Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.2010, Side 25
föstudagur 12. nóvember 2010 erlent 25
Sendiherra Tyrklands í Austurríki,
Kadri Ecved Tezcan, hefur valdið
miklu fjaðrafoki með ummælum
sínum í vikunni, um að Austurrík-
ismenn komi fram við Tyrki eins
og þeir séu veirusýking. Ríkisstjórn
Austurríkis, ásamt öðrum stjórn-
málaflokkum fyrir utan flokk Græn-
ingja, hafa fordæmt ummælin. Tez-
can sagði í viðtali við austurríska
dagblaðið Die Presse á miðvikudag
að 250 þúsund Tyrkir búi tilneydd-
ir í fátækrahverfum meðal óvin-
veittrar þjóðar, þar sem stjórnvöld
væru bæði fávís og hlaðin útlend-
ingahatri. „Austurríkismenn hafa
engan áhuga á menningu annarra
þjóða, nema þá kannski þegar þeir
eru erlendis í fríi. Samt var Aust-
urríki heimsveldi sem hýsti fjölda
mismunandi menningarkima. Þeir
ættu að vera vanir því að búa með
útlendingum.“
Tezcan beindi reiði sinni sérstak-
lega að leiðtogum stjórnmálaflokk-
anna í Austurríki og sagði þeim til
syndanna. Hann sakaði Mariu Fekt-
er, innanríkisráðherra úr Austurríska
þjóðarflokknum, um að vera ofstæk-
ismanneskju sem ætti frekar heima
í Frelsisflokknum. Margir muna eft-
ir Frelsisflokknum vegna fyrrver-
andi leiðtoga hans, Jörgs Haiders,
en um núverandi leiðtogann, Heinz-
Christian Strache, sagði Tezcan
að hann hefði „ekki hugmynd um
hvernig heimurinn snýst.“
Werner Faymann, kanslari Aust-
urríkis, sagðist vera hneykslaður og
sagði Tezcan hafa „móðgað gest-
gjafaþjóð sína, lýðræðislegar stofn-
anir hennar og alþjóðlegar stofn-
anir í Vínarborg.“ Ummæli Tezcan
koma í kjölfar atburðarásar í Evrópu
sem hefur verið Tyrkjum óhagstæð.
Þar má nefna kosningasigur Geert
Wilders í Hollandi, en hann vill
láta loka fyrir frekari innflytjenda-
straum til Hollands og hefur lýst
sig andsnúinn islam. Þá má nefna
ummæli Angelu Merkel, kanslara
Þýskalands, en hún sagði í síðasta
mánuði að fjölmenningarstefnan í
Þýskalandi hefði brugðist.
Sendiherra Tyrklands í Vínarborg sakar austurrísk stjórnvöld um útlendingahatur.
Tyrkir „eins og veirusýking“
Forseti ráðherraráðs Evrópusam-
bandsins, Herman Van Rompuy,
hefur vakið hörð viðbrögð vegna
orða sem hann lét falla um ESB-
efahyggju, eða það sem á ensku
heitir „euroscepticism“. Van Rom-
puy sagði í ræðu sem hann flutti í
Berlín á dögunum, að mesta ógn-
in sem stafaði að Evrópu í dag væri
efasemdarfólk sem trúði ekki á
samrunaferlið í álfunni. Efasemd-
ir um ESB leiddu til uppvakningar
þjóðernishyggju, sem gæti að lok-
um leitt til stríðsátaka. „Við verð-
um að berjast gegn þessum efa-
semdum um ESB. Sambandið er
ekki lengur einokað af fáum þjóð-
um. Í öllum aðildarríkjum er nú að
finna fólk sem telur að land þeirra
geti staðið eitt og óstutt í alþjóða-
væddum heimi. Það er ekki aðeins
tálsýn, það er hrein lygi.“
Hörð viðbrögð í Bretlandi
Bretar hafa löngum verið efins um
að vera þeirra í Evrópusamband-
inu sé til góðs, og hallast stjórnvöld
þar í landi sérstaklega frá Evrópuátt
þegar Íhaldsflokkurinn er við völd
eins og einmitt nú. David Camer-
on, forsætisráðherra Bretlands,
lýsti því einmitt yfir fyrir liðlega
tveimur vikum, að hann væri ESB-
efahyggjumaður. Lét hann þau orð
falla í kjölfar leiðtogafundar aðild-
arríkja sambandsins þar sem rætt
var sérstaklega um efnahagsmál og
fjárlög ESB. Gagnrýndi hann sam-
bandið harðlega fyrir þenslu í fjár-
lögum sambandsins, þegar aðild-
arríkin þurfa sjálf að stunda mikinn
meinlætalifnað.
Talsmaður Van Rompuys tók að
sér að útskýra ummæli yfirmanns
síns betur. Sagði hann að ummæl-
in snerust ekki um þá efahyggju
sem David Cameron væri haldinn
heldur snerust þau um fólk sem
væri þeirrar skoðunar að þjóðir
þeirra ættu að draga sig úr Evrópu-
sambandinu. „Þetta kemur David
Cameron ekkert við. Það er bara
verið að benda á að hvorki Bret-
land né nokkurt annað land geti lif-
að af eitt síns liðs. Ég er viss um að
Cameron sé sammála því.“
Þjóðernishyggja byggist á ótta
Háttsettir embættismenn í Evrópu-
sambandinu hafa áhyggjur af vax-
andi vinsældum þjóðernissinnaðra
öfgahópa í aðildarríkjum sam-
bandsins. Van Rompuy sagði í ræðu
sinni í Berlín þessa nýju bylgju þjóð-
ernishyggju byggjast á ótta. „Helsti
óvinur Evrópu í dag er óttinn. Ótti
leiðir til eiginhagsmunahyggju sem
leiðir til þjóðernishyggju, og þjóð-
ernishyggjan leiðir til stríðsátaka.
Þjóðernishyggja í dag er oftar en
ekki jákvæð tilfinning sem vekur
upp stolt yfir sinni eigin sjálfsmynd,
en neikvæðri skynjun á þá sem búa
í kringum þig. Evrópusambandið
fæddist í grunni viljans til að vinna
saman, til að slíðra sverðin og tala
sama rómi.“
Efi um ESB
leiðir til stríðs
Herman Van Rompuy lét umdeild orð falla í ræðu sem hann hélt
í Berlín á þriðjudag. Sagði hann að efasemdir um ESB leiddu til
þjóðernishyggju, sem gætu síðar leitt til vopnaðra átaka.
BjöRn teitsson
blaðamaður skrifar: bjorn@dv.is Helsti óvinur Evrópu í dag
er óttinn.
David Cameron Hefur lýst því yfir að
hann efist um ESB. mynD ReuteRs
evrópuræðan Herman
Van Rompuy er forseti
ráðherraráðs ESB.
mynD ReuteRs
hafa nú tekið við sér, en íbúar þess-
arra landa hafa nú meira fé milli
handanna en nokkurn tímann áður
og geta leyft sér að eyða í vestrænar
munaðarvörur eins og súkkulaði.
Kakóbaunaræktun er ekki lengur tal-
in sjálfbær og verðið á baunum hefur
aldrei verið hærra.
„Fair trade“ til bjargar
Demarquette segir að þrátt fyrir allt
sé verslun með hágæðasúkkulaði að
aukast, en þar aðhyllast kaupmenn
„fair trade“-stefnuna svokölluðu. Fyr-
ir hvert súkkúlaðistykki sem er selt á
eitt breskt pund fá bændur sem rækta
hágæðakakóbaunir um 45 pens til
baka. Bændurnir sem starfa fyrir al-
þjóðlegu stórfyrirtækin fá að jafnaði
um tvö pens. Demarquette segir að
þetta sé jákvæð þróun þrátt fyrir hátt
verð á hágæðasúkkulaði. „Þó að þetta
þýði að súkkulaði verði aftur að sjald-
gæfri munaðarvöru eins og það var
áður fyrr, þýðir þetta að bændur vilja
frekar starfa við kakó baunarækt. Þar
að auki er himinn og haf á milli al-
vöru súkkulaðis og súkku laðistykkja
sem eru seld í sjálfsölum. Þau eru svo
full af pálmaolíu og sykri að þau eiga í
raun ekki skilið að vera kölluð súkku-
laði.“
Súkkulaði vErðu
gullS ígildi
Walter Faym-
ann, Kanslari
Austurríkis er
hneykslaður á
ummælum sendi-
herra Tyrklands.
ariel Sharon á
heimleið
Fjölskylda Ariels Sharons, fyrrver-
andi forsætisráðherra Ísraels, undir-
býr nú heimkomu hans. Sharon hef-
ur verið í dauðadái síðan árið 2006
þegar hann fékk alvarlegt heilablóð-
fall. Sharon, sem hlaut viðurnefnið
„jarðýtan“ á ferli sínum sem hers-
höfðingi í ísraelska hernum, verður
fluttur á allra næstu dögum á búgarð
sinn í Negev en hann hefur eytt síð-
ustu árum á spítala í Tel Aviv. Ástand
hans er stöðugt um þessar mundir,
hann opnar stundum augun á dag-
inn – en er þó talinn heiladauður.
Ný ríkisstjórn í írak
Loksins sér fyrir endann á stjórn-
armyndunarviðræðum í Írak, en
kosningar fóru fram þar í landi í
mars síðastliðnum. Þrír stærstu
flokkarnir hafa nú náð samkomulagi
um að skipta með sér áhrifamestu
embættunum í írakskri stjórnsýslu.
Nouri Maliki, sem er sjíti, mun sitja
áfram sem forsætisráðherra. Í emb-
ætti yfirmanns ríkisskipulags hefur
verið skipaður súnnítinn Iyad Allawi
og flokksbróðir hans, Osama Nujafi,
verður forseti þingsins. Ákveðið hef-
ur verið að Kúrdar fái forsetaemb-
ættið og mun þar sitja áfram Jalal
Talabani. Bandarísk stjórnvöld lýstu
sig hæstánægð með samkomulagið
og sögðu það vera „stórt skref í rétta
átt.“
reykingar
bannaðar
Hjálp hefur borist til eyjarinn-
ar Jövu í Indónesíu úr óvæntri átt.
Eftir að eldfjallið Mount Merapi
tók að gjósa í síðasta mánuði hafa
um 150 þúsund íbúar Jövu þurft að
yfirgefa heimili sín. Nú er búið að
reisa flóttamannabúðir þar sem fólk
fær skjól frá öskufalli, en einnig frá
reykingum. Um 70 prósent karl-
manna á Jövu eru háðir sígarett-
um en nú hafa flóttamannabúðirn-
ar sem reistar voru af fyrirtækinu
Sampoerna bannað reykingar. Það
er ef til vill kaldhæðni örlaganna að
Sampoerna er stærsti tóbaksfram-
leiðandi Indónesíu, en fyrirtækið er í
eigu bandaríska tóbaksrisans Philips
Morris.