Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.2011, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.2011, Blaðsíða 17
Fréttir | 17Helgarblað 18.–20. mars 2011 Embætti biskups, sóknarnefnd Sel- fossprestakalls og prestunum tveim- ur í prestakallinu hefur ekki tekist að setja niður deilu sem risið hefur milli prestanna um verkaskiptingu þeirra og valdsvið. Séra Karl Sigurbjörnsson biskup lítur svo á að ákvörðun hans í málinu frá 11. maí í fyrra standi og áréttaði þann skilning nýverið í bréfi til sóknarnefndarinnar. Þrátt fyrir um- kvartanir og algeran trúnaðarbrest milli séra Kristins Ágústs Friðfinns- sonar sóknarprests annars vegar og séra Óskars H. Óskarssonar og Ey- steins Ó. Jónassonar hins vegar, lítur biskup svo á að málið sé nú í hönd- um heimamanna og reyna verði á það hvort prestarnir geti starfað saman. Lausn málsins virðist ekki í sjónmáli. Málið var rætt á aðalsafnaðarfundi Selfossprestakalls síðastliðinn sunnu- dag. Byrjaði með sameiningu Deilurnar má rekja til sameining- ar Hraungerðisprestakalls og Selfos- sprestakalls. Sameiningin var ákveð- in af kirkjuþingi árið 2009 gegn vilja biskups sem vildi fresta sameiningu prestakallanna. Í sérhverju prestakalli er aðeins einn sóknarprestur. Séra Gunnar Björnsson var hættur í Selfos- sprestakalli á þessum tíma og þótti lag vera til sameiningar. Samkvæmt lög- um og venjum hefði sá sóknarprest- ur sem eftir var, séra Kristinn Ágúst, átt að vera sóknarprestur í sameinuðu prestakalli. Vegna stærðar prestakalls- ins var ákveðið að ráða aðstoðarprest við hlið séra Kristins. Séra Óskar varð fyrir valinu. Ágreiningur um verkaskiptingu Eftir því sem næst verður komist gekk samstarf klerkanna snurðulaust í fyrstu. Þegar fram liðu stundir vildi séra Óskar fá umsjón með Selfoss- sókn. Lögum samkvæmt hafði sókn- arpresturinn, séra Kristinn Ágúst, forræði á sinni hendi sem hinn rétt- skipaði sóknarprestur en um verka- skiptingu gátu hann og séra Óskar einnig samið. Séra Óskar mun hafa upplýst, að krafa hans um forræði og umsjón með Selfosssókn og þar með Selfosskirkju byggðist á loforði frá því áður en hann sótti um embættið. Hvorki séra Krist- inn né umsækjendur um stöðuna, sem séra Óskar hlaut, vissu af slíku lof- orði eftir því sem næst verður komist. Snurða hljóp á þráðinn í samskipt- um prestanna og endaði málið á borði séra Karls Sigurbjörnssonar biskups. Hann reyndi að ná sáttum og tók af skarið með því að ákveða einhliða skiptingu starfa milli séra Kristins og séra Óskars. Athygli vekur að ákvörð- unin var mjög í anda þess sem séra Óskar taldi að sér hefði verið lofað fyr- irfram er hann sótti um prestakallið. Biskup ákvað með öðrum orðum að séra Óskar skyldi hafa umsókn með daglegu kirkjustarfi í Selfosskirkju, undirbúa starfsmannafundi og fleira, þó í samráði við sóknarprestinn, séra Kristin. Í þjóðkirkjulögum er ótvírætt kveð- ið á um að séu prestar fleiri en einn í prestakalli skuli þeir undir forystu sóknarprests skipta með sér störfum í samræmi við almennar starfsregl- ur þar að lútandi. Hnykkt er á þessu í starfsreglum presta frá 1998: „Sóknar- prestur skal vera í fyrirsvari um kirkju- legt starf (safnaðarstarf) í sóknum prestakalls síns og hafa forystu um mótun þess og skipulag.“ Þannig er ætlast til þess að sóknarpresturinn hafi frumkvæði að boðun funda og stjórni þeim til að móta og skipuleggja starfið. Lækningin verri en sjúkdómurinn? Í ákvörðun biskups kom meðal ann- ars fram að í samræmi við starfsregl- ur um presta hefði prófastur hlutast til um að sóknarprestur og prestur í Sel- fossprestakalli skiptu með sér verkum. Jafnframt að samkomulag um skipt- ingu starfa hafi legið fyrir í aðalatrið- um. Ágreiningur væri þó um daglegt kirkjustarf við Selfosskirkju. Hér er að sjá sem séra Karl biskup hafi orðið hluti deilunnar einmitt af þeirri ástæðu að hann tók að sér að gefa út tilskipun um verkaskiptingu prestanna tveggja. Annar kostur hefði verið að fylgja lögum og starfsreglum bókstaflega. Biskup ákvað 11. maí í fyrra að séra Óskar skyldi hafa umsjón með dag- legu kirkjustarfi í Selfosskirkju sam- kvæmt árlegri áætlun um safnaðar- starfið og á grundvelli samkomulags um skiptingu starfa. Hann fól jafn- framt séra Óskari að undirbúa starfs- mannafundi í Selfosskirkju þó í sam- ráði við sóknarprest og sóknarnefnd. Rembihnútur Ágreiningur prestanna virðist við þetta einungis hafa magnast. Séra Óskar mun hafa lýst því yfir við sókn- arnefnd að hann hygðist fylgja eftir úrskurði biskups með því að boða til funda og stjórna þeim. Þessu hefur séra Kristinn mótmælt enda væri slíkt varla í samræmi við ákvörðun bisk- ups um að slíkt skuli gert í samráði við sóknarprestinn séra Kristin. Eins og DV hefur greint frá hef- ur enn kastast í kekki í samskiptum prestanna með þeim afleiðingum að séra Kristinn kvartaði til biskups og bað um að séra Óskar yrði áminntur. Í síðasta mánuði sendi séra Karl biskup bréf til sóknarnefndarinnar en hún fjallaði um það 6. mars síðastlið- inn. Í fundargerð hennar segir: „Ljóst er að sóknarprestur hefir að undan- förnu verið með margvíslegar um- kvartanir við biskup vegna sr. Óskars H. Óskarssonar án vitundar sóknar- nefndar og sr. Óskars. Rekur biskup þær kvartanir í bréfi sínu, en hafn- ar þeim síðan með öllu og hafnar því einnig að sr. Óskari verði veitt áminn- ing eins og sr. Kristinn leggur til. Þá ít- rekar biskup ákvörðun sína frá 11. maí 2010 að prestur [sr. Óskar] skipuleggi starfsmannafundi í samráði við sókn- arprest og sóknarnefnd. Sóknarnefnd leggur áherslu á það góða fyrirkomu- lag, sem verið hefur bæði um gerð starfsáætlana og starfsmannafundi í Selfosskirkju og haldist óbreytt með umsjón sr. Óskars. Ljóst er að ákvörð- un biskups frá 11. maí stendur óhögg- uð.“ Deilurnar virðast í öngstræti. Þær voru ekki til lykta leiddar á aðalsafn- aðarfundi Selfossprestakalls síðast- liðinn sunnudag. Biskupsembættið lítur svo á að boltinn sé heima í héraði og upp á prestana standi að reyna sitt ítrasta til að vinna saman í samræmi við ákvörðun hans. Sóknarnefndin, undir forystu Eysteins Ó. Jónassonar sóknarnefndarformanns, hefur tek- ið afstöðu með biskupi eins og hér er rakið. Eysteinn fylgir séra Óskari að málum, sem ráða má af því, að Ey- steinn neyddist á dögunum til að biðja séra Kristin opinberlega afsökunar á bréfi sem hann hafði sent honum í fyrrahaust. n Prestadeilan á Selfossi er í hnút og trúnaðarbrestur alger n Biskup reyndi að leysa málið með tilskipun n Þjóð- kirkjulögin með öðrum prestinum, biskup og sóknarnefnd með hinum Prestadeila í hnút Jóhann Hauksson blaðamaður skrifar johann@dv.is Biskup Séra Karl Sigurbjörnsson biskup ákvað verkaskiptingu prestanna í maí í fyrra. Ekki er með öllu ljóst hvort ákvörðunin byggir á þjóðkirkjulögum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.