Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.2010, Page 4
4 | Fréttir 15. desember 2010 Miðvikudagur
Stórhöfða 25 • Sími 569 3100 • www.eirberg.is
• Dregur úr vöðvaspennu
• Höfuð- háls- og bakverkjum
• Er slakandi og bætir svefn
• Notkun 10-20 mínútur í senn
• Gefur þér aukna orku og vellíðan
Opið virka daga kl. 9 -18
og á laugardögum kl. 11 - 16
Nálastungudýnan
Tilboð til
jóla 40%
afsláttur
!
Tilboðsverð 5.850 kr.
Mótmæli gegn
Bakkavör
Boðað hefur verið til mótmæla á
föstudag fyrir utan höfuðstöðvar
Bakkavarar í Spalding á Englandi
vegna skertra vinnuskilyrða starfs-
fólks í verksmiðju fyrirtækisins í
Bourne í Lincolnskíri. Til stend-
ur að fækka störfum og lækka laun
sem fyrir voru þó með þeim lökustu
í Bretlandi. Frá þessu er sagt á vef
Starfsgreinasambandsins.
Það er breska verkalýðssamband-
ið Unite the Union, systursamtök
Starfsgreinasambands Íslands, sem
stendur fyrir mótmælunum. Eru
markmið mótmælanna að senda
skýr skilaboð til stjórnenda Bakka-
varar um að Unite muni aldrei láta
það viðgangast að félagsmenn verði
þvingaðir til að taka þessum niður-
skurði baráttulaust.
„Unite heldur því fram að þeir
Bakkabræður hafi hunsað allar
tillögur um samráð við verkalýðs-
hreyfinguna, hvað þá tekið tillit
til sjónarmiða hennar um endur-
skipulagningu í Bourne. Bakkavör
heldur því fram að fyrirtækið þurfi
að spara fimm milljónir punda til að
stöðva taprekstur en Unite telur að
tapreksturinn, sé um taprekstur að
ræða, stafi fyrst og fremst af óhæfum
stjórnendum fyrirtækisins og stjórn-
unarstíl þeirra,“ segir í frétt um málið
á vef Starfsgreinasambandsins.
Steina í Kók stefnt
NBI, eða Nýi Landsbankinn, hefur
stefnt Þorsteini M. Jónssyni, sem er
betur þekktur undir nafninu Steini
í Kók, fyrir Héraðsdómi Reykjavík-
ur vegna ógreidds víxils upp á 150
milljónir króna, auk vaxta. Málið var
tekið til aðalmeðferðar í héraðsdómi
í morgun.
Víxillinn var gefinn út af gamla
Landsbankanum á vormánuð-
um 2008 og undirritaður af Þor-
steini. Samkvæmt NBI eignaðist
bankinn víxilinn þegar hann tók
yfir eignir gamla Landsbankans
og því beri Þorsteini að greiða NBI
af víxlinum en ekki gamla Lands-
bankanum. Þorsteinn viðurkennir
greiðsluskyldu sína gagnvart gamla
Landsbankanum en ekki NBI og vill
tryggja að hann þurfi ekki að greiða
víxilinn í tvígang.
Franska rannsóknarfyrirtækið Cofisys
er sannfært um að embætti sérstaks
saksóknara eigi að rannsaka Project
Para-viðskiptin, kaup Ingibjargar
Pálmadóttur, eiginkonu Jóns Ásgeirs
Jóhannessonar, á 19 prósenta hlut í
Landic Property af Baugi í ágúst árið
2007. Þetta kemur fram í skýrslunni
um starfsemi Glitnis sem franska fyr-
irtækið vann fyrir embætti sérstaks
saksóknara. Talið er að viðskiptin hafi
átt sér stað til að Glitnir gæti lánað
þeim hjónum meira fé og þar með til
að fara í kringum reglur bankans um
hámarkslánveitingar til tengdra aðila.
Félag Ingibjargar sem keypti hlutinn
heitir 101 Capital.
Project Para-málið er eitt af þeim
sem Jóni Ásgeiri Jóhannessyni og
nokkrum viðskiptafélögum hans var
stefnt fyrir í dómsmáli slitastjórn-
ar Glitnis gegn honum í New York.
Slitastjórnin krafðist tveggja milljarða
dollara, nærri 230 milljarða króna,
í skaðabætur. Tilgangur viðskipt-
anna á milli Baugs og Ingibjargar var
sá að fjármagna þurfti kaup Landic
Property á danska fjárfestingafélag-
inu Keops A/S, að því er fram kemur
í stefnunni. Baugur var einn stærsti
hluthafi Landic en vegna þess hversu
mikið Baugur hafði fengið lánað frá
Glitni gat félagið ekki aukið á áhættu-
skuldbindingar sínar í bankanum.
Þess vegna voru bréf Baugs í Landic
færð yfir til 101 Capital. Af skýrslu Cof-
isys að dæma var ýmislegt athugavert
við viðskiptin.
Jón Ásgeir gaf það út í kjölfar hús-
leitar embættis sérstaks saksóknara
hjá honum fyrir skömmu að ástæða
húsleitarinnar hefði verið Project
Para-viðskiptin. Málflutningur um
frávísunarkröfu Jóns Ásgeirs og fé-
laga fór fram í hæstarétti í New York
á þriðjudaginn. Tekin var fyrir frávís-
unarkrafa Jóns Ásgeirs Jóhannesson-
ar og viðskiptafélaga hans og var hún
samþykkt. Slitastjórn Glitnis mun því
væntanlega þurfa að höfða málið á
Íslandi ef hún ætlar að halda því til
streitu.
Gat ekki fengið meira lánað
Líkt og kom fram í skýrslu rannsókn-
arnefndar Alþingis flokkaðist Ingi-
björg ekki sem tengdur aðili Baugs,
félags Jóns Ásgeirs, hjá Glitni þrátt
fyrir að gera það hjá Landsbankan-
um. Viðskiptin áttu sér stað á milli fé-
lags Ingibjargar, 101 Capital, og Baugs
til að fara í kringum reglur um stórar
áhættuskuldbindingar til tengdra að-
ila, líkt og áður segir. Í stefnu Glitnis
kemur fram að Glitnir lánaði 101 Capi-
tal fimm milljarða króna til að kaupa
Landic-bréfin af Baugi. Sjö milljarðar
fóru svo til Landic frá Glitni og voru
þeir notaðir til að kaupa Keops.
Þar segir jafnframt að Project
Para-viðskiptin hafi einungis aukið
áhættuskuldbindingar Jóns Ásgeirs
og tengdra aðila við Glitni þar sem
áhættuskuldbindingar hafi einungis
verið færðar frá einum aðila tengd-
um Jóni Ásgeiri til annars aðila sem
einnig var tengdur honum auk þess
sem frekari lán voru veitt. Svo segir
í stefnunni, og er sú ályktun dregin
að viðskiptin hafi verið ólögleg: „Öll-
um hefði átt að vera ljóst að Project
Para-viðskiptin voru lögbrot þar sem
litið var á öll þrjú félögin, Baug, 101
Capital og Landic, sem tengda aðila í
gögnum frá Landic.“
Vert að rannsaka málið
Í skýrslu Cofisys segir orðrétt um
Project Para-viðskiptin: „Project
Para-aðgerðin, sem gekk út á kaup
Landic (Stoða) á dönsku fasteigna-
félagi, Keops A/S árið 2007, með láni
frá Glitni, er rætt í stefnu slitastjórnar
Glitnis fyrir hæstarétti í New York sem
lögð var fram í maí. Eftir að hafa lesið
fundargerð áhættunefndarinnar frá
12. september 2007 er það mat okk-
ar að þessi lánveiting hefði ekki átt að
vera möguleg þegar litið var til reglna
um hámarks áhættuskuldbindingar.“
Enn fremur segir í frönsku skýrslunni:
„Við erum sannfærðir um að þetta
mál sé þess vert að vera rannsakað.“
Meðal þeirra gagna sem franska
fyrirtækið studdist við til að komast að
þessari niðurstöðu eru fundargerðir
áhættunefndar Glitnis.
n Frávísunarkrafa Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og viðskiptafélaga hans í Glitnis-
málinu var samþykkt í New York á þriðjudaginn n Talið er að Ingibjörg hafi tekið
við hlutabréfum Landic Property til að félög Jóns Ásgeirs gætu fengið hærri lán
Ingibjörg leppaði
fyrir Jón Ásgeir
„Við erum sann-
færðir um að
þetta mál sé þess vert
að vera rannsakað.
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
Til rannsóknar Project Para-málið er eitt af þeim málum sem mynda grundvöllinn í stefnu slitastjórnar Glitnis gegn Jóni Ásgeiri Jóhann-
essyni og viðskiptafélögum hans í New York. Jón Ásgeir sést hér með Ingibjörgu konu sinni en félag í hennar eigu tók þátt í viðskiptunum með
hlutabréf í Landic Property.
Hús hæstaréttar í New York Málflutn-
ingur um frávísunarkröfu Jóns Ásgeirs og
viðskiptafélaga hans hófst á þriðjudaginn.
Krafan var samþykkt.
MYNd JóHaNNes Kr. KrIsTJÁNssoN
Úlfar Eysteinsson, oftast kenndur við
veitingastaðinn Þrjá frakka, segir al-
gjört skipulagsslys hafa orðið á Bald-
urstorgi á Baldursgötu í Reykjavík.
Hann og íbúar við götuna eru allt ann-
að en sáttir við bekki og blómaker sem
Úlfar segir að hafi verið dritað niður á
torgið og öryggi allra þar í kring sé nú
stofnað í hættu vegna klúðursins.
Hann segir ábyrgðina liggja hjá
borgarfulltrúanum Hjálmari Sveins-
syni sem situr meðal annars í skipu-
lagsráði auk umhverfis- og samgöngu-
ráðs Reykjavíkurborgar. „Honum var
í nöp við þetta torg því menn voru að
leggja bílum sínum þvers og kruss um
það. Þannig að hann tók það upp á
sitt einsdæmi að teikna upp verkplan
sem framkvæmt var í grænum hvelli
fyrir menningarnótt. Sett voru niður
blómaker og dritað niður níu bekkj-
um í allar áttir svo örugglega væri ekki
hægt að leggja bílum þarna,“ segir Úlf-
ar, en veitingastaður hans stendur ein-
mitt við Baldursgötu og hefur hann
fengið að kenna á breytingunum.
Hann segir að menn verði að átta sig
á breyttum tímum og því hefði hann
viljað sjá torgið skipulagt fyrir bíla-
stæði sem hafi fækkað um allt að tíu
við götuna með þessum aðgerðum og
ekki hafi nú mátt við því í miðborginni.
Til að bíta höfuðið af skömminni
hafi einnig verið settur niður fjöldi
hinna alræmdu grænu staura sem
eru svo lágir að menn sjá þá ekki þeg-
ar þeir reyna að athafna sig í þröngri
götunni. Úlfar hefur dældað afturhurð
á bílnum sínum og hann segir staura
bera þess merki að á þá hafi verið ekið.
Nú sé svo komið að slökkvilið-
ið kemst ekki þarna um. „Þeir voru
með æfingu hérna í vikunni og það
var hálfleiðinlegt að brosa að því. Það
kom sjúkrabíll, kranabíll og tank-
bíll og sjúkrabílinn var sá eini sem
komst í gegnum torgið. Hvað ef verð-
ur bruni í öllum þessum timburhús-
um hérna í kring?“ spyr Úlfar. Hann
bendir á að eftir menningarnótt hafi
þurft að fjarlægja
einn af þessum
grænu staurum
því sorpbíll-
inn komst ekki
leiðar sinnar.
„Sorpið var
ekki losað í
heila viku!“
mikael@dv.is
Slökkviliðsbílar komast ekki um eftir breytingar:
skipulagsslys á Baldurstorgi
Nóg komið Úlfar Eysteinsson gagnrýnir
harðlega breytingar við Baldurstorg og
kveðst ekki einn um það.