Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.2010, Page 27

Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.2010, Page 27
Í eftirhrunsum- ræðunni er því stundum hald- ið fram að sam- félagssáttmálinn, svokallaði, hafi rofnað. Að það hafi ekki aðeins verið fjármála- kerfið sem hrundi, ekki einvörðungu efnahagskerfið, heldur gjörvöll samfélagsskipan- in. Eða svo gott sem. Siðrof hafi orðið. En hver er eiginlega þessi samfélags- sáttmáli sem á að hafa rofnað? Allt þar til upplýsingarstefnan fór að ryðja burt gömlum hugmyndum um uppruna valdsins á átjándu öld- inni héldu helstu stjórnspekingar á borð við Jean Bodin á sextándu öld og Thomas Hobbes á þeirri sautjándu því fram að valdhafinn, sem gat verið einn einstaklingur eða vel skilgreindur hóp- ur manna, ætti að hafa fulla og algilda stjórn ríkisins. Alráður fursti heyri að- eins undir lögmál Guðs og náttúrunn- ar og svari einvörðungu til saka gagn- vart Guði einum. Valdhafinn fer því ekki aðeins með löggjafarvaldið heldur einnig alla aðra þætti ríkisvaldsins, svo sem rétt- inn til að dæma sekt eða sýknu, lýsa yfir stríði, gefa út gjaldmiðil og ráða embættismenn. Þetta voru tímar mik- illa átaka og í skrifum sínum leituðust Bodin og Hobbes við að tryggja reglu og réttlæta alrátt vald innanlands frek- ar en að vernda réttindi þegnanna gagnvart valdhöfum sínum. Náttúruríkið Kenningunni um samfélagssáttmála var teflt fram gegn þeirri hugmynd að konungar hefðu náttúrulegan, guðleg- an rétt til að stjórna. Í leit að svari við þeirri spurningu hvort til sé réttlæting fyrir stjórnmálalegu samfélagi geng- ur heimspekingurinn Jean-Jacques Rousseau, í bók sinni Samfélagssátt- málinn (1762), út frá því að maður- inn fæðist frjáls en sé síðan alls stað- ar í fjötrum. Náttúrulegt ástand sé í eðli sínu án yfirvalds, öðru en því sem lýtur að fjölskyldunni. Menn hafi síð- an tekið höndum saman með frjálsu samkomulagi í viðleitni til að bæta lífs- skilyrði sín. Rousseau komst að þeirri niðurstöðu að valdið væri sprottið frá einstaklingunum sjálfum, sem hefðu gert með sér sáttmála, en ætti ekki upptök hjá Guði. Einstaklingarnir fari því sjálfir með valdið í samfélaginu. Samkvæmt Rousseau grundvallast valdið á því að borgararnir fái aðkomu að og hlutdeild í þeim ákvörðunum sem þeir sjálfir þurfa að lúta. John Locke hélt því sömuleið- is fram að áður en samfélög urðu til hefðu menn lifað í ríki náttúrunnar þar sem þeir voru fullkomlega frjálsir. Öfugt við Hobbes taldi Locke að nátt- úruríkið væri tiltölulega friðsælt þótt grunnur þess væri ekki traustur. Locke sagði að einmitt vegna þessa öryggis- leysis hefðu menn af fúsum og frjáls- um vilja kosið að gera með sér sátt- mála um ríkisvald, þar sem meðal annars átti að tryggja réttindi einstakl- inga og eignir manna. Í huga Lockes var samfélagssáttmálanum því ekki síst ætlað að vernda eignarréttinn. Litlar heimildir eru þó til um þetta meinta samkomulag sem ýmist á að hafa orðið á milli þegnanna sjálfra eða á milli þegnanna og valdhafanna. Til að mynda hafnaði David Hume (1742) kenningunni á þeim grunni að hvað svo sem liði einhverju óljósu sam- komulagi fyrri tíðar væru flest allar rík- isstjórnir grundvallaðar á hervaldi eða annars konar valdbeitingu. Lýðræðishugmyndin Með tilkomu þjóðríkjastefnunnar í Evrópu, eftir að krafan um lýðræði kom fram í kjölfar upplýsingarinn- ar og frönsku byltingarinnar, færðist hugmyndin um uppruna fullveldis- ins frá einvöldum konungi eða fursta til þjóðarinnar. Þá breiddist sá skiln- ingur út að það væri þjóðin, það er að segja fólkið, þegnarnir, almenningur, sem framseldi valdið til fulltrúa sinna í lýðræðislegum kosningum. Einmitt í viðleitni til að tryggja valddreifingu setti franski stjórnspekingurinn Mont- esquieu fram kenningu sína um þrí- skiptingu ríkisvalds sem fram kom í grundvallarriti hans Anda laganna árið 1748. Með því er reynt að tryggja dreifingu og aðgreiningu ríkisvalds innan ramma fullveldisins. Nýr samfélagssáttmáli? Hér í lokin má til gamans geta þess að í vissu tilliti má rekja íslenska samfé- lagssáttmálann til stofnunar ríkisins á Þingvöllum árið 930. Í gamla þjóðveld- inu fóru goðar með afmarkað vald og þingið var líkara dómstól en nútíma- löggjafarsamkomu. Í ákveðnum skiln- ingi má halda því fram að frá landnámi og þar til þjóðveldið var stofnað árið 930 hafi menn búið í ríki náttúrunnar á Íslandi. Í þessu samhengi má einnig halda því fram að samfélagssáttmálinn hafi svo rofnað með Gamla sáttmála árið 1262 þegar Íslendingar gengu Noregs- konungi á hönd en að hann hafi end- urnýjast með lýðveldistökunni á Þing- völlum árið 1944. Og sumir halda því nú fram að samfélagssáttmáli okkar hafi svo enn á ný rofnað haustið 2008 með tilheyrandi upplausn. Spurning- in nú er því sú hvort þjóðfundurinn og stjórnlagaþingið eigi svar við því. JÓN MÁR HÉÐINSSON er skólameist- ari Menntaskólans á Akureyri sem fagnaði í vikunni tveimur afmælum. Áttatíu ár eru síðan skólinn varð menntaskóli með full réttindi til að brautskrá stúdenta en einnig eru 130 ár eru liðin síðan norðlenskur skóli var endurreistur á Möðruvöllum í Hörgárdal. ALA UPP BÖRNIN OG FRÆÐA MYNDIN Hver er maðurinn? „Jón Már Héðinsson.“ Hvar ertu uppalinn? „Vestur á Patreksfirði.“ Hvað drífur þig áfram? „Áhugi á því sem ég fæst við í hvert skipti.“ Hvar vildirðu helst búa ef ekki á Íslandi? „Það eru örugglega margir staðir sem koma til greina. Ég bjó eitt ár í Chicago og gæti vel hugsað mér að búa þar aftur.“ Með hverjum heldurðu í enska? „Það er svolítið síðan ég hætti að horfa á enska fótboltann. Ég held bara með því liði sem nennir að leggja sig fram hverju sinni.“ Hvaða bók lastu síðast? „Ég las bókina um hann Þórberg eftir Pétur Gunnarsson.“ Hvernig er stemningin í skólanum á þessu merka afmæli? „Hún er góð, enda er þetta fjörlegur og skemmtilegur vinnustaður. Hér er mikil fjölskyldustemn- ing enda býr skólinn að því að hér var og er heimavist. Þess vegna hefur skólinn alltaf lagt meiri áherslu á uppeldi en víða annars staðar. Það er löng hefð fyrir því að foreldrar ætlast til af okkur að við ölum upp börnin auk þess að fræða þau og mennta.“ Á að halda upp á afmælið? „Já, það var hátíð í morgun [fimmtudegi] þar sem nemendur sáu um skemmtiatriði. Svo fengum við okkur súkkulaðiköku með rjóma og kakó að íslenskum lið.“ Er mikil aðsókn í skólann, hefur hún aukist eða minnkað síðustu ár? „Það er svo mikil aðsókn að skólanum að við erum stundum í vandræðum með að koma öllum nemendum fyrir.“ Hvað er það besta við MA að þínu mati? „Nemendum virðist alla vega finnast samheldnin vera skemmtilegur þáttur í skólalífinu. Svo er það þetta klassíska uppeldis- og menntunarstarf sem mér finnst við hafa blandað hæfilega saman.“ Hvað má bæta í skólanum á næstu árum? „Við erum sífellt að fást við það að gera okkar besta í að auka áhuga okkar og nemenda. Við reynum að gera það allt með bros á vör.“ MAÐUR DAGSINS „20. nóvember.“ HEIMIR ORRI MAGNÚSSON 25 ÁRA STARFSMAÐUR VÍNBÚÐARINNAR „Sem fyrst, helst allt árið.“ UNNUR M. SVEINBJARGAR-LEIFSDÓTTIR 31 ÁRS DEILDARSTJÓRI Á LISTASAFNI REYKJAVÍKUR „Byrja 1. desember.“ BRYNDÍS TELMA JÓNASDÓTTIR 16 ÁRA NEMI Í MR „Fyrstu vikuna í desember.“ SVEINBJÖRG ANDREA AUÐUNSDÓTTIR 16 ÁRA NEMI Í MR „Strax.“ MAGNI JÓHANNSSON 54 ÁRA SKIPSTJÓRI HVENÆR EIGA ÚTVARPSSTÖÐVAR AÐ BYRJA AÐ SPILA JÓLALÖG? DÓMSTÓLL GÖTUNNAR FÖSTUDAGUR 12. nóvember 2010 UMRÆÐA 27 Siðrof og samfélagssáttmáli Í huga Lockes var samfélagssátt- málanum því ekki síst ætlað að vernda eignar- réttinn. KJALLARI DR. EIRÍKUR BERGMANN stjórnmálafræðingur skrifar Hornsteinn lagður... Hornsteinn var lagður að nýju húsnæði Háskólans í Reykjavík í gærkvöldi, að viðstöddu fjölmenni. Hornsteinninn sjálfur er 5,2 kílóa hnullungur úr loftsteini sem féll til jarðar í Suður-Ameríku. MYND SIGTRYGGUR ARI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.