Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.2010, Blaðsíða 8
8 fréttir 12. nóvember 2010 föstudagur
„Bankarnir féllu vegna aðgerða manna
og ónýtra eftirlitslaga og nú blasir það
sama við hjá Flateyringum, vegna að-
gerða manna og ónýtra fiskstjórnun-
arlaga,“ er meðal þess sem kemur fram
í grein Kristjáns Andra Guðjónssonar,
bæjarfulltrúi Í-listans á Ísafirði á bb.is.
Í samtali við DV sagði hann að þrjú
síðustu fiskveiðiár hafi sjávarútvegs-
ráðherra ákveðið byggðakvóta fyr-
ir landið allt og honum hafi svo ver-
ið skipt niður á byggðarlög. Sumar af
þessum heimildum brenni inni og
verða ónýttar heimildir sem eru eng-
um til gagns. „Þess vegna vil ég benda
ráðherra á hvort hann geti ekki náð sér
í lagaheimildir til þess að virkja þess-
ar heimildir aftur inn,“ sagði Kristján
en tók fram að þessi lausn sé til bráða-
birgða á meðan undið sé ofan af kerf-
inu. Með þessu væri hægt að styðja
bæjarfélög eins og Flateyri. Hann
bendir á að búið sé að gera ráð fyr-
ir þessu í úthlutuninni og að fiskarnir
gufi ekki upp úr sjónum.
Menn eru uggandi yfir ástand-
inu á Flateyri en fyrirtækið Eyraroddi
neyddist til að segja upp öllum starfs-
mönnum sínum í síðasta mánuði.
Sjávar- og útvegsráðherra hef-
ur ákveðið að auka aflamark um tólf
þúsund tonn til stuðnings við byggð-
arlögin. Skilyrðin fyrir þessu er að afl-
anum verði landað og hann unninn
á staðnum. Aðspurður um aðgerðir
ráðherra sagði Kristján að það skipti
að sjálfsögðu máli og menn séu þakk-
látir. „Ég held að 300 eða 600 tonn séu
þó ekki nóg til að halda uppi þokka-
legu vinnuárferði á Flateyri. Það þarf
að koma meira til,“ segir hann. Það
verði að breyta fiskveiðikerfinu svo að
byggðirnar hafi eitthver öryggisnet.
Kristján trúir því að með vilja góðra
manna þá sé hægt að bæta ástandið á
Flateyri. „Öll þessi lög, reglugerðir og
kvótakerfið, þessu er hægt að breyta.
Ég skora á menn að breyta þessu svo
að þorp fái að lifa og dafna,“ segir hann
að lokum.
Kristján Andri Guðjónsson
Skorar á menn að breyta
fiskveiðikerfinu.
mynd KArl Petersson
Bæjarfulltrúi á Ísafirði segir ónýttar heimildir engum til gagns:
„Gufa ekki upp úr sjónum“
Guðmundur Ólason, fyrrverandi
forstjóri Milestone og núverandi
starfsmaður Saga Capital, hefur tek-
ið þátt í viðræðum fyrir hönd ríkis-
ins um fjármögnun lífeyrissjóðanna
á 40 milljarða króna vegafram-
kvæmdum. Saga Capital er ráðgjafi
ríkisins í viðræðunum. Fréttablað-
ið greindi frá því á miðvikudaginn
að viðræðurnar væru í gangi og að
málsaðilar væru þessa dagana að
reyna að ákvarða vexti af láninu.
Með peningunum á meðal annars
að fjármagna byggingu hluta Suð-
urlandsvegar og Vaðlaheiðargöng.
Framkvæmdir eiga að hefjast á
næsta ári.
Heimildir DV herma að Guð-
mundur sé helsti samningamað-
ur ríkisins í viðræðunum sem farið
hafa fram á fundum í fjármálaráðu-
neytinu og á vinnufundum utan
þess. Viðræðurnar hafa staðið yfir
frá því í júlí og munu væntanlega
standa yfir töluvert lengur þar sem
um stórt og flókið verkefni er að
ræða.
Í svari frá Saga Capital er staðfest
að Guðmundur hafi unnið að samn-
ingaviðræðunum fyrir hönd fjár-
festingabankans. Athygli vekur hins
vegar að Guðmundur er ekki lengur
skráður sem starfsmaður bankans á
heimasíðu hans en hans var getið á
síðunni þar til fyrir skömmu.
til rannsóknar hjá ákæruvaldi
Guðmundur hefur verið mikið til
umræðu eftir efnahagshrunið í
tengslum við rannsókn sérstaks
saksóknara á málefnum Sjóvár og
vegna tugmilljarða gjaldþrots eign-
arhaldsfélagsins Milestone. Forstjór-
inn fyrrverandi hefur verið yfirheyrð-
ur af ákæruvaldinu vegna viðskipta
Milestone, meðal annars vegna þess
hvernig gengið var á bótasjóð Sjóvár.
Milestone skyldi Sjóvá eftir á barmi
gjaldþrots og þurfti íslenska ríkið að
bjarga tryggingafélaginu frá þroti í
fyrra með því að leggja félaginu til
meira en 10 milljarða króna. Líklegt
þykir að ríkið muni þurfa að afskrifa
hluta þeirrar upphæðar þegar trygg-
ingafélagið verður selt en Seðlabanki
Íslands heldur utan um stærsta
eignarhlutinn í félaginu. Björgunin á
Sjóvá snérist um að verja hagsmuni
viðskiptavina tryggingafélagsins.
Hugsanlegt er að ástæðan fyrir
því af hverju nafn hans var fjarlægt af
heimasíðu Saga Capital tengist þess-
ari umræðu um aðkomu Guðmund-
ar að starfsemi Milestone og rann-
sókninni á félaginu.
Guðmundur stýrði
bótasjóðnum
Guðmundur var heilinn í Mile-
stone-samstæðunni og vann mjög
náið með Karli Wernerssyni, aðal-
eiganda þess, við stjórnunina á félag-
inu. Steingrímur Wernersson, hinn
eigandi Milestone, gekk svo langt
að segja, í yfirheyrslum hjá sérstök-
um saksóknara í fyrra, að hann teldi
að bótasjóði Sjóvár hafi einfaldlega
verið stýrt frá skrifstofu Guðmund-
ar í höfuðstöðvum Milestone á Suð-
urlandsbrautinni. Guðmundur og
Karl hafi tekið við fjárfestingum Sjó-
vár eftir að sá starfsmaður Sjóvár
sem sá um þær hafi verið látinn fara
frá félaginu. Steingrímur sagði meðal
annars af þessum ástæðum að Guð-
mundur og Karl hafi keyrt Milestone
í þrot ásamt Jóhannesi Sigurðssyni,
aðstoðarforstjóra Milestone.
Guðmundur hefur því farið frá
því að stýra bótasjóði Sjóvár og
fjárfestingum eins stærsta eignar-
haldsfélags útrásarinnar og yfir að
gæta hagsmuna almennings á innan
við tveimur árum.
Hefur unnið náið með Kristjáni
Í þessari samningavinnu á milli ís-
lenska ríkisins og lífeyrissjóðanna
hefur Guðmundur unnið náið með
Kristjáni Möller, fyrrverandi sam-
gönguráðherra og þingmanni
Samfylkingarinnar, en hann stýrir
viðræðunum fyrir hönd ríkisstjórn-
arinnar. Eftir því sem DV kemst næst
reiðir Kristján sig mjög á Guðmund í
ferlinu.
Guðmundur var starfsmaður fjár-
málaráðuneytisins í byrjun þessa
áratugar og var meðal annars starfs-
maður einkavæðingarnefndar fyrir
hönd þess. Á miðvikudaginn greindi
DV frá tölvupóstsamskiptum á milli
skrifstofustjóra í ráðuneytinu, Þór-
halls Arasonar, og Guðmundar árið
2005 þar sem sá fyrrnefndi bað Guð-
mund, sem þá var forstjóri Miles-
tone, um ráðleggingar um einka-
væðingarstefnu, útvistunarstefnu
íslenska ríkisins.
stjóri milestone
semur FYrir rÍKiÐ
Fyrrverandi forstjóri Milestone, Guðmundur Ólason, leiðir samningaviðræður ís-
lenska ríkisins við íslenska lífeyrissjóði vegna fjármögnunar þeirra á 40 milljarða
króna vegaframkvæmdum.
inGi f. vilHjálmsson
fréttastjóri skrifar: ingi@dv.is
... fjöldamargir aðrir hafa kom-
ið að verkinu, þeirra á
meðal Jón Óttar Birgis-
son, framkvæmdastjóri
Fyrirtækjaráðgjafar
bankans ásamt Guð-
mundi Ólasyni.
vinnur fyrir ríkið Guðmundur Ólason er í vinnu hjá íslenska ríkinu við að semja við
lífeyrissjóðina um vexti af lánum vegna 40 milljarða króna vegaframkvæmda. Hann er
starfsmaður fjárfestingabankans Saga Capital í dag.
Kristján möller Leiðir viðræðurnar fyrir
hönd ríkisins.
Þorvaldur lúðvík Forstjóri Saga
Capital.
„Klárt agabrot“
„Það er alveg klárt að þetta er aga-
brot af hálfu Þórhalls. Það liggur fyrir
að enginn gerði sér grein fyrir því að
um Árna væri að ræða og hvað þá að
verkið væri hafið,“ segir Aðalbjörn
Sigurðsson, formaður Félags frétta-
manna, um uppsögn Þórhalls Jóseps-
sonar fréttamanns. Aðalbjörn segir að
innanhúsreglur RÚV kveði á um að
menn megi ekki taka að sér störf sem
á einhvern hátt skarist við starf þeirra
án þess að láta yfirmenn vita. Starfs-
menn megi ekki taka að sér störf sem
stofni trúverðugleika RÚV í hættu.
Björgvin snýr aftur
Björgvin Björgvinsson aðstoðar-
yfirlögregluþjónn mun aftur taka við
starfi yfirmanns kynferðisbrotadeild-
ar lögreglunnar á höfuðborgarsvæð-
inu. Stefán Eiríksson lögreglustjóri
óskaði eftir því við Björgvin að hann
tæki aftur við deildinni og sam-
þykkti hann það. Björgvin steig til
hliðar fyrr á árinu vegna umdeildra
ummæla sem hann lét falla í DV. Í
tilkynningu frá lögreglu kemur fram
að Björgvin njóti, og hafi ætíð notið,
fyllsta trausts yfirstjórnar lögreglu en
hann stýrði rannsókninni á morðinu
á Hannesi Þór Helgasyni sem lauk
með formlegum hætti í vikunni.
Fengu fimm
milljóna vinning
Karl og kona fengu hvort sinn fimm
milljóna króna vinninginn í Happ-
drætti Háskóla Íslands á fimmtudag
en samtals voru dregnir út vinningar
að verðmæti 57 milljónir króna. Kon-
an sem um ræðir er búsett í Noregi
og segir í tilkynningu frá Happdrætti
Háskólans að reynt verði að koma
vinningnum til hennar – þrátt fyrir
gjaldeyrishöft. Þessu til viðbótar fékk
einn eina milljón króna, átta fengu
500 þúsund og 28 fengu 100 þúsund
krónur. Ríflega 2.800 skiptu svo með
sér tæpum 40 milljónum króna.
Bætur fyrir
slys í sorpu
Hæstiréttur hefur staðfest dóm Hér-
aðsdóms Reykjavíkur þess efnis að
kona, sem slasaðist þegar hún hugð-
ist henda rusli í gám Sorpu í Kópa-
vogi árið 2005, fái rúmar tvær millj-
ónir króna í bætur. Konan rak sig
í steinkant á rampi sem hún hafði
ekið upp á með þeim afleiðingum að
hún féll rúman metra til jarðar og
slasaðist töluvert. Er varanleg örorka
konunnar metin 20 prósent eftir
slysið. Ekkert handrið var við gám-
inn sem varnaði konunni frá falli og
þá voru engin viðvörunarskilti uppi.
Sorpa áfrýjaði málinu til Hæstaréttar
í þeirri von að fá bæturnar lækkaðar
en á það féllst Hæstiréttur ekki.