Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.2010, Qupperneq 28
28 umræða 12. nóvember 2010 föstudagur
Eitt það mik-
ilsverðasta og
jákvæðasta
sem gerst hef-
ur í íslensku
samfélagi er
að almenn-
ingur hefur
fengið rödd.
Þess sjást víða
merki. Það var
venjulegt fólk
sem skipu-
lagði mótmæli
og opna fundi eftir hrunið í októ-
ber 2008, og enn er það venju-
legt fólk sem stendur fyrir mót-
mælauppákomum af ýmsu tagi.
Fólk rífur kjaft við valdhafa, held-
ur úti bloggsíðum og vefsíðum af
öllu tagi, hefur skoðanir á hverju
sem er, rekur sína eigin litlu fjöl-
miðla á Facebook og álíka síðum,
gerir athugasemdir við hvaðeina
sem gerist, lætur ekki lengur mata
sig. Stundum getur þessi rödd al-
mennings vissulega orðið nokkuð
yfirþyrmandi. Orðbragð og ofsi,
bölsýni og dónaskapur í nafnlaus-
um athugasemdum getur keyrt
fram úr öllu hófi. Og stundum fær
sundurlyndispúkinn á fjósbitan-
um að fitna alltof mikið. En ég kýs
þó miklu frekar að þola svolítið af
slíku frekar en að hverfa aftur til
fyrra ástands. Þá fékk ekki hver
sem er að hafa skoðanir opin-
berlega á Íslandi. Í raun voru það
valdablokkir, og þá fyrst og fremst
stjórnmálaflokkarnir, sem út-
deildu skoðunum á umdeildum
samfélagsmálum.
Meðal þeirra virðingarverðustu
bloggskrifara og pistlahöfunda
sem sprottið hafa upp síðustu
misseri er Lára Hanna Einarsdótt-
ir, en hún er jafnframt ein þeirra
sem taka hlutverk sitt hvað alvar-
legast. Hún skrifar af djúpri alvöru
og íhygli og fer ekki með neitt bull
og rugl. Allir sem á hana hlýða eða
lesa skrif hennar hljóta að átta sig
á að hvort sem þeir eru sammála
henni eða ekki, þá er þetta alvöru
rödd sem hefur eitthvað að segja
og virkilega er vert að hlusta á.
Eftir hrunið hefur hún gagnrýnt
bæði stjórnvöld, núverandi sem
fyrrverandi, og útrásarvíkinga og
bankamenn af mikilli festu. Ljóst
er þó að mest er henni niðri fyrir í
umhverfis málum en hún er ákaf-
ur andstæðingur hinnar hugsun-
arlausu virkjana- og álversstefnu
sem hér hefur lengst af verið við
lýði.
LÁRA HANNA REKIN SEM
PISTLAHÖFUNDUR
Nú um töluvert skeið hefur Lára
Hanna flutt pistla sína í Ríkisút-
varpið, einu sinni í viku á morgn-
ana. Fyrir viku var hún hins veg-
ar rekin þaðan á þeim forsendum
að hún skrifaði einnig pistla á vef-
ritið Smuguna, sem haldið væri
úti af Vinstri-grænum, og því gæti
hugsanlega verið að einhverjir
hlustenda RÚV
sem heyrðu í
henni tengdu hana við VG – þótt
hún sé raunar ekki flokksbundin
í Vinstri-grænum. Og þó alls kon-
ar fólk sem er flokksbundið í öðr-
um flokkum hafi skrifað pistla á
Smug una, sem og óflokksbundnir.
ÓAFTURKRÆF UPPSÖGN
Lára Hanna mun hafa spurt for-
ráðamenn morgunútvarpsins
hvort hún gæti ekki haldið áfram
á RÚV ef hún hætti að birta pistla
á Smugunni, en var tjáð að það
gengi ekki upp. Uppsögnin væri
óafturkræf. Glæpur hennar – að
skrifa á vef tengdan VG – hafði
greinilega verið fullframinn!
Mér og mörgum öðrum mun
þykja eftirsjá að pistlum Láru
Hönnu í Ríkisútvarpinu. Hún tal-
aði fyrir róttæk umhverfisvernd-
arsjónarmið sem við höfum gott
af að heyra, líka þeir sem eru ekki
endilega sammála hverju orði.
Það er einfaldlega þungamiðja í
lýðræðislegri umræðu, sem við
erum nú að reyna að læra, að
heyra sjónarmið úr öllum áttum.
Auðvitað ber Ríkisútvarpinu samt
engin skylda til að hafa pistla Láru
Hönnu Einarsdóttur á dagskrá
sinni. Ef pistlar hennar væru óvin-
sældir eða leiðinlegir eða dóna-
legir eða ruddafengnir eða eitt-
hvað, þá væri ekkert við því að
segja að RÚV segði henni upp. En
að segja henni upp á grundvelli
þessara meintu tengsla við vefrit á
snærum VG þykir mér ótækt með
öllu.
EF TIL VILL HUGSANLEGA
KANNSKI …
Í fyrsta lagi er skýringin, um að sá
sem ef til vill hugsanlega kannski
einhvern veginn verður einhvern
veginn tengdur við VG af hugs-
anlega einhverjum, bara fáránleg.
RÚV hefur í þjónustu sinni fjölda
fólks – þar á meðal fréttamenn
– sem allir vita hvar eru í pólitík,
og eru jafnvel flokksbundnir. Og
í fréttatímum er dyggum flokks-
hundum athugasemdalaust leyft
að útbreiða skoðanir sínar, án þess
að á nokkurn hátt sé varpað ljósi á
augljós pólitísk tengsl þeirra. Sem
er líka oftast bara allt í lagi, en af
hverju gildir eitthvað allt annað
um Láru Hönnu en aðra?
Og í öðru lagi, þá er hugsun-
arhátturinn á bak við þá skýr-
ingu sem Láru Hönnu var gefin
fyrir uppsögninni hluti af hugs-
unarhætti sem ég var nú að vona
að væri að verða úreltur á Íslandi.
Hvaða voðalega virðing er það fyr-
ir flokkapólitík sem felst í að Lára
Hanna má fyrst þenja sig eins og
henni
sýnist gegn stjórnvöldum, útrás-
arvíkingum og umhverfis sóðum,
meðan hún var talin óflokksbund-
in, en verður svo óalandi og óferj-
andi þegar búið er (fullkomlega
ranglega að vísu) að koma á hana
flokksstimpli?
FLOKKSPÓLITÍSK
TYLLIÁSTÆÐA
Það skiptir sem sagt ekki öllu máli
hvort fólk hefur eitthvað að segja,
hvort það er réttsýnt, vel máli far-
ið og skörulegt – heldur skipta
flokkstengsl (raunveruleg eða
ímynduð) öllu máli.
Ég mælist til þess að RÚV end-
urskoði þessa ákvörðun hið bráð-
asta. Sumar raddir þurfa að heyr-
ast, og ég held að hennar rödd sé
ein þeirra. Og að þagga niður í
vinsælum pistlahöfundi af flokks-
pólitískri tylliástæðu – það hélt ég
að væri liðin tíð. Ég hélt satt að
segja að RÚV hefði lært sína lexíu
frá því ég var sjálfur rekinn á sín-
um tíma!
En fréttastofa RÚV, sem hefur af
morgunútvarpinu að segja, virðist
reyndar óvenju mistæk þessa dag-
ana. Ég skil ekki uppsögn Þórhalls
Jósepssonar fyrir þá „sök“ að hafa
skrifað ævisögu Árna Mathiesen.
Úr því hann hafði sannanlega sagt
við fréttastjóra sinn að hann ætl-
aði að vinna bók með fyrrverandi
ráðherra, án þess að fréttastjóri
gerði athugasemd eða spyrði
meira út í það, þá er óskiljanlegt
að Þórhallur sé síðan rekinn þegar
kemur í ljós að ráðherrann er Árni
Mathiesen.
„AFTURKALLAÐA FRÉTTIN“
Og þá er ónefnd sú gloría þeg-
ar frétt var fyrir nokkrum vikum
„afturkölluð“ af því að í ljós kom
að viðmælandi í tiltekinni frétt
hafði einhvern tíma starfað innan
VG. Hann virðist hafa leynt þeim
tengslum, og má svo sem skilja
að fréttastofu RÚV hafi gram-
ist það, en það breytir því samt
ekki að fréttin var góð og gild – og
það sem maðurinn hafði að segja
mátti vel komast á framfæri. Hvað
það þýðir að „afturkalla fréttina“
veit ég ekki – og allra síst í ljósi
þess sem ég sagði áðan, að í frétt-
um RÚV er sýknt og heilagt á ferð-
inni fólk sem státar af alls konar
flokkstengslum, án þess að veður
sé út af því gert.
Það er erfitt verk og viðkvæmt
að segja fréttir um þessar mundir,
og standa fyrir samfélagsumræðu.
En það læðist að manni sá grun-
ur að fréttastofu RÚV gangi frek-
ar illa þessar vikurnar að höndla
þann þrýsting.
K jánahrollurinn mælist á jarð-skjálftamælum og upptökin eru
vestast í Vesturbænum þar
sem þokkalega frjálslynd
kona skrollar niður blogg á
tölvuskjá. Bloggið fjallar um
hefðbundin kynjahlutverk
og blogghöfundur skreytir
bloggið með mynd af sér þar
sem hún liggur þver og endi-
löng og horfir tælandi aug-
um til móts við lesendur.
Á meðan kjánahroll-urinn skekur konuna í Vest-urbænum, skýtur þekkt dagskrárgerðarkona í Nor-
egi tölvuskjáinn með riffli eftir að
hafa lesið nefnda bloggfærslu. Mað-
ur í Jemen hlær hlátri óðs manns
og fruss ar yfir fartölvu sína svo að
innviðir tölvunnar bráðna saman í
eina klessu. Á sama tíma ælir kona í
Reykjavík yfir lyklaborðið og önnur
einfaldlega lokar fartölvunni og fær
sig ekki til að opna hana aftur. Karl-
maður veit ekki sitt rjúkandi ráð og
gefur því skjánum gula spjaldið með-
an annar segist vilja loka sig inni þar
til bloggfærslan færist aftur í tímann
og gleymist í svartholi netheima.
O g nei, þetta er ekki lýsing á mynd eftir M. Night Shy-amalan um dularfulla, sammannlega og sækót-
ryllandi atburði sem hreyfa við undir-
meðvitundinni. Ofsafengin viðbrögð-
in, sem líkja má við lífshættulegt
ofnæmi og náttúruhamfarir, eru ekki
skáldskapur, heldur viðbrögð við
lestri bloggfærslunnar þar sem eru
kynnt ansi úrelt kynjaviðhorf.
Í niðurlagi bloggsins segir, und-ir fyrirsögninni Karlmenn vilja leyfa konum að vera eins og þær eru:
K arlmenn elska við konur hvað þær eru málgefnar, mjúkar, yndislegar og kven-legar. Karlmenn vilja að
konur séu þær sjálfar og njóti sín...og
maðurinn sé maður – öruggur, sterk-
ur og hugsandi og konan sé kona –
kvenleg, opin og frjáls... Þannig geta
báðir aðilar þroskast í átt að frelsi í
samskiptum.“
Þ essi forskrift karls og konu skrifuð eftir handriti meist-ara Walts Disneys á sér litla stoð í raunveruleikanum.
Karlar vilja alveg örugglega ekki hafa
konur svona eða hinsegin. Hrikalega
væri það leiðigjarnt. Og hér er frétta-
tilkynning: Konur vilja ekki láta segja
sér að þær séu svona og hinsegin. Þær
eru bara. Og eru alls kon-
ar. Og karlmenn líka. Bíddu
var ekki einhver herferð í
gangi: Konur prumpa líka!
Konur eru líka menn (klass-
ík)... Pabbar geta líka grát-
ið? (önnur klassík). Var þetta
ekki á síðustu öld?
Þ essi markaðsvædda tvískipting: mars-venus, hvítt-svart og blah og bleh er ansi
lífseig þótt að bæði karlar og
konur hafi reynt að murka úr
henni líftóruna með öllum
ráðum og öllum vopnum. Ekki af því
að þessir sömu karlar og þessar sömu
konur séu að drepast úr vandlætingu
og pólitískri rétthugsun heldur af því
hún er svo ferlega leiðinleg og and-
laus. Margtuggið skemmtiefni sem
aldrei var tekið alvarlega og hefur fyr-
ir löngu týnt öllu aðdráttarafli.
t ja, nema á Íslandi. Þar eru netútgerðir sem gera út á þessa tuggu. En ef marka má viðbrögðin (vandlega
athuguð á Facebook) og jarðskjálfta-
mælingar víða um borg þá er ekki
hægt að selja tugguna mikið leng-
ur. Ekki meðan saklausir tölvuskjáir
eru plammaðir niður um allan bæ
og ælupollar bræða úr lyklaborð-
um. Bæði konur og karlar eru kom-
in með upp í kok af því að troðið sé
upp á þau Disney-pælingunni um
hlutverk kynjanna. „En þetta er svo
mikið lesið?“ eru rökin sem gef-
in eru meðan pælingunum er stillt
upp á fremsta sölubásinn í glæsi-
legum umbúðum. Hvaðan kem-
ur þessi markaðsmaður sem finnst
þessi lestur vera gulls ígildi? Er hann
djöfladýrkandi?
E inhver kynni að segja og ger-ir það líklega: Hvað ertu að æsa þig? (...ég æsi mig ekki – ég get það ekki því ég er of
proper). En hvað um það. Þetta skipt-
ir máli. Það vita konur úti um allan
bæ sem eru að pússa haglabyssuna
og þrífa ælur af lyklaborðum.
a ð minnsta kosti þá er það staðreynd að í dag þá skiptir kyn máli. Það skiptir máli í stjórnmálum
og viðskiptum. Það þarf ekki að gera
það um alla framtíð – en það gerir
það núna og á meðan þá er pínu-
ponsu vandræðalegt að tefla fram
gömlu mars og venus bókinni sem
við lásum öll af áfergju en höfum nú
falið skömmustulega í geymslunni
með axlapúðum, undratesveppn-
um og öðrum pínlegum lausn-
um sem eru best geymdar og vel
gleymdar.
Kjánahrollur
og aðrar hamfarir
trésmiðja
illugi
jöKulsson
rithöfundur skrifar
HELGarPistiLL
Kristjana
guðbrands-
dóttir
blaðamaður skrifar
Illugi Jökulsson klórar sér í höfðinu yfir nýlegum uppsögn-
um og öðrum uppákomum hjá Ríkisútvarpinu.
Er fréttastofa RÚV
að fara á taugum?
Ég hélt satt að segja að RÚV
hefði lært sína lexíu frá
því ég var sjálfur rekinn
á sínum tíma!