Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.2011, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.2011, Blaðsíða 26
26 | Erlent 18.–20. mars 2011 Helgarblað Danny Glover, Hollywood-leikarinn góðkunni sem er hvað þekktastur fyr- ir að hafa farið með hlutverk lögreglu- mannsins Rogers Murtaugh í spennu- myndaflokknum Tveir á toppnum (e. Lethal Weapon), er kominn til Suður- Afríku til að hitta fyrir Jean-Bert rand Aristide, fyrrverandi forseta Haítí. Glover ætlar sér að fylgja Aristide aft- ur til Haítí, en forsetinn fyrrverandi hefur verið í útlegð í Suður-Afríku undanfarin sjö ár. Allt síðan árið 2007 hefur Aristide lýst yfir áhuga sínum á að snúa að aftur til Haítí, en árið 1990 varð Aristide fyrsti lýðræðislega kjörni forseti landsins síðan 1957. Aristide undirstrikaði ósk sína um að snúa aft- ur til Haítí í kjölfar hins ógurlega jarð- skjálfta sem skók Haítí í byrjun árs- ins 2010 og skildi eftir sig 230 þúsund manns í valnum. Endurkoma hefur til þessa verið ómöguleg þar sem yfir- völd á Haítí sviptu Aristide vegabréfi þegar hann var sendur á brott árið 2004. Í fótspor Baby Doc Verði af endurkomu Aristide fetar hann í fótspor Jean-Claude „Baby Doc“ Duvalier, sem annar fyrrverandi leiðtogi Haítí til að snúa aftur á heima- slóðir á skömmum tíma. Baby Doc var hrakinn frá völdum árið 1986 en þá hafði hann, sem eftirmaður föður síns, haldið um stjórnartaumana á Haítí síðan árið 1957. Duvalier-feðgarnir, Papa og Baby Doc, nýttu sér óspart öryggissveitir sínar til að þagga niður gagnrýnisraddir í þeirra garð, bæði með ofbeldi og ritskoðun. Þeir hikuðu heldur ekki við að stunda sannkallað kóngalíferni og drógu óspart að sér fé úr ríkiskassanum á meðan þjóð þeirra barðist við fátækt og hungursneyð. Baby Doc hafði lifað í vellysting- um í París, höfuðborg Frakklands, allt síðan hann var rekinn á brott. Hann kom öllum að óvörum þegar hann sneri aftur til Haítí þann 15. janúar. Hann sagði að þrátt fyrir að hann væri kominn aftur, þá ætlaði hann sér ekki frama í stjórnmálum. Að eigin sögn langar hann einungis að hjálpa til við enduruppbyggingu landsins í kjölfar jarðskjálftans mikla. Skrautleg tíð á valdastóli Ólíkt Baby Doc var Aristide kosinn til embættis forseta, og það ekki bara einu sinni heldur þrisvar. Hann þurfti til að mynda að þola valdarán hersins undir lok ársins 1990 eftir aðeins eitt ár í embætti en var aftur kosinn árið 1994. Þá sat hann í valdastóli í tvö ár og vann síðar aftur forsetakosning- ar árið 2001 og var forseti til ársins 2004. Hann hrökklaðist úr embætti þá eftir byltingu sem var skipulögð af fyrrverandi meðlimum hersins, en þá hafði Aristide leyst upp herinn á Haítí – enda sá hann engan tilgang fyrir Haíta að halda úti hinum kostn- aðarsama her. Herinn hafði enda ein- ungis verið brúkaður til að hafa hemil á eigin þjóð, þá helst í þágu Duvalier- feðga. Framfarir í forsetatíð Aristide naut snemma mikilla vin- sælda almennings á Haítí. Hann er fæddur árið 1953 og er menntað- ur til prests, en hann var snemma einn helsti talsmaður lýðræðislegra stjórnarhátta á Haítí – bæði í valda- tíð Baby Doc sem forseta og herfor- ingjastjórnarinnar sem tók við völd- um árið 1986. Þegar Aristide tókst að sitja óáreitt- ur í forsetastóli tókst honum að koma fjölmörgu til leiðar sem var sam- félaginu til bóta. Hann endurbætti heilbrigðiskerfið svo um munaði og tryggði aðgang almennings að heilsu- gæslu. Hann barðist fyrir því að þeir sem væru sakaðir um glæpi fengju sanngjarna málsmeðferð fyrir dóm- stólum, og lagði jafnframt áherslu á betri menntun dómara. Áður fyrr tíðkaðist það að grunuðum glæpa- mönnum var hent í steininn eða þeir jafnvel teknir af lífi – án dóms og laga. Aristide lagði blátt bann við mansali, sem var einnig algengt á Haítí – sem og ólöglegri sölu á líffærum til ann- arra landa. Aristide tvöfaldaði lág- markslaun á vinnumarkaði og setti af stað byggingarframkvæmdir sem tryggðu þúsundum húsaskjól á við- ráðanlegu verði. Hann bauð bændum fjárhagsaðstoð til að koma ræktun af stað og niðurgreiddi einnig matvöru svo almenningur gæti keypt hana undir markaðsverði. Mesta afrekið í menntun Aristide var ávallt á þeirri skoðun að lykilinn að endurreisn Haítí fælist í menntun. Þegar hann tók fyrst við forsetaembættinu voru um 65 pró- sent þjóðarinnar ólæs. Á meðan krafta hans naut við lét hann byggja 192 nýja grunnskóla og 102 framhaldsskóla, en þeir voru rétt rúmlega 30 í byrjun síðasta áratugar síðustu aldar. Þeg- ar hann tók við völdum var menntun munaður sem var aðeins á færi fárra og aðeins um þriðjungur barna átti þess kost að sækja grunnskóla. Þegar Aristide var bolað frá völdum voru 72 prósent barna á skólaaldri innrituð í skóla. Hann hóf einnig víðtækt lestr- arátak meðal fullorðinna og tókst að draga verulega úr ólæsi, en talið er að um 40 prósent Haíta séu ólæs enn þann dag í dag. Það er einmitt á sviði menntunar sem Aristide vill láta til sín taka um þessar mundir. Hann hefur útilokað möguleikann að snúa aftur í stjórn- mál, þrátt fyrir að hann sé óneitanlega á besta aldri. Aristide vill lyfta grettis- taki í menntun Haíta, þar sem hann telur margt enn óunnið – þó hann hafi vissulega afrekað margt á því sviði nú þegar. Enn óvíst um endurkomu Aristide hefur lagt áherslu á að fá að snúa aftur til Haítí sem fyrst. Á sunnu- dag fer fram önnur umferð í forseta- kosningum á Haítí en frambjóðend- urnir tveir, þau Mirlande Manigat og Judé Celestin sem líklegust eru til að bera sigur úr býtum, hafa bæði lýst yfir andstöðu sinni við endurkomu Aristide. Þá hafa bandarísk stjórnvöld einnig hvatt til þess að endurkomu Ar- istide verði seinkað fram yfir kosning- arnar, ella gæti hún haft áhrif á úrslit kosninganna. Aristide nýtur í öllu falli stuðnings þekktra einstaklinga, þar á meðal má nefna bandaríska þingmanninn Jesse Jackson og söngvarann og mann- réttindafrömuðinn Harry Belafonte – auk fyrrnefnds Dannys Glover. Glo- ver, sem hefur mestmegnis dregið sig í hlé frá kvikmyndaleik, er nú stjórnar- formaður mannréttindasamtakanna Trans Africa Forum. Hann skrifaði á heimasíðu samtakanna um málið. „Fólk með góða samvisku getur ekki horft upp á það aðgerðalaust þeg- ar fyrrverandi einræðisherra [Baby Doc] getur snúið aftur til heimalands síns óhindrað, á meðan lýðræðislega kjörinn forseti sem langar til að snúa aftur fær það ekki vegna utanaðkom- andi þrýstings,“ sagði fyrrverandi has- armyndahetjan. Glover hefur einnig biðlað til Jacobs Zuma, forseta Suður- Afríku, um að bjóða fram hjálp sína með því að útvega Aristide einkaþotu – svo hann geti snúið aftur til Haítí sem allra fyrst. STJARNA STYÐUR ARISTIDE n Danny Glover, sem varð heimsfrægur fyrir Lethal Weapon-myndirnar, er kominn til Suður-Afríku til að sýna Jean-Bertrand Aristide, fyrrverandi forseta Haítí, stuðning n Aristide vill snúa aftur til Haítí og hjálpa til við enduruppbyggingu landsins n Hann vann mörg afrek sem forseti en vill nú einbeita sér að menntun þjóðar sinnar Björn Teitsson blaðamaður skrifar bjorn@dv.is Kvikmyndastjarnan Danny Glover hefur starfað sem sérstakur sendiherra Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, UNICEF, og sem stjórnarformaður mannréttindasamtakanna Trans Africa Forum. Verð aðeins 89.900 kr. miðað við tvo í herbergi Innifalið. Flug, skattar, 4ra stjörnu hótel með morgunverð, rúta til og frá flugvelli, íslenskur fararstjóri. Zagreb höfuðborg Króatíu er ægi fögur borg í Mið-Evrópu sem rekur upphaf sitt til ársins 1094. Röltu um einhverja þeirra fögru almenningsgarða sem er að finna í Zagreb, þræddu göngustígana og virtu fyrir þér hinar óteljandi mörgu fallegu byggingar sem prýða borgina, listaverkin, söfnin, kíktu á markaðinn og andaðu að þér liðinni sögu sem er að finna við hvert fótmál. Þá eru í boði spennandi skoðunarferðir innan sem utan borgarinnar. RIGA Hin forna Zagreb í beinu flugi 21. - 25. apríl Fær ekki að koma heim Jean-Bertrand Aristide var lýðræðislega kjörinn forseti Haítí og hefur verið í útlegð í sjö ár. Óvíst er hvort hann fái að snúa aftur til heimalands síns. Fékk að koma heim Jean-Claude „Baby Doc“ Duvalier sneri aftur til Haítí í janúar. Hann dró sér ómældar fjárhæðir í valdatíð sinni og lét myrða og pynta eigin þjóð.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.