Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.2011, Side 14
Betra en í
„fínum“ búðum
n Lofið að þessu sinni fær Hagkaup
í Smáralind en ánægður viðskipta-
vinur sendi eftifarandi: „Ég fór í
Hagkaup í Smáralind um daginn
til að kaupa stígvél á dætur mínar.
Ég átti alls ekki von á að fá neina
þjónustu og bjóst við því að þurfa að
leita sjálf að réttu númerunum
og svo framvegis. En svo var
nú aldeilis ekki, í skódeild-
inni starfaði afar alúðleg og
hjálpsöm kona sem vildi
bókstaflega allt fyrir
okkur gera. Held ég
hafi aldrei fengið svona
góða þjónustu í „fínni“
skóbúðum.“
Leiguverð kannað
meðal leigjenda
Neytendasamtökin könnuðu húsa-
leiguverð með því að kalla eftir
upplýsingum frá leigjendum sjálf-
um í könnun sem haldið var úti á
heimasíðu samtakanna. Samkvæmt
könnuninni munar miklu á leigu-
verði sem þátttakendur könnunar-
innar könnuðust við og því sem kom
fram í neysluviðmiðum í skýrslu
sem unnin var fyrir velferðarráðu-
neytið. Samkvæmt niðurstöðum
könnunar Neytendasamtakanna er
munur á leiguverði sem leigjendur
sjálfir kannast við og því sem birtist í
neysluviðmiðunum 55–109 prósent.
Gæti hækkað
standardinn
n Verslunin 10-11 í Austurstræti fær
last fyrir þjónustu. Óánægður við-
skiptavinur vildi koma þessu á fram-
færi: „Leiðinlegt að segja frá því en
10-11 í Austurstæti gæti hækkað eig-
in standard í þjónustu. Ég vil síst af
öllu ganga út úr verslun
með samviskubit yfir
að ræna tíma af þeim
sem þjónar mér. Það
eru ákaflega leiðinleg
skilaboð að taka með
sér út í samfélagið,“ segir
viðskiptavinurinn óánægði.
SENDIÐ LOF EÐA LAST Á NEYTENDUR@DV.IS
Lof&Last
Svona sofum við betur Átt þú erfitt með svefn? Svefnleysi getur
verið afar slæmt fyrir andlega og líkamlega heilsu en mörg góð og gegn ráð eru til við
svefnleysi. Maður lifandi gefur nokkur slík ráð á heimasíðu sinni en þar er meðal annars
mælt með að fara alltaf að sofa á sama tíma og vakna á sama tíma. Varast skal að
leggja sig á daginn og mikilvægt er að stunda hreyfingu. Passa skal upp á hitastigið í
herberginu og forðast að borða þungan mat á kvöldin en það er heldur ekki gott að fara
svangur að sofa. Eins skal forðast öll örvandi efni í að minnsta kosti tvo klukkutíma fyrir
svefn. Gott er að stunda slökun uppi í rúmi rétt fyrir svefninn en aldrei skal fara að sofa í
æstu hugarástandi.
14 | Neytendur Umsjón: Gunnhildur Steinarsdóttir gunnhildur@dv.is 7. mars 2011 Mánudagur
E
ld
sn
ey
ti Verð á lítra 225,9 kr. Verð á lítra 230,8 kr.
Bensín Dísilolía
Verð á lítra 225,7 kr. Verð á lítra 230,6 kr.
Verð á lítra 225,7 kr. Verð á lítra 230,8 kr.
Verð á lítra 225,6 kr. Verð á lítra 230,5 kr.
Verð á lítra 225,7 kr. Verð á lítra 230,8 kr.
Verð á lítra 225,9 kr. Verð á lítra 230,8 kr.
Algengt verð
Almennt verð
Algengt verð
Akureyri
Melabraut
Algengt verð
Sykur kallar á
eiri Sykur
Gosdrykkir eru væntanlega með því
eitraðasta sem við setjum inn fyrir
okkar varir ef marka má umfjöllun
um áhrif þeirra á líkamann á dönsku
síðunni alun.dk. Þar er greint frá
því hvað gerist í líkamanum fyrsta
klukkutímann eftir að við drekkum
gosdrykk. Þetta eru kannski ekki ný
vísindi en þessar upplýsingar ættu að
gera okkur meðvitaðri um afleiðing-
ar gosdrykkju og fá okkur til að reyna
eftir megni að halda börnunum okk-
ar og unglingum frá neyslu á slíkum
drykkjum, sem og okkur sjálfum. Það
má einnig teljast undarlegt að á með-
an við Íslendingar höfum óheftan
aðgang að hinum ágæta drykk vatni
skulum við drekka eins mikið af gos-
drykkjum og raun ber vitni. Þess má
einnig geta að gosdrykkir eru nær-
ingarsnauðir og því oft sagt að í þeim
séu tómar hitaeiningar. Skoðum hvað
gerist í líkamanum við neyslu gos-
drykkjar:
Klukkutíminn eftir gosdrykkju
Í einni hálfs lítra flösku af Coca-Cola
er jafnmikill sykur og í 27 sykurmol-
um en tíu mínútum eftir drykkju hef-
ur sykurinn borist út í blóðrás líkam-
ans.
Tuttugu mínútum eftir drykkju
gossins stígur blóðsykurinn kröftug-
lega og bris seytir insúlíni, sem lifrin
bregst við með því að breyta sykrin-
um í fitu.
Fjörutíu mínútum eftir drykkju er
upptaka koffíns í hámarki. Sjáöldrin
víkka, blóðþrýstingur hækkar og lifrin
skilar enn meiri sykri út í blóðrásina.
45 mínútum eftir drykkju eykst
framleiðsla á dópamíni í líkamanum,
sem eykur vellíðunartilfinningu í heil-
anum. Sumir segja að við upplifum í
raun sömu líkamlegu viðbrögð og við
inntöku heróíns.
Klukkutíma eftir að hafa drukk-
ið gos förum við í sykursjokk en það
gerist þegar blóðsykurinn fellur og við
vitum hvað gerist við það; líkaminn
kallar á meiri sykur.
Hvað er í einni dós af gosi?
Fosfórsýra: Er ekki í öllum gosdrykkj-
um en getur truflað getu líkamans til
að nýta kalk, sem getur leitt til bein-
þynningar og veikir tennur og bein.
Á vefnum heilsubankinn.is er fjall-
að um fosfórsýru en þar segir að það
sé hún sem fari einna verst með
tennurnar með því að eyða gler-
ungi þeirra. Sýran sé auðfáanleg
og ódýr og því víða notuð. Einnig
er hún notuð í ýmsa gróðuráburði,
þvotta- og hreinsiefni, til dæmis í
verksmiðjuhreinsun. Hún er meðal
annars notuð á skipasmíðastöðvum
til að fjarlægja ryð af skipum.
Sykur: Það hefur verið sannað að
óhófleg neysla sykurs að staðaldri
eykur insúlínmagn sem í sumum til-
fellum getur leitt til hærri blóðþrýst-
ings og aukins kólesterólmagns sem
aftur á móti eykur líkur á sykursýki,
hjartasjúkdómum, yfirvigt, það flýtir
fyrir öldrun og hefur fleiri neikvæð-
ar hliðarverkanir. Í raun er ekki til
neinn ráðlagður dagskammtur af
sykri. Hins vegar er ráðlagt að við-
bættur sykur sé ekki meiri en sem
svarar 10 prósentum orkunnar.
Aspartam: Sætuefni sem notað
er í stað sykurs í sykurskertum eða
-lausum drykkjum. Sætuefnin við-
halda þörfinni fyrir sætindi en það
að borða mikið af sætindum slítur
úr samhengi eðlilega neyslu á mat.
DV ræddi fyrr á þessu ári við Þór-
hall Inga Halldórsson, lektor við
Matvæla- og næringarfræðideild
Gunnhildur Steinarsdóttir
blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is
Kolla í Ísland í bítið á Bylgjunni:
„Verð alltaf að hafa kók við höndina“
Kolbrún Björnsdóttir, útvarpskona á
Bylgjunni, segist vera kókisti í samtali við DV.
„Já, það má segja að þetta sé hálfgerð fíkn.
Ég held að ég hafi minnkað kókdrykkjuna en
ég verð alltaf að hafa kók við höndina. Eins að
eiga kók heima svo ég geti fengið mér,“ segir
hún en bætir við að hún drekki ekki kaffi. Þetta
sé líklega svipað og með þá sem drekki kaffi.
„Maður hugsar út í það öðru hvoru hvort
maður ætti að hætta þessu og ég hef oft
meðvitað reynt að drekka meira vatn og safa.
Ég drekk hins vegar ekki mikið af kókinu, það
er kannski meira hugsunin um að það sé til
staðar.“
Hún segist geta fundið mun á nýju og gömlu
kóki og að því nýrra sem það sé, því betra. „Ég
finn alveg mun á því sem rennur út í ágúst
og því sem rennur út í desember. Mér skilst að það sé svo með marga,“ segir Kolbrún.
Hún segir fíknina ekki vera einskorðaða við Coca-Cola hjá fólki heldur er þetta svo með
margar tegundir, svo sem Pepsi, Pepsi Max og Coca-Cola light.
Gosdrykkir Við ættum að halda
börnunum frá gosdrykkjum vegna
sykursins og koffínsins.
MYND PHOTOS.cOM
Ískalt og svalandi Sum efni í gosi kunna að hafa óæskilegar verkanir.
MYND PHOTOS.cOM