Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.2011, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.2011, Blaðsíða 6
6 | Fréttir 18.–20. mars 2011 Helgarblað Fékk tæplega þriggja milljarða króna lán frá Glitni: Snúningsfélag Pálma í þrot Eignarhaldsfélagið M21 ehf., sem var í eigu Fons, eignarhaldsfélags Pálma Haraldssonar, hefur verið tekið til gjaldþrotaskipta. M21 var úrskurðað gjaldþrota í Héraðsdómi Reykjavíkur þann 9. febrúar síðastliðinn. Skipta- stjóri er Ólafur Hvanndal Ólafsson héraðsdómslögmaður. Stærsti kröfuhafi M21 ehf., sem var stofnað í janúar 2008, er að öllum líkindum Glitnir. Bankinn veitti M21 ehf. tæplega þriggja milljarða króna lán í febrúar 2008 til að kaupa 22 pró- senta hlut í ferðaþjónustufyrirtækinu Northern Travel Holding, sem átti Iceland Express, Astreus og danska flugfélagið Sterling. Northern Travel Holding var að mestu leyti í eigu Fons og FL Group þegar þetta var en umræddur hlutur í félaginu M21 ehf. hafði verið í eigu fjárfestingafélags- ins Sunds áður en Northern Travel Holding eignaðist hlutinn sjálft. Frá Northern Travel Holding fór hlut- urinn í félaginu svo til M21 ehf. í febrúar 2008 og var það Glitnir sem lánaði fyrir honum. Þess skal getið að FL Group var stærsti hluthafi Glitnis á þessum tíma. Viðskiptin fóru fram rúmu hálfu ári fyrir íslenska efna- hagshrunið. Einu veðin sem lögð voru fram fyrir umræddu láni voru hlutabréf- in í Northern Travel Holding. Þau hlutabréf eru verðlaus í dag og því má ætla að Glitnir fái ekki neitt upp í umrædda þriggja milljarða kröfu, sem væntanlega hefur hækkað nokk- uð frá því lánið var veitt til M21 ehf. Stjórnar- og varastjórnarmenn í M21 ehf. voru Einar Þór Sverrisson og Geir Gestsson lögmenn á lögmanns- stofunni Mörkinni. ingi@dv.is Evrópski þróunarbankinn gæti tapað hluta af rúmlega 2,4 milljarða króna, 15 milljóna evra, fjárfestingu í einu af dótturfélögum eignarhaldsfélagins Milestone. Í mars 2008 fjárfesti bank- inn fyrir 15 milljónir evra í hollenska eignarhaldsfélaginu Pharma Invest- ment B.V. sem var í eigu Milestone. Pharma Investment átti og rak 180 apótek í fimm löndum í suðaustur- hluta Evrópu, Króatíu, Makedóníu, Serbíu, Ungverjalandi og Rúmeníu. Milestone var úrskurðað gjald- þrota í september árið 2009 en lyfja- verslanir Pharma hafa verið í rekstri æ síðan samkvæmt heimildum DV. Lyfjaverslanirnar eru því meðal þeirra eigna sem eru í eigu þrotabús Milestone að hluta og mun hluti af söluverðmæti verslana Pharma In- vestment því væntanlega renna til kröfuhafa Milestone þegar þar að kemur. Glitnir er langstærsti kröfu- hafi Milestone með um 40 milljarða króna kröfu á félagið. Lyfjaverslanirnar voru hluti af út- rás Milestone til Austur-Evrópu á ár- unum fyrir íslenska efnahagshrunið en meðal þess sem þeir keyptu þar um slóðir var dvergbankinn Stater í Makedóníu sem og tvær vínekrur þar í landi svo eitthvað sé nefnt. Unnið er að sölu Unnið er að því að reyna að selja Pharma Investment um þessar mundir og því hefur enginn, hvorki Milestone né Evrópski þróunarbank- inn, tapað á fjárfestingunni hingað til. Ekki liggur hins vegar ljóst fyrir hvað mun fást fyrir lyfjaverslanirnar. Þegar það liggur ljóst fyrir mun koma í ljós hvort bankinn tapar á fjárfest- ingunni eða ekki. Söluverðmæti lyfjaverslananna mun svo skiptast á milli bankans og þrotabús Mile- stone. Upphaflega var Pharma Invest- ment stofnað vegna eignarhalds Milestone á lyfjaverslununum Lyfj- um og heilsu. Í tilkynningunni frá Milestone í mars 2008 þar sem sagt var frá fjárfestingu bankans í Pharma var sagt að uppbygging Pharma byggðist á þekkingu Lyfja og heilsu á lyfja- og smásölumarkaðnum á Ís- landi. Fjárfest þrátt fyrir ógjaldfærni DV hefur ekki heimildir fyrir því af hverju Evrópski þróunarbankinn fjárfesti í Pharma eða hvernig sam- skipti Milestone við bankann áttu sér stað. Bankinn var stofnaður árið 1991 í kjölfar falls Sovétríkjanna og kommúnismans í Austur-Evrópu til að auðvelda markaðsvæðingu í fyrrum kommúnistaríkjum í álf- unni og einnig í Mið-Asíu. Tilgang- ur bankans hefur frá upphafi verið að byggja upp og styrkja markaðs- hagkerfi á þessu svæði með þátt- töku í ýmsum fjárfestingarverkefn- um, annaðhvort með lánveitingum eða beinni fjárfestingu í samvinnu við einkaaðila. Fjárfesting Evrópska þróunar- bankans hefur hins vegar án vafa komið sér vel fyrir Milestone þar sem félagið var orðið ógjaldfært í árslok 2007, líkt og kemur fram í skýrslu endurskoðendafyrirtækis- ins Ernst og Young um starfsemi Milestone sem unnin var fyrir þrotabú félagsins. Milestone hafði leitað logandi ljósi að lánveitingum frá tugum erlendra banka frá sumr- inu 2007 en ekkert hafði gengið. Um þetta segir í skýrslu Ernst og Young: „Samkvæmt upplýsingum frá fyrr- verandi fjármálastjóra Milestone ehf. [Arnari Guðmundssyni, innskot blaðamanns] áttu aðilar frá Ask- ar Capital hf. ýmist einir eða með aðilum frá Milestone ehf. fundi með tugum banka í Evrópu, en ekki náð- ist að loka neinum lánasamningi.“ Þegar engin lánastofnun vildi Milestone ákvað Evrópski þróun- arbankinn hins vegar að fjárfesta í félagi sem var í eigu Milestone. Út frá því sem kemur fram hér að ofan verður því að teljast líklega að hvatinn að fjárfestingu bankans í Pharma hafi komið frá Milestone. Þróunarbanki gæti tapað á Milestone n Evrópski þróunarbankinn setti 15 milljónir evra í dótturfélag Milestone í mars 2008 n Félagið á 180 lyfjaverslanir í Austur-Evrópu n Unnið er að því að selja lyfjaverslanirnar n Enginn banki vildi fjármagna Milestone á þessum tíma Ingi Freyr Vilhjálmsson fréttastjóri skrifar ingi@dv.is Fjárfesti í Milestone Evrópski þróunarbankinn fjárfesti í dótturfélagi Milestone fyrir um 2,4 milljarða króna að núvirði í mars árið 2008. Karl Werners­ son var aðalaeigandi Milestone. Rakið til Lyfja og heilsu Rekja má stofnun Pharma til starfsemi Lyfja og heilsu á Íslandi en Milestone var einnig eigandi íslenska félagsins. tapað milljörðum á Milestone Keypti bréf í NTH af NTH Félag Fons keypti hlutabréf í Northern Travel Holding af félaginu sjálfu fyrir tæpa þrjá milljarða króna í febrúar 2008. Ráðherrar rúnir trausti: Fleiri treysta Ólafi Ragnari Traust til Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, hefur aukist til muna undanfarið ár. Í nýrri könnun MMR á trausti almennings til forystufólks í stjórnmálum sögðust flestir, eða 41,7 prósent þeirra sem tóku af- stöðu, bera mikið traust til Ólafs. Í síðustu könnun, sem gerð var í maí í fyrra, sögðust 26,7 prósent bera mikið traust til hans. Hlutfall þeirra sem sögðust bera lítið traust til hans minnkar einnig talsvert. Þannig segjast einungis 25,3 prósent bera lítið traust til hans samanborið við 46,9 prósent í síðustu könnun. Þá sögðust 22,3 prósent þeirra sem tóku afstöðu bera mikið traust til Steingríms J. Sigfússonar fjár- málaráðherra borið saman við 37,6 prósent í síðustu könnun. Þá kváðust 16,9 prósent þeirra sem tóku afstöðu bera mikið traust til Jóhönnu Sig- urðardóttur borið saman við 23,9 prósent í síðustu könnun. Vantraust á Steingrím J. Sigfússon hefur aukist verulega en 55,9 prósent þeirra sem tóku afstöðu sögðust bera lítið traust til hans en þeir voru rúm 40 prósent í síðustu könnun. Sömu sögu er að segja um Jóhönnu Sigurðardóttur en 60,5 prósent þeirra sem tóku afstöðu sögðust bera lítið traust til hennar borið saman við 52,9 prósent í síð- ustu könnun. Traust til Bjarna Benedikts- sonar eykst en 19,1 prósent þeirra sem tóku afstöðu sagðist bera mikið traust til hans nú en voru 13,8 pró- sent í síðustu könnun. Könnunin var framkvæmd dag- ana 8. til 11. mars og var um að ræða síma- og netkönnun. 902 einstak- lingar svöruðu könnuninni. 50 prósent afsláttur af völdum umgjörðum G L E R A U G N AV E R S L U N G A R Ð A B Æ J A R G A R Ð AT O R G I Fóru inn í ólæstar bifreiðar Farið var inn í nokkrar ólæstar bif- reiðar á Suðurnesjum aðfaranótt fimmtudags og gramsað í þeim í leit að verðmætum. Lögreglan á Suðurnesjum brýnir af þessu til- efni fyrir fólki að læsa bifreiðum sínum og geyma ekki verðmæta hluti í mannlausum bifreiðum. Sé það óumflýjanlegt er mikilvægt að slíkir hlutir séu ekki í augsýn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.