Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.2011, Blaðsíða 45

Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.2011, Blaðsíða 45
Fókus | 45Helgarblað 18.–20. mars 2011 Hvað er að gerast? n Dr. Spock rokkar í Nasa Dr. Spock heldur tónleika á Nasa á föstudagskvöld. Liðsmenn sveitarinnar hafa verið uppteknir við önnur verkefni, svo sem borgarpólítíkina, og því má vænta þess að losað verði um uppsafnaða streitu. Dr. Spock hugar að nýrri plötu en á tónleikunum ætlar sveitin að rifja upp ferilinn og guli gúmmíhanskinn verður ekki langt undan. Með Dr. Spock koma fram Endless Dark og Cliff Clavin. Tónleikarnir hefjast klukkan 22.00. n Söngleikjatónlist og suðrænt hlaðborð Tjarnarbíó og Majónes – leikhúsbar ætla að standa fyrir margvíslegum tónlistar- skemmtunum í framtíðinni þar sem boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá og mat í sal Tjarnarbíós undir nafninu Stundin. Það er söngkonan Margrét Eir sem hefur dag- skrána á föstudagskvöldið. Stundin hefst með mat klukkan 18.30. En það eru þær Áslaug Snorra og Anna Bogga sem bjóða gestum upp á suðrænt, flúrað hlaðborð. Söngleikjastundin hefst svo klukkan 20.00 og þá mun Margrét flytja lög úr ýmsum söngleikjum. Sérstakur gestur verður söngvarinn og leikarinn Þór Breiðfjörð sem er nýfluttur heim eftir farsælan söngleikja- feril á West End og í Evrópu. Þór og Margrét sungu saman í söngleiknum Hárinu fyrir nokkrum árum. Gestir hafa val um að fara bæði í mat og á tónleika fyrir 3.900 kr. eða á tónleikana eingöngu fyrir 2.900 kr. n Minningartónleikar um Bjössa Biogen Á laugardagskvöldið klukkan 18 verða haldnir minningartónleikar í Tjarnarbíói um Bjössa Biogen sem lést langt fyrir aldur fram í síðastliðnum mánuði. Það er hópur vina Bjössa sem setur saman tónleika með rafrænni tónlist, vídeólist og alls kyns upp- ákomum tengdum tónum, víddum og litum. Tónleikarnir standa yfir í 6 klukkustundir og er aðgangseyrir aðeins 1.000 krónur. Þeir sem koma fram eru: Andre & Árni Vector, Yagya, Stereo Hypnosis, Skurken, Bix, Futuregrapher, Quadruplos, Ruxpin, Agzilla, Tanya & Marlon, Frank Murder, Or- ang Volante, Tonik, Thor og Mummi (Video Artist). Leikar hefjast kl. 18 laugardaginn 19. mars. Allir gefa vinnu sína og allt umfram fé fer til fjölskyldu Bjössa og þau ráðstafa því í úgáfu á tónlist eða annað fallegt sem þeim hugnast. n Heaven Shall Burn á Íslandi Þýska jaðarsveitin Heaven Shall Burn mætir hingað til lands í þriðja sinn og heldur hér tvenna tónleika, annars vegar í TÞM (Hellinum) á föstudag og hins vegar á Cafe Amsterdam á laugardag. Upphitunar- sveitir á föstudegi eru: Endless Dark, Andlát og Dysmorphic en á laugardaginn munu Gone Postal, Angist og Ophidian I sjá um upphitun. Ekkert aldurstakmark er á fyrri tónleikana og hefjast þeir klukkan 20.30. Seinni tónleikarnir hefjast klukkan 23.00 og er 18 ára aldurstakmark. Aðgangseyrir á báða tónleika er 2.000 kr. n Tvær nýjar sýningar í Hafnarborg Laugardaginn kl. 15 verða tvær nýjar sýningar opnaðar í Hafnarborg. Varanlegt augnablik; málverk eftir Sigtrygg Bjarna Baldvinsson og Þorra Hringsson og sýningin Birgir Andrésson og vinir. n Bessastaðaprinsessan í Þjóðleikhúsinu Börn og foreldrar skemmta sér stórkostlega vel á Ballinu á Bessastöðum í Þjóðleikhús- inu enda mikill fengur að því að sjá nýtt og ferskt íslenskt barnaleikrit með söngvum og sprelli. Verkið er byggt að hluta á hinum geysivinsælu Bessastaðabókum eftir Gerði Kristnýju og tónlistin er eftir Braga Valdimar Skúlason, sem meðal annars hefur getið sér gott orð með Baggalúti og Memfismafíunni, en semur nú í fyrsta sinn tónlist fyrir leikhús. 18 mar Föstudagur 19 mar Laugardagur 20 mar Sunnudagur „Reynir orðaði þetta þannig að maður væri sífellt að kynnast mynd- inni upp á nýtt. Fyrst liggur mynd- in í handritinu. Næst er maður með kvikmynd sem einhvers konar hrá- efni, eftir tökurnar. Þá tekur við klipp- ing, hljóðsetning og tónlist. Þarna þarf að vera valið fólk í hverju rúmi,“ segir Hrönn. „Allir þessir þræðir, stórir og smá- ir, þurfa að vera réttir til þess að verkið gangi upp. Reyndar er skemmtilegt að segja frá því að Haraldur, sem er karakt- er Þorsteins, hefur haldist óbreyttur í gegnum allt þetta ferli. Við erum búin að raða í kringum hann alls kyns pers- ónum og aukasögum úr öllum áttum, en hann er eins,“ bætir Hrönn við. Hvað gerist nú? Það er þó væntanlega ekki nóg að vinna að einu verkefni árum saman. Fleiri hljóta að vera í bígerð? „Við erum alltaf með marga bolta á lofti, mörg verkefni í undirbúningi á hverjum tíma,“ segir Hrönn. Við höfum hins vegar ekki gert neitt af því að senda frá okkur frétta- tilkynningar þótt við kaupum kvi- myndaréttinn að bók, eða þess háttar. Þetta er bara vinna sem heldur áfram. En það má örugglega fara einhvern milliveg, því við höfum stundum verið þöglar sem gröfin alveg fram að frum- sýningu,“ segir Anna María. „Nú erum við nýlega búnar að setja saman hóp í kringum mjög spenn- andi sjónvarpsverkefni. Þetta er upp- runaleg hugmynd frá Ingu Björk Sól- nes. Þarna er Silja Hauksdóttir sem bæði mun taka þátt í að skrifa og mun svo leikstýra. Svo er þarna Ólöf Skafta- dóttir. Þarna eru á ferðinni þrjár kon- ur að skrifa, og ein þeirra mun leik- stýra, sem er gott og skemmtilegt. Við höfum reyndar sérstakan áhuga á að vinna með konum, sérstaklega sem handritshöfundum og leikstjórum. Þetta verður eins konar fótboltas- telpudrama. Söguþráðurinn vefur sig utan um eitt keppnistímabil í stelpu- boltanum,“ segir Hrönn. „Þetta er mjög skemmtilegt verk- efni sem inniheldur sitt lítið af hverju, húmor og drama þar á meðal. Íþrótta- heimurinn getur reyndar verið mjög fyndinn og þarna verða alls kyns árekstrar á milli kynjanna. Þetta er líka mjög mikilvægur tími í lífi þessara stelpna. Þær eru að máta sig við lífið á marga vegu, ekki bara inni á vellinum heldur líka utan vall- ar. En svo verður þetta auðvitað sexí, svona búningaklefadrama. Núna erum við að afla peninga til þess að halda áfram með handrita- skrifin. Við hefðum mögulega getað farið í tökur í sumar, en það stendur tæpt þannig að líkast til verður þetta tekið upp sumarið 2012,“ bætir Anna María við. Úr þjóðsögunum „Svo erum við líka með annað verk- efni í pípunum sem kallast Sjáðu svarta rassinn minn. Þarna eru pers- ónur og fleira sótt í þjóðsagnabrunn Jóns Árnasonar með hliðsjón af bók sem systurnar Brynhildur og Þórey, Heiðars- og Ómarsdætur skrifuðu og kom út fyrir síðustu jól. Þarna eru kvenhetjurnar teknar sérstaklega út og unnið með þær. Við höfum þegar gert uppkast að þessu fyrir sjónvarp og erum jafnvel að hugsa um að byrja þannig, en þarna er mjög mikið af efni sem alltaf kemur á óvart. Oft ævintýralegt efni, til dæm- ist stelpa sem á beinagrind fyrir vin- konu og fleira á þeim nótum,“ segir Anna María. „Það má reyndar alveg taka það fram í leiðinni að við erum með áframhaldandi verkefni í farvatn- inu með Þorsteini Guðmundssyni og Reyni Lyngdal, sem er eiginlega of snemmt að segja mikið nánar frá. Við viljum vinna áfram með þeim, þeir eru frábærir eins og stelpurnar,“ segir Hrönn og glottir. Femínismi og kvikmyndagerð Í þessari samræðu má greina að fram- leiðslufyrirtækið Ljósband sé að ein- hverju leyti rekið sem femínísk stofn- un. „Við erum konur og að einhverju leyti er það óhjákvæmilegt,“ segir Anna María. Hrönn bendir á að fjöldi kvenna sem vinnur við kvikmyndagerð sé ekki endilega lítill. Það sé hins veg- ar skortur á kvenkyns handritshöf- undum og kvenleikstjórar virðist eiga undir högg að sækja. „Ég tel að það sé mjög mikilvægt að hæfileikaríkar konur fái tækifæri til þess að þroskast og mótast áfram sem handritshöfundar og leikstjórar,“ segir Hrönn. „Það er óhjákæmilega hlutverk framleiðendanna að taka þessi skref. Annars verður engin breyting þarna á,“ bendir Anna María á. „Lykillinn að breytingum er kannski sá að konur segi söguna. Lausnin liggur ekki endilega í því að fleiri konur leikstýri handritum eftir karla. Það er þeirra eigin vinkill sem þarf að sjást,“ segir Anna María. „Þetta er líka uppeldislegt atriði, í miklu stærra samhengi,“ segir Hrönn og bætir við: „Þetta á samhljóm við prógrammið sem Geena Davis hefur sett fram, sem heitir Looking for Jane. Þar er hún til dæmis að skoða hvað verður til þess að stelpur draga sig í hlé frá því að skrifa sögur, mála mynd- ir og gera annað skapandi og upp- byggilegt, en strákarnir halda áfram. Geena er með prógramm í gangi þar sem hún vinnur að því að hvetja stelpur til þess að halda áfram og hafa þannig samfellu, í stað þess að detta út í fimm til sjö ár, þar sem aðeins er hugsað um útlitið og flestu öðru fórn- að.“ Anna María undirstrikar orð Hrannar: „Stelpurnar virðast hverfa, rétt um það bil sem markaðurinn fer að einbeita sér að útliti þeirra og hvernig þær geti gengið í augun á karlmönnum. Þessi fókus markaðar- ins virðist reyndar færast á sífellt yngri stúlkur.“ Snýst um úthaldið „Þrátt fyrir alla þessa áherslu á fem- ínísk gildi í rekstrinum hjá okkur, þá er staðan samt sú að frá 2007 höfum við gert tvær leiknar kvikmyndir í fullri lengd, sem báðar eru skrifaðar af körlum og leikstýrt af körlum. Þannig hefur þetta gerst. Þetta eru myndir sem okkur hefur tekist að fjármagna og þær hafa komist á koppinn. Við erum hins vegar jafnt og þétt að leitast við að fá handrit skrifuð af konum,“ segir Anna María. „Þetta er miklu meira langhlaup en að gera myndir með körlum og verður að hugsast þannig. Það þarf að gefa sér tíma til þess að ná þess- um markmiðum. Þessi vilji okkar til þess að vinna með konum útilokar auðvitað ekki karla frá þessari vinnu. Þetta er bara eitt af markmiðum okkar,“ segir Hrönn. „Sem tekur langan tíma að ná og þess vegna þarf að vinna einbeitt að þeim. Það lýsir þessu ágætlega að það sem fyrir neytandann er níu- tíu mínútna afþreying í bíóhúsi er kannski dauðans alvara fyrir okkur í allt að tíu ár,“bætir Anna María við. Þess vegna snúist vinna þeirra svo mikið um að hafa úthald til lengri tíma, eins og raun beri vitni. sitgryggur@dv.is Vinkill kvenna þarf að sjást Okkar eigin Osló Brynhildur, Þorsteinn og Reynir slaka á í kvöldsólinni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.