Eldjárns.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.