Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.2011, Blaðsíða 62

Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.2011, Blaðsíða 62
62 | Fólkið 18.–20. mars 2011 Helgarblað L ilja Ingibjargardóttir tekur und- ir með leikaranum Ed West- wick að eins konar bítlaæði hafi gripið um sig í miðbæ Reykja- víkur þegar Gossip Girl-stjarnan var stödd hér á landi í janúar síðastliðn- um. Eins og DV greindi frá á mið- vikudag tjáði Ed sig um heimsóknina til landsins í breska tímaritinu Tatler. Í tímaritinu sagði Ed að hann hefði stanslaust þurft að koma sér undan ágengu íslensku kvenfólki. „Þetta var eins og bítlaæðið. Ég var alveg: Látið mig í friði! Þetta er kjánalegt,“ sagði Westwick í viðtalinu en Lilja tekur undir með honum. „Þær voru náttúrulega brjálaðar þarna. Ég skildi samt ekki af hverju þær létu svona því hann var frekar dónalegur en þegar þú sérð idol-ið þitt þá kannski skiptir það ekki máli,“ segir hún um ummæli leikarans. Rétt eftir heimsókn leikarans til landsins sagði Lilja frá því í samtali við DV að hann hefði verið dónalegur og ókurteis við íslenskt kvenfólk sem veitti honum athygli. „Konur hrifust af honum og sóttu að honum en hann var drukkinn og brást illa við. Hann sparkaði í stelp- ur, grýtti myndavélum þeirra í jörðina og kom illa fram við þær,“ sagði hún þá um hátterni stjörnunnar. Westwick stoppaði stutt hér á landi en hann fór á pöbbarölt eftir að flugi hans til Lundúna seinkaði vegna veð- urs. Leikarinn kom meðal annars við á Kaffibarnum en ekki leið á löngu þar til hann var umkringdur stúlkum og var orðrómurinn um veru hans í mið- bænum fljótur að berast um bæinn. „Það voru alveg hundrað stelpur að elta hann niður Laugaveginn.“ Lilja segist þó ekki hafa verið í hópi þessara stúlkna og segir að í hennar tilfelli hafi þessu verið þveröfugt farið. „Við vor- um ekki endilega að elta hann neitt, við vorum bara að labba niður Lauga- veginn. Við vorum að labba fyrir fram- an hann og hann var nánast að elta okkur og biðja okkur um að koma með sér.“ Lilja segir að Westwick hafi reynt að forðast íslenska kvenfólkið sem var á eftir honum. Westwick, sem fer með hlutverk Chuck Bass í þáttunum vinsælu, þyk- ir einn sá myndarlegasti í bransanum. Lilja segir að íslenskar konur haldi mikið upp á leikarann og að það út- skýri kannski ágengni þeirra. „Já, ég myndi segja það, en þá sérstaklega fullra kvenna,“ segir hún og hlær. „Þá kemur dýrseðlið í ljós.“ Þrátt fyrir að það hafi verið gaman að hitta stjörn- una segir Lilja að það sé ekki efst á list- anum hjá sér að fara út að skemmta sér með Westwick. „Ég held að ég hafi fengið nóg þarna.“ „Hann var nánast að elta okkur“ n Lilja Ingibjargardóttir er sammála Gossip Girl-stjörnunni Ed Westwick n Segir hundrað íslenskar konur hafi elt Ed niður Laugaveginn n Myndi ekki vilja fara út að skemmta sér með honum Ætlar ekki á Eagles Leikarinn og tónlistarmaðurinn Magnús Jónsson, einnig þekktur undir listamanns- nafninu Blake, er ekki spenntur fyrir Eagles-tónleikunum sem haldnir verða 9. júní næstkomandi. „Mér er nokkuð sama hver fer á Eagles! Ekki mikið en þó nokkuð!“ segir hann á Facebook-síðu sinni. „Grunar jafnvel að ég komist í gegnum daginn!“ Eagles-tónleikarnir hafa verið auglýstir mikið síðustu daga en miðar á tónleikana kosta á bilinu 14.900 til 19.000 krónur. Það virðist vera nokkuð ljóst að Magnús verður ekki í hópi þeirra sem ætla að eyða mörg þúsund krónum í nokkurra tíma skemmtun með félögunum í Eagles. Gekk á undan Westwick Lilja segist ekki hafa verið að elta Gossip Girl-stjörnuna í miðbænum. Mynd Björn BLöndaL Fílaði sig eins og bítil Westwick segist hafa upplifað bítlaæði í miðbæ Reykjavíkur. Mynd rEutErS Rikka og Svana í Kolaportinu á laugardag Heyrst hefur að æskuvinkonurnar Friðrikka Hjördís Geirsdóttir, betur þekkt sem bollakökubakarinn Rikka, og Svanhvít Friðriksdóttir almannatengill hafi að undanförnu tekið til í hirslum sínum og geymslum og ætli að vera með bás í Kolaportinu á laugardag. Eflaust verður hægt að finna margt skemmtilegt í kössunum hjá stelpunum en báðar eru annálaðar smekkmann- eskjur. dóra takefusa og Kolbrún Pálína Helgadóttir: Fríðar í Feneyjum Dóra Takefusa prýðir for- síðu Nýs Lífs í marsmánuði. Ritstjóri Nýs Lífs er Kolbrún Pálína Helgadóttir og það væri ekki í frásögur færandi nema fyrir þær sakir að fyrir áratug fóru þær saman til Feneyja með Birni Blöndal ljósmyndara og sátu fyrir á afar skemmtilegum mynd- um sem DV fann í safni sínu. Eins og sést hafa þær breyst svolítið í tímans rás en þó má með sanni segja að þær tvær séu jafnvel enn fegurri í dag. MyndIr Björn BLöndaL
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.