Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.2011, Síða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.2011, Síða 25
Sport | 25Mánudagur 7. mars 2011 Sepp Blatter snýst hugur: Marklínutækni á HM 2014 Sepp Blatter, forseti alþjóðaknatt- spyrnusambandsins FIFA, segist nú fagna komu marklínutækninnar og finnist nothæf tækni verði hún notuð á heimsmeistarakeppninni í Brasilíu árið 2014. Tíu kerfi hafa verið prófuð síðastliðinn mánuð en ekkert þeirra stóðst kröfur FIFA. Sambandið ætlar þó að halda leit áfram út árið 2011. „Marklínutæknin hjálpar dómurun- um,“ sagði Blatter á fundi FIFA. Mikil eftirspurn hefur verið eft- ir slíkri tækni sem lætur dómarana vita hvort boltinn sé inni eða ekki. Blatter hefur ávallt verið á móti því að koma með utanaðkomandi áhrif inn í boltann en hefur nú snúist hugur. Helsta ástæða þess er skand- allinn sem enska landsliðið lenti í á HM þegar augljóst mark Franks Lampards fékk ekki að standa gegn Þýskalandi í 16 liða úrslitum keppn- innar. Búist er við ákvörðun um mark- línutæknina í mars á næsta ári. Blatter sagðist á fundi FIFA vonast til þess að að þær prófanir sem eiga að fara fram í ár leiði til þess að tæknin finnist. „Við munum halda áfram að horfa til tæknilegu hliðarinnar og vonandi koma með þá tækni sem við ætlum að sýna á árlegum fundi FIFA að ári í Lundúnum. Þá verð- ur ákvörðunin tekin. Ef við finnum nothæfa tækni munum við án efa vilja nota hana í boltanum. Ef stjórn sambandsins er sama sinnis sé ég ekkert sem stendur í vegi fyrir því að marklínutækni verði notuð á HM í Brasilíu 2012,“ sagði Blatter. tomas@dv.is Enska úrvalsdeildin Birmingham - WBA 1-3 0-1 Youssuf Mulumbu (47.), 1-1 Jean Beausejour (48.), 1-2 James Morrison (58.), 1-3 Paul Scharner (72.). Arsenal - Sunderland 0-0 Bolton - Aston Villa 3-2 0-1 Darren Bent (15.), 1-1 Gary Cahill (45.+2), 1-2 Marc Albrighton (64.), 2-2 Gary Cahill (74.), 3-2 Ivan Klasnic (86.). Fulham - Blackburn 3-2 1-0 Damien Duff (37.), 1-1 Grant Hanley (46.), 2-1 Damien Duff (59.), 2-2 Junior Hoilett (65.), 3-2 Bobby Zamora, víti (89.). Newcastle - Everton 1-2 1-0 Leon Best (23.), 1-1 Leon Osman (31.), 1-2 Phil Jagielka (36.) West Ham - Stoke 3-0 1-0 Demba Ba (21.), 2-0 Manuel Da Costa (29.), 3-0 Thomas Hitzlsperger (82.). Man. City - Wigan 1-0 1-0 David Silva (37.). Liverpool - Man. United 3-1 1-0 Dirk Kuyt (34.), 2-0 Dirk Kuyt (39.), 3-0 Dirk Kuyt (65.), 3-1 Javier Hernandez (90.+2) Úlfarnir - Tottenham 3-3 1-0 Kevin Doyle (20.), 1-1 Jermain Defoe (30.), 1-2 Jermain Defoe (35.), 2-2 Kevin Doyle (41., víti), 2-3 Roman Pavlyuchenko (48.), 3-3 Stephen Fletcher (87.) STAðAN Lið L U J T M St 1. Man. Utd 29 17 9 3 63:30 60 2. Arsenal 28 17 6 5 57:27 57 3. Man. City 29 15 8 6 45:25 53 4. Chelsea 27 14 6 7 48:23 48 5. Tottenham 28 13 9 6 41:34 48 6. Liverpool 29 12 6 11 39:36 42 7. Bolton 29 10 10 9 42:40 40 8. Sunderland 29 9 11 9 33:35 38 9. Newcastle 29 9 9 11 44:41 36 10. Everton 28 8 12 8 37:37 36 11. Fulham 29 7 14 8 32:31 35 12. Stoke City 29 10 4 15 32:38 34 13. Aston Villa 29 8 9 12 37:50 33 14. Blackburn 29 9 5 15 37:49 32 15. Blackpool 28 9 5 14 42:55 32 16. WBA 29 8 8 13 39:54 32 17. West Ham 29 7 10 12 36:49 31 18. Birmingham 27 6 12 9 26:38 30 19. Wolves 29 8 5 16 34:49 29 20. Wigan 29 5 12 12 27:50 27 Enska B-deildin Burnley - Crystal Palace 1-0 Coventry - Bristol City 1-4 Aron Einar Gunnarsson spilaði allan leikinn fyrir Coventry. Derby - Barnsley 0-0 Leeds - Doncaster 5-2 Norwich - Preston 1-1 Nott. Forest - Hull 0-1 Portsmouth - Sheff. United 1-0 Hermann Hreiðarsson lék allan tímann fyrir Portsmouth og skoraði sigurmark liðsins. QPR - Leicester 1-0 Heiðar Helguson spilaði allan leikinn fyrir QPR og nældi sér í gult spjald. Reading - Middlesbrough 5-2 Brynjar Björn Gunnarsson spilaði allan leikinn fyrir Reading en Ívar Ingimarsson er aftur frá vegna smávægilegra meiðsla. Scunthorpe - Swansea 1-0 Watford - Millwall 1-0 Cardiff - Ipswich 0-2 STAðAN Lið L U J T M St 1. QPR 35 19 13 3 57:20 70 2. Swansea 35 19 5 11 48:31 62 3. Cardiff 35 18 7 10 55:40 61 4. Norwich 35 16 12 7 55:43 60 5. Nottingham F. 35 15 14 6 45:30 59 6. Leeds 35 15 12 8 67:57 57 7. Burnley 33 14 11 8 50:39 53 8. Hull 35 13 13 9 40:36 52 9. Leicester 35 15 7 13 51:52 52 10. Reading 35 12 15 8 56:41 51 11. Portsmouth 35 14 8 13 48:46 50 12. Watford 34 13 10 11 60:51 49 13. Millwall 35 12 11 12 43:37 47 14. Ipswich 34 13 6 15 45:43 45 15. Bristol City 35 12 8 15 45:50 44 16. Barnsley 35 11 10 14 40:51 43 17. Doncaster 35 11 9 15 48:65 42 18. Derby 35 11 7 17 43:48 40 19. Coventry 34 11 7 16 37:44 40 20. Middlesbro 34 10 7 17 42:52 37 21. Cr. Palace 35 9 8 18 33:55 35 22. Scunthorpe 34 10 4 20 32:58 34 23. Sheffield Utd 35 7 8 20 30:55 29 24. Preston 34 5 10 19 36:62 25 Úrslit „Að skora þrennu gegn Manchest- er United er besta upplifun mín á ferlinum,“ sagði kampakátur Dirk Kuyt eftir frábæran sigur Liverpool á efsta liði ensku úrvalsdeildarinn- ar, Manchester United, á sunnu- daginn. Mark Javier Hernandez í uppbótartíma fyrir United dugði skammt því 3–1 sigur Liverpool var síst of stór en líklega var þetta besti leikur liðsins á leiktíðinni. Kuyt skoraði fyrstu tvö mörkin á fimm mínútna kafla í fyrri hálfleik. Það fyrra eftir gjörsamlega stór- kostleg tilþrif Luis Suarez þar sem hann sólaði United-vörnina í tætl- ur. Annað markið kom svo eftir mistök Nanis. Í seinni hálfleik urðu enn ein mistök United, nú hjá Van der Sar, til þess að Kuyt fullkomn- aði þrennuna þegar hann fylgdi eft- ir fastri aukaspyrnu Luis Suarez. Úrúgvæinn Suarez var magnaður í leiknum. Frábær afmælisgjöf Kenny Dalglish hefur marga hildi háð við Manchester United, bæði sem leikmaður og þjálfari. Hann fagnaði sextugsafmæli sínu á föstu- daginn og fékk þá köku frá liðinu. Afmælisgjöfin sem Dirk Kuyt færði honum í gær var þó án efa besta gjöf- in sem hann fékk um helgina. Sigur á erkifjendunum í Manchester United. „Strákarnir eiga skilið allt það lof sem þið getið gefið þeim,“ sagði Dalglish við breska ríkisútvarpið, BBC, eftir leikinn. „Við verðskulduðum sigurinn, það er engin spurning um það. Það skiptir auðvitað máli gegn hverj- um þú ert að spila því við mun- um ekki mæta mikið betri liðum en Manchester United,“ sagði Dalglish sem var ánægður fyrir hönd hetj- unnar Kuyt. „Þrennan var frábær fyr- ir Dirk. Hann hefur unnið mikið fyrir öllu því sem honum hefur hlotnast á ferlinum.“ Hógvær Kuyt Dalglish laug engu þegar hann seg- ir að Liverpool ætti sigurinn skilinn. Liðið spilaði frábærlega, sérstak- lega varnarlega þar sem það gaf fá færi á sér. Fram á við var liðið bein- skeytt og eins og alltaf í leikjum gegn United börðust allir leikmennirnir hatrammlega fyrir sínu. Kuyt þurfti ekki að hafa mikið fyrir mörkum sínum en hann var þó á réttum stað á réttum tíma þrívegis. Tvö mörkin komu eftir undirbún- ing Luis Suarez. „Ég verð að þakka Luis Suarez því hann spilaði frá- bærlega í dag og lagði upp tvö mörk,“ sagði Kuyt hógvær að vanda eftir leikinn. „Þetta voru vissulega nokkuð auðveld mörk. En ég vandist að skora svona mörk í Hollandi þar sem ég spilaði sem framherji,“ sagði Kuyt. „Tapið gegn West Ham í síðustu viku voru vonbrigði en vonandi komumst við aftur á skrið núna eftir þennan sigur.“ Er United að hrynja? Tímabilið mars til maí hefur vanalega verið sá tími sem Manchester United hefur verið hvað sterkast. Nú er lið- ið búið að gera lélegt jafn- tefli gegn Marseille í Meistaradeildinni og tapa gegn Chel- sea og Liverpool í þremur af síðustu fjórum leikjum sínum. Chris Smalling og Wes Brown þurftu að standa vörnina gegn Liverpool en vörnin var gífur- lega óörugg og ef Wes Brown var að spila upp á ferill sinn hjá United gæti honum verið lokið. Nokkuð hefur verið um meiðsli hjá Manchester United og á sunnu- daginn fór Nani af velli vegna meiðsla. Liðið var afskaplega slakt fram á við og máttarstólpar á borð við Ryan Giggs og Paul Scholes gátu lítið sem ekkert. Utanvallar er Sir Alex Fergu- son einnig að taka áhugaverðar ákvarðanir. Eftir tapið gegn Liver- pool talaði hann ekki við fjölmiðla og bannaði leikmönnum að gera það sama. Töluðu þeir held- ur ekki við sína eigin sjónvarps- stöð, MUTV. Vanalega hefur það verið Manchester United sem horfir upp á önnur lið hrynja í kringum sig á meðan það fagnar titl- um. Þessa dagana er útlitið þó ekki gott á Old Trafford. n Kenny Dalglish fagnaði sextugsafmæli sínu með 3–1 sigri á Manchester United n Dirk Kuyt með þrennu n Ferguson fyrirskipaði fjölmiðlabann eftir leikinn Tómas Þór Þórðarson blaðamaður skrifar tomas@dv.is Besta Hetjan Dirk Kuyt skoraði þrennu. MyND REUTERS Afmælisbarnið Kenny Dalglish var að vonum hæstánægður með sigurinn. MyND REUTERS afmælisgjöfin Vill núna marklínutækni Blatter bauð við því sem England þurfti að horfa upp á á síðasta heimsmeistaramóti. MyND REUTERS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.