Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.2011, Qupperneq 28

Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.2011, Qupperneq 28
Í dag, þegar ég ætti að vera að rita um lagaumhverfi sem bannað gæti bæði vítisengla og þjófafélag Framsóknarflokksins, krossvendi ég kvæði mínu og dusta rykið af rit- gerðartitli frá því er ég var í gagn- fræðaskóla. Spurningu minni um það hvort Zaraþústra hefði í raun og veru sprungið í tætlur var reynd- ar aldrei svarað. Enda fjallaði þessi ritgerð mín um heimsókn mína til nokkurra íslenskra rithöfunda. En þegar einn af þessum ágætu mönn- um féll frá núna fyrir skemmstu, kom ritgerðin aftur upp í huga mér. Í dag leyfi ég mér að grípa til tit- ilsins góðkunna, vegna þess, að sem heimspekinemi ætla ég hér og nú að koma endanlega á kortið kenningu minni um unað letinnar. Ég hélt því fram, á meðan góðærið ærði alla, að þjóðin ætti að einbeita sér í leti. En í mínum huga er leti í hreinni and- stöðu við græðgi. Ég hef lengi sagt: Leti er dyggð. Og þessum orðum mínum vil ég nú fylgja úr hlaði sem hinum eiginlega grunni heimspeki- kenninga minna um eðli manna og kjarna þess sem kallast sál. Hvati allra framfara er letin. En það sem fyrst og fremst letur menn í framfaraþágu er athafnagleði eða græðgi. Þetta skilja einungis þeir sem vita að leti er dyggð og að leti hefur að ósekju fengið á sig slæmt orðspor í tímanna rás. En illt umtal sitt fékk letin hjá evrópsku yfirvaldi; lénsherrum, fógetum, prestum, biskupum og kóngum, þar eð þetta fólk vildi hafa letina fyrir sig. Let- in átti að vera einkaeign yfirstétt- arinnar (rétt einsog peningarnir eiga að vera í dag) og á meðan yfir- stéttin lifði í vellystingum; umvafin leti, losta og öðrum dásamlegum dyggðum, var því logið að lýðnum að hann skyldi þræla sér út í þágu velsældar. Ég á eftir að leiða ykkur, kæru lesendur, í allan sannleika um gildi trúar á leti og í sameiningu munum við hvítþvo þá fögru dyggð af öll- um rógburði. Letin er og verður hið sannasta af öllu sönnu. Öll okkar verk miðast við það að gera aldrei meira en nógu lítið og fyrir það vilj- um við þiggja sem mesta umbun. Ef einhver guð skapaði alheiminn, hlýtur hann að hafa gert það með eins litlum tilkostnaði og unnt var, en með endalausum væntingum. Hann vildi fá allt fyrir nánast ekkert. Já, kæru vinir, þegar okkur hefur öll- um lærst að letin er fegurst dyggða þá fyrst verður virkilega og óendan- lega dásamlegt að lifa í þeim heimi sem í dag er stjórnað af vinnusemi og óhóflegri græðgi. Letin skal með lögum tryggð þótt lítils sé hún metin því ekki virkar önnur dyggð einsog blessuð letin. 28 | Umræða 18.–20. mars 2011 Helgarblað „Látið mig í friði! Þetta er kjána- legt.“ n Ed Westwick um æðið sem rann á íslenskar stúlkur við komu hans til landsins. – Tatler Magazine „Er það virkilega rétt að á Íslandi í dag séu kýr og svín sem fá aldrei að sjá dagsljós?“ n Linda Pétursdóttir um hag dýra á Íslandi. – DV „Mér finnst svolítið merkilegt að þú vinnir á Mogganum og hafir aldrei heyrt um Staksteina.“ n Ingvi Hrafn Jónsson, sjónvarpsstjóri ÍNN, við sjónvarpsmanninn Nilla. – MBL sjónvarp „Landeyjahöfn er hönnuð eins og pylsubrauð.“ n Árni Johnsen þingmaður í þingsálykt- unartillögu um úttekt á málefnum Herjólfs. – Alþingi „Eftir nokkra umhugsun ákvað ég samt að kýla á það.“ n Knattspyrnumaðurinn Gunnar Heiðar Þorvaldsson sem nýverið gekk í raðir ÍBV er farinn aftur utan til Norrköping og spilar því ekki með Eyjamönnum í sumar.– Vísir Kjördæmapotarinn Leiðari Bókstaflega Reynir Traustason ritstjóri skrifar Allso, sprakk Zaraþústra? Skáldið skrifar Kristján Hreinsson „Ég hélt því fram, á meðan góðærið ærði alla, að þjóðin ætti að einbeita sér í leti. Apafréttastofan n Gamansemin í Bítinu á Bylgj- unni ríður ekki við einteyming. Á miðvikudag skemmtu umsjónar- mennirnir og Gissur Sigurðsson fréttamaður sér konunglega yfir því að einhver apafréttastofa hefði tekið við- tal við Jón Gnarr borgarstjóra sem er í Vínarborg í óljósum erindagjörðum á með- an skólakerfið í Reykjavík stendur í ljósum logum. Apafréttastofan hafði eftir Jóni að hann ætlaði að segja já við Icesave vegna þess að hann væri orðinn leiður á málinu. Tromp Lúðvíks n Baráttan um formannssætið í VR er nú hafin af fullum þunga. Krist- inn Örn Jóhannesson vill endurkjör en það verður að teljast í meira lagi ólíklegt. Viðskiptasið- fræðingurinn umdeildi Stefán Einar Stefánsson sækist einnig eft- ir embættinu. Þá er Lúðvík Lúðvíks- son, sem laut í lægra haldi síðast fyr- ir Kristni, einnig mættur í slaginn. Hann spilaði út feitu trompi á fundi formennsefna þegar hann gaf VR nafnið Verzlunarmannfélag Reykja- víkur. Gjöfin er þó háð því að félagið taki að nýju upp sitt gamla nafn. Fréttamaður gegn fuglum n Þorbjörn Þórðarson, fréttamaður Stöðvar 2, missti að hluta stjórn á sér vegna örgreina hæstaréttarlögmanna í Fréttablaðinu um Icesave. Skrifaði fréttamaðurinn status á Facebook- síðu sína með eins konar fordæmingu á skrifunum og taldi það stríða gegn náttúruvernd að eyða pappír í þess háttar. Um 20 mínútum síðar eyddi hann færslunni. Smáfuglar amx.is höfðu þá komist á snoðir um málið og gerðu grín að fréttamanninum og særðu viðkvæman hégóma hans. Nú er Þorbjörn kominn í ritdeilu við smá- fuglana ógurlegu en það er eitthvað sem flestir vilja forðast. Löskuð náhirð n Náhirð Davíðs Oddssonar er nánast orðin hornreka í íslensku samfélagi. Viðbrögð landsmanna við greinum lögfræðinganna sjö úr náhirðinni sem birst hafa í Fréttablaðinu síðustu daga eru til marks um að áróður hirðarinn- ar eigi upp á pallborðið hjá sífellt færra fólki. Landsmenn – meira að segja þorri sjálfstæðismanna – eru einfald- lega orðnir þreyttir á Davíð Oddssyni og hirðinni í kringum hann. Náhirðin er hins vegar þannig að þeim mun meiri gagnrýni sem hún fær á sig, og þeim mun færri sem hlusta á hana, þeim mun hærra hefur hún. Eitt hið besta sem Ólafur Stefánsson, ritstjóri Fréttablaðsins, getur gert til að grafa frekar undan náhirð Davíðs, sem bol- aði honum úr Hádegismóum á sínum tíma, er að halda áfram að birta ör- greinarnar frá lögfræðingunum sjö því þær hafa öfug áhrif en ætlað er. Sandkorn TRYGGVAGÖTU 11, 101 REYKJAVÍK Útgáfufélag: DV ehf. Stjórnarformaður: Lilja Skaftadóttir Ritstjórar: Jón Trausti Reynisson, jontrausti@dv.is og Reynir Traustason, rt@dv.is Fréttastjóri: Ingi Freyr Vilhjálmsson, ingi@dv.is Ritstjórnarfulltrúi: Jóhann Hauksson, johann@dv.is Umsjón helgarblaðs: Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir, ingibjorg@dv.is Umsjón innblaðs: Ásgeir Jónsson, asgeir@dv.is DV á netinu: dv.is Aðalnúmer: 512 7000, Ritstjórn: 512 7010, Áskriftarsími: 512 7080, Auglýsingar: 512 7050. Smáauglýsingar: 512 7004. Umbrot: DV. Prentvinnsla: Landsprent. Dreifing: Árvakur. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Það ætti að vera liðin tíð að þingmenn einstakra byggð-arlaga eða svæða standi í því sem kallað hefur verið kjör- dæmapot. Sú krafa er uppi að þing- menn allir vinni sameiginlega að heill þjóðarinnar og láti af því að hygla sínum á kostnað heildarinn- ar. Einn harðsvíraðasti kjördæma- potari landsins er Sigmundur Ern- ir Rúnarsson sem berst fyrir því að kjósendur hans á Akureyri og í ná- grenni geti ekið undir Vaðlaheiði. Sigmundur og félagar hans hafa af- hent einkafyrirtæki verkefnið sem áætlað er, samkvæmt umdeildum reiknikúnstum, að kosti rúma 10 milljarða króna. Rökstuddar grun- semdir eru uppi um að verkefnið sé miklu dýrara. Í Bítinu á Bylgjunni staðhæfði Sigmundur að framkvæmdin væri ríkinu óviðkomandi þar sem pen- ingarnir kæmu annars staðar frá. Þetta er þvæla. Augljóst er að ríkið ber þyngsta ábyrgð á framkvæmd- inni og tekur mikla áhættu. Lán upp á meira en 10 milljarða króna skerðir möguleika á öðrum lán- tökum. Lýðskrumarinn heldur því fram að svo sé ekki. Honum vafð- ist þó tunga um tönn þegar bent var á að Vaðlaheiðargöng ættu ekki að ganga fyrir framkvæmdum við fjöl- marga stórhættulega vegi á Íslandi. Sigmundur Ernir er augljóslega að kaupa sér vinsældir fyrir norðan með taktlitlum vængjaslætti sínum. Hann slapp inn á þing fyrir slysni. Þar hefur hann sumpart hegðað sér með þeim undarlega hætti að engin ástæða ætti að vera til þess að hann nái endurkjöri. Kjördæmapotarinn býr í Grafarvogi í Reykjavík. Ef Sig- mundur væri að hugsa um þjóðar- hag væri hann fyrsta kastið að berj- ast fyrir Sundabraut, nærri heimili sínu, eða jarðgöngum í Oddskarði sem er reyndar í kjördæmi hans. Þar er af nógu að taka en atkvæð- in eru fleiri í grennd við Akureyri. Tími jarðganga undir Vaðlaheiði er ekki kominn ennþá. Íslendingar verða að taka hönd- um saman um að uppræta á Al- þingi það innistæðuleysi sem Sig- mundur Ernir er samnefnari fyrir. Kjördæmapoti og lýðskrumi verður að halda niðri svo sem kost- ur er. Það gerist með því að kjósa ekki þessa gerð manna oftar en einu sinni. Alþingi er fyrir í litlum metum á meðal almennings. Þar verður að koma til endurnýjun. Við þurfum betri þingmenn sem hugsa fyrst og fremst um hag allrar þjóð- arinnar. Ágæti borgarstjóri. Mig langar með bréfi þessu að miðla til þín af reynslu minni í ljósi fyrirhugaðr- ar breytingar á rekstri leik- og grunn- skóla Reykjavíkur. Sú reynsla sem ég vitna til spannar 20 ár sem stjórnandi, meðal annars hjá einu af stærstu fyrir- tækjum heims, IBM, þá var ég fram- kvæmdastjóri hjá Símanum og Sam- skipum, forstjóri hjá Opnum kerfum og nú rek ég eigið ráðgjafafyrirtæki. Sem stjórnandi hef ég unnið að mörgum sameiningarverkefnum þar sem stórar deildir og svið eru sam- einuð sem og heilu fyrirtækin. Sum verkefnin voru unnin með öllum hagsmunaaðilum, eigendum, starfs- mönnum og stjórnendum frá byrj- un. Önnur voru unnin og kláruð af yfirstjórn, sett í framkvæmd í fram- haldinu og reynt að fá alla til liðs við framkvæmd breytinganna. Margar af þessum sameiningum tókust vel á meðan markmið annarra náðust ekki. Sem betur fer lærðist það fljótt að þær sameiningar sem ekki voru unnar frá upphafi með öllum hagsmunaaðilum voru dæmdar til að mistakast. Það er því lykilatriði að hafa alla hagsmuna- aðila með frá byrjun. Mun ekki skila tilætluðum árangri Nú nýverið skilaði starfshópur á veg- um Reykjavíkurborgar af sér skýrslu um tækifæri til samrekstrar og/eða sameiningar leikskóla, grunnskóla og frístundaheimila. Í skýrslunni kemur fram að haft hafi verið samband við fulltrúa foreldra með það að markmiði að upplýsa um störf nefndarinnar sem og fá viðbrögð við tillögum og hugmyndir um aðgerð- ir. Tekið er fram að foreldrar og starfs- fólk hafi varað við sameiningum og þá segir í skýrslunni að umræðupunktar rýnihópa hafi hvorki verið flokkaðir né túlkaðir. Öll þessi viðleitni starfshóps- ins við að kalla til hagsmunaaðila hef- ur mistekist, annars vegar vegna þess að foreldrar og starfsfólk upplifði ekki þessa viðleitni sem samstarf og um- ræður og fundir undanfarna daga eru til sönnunar um það. Hins vegar virðist við lestur skýrslunnar að ekki hafi ver- ið tekið mark á tillögum og viðbrögð- um foreldranna. Í ljósi ofangreinds fullyrði ég að fyr- irhugaðar sameiningar muni ekki skila tilætluðum árangri. Reiði foreldra og starfsmanna mun koma niður á fyrir- hugðuðu sameiningarferli með ófyr- irsjáanlegum afleiðingum, einkum og sér í lagi þar sem við erum að höndla með fjöregg þjóðarinnar, börnin okkar. Þessar tillögur eru nú settar fram sem aðgerðir til sparnaðar í kjölfar bankahruns. Töluglöggur einstakling- ur er ekki lengi að sjá að fyrirhugað- ar sameiningar og breytingar eru ekki settar fram með sparnað í huga. Þær 169 milljónir sem þær eiga að skila á ári jafngilda eingöngu 0,3 prósentum af heildarrekstri Reykjavíkurborgar (A-hluta) og 0,65 prósentum af rekstri mennta- og leikskólasviðs borgarinn- ar. Sameiningarferli eru í eðli sínu dýr og munu éta þennan meinta sparnað upp og meira til. Þess vegna er það rangt að tengja þessar breytingar við hagræðingu vegna bankahrunsins. Ef einhvern langar til að tengja þetta verkefni við banka, þá ætti að tengja það við vaxtastig því þessi meinti sparnaður jafngildir eingöngu 0,07 prósenta breytingu á vaxtakjörum borgarinnar (A- og B-hluta). Metnaður fyrir öflugu skólastarfi Ágæti Jón, í ljósi ofangreinds mæli ég eindregið með að hætt verði við fyrir- hugaðar sameiningar. Besti flokkur- inn lofaði okkur því að hann myndi koma með nýjar nálganir, skemmti- legar nálganir. Það er hægt að ná ótrú- legum árangri með því að vinna með aðstæður og virkja þau öfl í umhverf- inu sem hafa skilning, metnað, vilja og getu til að gera góða hluti. Ég vona að þín upplifun af fundum með foreldr- um og starfsfólki leik- og grunnskóla í Grafarvogi og Breiðholti sé sú að þar séu foreldrar og starfsfólk sem skilur þá stöðu sem þjóðfélagið er í, hefur metnað fyrir öflugu skólastarfi og fullt af hugmyndum um það hvernig hægt sé að ná fram sparnaði án þess að tefla í tvísýnu því öfluga skólastarfi sem nú er unnið. Ef þið mynduð til dæmis gefa hverjum skóla tækifæri til að vinna að hugmyndum með foreldrum og jafn- vel nemendum þá er ég þess fullviss að þannig vinnubrögð myndu skila meiru en þeim 169 milljónum króna sparnaði á ári sem að er stefnt. Verkefni á villigötum Kjallari Agnar Már Jónsson „Við þurfum betri þingmenn.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.