Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.2011, Qupperneq 10
10 | Fréttir 7. mars 2011 Mánudagur
Á sama tíma og laun almennra
bankamanna hafa ekkert hækkað
umfram almenna kjarasamninga
hafa laun bankastjóra Arion banka
hækkað um 145 prósent. Í ársskýrslu
Arion banka kemur fram að Höskuld-
ur H. Ólafsson bankastjóri hafi ver-
ið með 30 milljónir króna í laun árið
2010. Kom hann til starfa þann 1. júní
og því er um sjö mánaða laun að ræða
sem gera 4,3 milljónir króna á mán-
uði. Þessi hækkun bankastjóralaun-
anna kom á sama tíma og almennir
launamenn þurftu að fresta umsömd-
um launahækkunum.
Í ársreikningnum kemur einn-
ig fram að laun Finns Sveinbjörns-
sonar, fyrrverandi bankastjóra, hafi
verið 15,9 milljónir króna árið 2010
fyrir fimm mánaða tímabil sem ger-
ir 3,2 milljónir króna á mánuði. Iða
Brá Benediktsdóttir, upplýsingafull-
trúi bankans, vildi ekkert segja fyrir
hönd bankans um málið í samtali við
blaðamann DV. Ekki náðist í Höskuld
þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir og þeg-
ar DV fór í prentun hafði hann ekki
svarað þeim spurningum sem sendar
höfðu verið á hann.
Laun 26 verkamanna
Sama dag og Höskuldur kom til starfa
fyrir Arion banka, eða þann 1. júní
2010 gengu í garð samningsbundn-
ar launahækkanir upp á 2,5 prósent
til handa almennu launafólki. Sam-
ið var um hófsamar launahækkanir í
kjarasamningum árið 2008 og átti síð-
asti áfanginn að hefjast þann 1. jan-
úar 2010, en var í kjölfar stöðugleika-
sáttmálans frestað til 1. júní. Á sama
tímabili og almennir launamenn af-
söluðu sér réttindum sínum hækk-
uðu laun bankastjóra Arion banka
því að jafnaði um rúmar 100 þúsund
krónur á mánuði. Í dag er svo komið
að Höskuldur er með ígildi launa 26
verkamanna á lágmarkslaunum, en
þau eru 165.000 krónur.
Laun Höskuldar hafa hækkað jafnt
og þétt undanfarin ár en samkvæmt
tekjublaði Mannlífs var hann með
958 þúsund krónur í laun þegar hann
starfaði fyrir Visa árið 2006. Árið 2007
var hann svo orðinn forstjóri Valitor
og hafði þá hækkað umtalsvert í laun-
um og var með 1,9 milljón á mánuði.
Launin hækkuðu enn frekar árið 2008
en þá hafði 2,6 milljónir í mánaðar-
tekjur.
40 prósenta hækkun
Friðbert Traustason, formaður Sam-
taka starfsmanna fjármálafyrirtækja,
hafði ekki kynnt sér launahækkan-
irnar þegar DV hafði samband við
hann. „Ég er ekki búinn að skoða
þetta, þannig að ég get ekki mynd-
að mér skoðun fyrr en ég sé þetta og
sannreyni,“ sagði hann. Aðspurð-
ur um hver launaþróun almennra
starfsmanna bankanna hefði verið
frá bankahruni sagði Friðbert laun-
in ekkert hafa hækkað umfram kjara-
samninga. „Það er alveg ljóst að ef
bankarnir eru að bæta kjör einhverra,
þá förum við auðvitað fram á það að
kjör allra félagsmanna okkar verði
bætt,“ segir Friðbert.
Í ársreikningi Arion banka kem-
ur einnig fram að heildarlaun banka-
stjóra og stjórnar Arion banka hafi
hækkað úr 80,1 milljón króna árið
2009 í 109,9 milljónir króna árið 2010.
Er það tæplega 40 prósenta hækkun
á milli ára. Eins og frægt er orðið
lækkaði Finnur Sveinbjörnsson laun
sín úr 1.950 þúsund krónum á mán-
uði í 1.750 þúsund krónur árið 2008
fljótlega eftir að hann tók við starfi
sínu. Var á þeim tíma líka upplýst
að Birna Einarsdóttir, bankastjóri Ís-
landsbanka, væri með 1.750 þúsund
krónur í mánaðarlaun og Elín Sigfús-
dóttir, þáverandi bankastjóri Lands-
bankans, með 1.950 þúsund krónur
á mánuði. Birna Einarsdóttir var með
um 2,6 milljónir króna í laun á mán-
uði árið 2010 og hafa laun hennar því
líka hækkað mikið líkt og hjá banka-
stjóra Arion banka.
„Alveg ótrúlegt“
Vilhjálmur Birgisson, formaður
Verkalýðsfélags Akraness, bendir
á að hækkunin ein og sér, úr 1.750
þúsund krónum í 4,3 milljónir, sam-
svari launum fimmtán verkamanna
á lágmarkslaunum. „Það er alveg
ótrúlegt að verða vitni að þessu
núna í miðjum kjarasamningum.
Þetta er bara það sem maður hef-
ur ætíð horft upp á. Þegar kemur að
því að semja um kaup og kjör fyr-
ir verkafólk, þá heyrist alltaf sami
gráturinn um að það séu ekki nein-
ar forsendur til þess að gera slíkt,
því að þá séu menn að ógna hér
einhverjum stöðugleika. Menn tala
um að það sé engin leið að hækka
launin vegna þess að það hafi ruðn-
ingsáhrif út í aðra launahópa. Síðan
birtast manni svona hækkanir og þá
heyrist ekkert í Samtökum atvinnu-
lífsins,“ segir hann.
Áhugavert er að skoða launa-
þróun núverandi bankastjóra Arion
banka í samanburði við launaþróun
bankastjóranna sem stýrðu bankan-
um fyrir hrun. Í rannsóknarskýrslu
Alþingis kemur fram að heildarlaun
Hreiðars Más Sigurðssonar, fyrrver-
andi bankastjóra Kaupþings, hafi
ríflega fjórfaldast á árunum 2004 til
2006 og voru þau rúmar 80 milljón-
ir krónur á mánuði árið 2006. Voru
grunnlaun hans lægst árið 2005 eða
tæpar 8 milljónir króna að meðaltali
á mánuði. Á árunum 2008–2010 hafa
laun bankastjóra Arion banka nærri
því þrefaldast. Haldi Höskuldur H.
Ólafsson, núverandi bankastjóri
Arion banka, þeim tekjum sem hann
hefur, má gera ráð fyrir því að á árinu
2011 fái hann í kringum 51 milljón
króna í heildarlaun.
DV sendi tölvupóst á Höskuld H. Ólafsson
þar sem hann var spurður út í launahækk-
anirnar. Hann svaraði blaðinu ekki.
1. Hver tók ákvörðun um að laun
bankastjóra skyldu hækkuð eins og raun
ber vitni?
2. Hvaða ástæður eru fyrir því að laun
bankastjóra hafa hækkað?
3. Telur þú að launahækkunin þín geti
orðið til þess að laun almennra starfs-
manna í bankanum hækki hlutfallslega
jafn mikið?
4. Hvernig svarar þú þeim gagnrýnis-
röddum sem hafa heyrst um að laun þín
séu allt of há?
5. Stefnir í frekari launahækkanir hjá
þér?
Spurningar DV
2009–2010 3,1 prósent
2010–2011 4,4 prósent
2009–2011 7,7 prósent
Hækkun launavísitölu
145 prósenta hækkun
bankastjóralauna
n Laun bankastjóra Arion banka hafa hækkað um 145 prósent frá árinu 2008 n Laun fyrrverandi
bankastjórans voru lækkuð í kjölfar mikillar gagnrýni almennings n Á sama tímabili og laun banka-
stjóra hækkuðu var almennum launahækkunum frestað n Alveg ótrúlegt, segir verkalýðsleiðtogi
Milljónamaður Höskuldur Ólafsson,
bankastjóri Arion banka, hefur hækkað verulega
í launum samkvæmt ársreikningi bankans.
Jón Bjarki Magnússon
blaðamaður skrifar jonbjarki@dv.is
„Sama dag og
Höskuldur kom til
starfa fyrir Arion banka,
eða þann 1. júní 2010,
gengu í garð samnings-
bundnar launahækkan-
ir upp á 2,5 prósent til
handa almennu launa-
fólki.
1.7
50
.0
0
0
k
r.
3.
18
0
.0
0
0
k
r.
4.
28
5.
71
4
kr
.
1.11. 2008 1.1. 2010 1.6. 2010
144,90%
hækkun
81,7%
hækkun
Bankastjóralaunin
Þetta graf sýnir launaþróun forstjóra
Arion banka eftir bankahrunið.