Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.2010, Qupperneq 26

Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.2010, Qupperneq 26
Stjórnarskráin er undarlegt plagg. Ef það væri farið eftir henni myndi Ólafur Ragnar Grímsson vera langvalda- mesti maður landsins. Samkvæmt stjórnarskránni getur hann gert samninga við önnur ríki. Hann getur tekið upp hjá sér að fresta Al- þingi, kvatt það saman, rofið þing og stofnað til kosninga. Hann er aðalmaðurinn í stjórnarskránni. F orsetinn getur flutt emb-ættismenn úr einu emb-ætti í annað, samkvæmt stjórnarskránni. Hann get- ur látið leggja lagafrumvörp fyrir Alþingi. Engin lög mega verða án þess að forsetinn samþykki þau. Ef hann er á móti þeim getur hann leyft almenningi að ráða. Hörð- ustu sjálfstæðismenn og örgustu vinstrimenn hafa sameinast í and- stöðu sinni gegn því að forsetinn leyfi almenningi að ákveða. Þeir sameinast af valdinu. Samt segir stjórnarskráin að þetta megi. R áðherrar eru leiksopp-ar forsetans, samkvæmt stjórnarskránni. „Forset-inn lætur ráðherra fram- kvæma vald sitt,“ segir þar. Valdið er hans. Engum datt í hug á sínum tíma að Vigdís Finnbogadóttir hefði vald. Nema kannski valdið til að planta trjám. Það hefur ein- hvern veginn verið ákveðið að for- setinn sé brúða. Í stjórnarskránni er forsætis-ráðherrann brúðan. Það er tvisvar minnst á forsætis-ráðherra í stjórnarskránni. Annars vegar er sagt frá því að hann geti fyllt upp í skarðið fyrir aðalmanninn, forsetann. Í annan stað segir frá því hvernig forseti skapar forsætisráðherra: „Fundum stjórnar sá ráðherra, er forseti lýð- veldisins hefur kvatt til forsætis, og nefnist hann forsætisráðherra.“ Forsætisráðherrann er bara fund- arstjóri. Í stjórnarskránni er forsetinn Guð. Forsætisráðherrann er í mesta lagi Móses. Hvernig gat það gerst að Móses fór að rífa stöðugt kjaft við Guð þegar hann vildi grípa inn í? Einhvern veginn er það þannig að sá sem stjórn-arskráin segir að stjórni öllu, stjórnar ekki neinu. Enda er það kannski eðlilegt. Í stjórnarskránni segir að forsetinn sé „ábyrgðarlaus“ gagnvart öllum stjórnarathöfnum. Það gengur ekki. En ráðherrar bera ábyrgð, sam- kvæmt stjórnarskránni, og verða dregnir fyrir landsdóm ef þeir bregð- ast henni. Kannski hélt Geir Haarde að hann væri forseti? AÐALMAÐURINN „Ég fór náttúru-lega á algjört nammifyllerí þegar þetta var staðfest.“ n Vilhjálmur Þór Davíðsson, herra hinsegin, datt í það þegar hann frétti að Mr. Gay World hefði verið slegin af. – Fréttablaðið „Ég ætlaði að hafa Rúnar en svo hef ég ekki gert það. Ég skrifa þetta á fyrstu einkenni Alzheimer.“ n Dr. Gunni gleymdi að gera rokkkónginn Rúnar Júlíusson að einu spilapeðanna í nýja Popppunkts spilinu en það var draumur Rúnars. – Fréttablaðið „Það eru bara allir að tjalda hérna.“ n Tómas Ingi Tómason sló á létta strengi aðspurður um hvort liðin á Evrópumóti U21 árs landsliða ætluðu ekki að tjalda öllu sem til væri. – DV „Nú fer ég ekki í jólaköttinn.“ n Auðugur velgjörðamaður gaf stjörnuútigangsmanninum Lalla Johns glæsilegan, rauðan leðurjakka. – DV „Peningar koma og fara, en sjálfsvíg er óafturkræft.“ n Fjölmiðlamaðurinn Sölvi Tryggvason vill að Íslendingar taki aftur upp umræðu um sjálfsvíg til að sporna við þeim. – Pressan Skýjaglópar á Reykjanesi Einhver nöturlegustu örlög sveitar-félags er að finna í Reykjanesbæ. Þar sem áður draup smjör af hverju strái blasir við eymdin. Helsti for- ystumaður bæjarfélagsins um árabil er Árni Sigfússon. Hann ber stærsta ábyrgð á því að hafa steypt sveitarfélagi sínu fram af hengiflugi skulda og óráðsíu. Árni er dæmi- gerður tækifærissinni af sama toga og þeir sem komu Íslandi á kaldan klaka. Hann var einn helsti hugmyndafræðingur þess að steypa eignum sveitarfélagsins inn í sjálf- stætt félag, Fasteign. Trixið var að leigja til baka það sem áður var eign bæjarins. Nú er Fasteign í kaldakoli fjárhagslega og að liðast í sundur. Þá skellur enn einn risareikning- urinn á bænum sem var þegar kominn að fótum fram. Árni hafði líka forgöngu um að selja af- not að auðlindum bæjarins. Stöndugt fyrir- tæki, Hitaveita Suðurnesja, varð hluti af því fjárhættuspili bæjarins sem nú hefur komið Suðurnesjamönnum á kaldan klaka. Í stað þess að hlúa að þessari heilögu eign var hún seld. Sú sala hefur orðið til þess að logandi deilur eru í samfélaginu um eignarhald á orkuauðlindum. Fyrir Árna og félögum hans vakti þó varla annað en að grynnka á botnlausum skuldum bæjarins. Það hlá- lega er að bærinn getur ekki greitt þá skatta til ríkisins sem honum ber vegna sölunn- ar. Almenningur á Íslandi þarf að una því að 900 milljóna króna reikningur sé settur í bið. Óreiða Árna og félaga hans nær þar hámarki. Þeir hafa selt allt nema kannski ömmur sínar. Og það er fleira í Reykjanesbæ komið að fótum fram. Eins og DV greindi frá er Reykja- neshöfn komin í þrot. Höfnin stendur ekki undir skuldum sínum og er með vanskil upp á hálfan milljarð króna. Allt er þetta á ábyrgð þeirra sem stjórnað hafa eins og skýjaglópar undanfarin ár. Fólkið í Reykjanesbæ verð- ur að kalla eftir pólitískri ábyrgð þeirra sem komu bæjarfélaginu í þrot. Dans óreiðu- manna í kringum gullkálfinn hefur kost- að hina fullkomnu niðurlægingu. Allt hefur verið selt og örbirgðin ein blasir við. REYNIR TRAUSTASON RITSTJÓRI SKRIFAR: Þeir hafa selt allt nema kannski ömmur sínar. LEIÐARI SVARTHÖFÐI 26 UMRÆÐA 12. nóvember 2010 FÖSTUDAGUR DAVÍÐ ÁHUGALAUS n Mikill áhugi er á meðal fjölmiðla um að fá þau gögn sem til eru í ut- anríkisráðuneytinu um stuðning Íslendinga við innrásina í Írak. Þar er að sjálf- sögðu leitað skýr- inga á því hvernig það kom til að stjórnarherrarnir Davíð Oddsson, núverandi rit- stjóri Moggans, og Halldór Ásgrímsson sammælt- ust um að draga Ísland inn í stríðið. Athygli vakti að allir prentmiðlar, að einum undanskildum, óskuðu eftir umræddum gögnum frá ráðuneyt- inu. Mogginn sat hjá og lét sér fátt um finnast. STUTT Í VIÐTÖL n Þorbjörn Þórðarson, fréttamað- ur Stöðvar 2, er vinsælt innblaðsefni í Fréttablaðinu þar sem samstarfs- menn hans innan 365 miðla reyna gjarnan að fá hann í viðtöl með ágæt- um árangri. Á dögunum var viðtal við hann og myndir þar sem hann sýndi gullin sín. Í fyrradag var síð- an aftur viðtal í sama blaði um það hversu nauðsynlegt væri að vera vel klæddur. Sýndi Þorbjörn fötin sín og vitnaði til þess að ekki væri mark tek- ið á nöktu fólki. FAÐIR TIL HJÁLPAR n Ingvar J. Karlsson, athafnamaður og fjárfestir, er nú í Bandaríkjunum til að hjálpa dóttur sinni, Helgu Ingv- arsdóttur, sem ásamt sambýlis- manni sínum hefur verið sökuð um gríðarleg fjár- svik þar sem æv- intýralegur spuni kemur við sögu. Ingvar var einn af stærri jarða- eigendum á Íslandi. Hann var við- skiptafélagi Guðmundar Birgissonar á Núpum. Þeir ráku sama Lífsval sem beinlínis sópaði að sér jörðum um allt land. Nú er hermt að vinslit hafi orðið milli félaganna. NÁHIRÐIN KJAFTSTOPP n Söngvarinn og pistlahöfundur- inn Bubbi Morthens er búinn að slá vopnin úr höndum höfuðfjenda sinna í náhirð Sjálfstæðisflokksins. Bubbi hefur í pistlum sínum ekki dregið dul á vináttu sína og Jóhann- esar Jónssonar í Bónus. Þetta hefur orðið til þess að hann hefur sætt árásum frá amx.is sem talið er að Hannes Hólmsteinn Gissurarson prófarkalesi. Í síðustu pistlum sínum hefur Bubbi fjallað um hamingjuna og þau lífsgæði sem hann nýtur. Ná- hirðin er kjaft- stopp. SANDKORN TRYGGVAGÖTU 11, 101 REYKJAVÍK ÚTGÁFUFÉLAG: DV ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Lilja Skaftadóttir RITSTJÓRAR: Jón Trausti Reynisson, jontrausti@dv.is og Reynir Traustason, rt@dv.is FRÉTTASTJÓRI: Ingi Freyr Vilhjálmsson, ingi@dv.is UMSJÓN HELGARBLAÐS: Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir, ingibjorg@dv.is UMSJÓN INNBLAÐS: Ásgeir Jónsson, asgeir@dv.is DV Á NETINU: DV.IS AÐALNÚMER: 512 7000, RITSTJÓRN: 512 7010, ÁSKRIFTARSÍMI: 512 7080, AUGLÝSINGAR: 512 7050. SMÁAUGLÝSINGAR: 515 5550. Umbrot: DV. Prentvinnsla: Landsprent. Dreifing: Árvakur. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Þegar fárveikt fólk er sent heim af sjúkrahúsum og á meðan alvarlega veikir einstaklingar þurfa að bíða vik- um saman eftir aðgerð, þá er íslenska ríkið að halda á floti svokallaðri utan- ríkisþjónustu. Menn eru að dunda í tengslaneti sem er alveg einstaklega ómerkilegt en á því láni að fagna að vera uppblásið og sagt færa ríkinu helling af klinki. Hið sanna er þó, að utanríkisþjónustan er hin mesta plága – spilling, bruðl, bitlingar og titlatog – haldið gangandi af þjóðhöfðingja- sleikjum sem njóta óheftrar sjálftöku í sjóði almennings. Auðvitað má líta á þá þjónustu sem ágætt landhreins- unarátak annað veifið. En peningum okkar má verja öllu betur. Það er rík- isvaldi ekki til sóma að ráðast að vel- ferðarkerfinu á meðan við getum leyft okkur þann munað að vera með af- ætur á himinhá- um launum við að gera minna en ekki neitt. Ut- anríkisþjónust- an er dæmi um samtryggingu og bruðl – sóun á eigum almenn- ings, á tímum þegar okkur er sagt að best sé að spara. Og auðvit- að má fækka dillibossabubbum í stað þess að loka sjúkrahúsum. Því jafnvel þótt uppbygging byrji á niðurbroti, þá eru vissar grunnstoð samfélagsins þess eðlis að við þeim má ekki hrófla. Til eru undirstöður sem verða ávallt að vera til staðar, meðan ýmiskonar munaður má algjörlega missa sín. Stofnanir hins opinbera og stjórn- sýslan öll er þess eðlis að þar má ald- eilis fara á loft með niðurskurðarhníf- inn. Krafa fólks um réttlæti mun ekki ná fram að ganga á meðan stjórnsýsl- an og fyrirtæki í eigu ríkisins eru rekin þannig, að sjálfsagt þykir að gera ein- um hátt undir höfði á kostnað allra hinna. Fjöldinn borgar brúsann þeg- ar Halldór Ásgrímsson og fjölskylda fá fyrirgreiðslu hjá Landsbankanum. Við borgum fyrir gullklósettin í sendi- ráðunum og við borgum laun þeirra sem ekki einu sinni er treystandi til að sleikja frímerki eða naga blýanta. Og þegar obbinn af þeim sem eiga að vera í hinni svokölluðu utanríkisþjónustu er fólk sem hefur fengið starfsheiti sem bitling og er svo á launum við að flækjast ekki fyrir, þá er spurning hvort ekki megi leggja niður nokkur sendi- ráð, fækka sendiherrum sem eru án sendiráða og fara með niðurskurð- arkutann, vandlega brýndan, um all- an þann akur sem Davíð Oddsson og vinir hans ræktuðu. Góð heimasíða eða opinn spjallvefur á fésbók getur örugglega gert þjóðinni meira gagn (fyrir minni pening) en ofdekraðar af- ætur sem einungis vinna óhæfuverk. Þjóð mín út úr kreppu kemst kannski núna bráðum ef hún bara fyrst og fremst fækkar sendiráðum. Íslenskur aðall SKÁLDIÐ skrifar KRISTJÁN HREINSSON skáld skrifar Og auðvitað má fækka dillibossa- bubbum í stað þess að loka sjúkrahúsum. BÓKSTAFLEGA
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.