Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.2011, Blaðsíða 42
Þ
egar móðir Theresu Knorr dó
árið 1961 lagðist hún í þung
lyndi. Sextán ára að aldri gift
ist hún manni að nafni Clif
ford Clyde Sanders og eignuðust þau
son, Howard Clyde Sanders, 1964.
Eðli málsins samkvæmt lauk
hjónabandi Theresu og Cliffords
þegar hún skaut hann til bana sum
arið 1964. Réttað var yfir Theresu en
hún sýknuð þar sem talið var að hún
banað honum í sjálfsvörn, en um
þetta leyti var hún þunguð af sínu
öðru barni, Sheilu Gay Sanders, sem
fæddist 1965.
Þegar þar var komið sögu gekk í
garð tími tíðra barneigna hjá The
resu. Hún varð ólétt að þriðja
barninu og þegar hún var sjö mán
uði gengin giftist hún föður þess
barns, Robert Knorr. Barnið, Suesan
Marlene Knorr, fæddist í september
1966.
Ári síðar kom William Robert
Knorr í heiminn og árið 1968 fæddist
Robert Wallace Knorr yngri. En ekki
var allt búið enn því árið 1970 eign
aðist Theresa þriðju dótturina, The
resu „Terry“ Marie Knorr.
Öfund í garð æskuþokkans
Þrátt fyrir að ekkert barna Theresu
færi varhluta af líkamlegu og and
legu ofbeldi af hálfu móður þeirra
sluppu bræðurnir þrír öllu betur.
Ástæða þess, að sögn Terry, var að
Theresa lagði takmarkalítið fæð á
dæturnar sem voru að breytast í fal
legar ungar konur á sama tíma og
fegurð Theresu sjálfrar fölnaði.
Árum saman níddist Theresa á
dætrum sínum, pyntaði þær á marga
vegu, þar á meðal með því að brenna
þær með sígarettum, berja þær og
niðurlægja. En Theresa lét ekki þar
við sitja því hún skólaði syni sína
í að taka þátt í óhugnaðinum með
sér; kenndi þeim að berja, aga og
halda systrunum niðri. Börnin voru
neydd til að berja hvert annað og
halda systkinum sínum niðri á með
an gengið var í skrokk á þeim.
Illskan og hatrið sem Theresa
ól með sér í garð dætranna virtist
ekki eiga nokkur takmörk og ekki
nóg með að þær þyrftu að búa við
grimmilegt ofbeldi heima við held
ur neyddi Theresa þær aukinheldur í
vændi. En verra var í vændum.
Vændi og dauði
Tvítug að aldri var Sheila neydd til að
selja sig svo hún gæti lagt fram sinn
skerf til að greiða reikninga. Sheilu
hugnaðist ekki tilhugsunin, en gerði
sem henni var sagt. Sér til mikill
ar furðu komst hún að því að frelsi
hennar jókst, hún gat komið og far
ið eins og henni hentaði. Einnig dró
úr barsmíðum móður hennar – svo
lengi sem hún aflaði tekna.
Slík var undirgefni Sheilu, eða
vald móður hennar yfir henni, að
þrátt fyrir að fá tækifæri til að hafa
samband við lögregluna eða strjúka
að heiman lét hún sig hafa ánauðina
sem hún var föst í.
Vegna vændisins smitaðist Sheila
af kynsjúkdómi og hélt móðir hennar
því fram að hún gæti smitað hana
með því að nota sama salerni. Skip
aði Theresa því Terry, yngstu dóttur
inni, að handjárna Sheilu við borðfót
í eldhúsinu þegar kvöldaði svo hún
gæti ekki notað baðherbergið.
Sheila sætti barsmíðum, var ríg
bundin og neydd til að vera inni í
litlum skáp þar sem hún eyddi síð
ustu dögum lífs síns án vatns og mat
ar. Theresa lét elsta son sinn koma
líkinu fyrir í kassa og láta það hverfa.
Suesan skotin
Þá var röðin komin að Suesan. Hún
var einnig send í vændi en fyrir ein
hverjar sakir dró ekkert úr ofbeldinu
í hennar garð.
Sumarið 1983 sló í brýnu með
Suesan og móður hennar. Theresa
viðhafði engar vífilengjur, greip 22
kalíbera skammbyssu og skaut Sue
san í bringuna. Sat kúlan föst í baki
Suesan, en móðir hennar neitaði að
leita til læknis og gerði Suesan að
liggja í baðkerinu þar sem hún skyldi
bíða dauða síns. Fyrir kraftaverk dó
Suesan ekki og brá móðir hennar
á það ráð að hlekkja hana fasta við
baðkerið og hóf að „hjúkra“ henni.
Þrátt fyrir illan aðbúnað lifði Suesan
af og var vart orðin heil heilsu þeg
ar móðir hennar sendi hana aftur í
vændið.
En Suesan var orðið nóg boðið og
árið 1984 lofaði hún að þegja yfir öllu
sem gengið hafði á ef hún bara fengi
að fara sína leið. Það var auðsótt mál,
sagði móðir hennar – með einu skil
yrði. Að hún fengi að fjarlægja kúl
una úr baki Suesan, sennilega með
það fyrir augum að fjarlægja sönn
unargögn.
Dýrkeypt frelsi
Suesan þótti það sennilega ekki hátt
verð fyrir frelsið og gekk að sam
komulaginu. Theresa notaði meðal
annars viskí sem deyfilyf og skipaði
Robert, bróður Suesan, að fjarlægja
kúluna. Það var gert með dúkahníf
á elhúsgólfinu. Ekki tókst betur til en
svo að sýking komst í sárið og Suesan
fékk óráð. Suesan var þá handjárnuð
við borðfót í eldhúsinu, klædd í bleiu
og þurfti að þola að systkini henn
ar gengu nánast yfir hana þar sem
hún lá. Theresa sagði veikindi Sue
san vera af völdum djöfulsins og að
eldur væri eina leiðin til að losna við
skrattann.
Robert og William fengu það verk
efni að hjálpa Theresu að losna við
Suesan. Þau óku til Sierra Nevada,
lögðu Suesan á jörðina, heltu bens
íni yfir hana og brenndu hana lifandi.
Eina dóttirin sem slapp lifandi úr
klóm Theresu var sú yngsta, Terry. Að
hennar sögn var það vegna þess að
hún stóð uppi í hárinu á móður sinni
þegar hún fór fram á að Terry bæri
eld að heimili fjölskyldunnar svo öll
um ummerkjum um hryllinginn sem
þar hafði átt sér stað yrði eytt.
Reynslulausn möguleg 2027
Theresa Knorr var handtekin árið
1993 eftir að Terry hafði samband
við yfirvöld. Þann 5. nóvember var
Theresa ákærð meðal annars fyr
ir tvö morð og áform um tvö morð.
Hún lýsti sig saklausa af ákærunum
en venti sínu kvæði í kross þegar hún
komst að því að einn sona hennar
hugðist vitna gegn henni. Til að forð
ast dauðadóm játaði Theresa sig seka
um öll ákæruatriðin. Hún mun geta
sótt um reynslulausn árið 2027.
Þess má geta að Terry dó úr
hjartaslagi árið 2003, 32 ára að
aldri.
ÖFUNDAÐI DÆTURNAR
AF ÆSKUÞOKKANUM
42 | Sakamál Umsjón: Kolbeinn Þorsteinsson kolbeinn@dv.is 18.–20. mars 2011 Helgarblað
n Theresa Knorr fæddist í Sacramento í Kaliforníu 1946 n Hún var yngst
systkina sinna og hænd að móður sinni n Seinna beitti hún eigin dætur
ólýsanlegri grimmd n Theresa lét syni sína ganga í skrokk á systrum sínum„Sheila sætti
barsmíðum, var
rígbundin og neydd til að
vera í inni litlum skáp þar
sem hún eyddi síðustu
dögum lífs síns án vatns
og matar.
Óstjórnlegt hatur Theresa Knorr öfundaði dætur sínar af æskuljómanum.