Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.2010, Blaðsíða 48

Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.2010, Blaðsíða 48
48 LífsstíLL umsjón: indíana ása hreinsdóttir indiana@dv.is 12. nóvember 2010 föstudagur flóknara að blekkja en ljúga með hjálp heilaskanna hafa bandarískir vísindamenn komist að því hvað gerist í heila svikahrappa og afburða póker- spilara þegar þeir nota blekkingar til að fá aðra til að trúa því sem þeim hentar. niðurstöðurnar gefa til kynna að blekk- ing, eins og hún er stunduð í póker eða á uppboðum, krefst mun flóknara ferlis en það sem á sér stað þegar við ljúgum. „Rannsókn okkar gefur til kynna að til að ráðskast með trú annarra á þínum næstu athöfnum þarftu meðal annars að skilja hvaða áhrif þínar fyrri athafnir höfðu á aðra,“ segir meghana A. Bhatt sem stýrði rannsókninni sem birtist í Proceedings of the national Academy of sciences. Ný rannsókn talin marka endalok fræðsludiska sem framleiddir eru fyrir smábörn: „Smart baby“ virka ekki Vertu lasin/n - án þess að vera rekin/n margir fá samviskubit þegar þeir verða að tilkynna veikindi. mundu bara að þú gerir vinnufélögunum greiða ef þú heldur þig heima í stað þess að smita alla af óæskilegum bakteríum og skila vinnudeginum með hangandi hendi. Ef þú ert virkilega slappur/slöpp er um að gera að nota veikindadagana. Til þess eru þeir. Ef þú hefur á tilfinningunni að yfirmaður þinn eða vinnufélagar haldi að þú sért að gera þér upp veikindin eru hér nokkur góð ráð: * Ekki hringja þig inn veika/n nema þú þurfir á því að halda. síendurtekin veikindi vekja grunsemdir. * Hringdu í yfirmann þinn eins snemma og þú getur. Ekki senda sms eða tölvupóst. * mundu að biðjast afsökunar á ómakinu í upphafi samtals. * Hafðu samtalið sutt og hnitmiðað – yfirmaðurinn þarf ekki á subbulegum smáatriðum að halda. * Ekki pína upp úr þér hósta eða þykjast þurfa að kasta upp í miðju símtali. Það er engin ástæða til að ýkja hlutina. * mundu að því oftar sem þú ert fjarverandi á mánudögum og föstudögum því meiri grunsemdir vekurðu. Omega-3 hægir ekki á hrörnun samkvæmt rannsókn, sem birtist í journal of the American medical Association, hægja fæðubótarefni sem unnin eru upp úr fiskiolíu ekki á andlegri hrörnun eins og hingað til hefur verið haldið fram. „sjúklingar á byrjunarstigi Alzheimer-sjúkdóms sem fengu omega-3 fitusýrur upplifðu ekki hægari hrörnun en þeir sem fengu lyfleysu,“ segir joseph Quinn, leiðandi rann- sóknarinnar og prófessor við Oregon Health and science-háskólann. Aðrir vísindamenn hafa tekið upp hanskann fyrir fiskifituna og segja að þátttakendur hafi allir verið aldraðir. Omega-3 fitusýrur geri meira gagn ef fólk byrji snemma að neyta þeirra auk þess sem fitan búi yfir fjölda annarra kosta. Ný rannsókn á svokölluðum „smart baby“-DVD diskum, sem foreldrar kaupa í von um að gefa börnum sínum vitsmunalegt for- skot, gefur til kynna að mynd- böndin geri lítið gagn. Börn á aldr- inum 12 til 18 mánaða sem horfðu á diska sem áttu að kenna þeim 25 ný orð daglega lærðu ekki fleiri orð en börn sem horfðu ekki á mynd- bandið. Þetta segir Judy DeLoa- che, yfirmaður sálfræðideildar háskólans í Virginiu í Bandaríkj- unum en DeLoache leiddi rann- sóknina. „Þau börn sem áttu að læra sömu orð af foreldrum sínum lærðu mest,“ segir DeLoache sem vill ekki gefa upp hvaða mynd- bönd voru skoðuð í rannsókninni, sem birtist í tímartinu Psychologi- cal Science. DeLoache segir fyrri rann- sóknir gefa svipaða niðurstöðu til kynna og aðrir vísindamenn taka í sama streng. „Þetta var vel gerð rannsókn sem mun líklega marka endalok hugmynda um fræðslu- gildi þessara myndbanda,“ seg- ir barnalæknirinn Frederick J. Zimmerman sem rannsakaði áhrif myndbandanna og sjónvarpsgláps á börn árið 2007. Hans niðurstöð- ur gáfu til kynna að myndböndin, ekki sjónvarpsglápið, virtust hægja á málþroska barnanna. DeLoache vill ekki að foreldr- ar barna sem hafi trú á diskunum hendi þeim í ruslið. „Börnin hafa eflaust gaman af þessu en ekki bú- ast við að þau læri mikið. Mikil- vægast er að börn hafi sem mest samskipti við foreldra sína.“ Vitsmunalegt forskot samkvæmt rannsókninni læra börn mest ef foreldr- ar þeirra tala við þau. Flestir sérfræðingar telja börn hafa gott að því að hjálpa til heima við. Uppeldisfræðingurinn Jim Fay telur það jafnvel nauðsynlegt því hann segir að við þurfum öll á því að halda að finnast við gera gagn. „Ef barnið þitt þarf aldrei að lyfta litla fingri fer það á mis við þessa þörf,“ segir Fay sem heldur úti vef- síðunni www.loveandlogic.com. Rithöfundurinn og barnalæknir- inn Janice Cohn segir rannsóknir sanna að börn sem læra að hjálpa öðrum hafa betri sjálfsmynd, gangi betur í skóla og séu ólíklegri til að þjást af þunglyndi og kvíða. Barna- læknirinn og bókahöfundurinn Roger W. McIntire tekur í sama streng en McIntire hefur búið til lista yfir verkefni sem henta hverj- um aldri. Verkefni fyrir börn 2–3 ára Ganga frá leikföngum. Fylla á matarbakka gæludýra. Setja fötin í þvottakörfu. Þurrka upp það sem sullast niður. Þurrka af. Raða upp bókum og tímaritum. Verkefni fyrir börn 4–5 ára Allt að ofan plús: Búa um eigið rúm. Koma með póstinn. Þurrka af eldhúsborðinu. Nota handryksugu. Vökva blóm. Taka úr uppþvottavélinni. Þvo upp plastdiska í vaski. Hella morgunkorni í diska. Verkefni fyrir börn 6–7 ára Allt að ofan plús: Flokka þvott. Sópa gólf. Leggja á borðið. Taka af borðinu. Raka gras og lauf. Hella í eigið glas. Svara síma. Verkefni fyrir börn 8–9 ára Allt að framan plús: Setja í uppþvottavélina. Ganga frá matvörum. Ryksuga. Hjálpa til við matseld. Þurrka af eldhúsborðinu eftir mat- inn. Ganga frá eigin þvotti. Sauma tölur í föt. Búa til eigin morgunmat. Flysja grænmeti. Elda einfaldan mat, líkt og ristað brauð. Blautmoppa gólfið. Fara í göngutúr með hundinn. 10 ára börn og eldri Allt að framan plús: Brjóta saman þvottinn. Þrífa baðherbergi. Þrífa glugga. Þrífa bíl. Elda einfaldan mat undir eftirliti. Strauja föt. Þvo þvott. Líta eftir yngri systkinum. Slá garðinn. Þrífa eldhús. Skipta um á rúmum. Baka. Leyfðu barninu að taka þátt samkvæmt sérfræðingum er hollt fyrir börn að bera smávægilega ábyrgð inni á heim- ilinu. Leyfðu barninu að finnast það gera gagn. Ef barnið þitt þarf aldrei að lyfta litla fingri fer það á mis við þessa þörf.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.