Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.2011, Side 8
8 | Fréttir 7. mars 2011 Mánudagur
Línu- og netabáturinn Háey II á Húsavík:
2,2 milljarðar hvíla á bátnum
Samkvæmt veðbókarvottorði hvíla
um 2,2 milljarðar króna á línu- og
netabátnum Háey II. Báturinn er
gerður út af GPG fiskverkun á Húsa-
vík, sem hefur glímt við mikla erf-
iðleika. Félagið sem er skráð fyr-
ir bátnum heitir A300 ehf. Báturinn
er skráður rétt tæplega 15 brúttó-
tonn og er 10 metrar á lengd. Hann
var smíðaður í Hafnarfirði árið 2007
af Samtak ehf. og er af gerðinni Vík-
ingur 1200. Slíkur bátur kostar nýr
nokkra tugi milljóna.
Samkvæmt þinglýsingarvottorði
eru 10 veðbönd á bátnum. fjögur
þeirra voru gefin út í lok júlí 2007. Þar
af eru 950 milljónir króna í íslenskum
krónum og rúmar 4 milljónir evra.
Veðbönd sem eru dagsett 24. júlí 2008
upp á samtals 625 milljónir króna, eru
einnig skráð á bátinn.
Gunnlaugur Hreinsson fram-
kvæmdastjóri GPG fiskverkunar vildi
ekki veita DV upplýsingar um ástæðu
skuldanna en nefndi krossveð í aðr-
ar eignir fyrirtækisins svo sem kvóta.
„Það vita það allir landsmenn að er-
lendar skulir hækkuðu um meira en
helming við fall krónunnar. Skuldir í
sjávarútvegi jafnvel tvöfölduðust og
þrefölduðust hjá þeim sem fóru verst.“
Aðspurður hvort skuldirnar séu við-
ráðanlegar, svarar hann: „Skuldirnar
eru miklar, en tíminn vinnur eitthvað
með mönnum.“
Háey II komst í fréttirnar í fyrra-
haust þegar báturinn strandaði við
Hólshöfða skammt innan við Raufar-
höfn í september.
„Ég startaði Black Pistons MC hér og
er þetta opinber stuðningsklúbbur
Outlaws MC. Og vegna mikillar eftir-
spurnar frá Íslandi þá aðstoðaði ég þá
í að starta þessum klúbbi þar,“ segir
Jón Trausti Lúthersson sem staddur
er í Noregi þar sem hann hefur búið
síðustu ár.
Jón Trausti segir að hann hafi ver-
ið meðlimur í Black Pistons MC í Nor-
egi, en nú sé hann hins vegar full-
gildur meðlimur í Outlaws. „Ég fékk
stöðuhækkun fyrir um tveimur mán-
uðum síðan. Í dag er ég orðinn full-
gildur meðlimur í Outlaws.“
Ekki rekinn
Jón Trausti er sem kunnugt er fyrr-
verandi forsvarsmaður mótorhjóla-
samtakanna Fáfnis, nú Hells Ang-
els MC Iceland. Hann segir tíma til
kominn að koma sannleikanum um
brotthvarf sitt úr Fáfni á framfæri þar
sem margar misgáfulegar sögusagnir
og kjaftasögur hafi gengið um hann
síðustu ár. Meðal þeirra er að hann
hafi verið rekinn úr klúbbnum með
skömm og hafi verið settur á einskon-
ar svartan lista, því hafi hann flúið til
Noregs þar sem honum hafi ekki ver-
ið líft á Íslandi. Jón Trausti segir í sam-
tali við DV þetta vera af og frá.
„Ég var ekki rekinn úr Fáfni MC,
ég gekk út af persónulegum ástæðum
og iðrast einskis með það,“ segir Jón
Trausti sem kom við sögu í umfjöll-
un DV um helgina. Blaðið hefur undir
höndum gögn er snúa að rannsókn-
um og greiningarstarfi lögreglunnar
á skipulagðri glæpastarfsemi þar sem
fjórar höfuðblokkir eru nefndar sem
lögreglan hafi sérstakar áhyggjur af.
Þær blokkir eru MC Iceland, sem fyr-
ir helgi voru tekin formlega inn í Hells
Angels, Black Pistons MC, sem Jón
Trausti kom á laggirnar, Semper Fi,
samtök Jóns „stóra“ Hallgrímssonar,
og loks pólsk og lítháísk glæpasam-
tök.
Í gögnum sem DV hefur undir
höndum kemur líka fram að óttast sé
að Jón Trausti hyggi á hefndir vegna
brotthvarfs síns úr Fáfni og því hafi
hann stofnað Black Pistons hér á Ís-
landi, í raun til höfuð MC Iceland.
Bara hræðsluáróður
Aðspurður um þær áhyggjur lögregl-
unnar að hann sé að fara að hefna sín
og að uppgjör sé í nánd milli mótor-
hjólaklúbbanna gefur Útlaginn lítið
fyrir þær pælingar löggunnar.
„Það er ekkert uppgjör í aðsiglingu
frá minni hálfu né míns hóps. Þetta
lítur út fyrir að vera hræðsluáróður af
hálfu yfirvalda til að auka fjárveitingar
og fleira til lögreglu,“ segir Jón Trausti.
Jón Trausti vildi hins vegar ekk-
ert segja aðspurður um meðal ann-
ars hvað Black Pistons ætlaði sér
á Íslandi, hver tilgangur klúbbsins
væri, hvort samtökin væru komin
með einhverjar höfuðstöðvar og af
hverju Jón Trausti teldi eftirspurn eft-
ir Black Pistons á Íslandi. „No comm-
ent.“ Sama svar fékkst við spurningu
um hvort ekki væri hægt að stofna
mótor hjólasamtök hér á landi án
þess að tengja þau stórum og þekkt-
um samtökum úti í heimi sem tengd
hafa verið skipulagðri glæpastarf-
semi erlendis.
Sigurður Mikael Jónsson
blaðamaður skrifar mikael@dv.is
„Þetta lítur út
fyrir að vera
hræðsluáróður af hálfu
yfirvalda til að auka
fjárveitingar.
Frá Húsavík Samkvæmt veðbanda yfirliti
eru áhvílandi 2,2 milljarðar á línu- og
netabátnum Háey II.
„Fullgildur
meðlimur í
Outlaws“
n Jón Trausti Lúthersson snéri
baki við Fáfni og Hells Angels
n Stofnaði Black Pistons MC
hér á Íslandi vegna eftirspurnar
n Er sjálfur orðinn fullgildur
meðlimur í Outlaws í Noregi
Útlagi Jón Trausti Lúthers-
son í Outlaws-klæðnaðinum.
Hann stofnaði Black Pistons
á Íslandi og er nú fullgildur
meðlimur í Outlaws í Noregi.
MyNd Úr EiNkASAFNi
Ölvaður ökumaður
velti bíl
Meira af lögreglufréttum því bíll
valt í Ártúnsbrekku aðfaranótt
sunnudagsins og er talið að öku-
maður hafi verið undir áhrifum
áfengis. Einn farþegi var með
ökumanninum. Lögreglan á höf-
uðborgarsvæðinu tók sex öku-
menn um nóttina sem grunaðir
eru um um að hafa ekið und-
ir áhrifum áfengis. Með þessu
hafði lögreglan því tekið svipaðan
fjölda ökumanna þrjá daga í röð
vegna gruns um ölvunarakstur.
Aðfaranótt föstudags stöðvaði
lögreglan 160 ökumenn í hefð-
bundnu eftirliti og reyndust sjö
þeirra ölvaðir undir stýri.
Líkamsárás á N1
Lögreglan var kölluð til á bensínstöð
N1 við Hringbraut um klukkan sex á
sunnudagsmorgun. Réðst maður á
annan með þeim afleiðingum að sá
sem varð fyrir árásinni þurfti að leita
á slysadeild. Árásarmaðurinn var
hins vegar færður í fangageymslur
lögreglunnar. Fórnarlambið er ekki
talinð hafa orðið fyrir alvarlegum
áverkum.
Einnig var bíl stolið fyrir utan
aðra bensínstöð rétt eftir miðnætti.
Hafði ökumaður skilið bílinn sinn
eftir í gangi fyrir utan bensínstöð-
ina. Þegar hann kom út var hún hins
vegar horfin. Enn hefur ekki tekist
að finna bifreiðina.
UVG mótmæla
Ögmundi
Stjórn Ungra vinstri grænna mót-
mælir harðlega hugmyndum
Ögmundar Jónassonar innan-
ríkisráðherra um forvirkar rann-
sóknarheimildir lögreglunnar. Í
ályktun sem félagið hefur sent frá sér
segir: „...með því að heimila njósnir
um einstaklinga án þess að fyrir liggi
rökstuddur grunur um saknæmt
athæfi er ríkisvaldið komið út á næf-
urþunnan ís.“ Stjórn félagsins skorar
á Ögmund Jónasson, sem sjálfur er
liðsmaður Vinstri grænna, að endur-
skoða afstöðu sína í málinu. „Út frá
grundvallar mannréttinda - og lýð-
ræðissjónarmiðum verður að hafna
öllum slíkum hugmyndum,“ segir
svo í ályktuninni.
Árétting
Í frétt í helgarblaði DV var sagt frá því
að forsvarsmenn verktakafyrirtækisins
Sögu verktaka íhugi að stefna Dögg
Pálsdóttur hæstaréttarlögmanni
fyrir meiðyrði. Verktakarnir unnu mál
gegn henni í Hæstarétti Íslands vegna
viðskipta sem hún og sonur hennar
áttu í. Það skal áréttað að mögulegt
meiðyrðamál snýr ekki að syni Daggar.